Morgunblaðið - 20.03.1998, Blaðsíða 65
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 20. MARZ 1998 65
FÓLK í FRÉTTUM
Laxatartar með capers, rauðrófum, lauk og eggjarauðum kr. 910,-
Kjúklingalundir, humar og sniglar með mirinsósii kr. 1420,-
Reyktur áll með spergilfrauði og silungahrognum kr. 1150,-
Grafin gæs á stökku blaðsalati með vi 1 lisveppavinogrette kr. 970,-
Glóðarsteiktir humarhalar með hvítlaukssmjöri kr. 1480,-
Risotto með fersku grænmeti kr. 1480,-
Pasta ineð grænmetis- og tómatcongas kr. 1390,-
Eggjanúðlur með sjávarréttum kr. 1620,-
Glóðarsteiktur silungur með mangó og chilisósu % kr. 1410,-
Grillaður lax með appelsínuengifersósu kr. 1420,-
Grillaður karfi cajun með mangósalsa kr. 1540,-
Glóðarsteiktir sérvaldir humarhalar í skel kr. 33Ö0,-
Grillaður barri með temburisósu og peru-chutney kr. 1720,-
Grilluð lúðukótiletta með rækjum og hvítlaukssmjöri kr. 1810,-
Skötuselur með rauðvíns-beikonsósu kr. 1790,-
Tempura humar með whasabi-vinogrette og sake kr. 2900,-
Appelsínuönd % | kr. 2800,-
Hunangsgljáðar andabringur með piparrót og hnetuin kr. 2750,-
Kanilkairýkrydduð grísalund með krabbasmjöri kr. 2150,-
Kjúklingur Krahy (austurlenskur réttur) kr. 1920.-
Kjúklingabringa með smokkfisk og kolkrabba kr. 1870,-
Eldsteikt piparsteik með koníaksrjómasósu / / kr. 2650,-
Primerib BBQ (300 gr. af eðal nautakjöti) / kr. 2380,-
Nautasteik Naustsins með humri og piutvínssósu kr. 2850,-
Tomedos klassík mcð rauðvíns- og béamaisesósu kr. 2600,-
Kjötstrimlar að mcxíkóskum hætti kr. 2100,-
Hreindýr, svartíugl, gæs, skarfur, rjúpa, lundi. selur, dúiui.
kanínur, hvalur, fílsungar, villiönd, froskalappir, íasani
villilax, elgur, strútur, villisvín og fieira.
Naustið Vesturgötu 8 - Sími 552 3030 og Fax 561 7758
www.islandia.is/~naustid
Verður
myndin jafn
umdeild og
bókin?
'
(?>/? Humarsúpa Hardy 's
(SHSM/uf/t' Austurlensk sjávarréttasúpa
' Suðurevrópsk skelfískssúpa
Koníaks-ísturn með blönduðum berjum
Ávaxtaostaterta með papaya mannelaði
Calvados-böðuð epli með vanilluís
kr. 740-
kr. 780,-
kr. 720,-
ÞAÐ ÞARF ekki að koma neinum á
óvart að kvikmyndin Primary Colors
er orðin bitbein fjölmiðla þótt verði
ekki verið frumsýnd fyrr en um
næstu helgi í Bandaríkjunum. Enda
er myndin byggð á umdeildri met-
sölubók um pólitíska refskák þar
sem ekki er farið dult með að for-
setaframboð Clintons árið 1992 er í
forgrunni.
Nú síðast vakti deilur að myndin
var auglýst í sjónvarpsþættinum 60
mínútur rétt á eftir viðtali við
Kathleen Willey, þar sem hún sakaði
forsetann um að kynferðislegt áreiti.
CBS-sjónvarpsstöðin gaf hins vegar
út þá yfirlýsingu að það hefði verið
tilviljun. Auglýsingatíminn var
keyptur í desember og settur á dag-
skrá fyrr í mánuðinum „áður en ljóst
var hvað yrði í þættinum," sagði í yf-
iriýsingunni.
TRAVOLTA fer með hlutverk
forseta Bandarfkjanna.
Tekið mjúklega á Clinton?
„Fjölmiðlar
fara
offari"
Því hefur einnig verið haldið fram
að John Travolta, sem leikur metn-
aðarfullan og kvensaman forseta-
frambjóðanda í myndinni, hafi sam-
þykkt að fara mjúkum höndum um
forsetann í myndinni gegn því að
Clinton beitti sér gegn meintum
hömlum á vísindakirkjuna í Þýska-
--------------- landi. Travolta
þvertekur fyrir
það.
„Ég ræddi aldrei
_______________við forsetann um
" Primary Colors.
Ekki var minnst á kvikmyndina í
samræðum okkar,“ segir hann. „Við
áttum langar umræður um vísinda-
kirkjuna og ástandið í Þýskalandi,“
heldur hann áfram. „Ríkisstjórnin í
Þýskalandi reyndi aldrei að banna
myndii' mínar né myndir Tom
Cruise vegna þess að við værum í
vísindakirkjunni. Það er rangt. Það
voru mótmæli fyrir utan kvikmynda-
hús þar sem „Mission Impossible"
og „Phenomenon“ voru sýndar, en
stjórnvöld höfðu ekkert með þau að
gera.“
I upphafsdrögum kvikmyndarinn-
ar Primary Colors er atriði þar sem
Emma Thompson, sem leikur eigin-
konu ríkisstjórans, stendur í fram-
hjáhaldi við ungan ráðgjafa í kosn-
ingunum. Orðrómur hefur verið á
kreiki um að atriðið hafi verið klippt
út vegna þrýstings frá Hvíta húsinu
og Universal kvikmyndaverinu sem
framleiðir Primary Colors.
Emma Thompson segir í nýlegu
viðtali að þetta sé „hreint og klárt
kjaftæði. Fjölmiðlar fara offari í
þessu máli. Atriðið kom ekki vel út,
var ekki nógu fágað og það gróf und-
an mikilvægum atriðum sem fylgdu í
kjölfarið. Það var Mike Nicols sem
hafði áhyggjur af því að atriðið gerði
meira ógagn en gagn fyrir myndina.
Þetta er hans mynd, en hann var svo
vinsamlegur að taka sér tíma til þess
að útskýra fyrir öllum leikurunum af
hverju hann klippti atriðið úr mynd-
inni.“
Hanks var boðið hlutverkið
Nicols segir að hneykslið í kringum
Monicu Lewinsky hafi ekki haft nein
áhrif á Primary Colors: „Við lukum
við myndina áður en ásakanirnar
komu upp á yíirborðið. Hið kald-
hæðnislega er að umfjöllunarefni
myndarinnar er farið að narta í hæl-
ana á okkur. Það hefur mun meii’a
vægi en þegar við hófumst handa við
myndina. Tíminn á svo eftir að leiða í
Ijós hvort það skilar sér í rneiri að-
sókn.“
Tom Hanks átti upphaflega að
leika forsetaframbjóðandann en dró
sig til baka. Nicols stendur fast á
því að ástæðan hafí ekki verið vin-
átta Hanks við Clinton-hjónin.
„Þetta var einungis vegna þess að
hann var upptekinn. Slíkt er alltaf
að koma fyrir. Þegar ég komst að
því að Tom var ekki fáanlegur í
hlutverkið fór ég rakleiðis til John.
Núna sé ég engan annan fyiúr mér i
hlutverkinu."
KATE Capshaw með eiginmanni sfnum og kvik-
myndajöfrinum Steven Spielberg.
EMMA Thompson og hjónin John Travolta og
Kelly Preston á forsýningu Primary Colors.
Kr. 1080,-
Kr. 970,-
Kr. 1150,-