Morgunblaðið - 20.03.1998, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
FÖSTUDAGUR 20. MARZ 1998 33
Unnur Man'a Miklos Jónas
Ingólfsdóttir Dalniay Tómasson
Nýtt verk eftir Jónas
Tómasson á Isafirði
UNNUR María Ingólfsdóttir fiðluleik-
ari og Miklos Dalmay píanóleikari
halda tónleika í sal Gimnnskólans á
Isafirði sunnudaginn 22. mars kl. 20.30.
Unnur María Ingólfsdóttir stund-
aði fiðlunám í Reykjavík, New York
og London. Hún hefur haldið fjölda
tónleika í Evrópu og Bandan'kjunum.
Hún er yfirkennari strengjadeildar
Tónlistarskóla Garðabæjar og stjórn-
ar strengjasveit Tónlistarskólans í
Reykjavík, auk þess leikur hún með
Kammersveit Reykjavíkur.
Miklos Dalamy er ungverskur pí-
anóleikari. Hann hefur búið á Islandi
frá árinu 1994. Hann stundaði nám
við Tónlistarskólann í Búdapest og
lauk þaðan einleikaraprófi vorið
1987. Hann hefur haldið fjölda tón-
leika erlendis og hlotið mörg verð-
laun og viðurkenningar fyrir leik
sinn. Haustið 1996 bar hann sigur úr
býtum 1 Tónvakanum, tónlistar-
keppni Ríkisútvarpsins. Hann hefur
komið fram á fjölmörgum tónleikum
hér á landi.
Frumflutt verk
eftir Jónas Tómasson
A efnisskrá tónleikanna eru sónöt-
ur eftir Vivaldi og Beethoven og verk
eftir norræn tónskáld. Frumflutt
verður verkið Doloroso, eftir tón-
skáldið Jónas Tómasson.
Tónleikarnir eru á vegum Tónlist-
arfélags Isafjarðar.
Náttúran
í blóðinu
MYNPLIST
Deiglan
MÁLVERK LÁRUS H. LIST
Opið frá 14-18 daglega. Til 23. mars.
LÁRUS Hinriksson sýnir nú í
Deiglunni á Akureyri undir lista-
mannsnafninu Lárus H. List. Á
sýningunni eru allmargar myndir,
afstrakt náttúrustemmningar, sem
Lárus hefur málað með olíulitum og
blóði. Lárus hefur áður málað
mjmdir þar sem heimur álfa og
huldufólks hefur verið viðfangsefn-
ið, en nú sleppir hann alveg
hluttengingunni - jafnvel þótt deila
megi um hversu hlutbundnar mynd-
ir úr álfheimum kunna að vera - og
lætur litina og formin tala sjálf. Við-
fangsefni þessara mynda er birtan
sjálf, einkum vetrarbirtan, og yfir-
skrift sýningarinnar er „List í álög-
um“. Málverkin eru frjálslega unn-
in, litaandstæðurnar oft skarpar og
formin gróf. En hvíti liturinn er hér
alltaf sterkastur og Lárus málar
hann gjarnan yfir aðra litfleti svo
allt virðist eins og séð gegnum hvíta
móðu eða hríðarkóf. Þannig fanga
myndimar vel vetrarsýn á norður-
slóðum. Eflaust vekur það mesta at-
hygli sýningargesta að Lárus notar
ekki aðeins olíuliti í þessar myndir,
heldur einnig blóð sem dregið hefur
verið úr honum sjálfum. Blóðið
blandar hann svo í vínandalakk og
notar sem lit í málverkin. Liturinn
sem þannig fæst er reyndar furðu
fallegur, djúpur rauður litur. En
það er vitneslqan um uppruna hans
sem hlýtur að móta viðhorf okkar til
myndanna; það verður ekki fram
hjá því litið að listamaðurinn er hér
að ögra áhorfandanum og knýja
hann til umhugsunar. Það er nefni-
lega fátt í efnisheimi okkar sem er
jafn þrungið merkingu og blóð, hinn
innri sjór sem baðar líkama okkar
og nærir líffæri okkar og vefi. Þeg-
ar blóðið verður sýnilegt vitnar það
um ofbeldi, slys og jafnvel dauða.
Eins og Lárus segir sjálfur: „Það að
standa frammi fyrir blóðinu er eins
og að standa á brún hengiflugs og
ég vil gjarnan koma þeirri tilfinn-
ingu til skila.“
Þannig má segja að notkun blóðs-
ins gefi málverkum Lárusar aðra
vídd. Náttúrustemmningin er ekki
lengur meinlaus eða fjarlæg heldur
tengd hjartablóði okkar, hinn faldi
innri sjór rennur saman við hina
ytri náttúru og verður að áleitinni
spurningu um samband okkar og
umhverfisins.
Jón Proppé
SIGRÚN Hjálmtýsdóttir í hlut-
verki Adinu í Ástardrykknum.
Síðustu
sýningar
íslenska óperan
Ástardrykkurinn
SÍÐUSTU sýningar verða á Ástar-
drykknum eftir Donizetti í kvöld,
föstudag, og laugardaginn 28. mars.
Sigrún Hjálmtýsdóttir sópran
syngur aðalhlutverkið, Adinu, og
Björn Jónsson, tenór, syngur
Nemorino. Bergþór Pálsson og
Loftur Erlingsson syngja sölu-
manninn Dulcamara og liðsforingj-
ann Belcore. Kór íslensku óperunn-
ar er í hlutverkum ferðamanna frá
öllum heimshornum. Hljómsveit óp-
erunnar leikur undir stjórn Robins
Stapletons.
ÝJUM HÚSAKYNNUM Á GRJÓTHÁLSI
b
s
I ....
■ immmmmi
Aðstaða til fræðslu er eins og best verður á kosið og unnt er að veita einkaráðgjöf í aðlaðandi
umhverfi.
Hugvit, hátækni og áræðni
Hátæknifyrirtækið Össur hf. var stofnað 1971. Fyrirtækið hannar, framleiðir og selur stoðtæki,
og er leiðandi í heiminum á sviði óhefðbundinna stoðtækjalausna. Össur hf. á þrjú dótturfyrirtæki
erlendis og vinnur markaðs- og sölustarf í yfir 50 löndum. Hjáfyrirtækinu starfa nú um 90 manns.
Þú ert aufiísugestur!
GfíJÓTHÁLSI 5 • 110 fíEYKJA JÍK • SÍMI 515 1300 • BRÉFSÍMt 515 1366 • NETFANG mail@ossur.is
[