Morgunblaðið - 20.03.1998, Blaðsíða 58
lí 58 FÖSTUDAGUR 20. MARZ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
Dýraglens
Ljóska
Ferdinand
BRÉF
TIL BLAÐSINS
Kringlan 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329
Verða fornir biskupa-
og þingreiðvegir að
miðhálendisbílaslóðum?
Frá Halldóri Eyjólfssyni:
SLÓÐ var rudd í sumar frá Þjórs-
árstíflu við Háumýrar norður eftir
forna biskupaveginum að vaði á
Fjórðungakvísl (þaðan er ágæt slóð
að Nýjadal u.þ.b. 10 km). 1 km vest-
an vaðsins er Sprengisandslínu-
stæði ásamt kjörnu brúarstæði.
Ætla má að rudd slóð frá Fjórð-
ungakvísl að Fjórðungsvatni (ná-
lægt línustæðinu) komi næsta sum-
ar og þá fljótlega brú á kvíslina sem
yrði framtíðar samgöngubót á mið-
hálendinu. Svonefnd Nýjadalsleið
(ölduleið) og Sprengisandsvegur
koma saman við Fjórðungsvatn að
norðan en að sunnan við Stóraver.
Tengislóðir eru frá Eyvindarkofa-
veri austur að Kistuöldu og áfram
að stíflugerð við Syðri-Hágöngu,
einnig upp með Fjórðungakvísl að
sunnan, að skála FI við Nýjadal.
Mjög sterkar líkur eru á þvi að
fyrsta ferð á bil norður Sprendisand
hafi verið farin eftir þessum forna
þjóðvegi. Ferðin var farin 14. ágúst
1933 frá Reykjavík og komið til
Akureyrar 22. ágúst. Þátttakendur
voru Einar Magnússon, Valdimar
Sveinbjörnsson, báðir MR-kennar-
ar, Sigurður Jónsson frá Laug, bíl-
stjóri og Jón Víðis, vegagerðarmað-
ur.
Þessir menn teljast frumkvöðlar
að ferðum ökutækja um miðhálend-
ið og var sögulegt afrek, miðað við
bflinn sem var húslaus Ford árgerð
1927 með einu drifi, gírkassalaus en
með lóborða. Þennan bíi átti Sigurð-
ur frá Laug í Biskupstungum. Fann
hann og lagfærði margar öræfaslóð-
ir sem ferðamenn nota enn í dag.
Hálendisvegur
Slóði frá Mývatni suður á
Sprengisand vestan eða austan
Sellandafjalls um Suðurárbotna eft-
ir vörðuðum biskupavegi yfir Suð-
urárhraun í Breiðadal. Síðan að
Sandmúladalsárupptökum NV Þrí-
hymings með tengingu þar við
Öskjuslóð F910. Þessi slóð kæmi
ferðamönnum verulega til bóta, sér-
staklega ef núverandi brú á Skjálf-
andafljóti yrði flutt á betra brúar-
stæði, sem er norður við Hraun-
kvíslar (Stóraflæða). Þá myndi
þessi braut auðvelda bændum að
hefta sandfok, sem veldur eyðingu
veikburða gróðurs á afréttum Mý-
vetninga sem berst síðan með
Kráká í vélar Laxárvirkjunar og
veldur óeðlilegu sliti á vélbúnaði
stöðvanna. Einnig spillir umræddur
foksandur fiskigengd árinnar, en
Þingeyingar hafa lengi barist við
sandstorma og landeyðingu af
þeirra völdum.
Almenn skilgreining á vegum
1. Hringvegur 1, höfuðvegur
(hraðbraut).
2. Þjóðvegir númeraðir, merktir
byggðarlögum eða staðarheitum.
3. Fjallvegir merktir F-númerum
og fjarlægðum í km., vegvísar á
helstu vegamótum, varasöm vöð á
vatnsföllum, heflaðir einu sinni á
sumri, taldir færari jeppum og stór-
um bflum að sumarlagi.
4. Ómerktar slóðir og hjólför
mælinga- og gangnamanna, mjög
varasamar.
5. Fornir göngu- og reiðvegir
byggðalaga í millum, flestir óöku-
færir.
Ferðalög um fjallvegi og aðra
götuslóða eru og hafa alltaf verið á
ábyrgð viðkomandi ferðamanns.
Við Hrauneyjafoss, við Mývatn,
og á Egilsstöðum eru reknar olíu-
og bensínsölur. Þessar stöðvar sér-
hæfa sig í þjónustu við óbyggðafara
svo sem með korta- og nestissölu og
öflum nauðsynlegs hlifðarfatnaðar.
Einnig fást þar upplýsingar um
færð og veðurútlit á hálendinu.
Veitinga- og hótelrekstur er á fram-
angreindum stöðum.
A miðhálendinu þarf að reisa
hreinlætisaðstöðu fyrir ferðamenn,
en þeim fjölgar á hverju sumri. Það
verður ekki lengur litið framhjá
þeim óþrifnaði sem aðgerðarleysið
skapar (óhjákvæmilega), og þurfa
nú umráðamenn viðkomandi afrétta
ásamt viðkomandi sýslumönnum að
koma þessum málum í viðunandi
ástand sem fyrst. Þessar stöðvar
þyrftu eftirlit í 10-12 vikur á sumr-
in, og er líklegt að Mývetningum
yrði falin sú umsjón, enda næstir
hálendinu. Staðsetningar til fram-
tíðar (sjá meðf. kort) eru líklegastar
við Þjórsárstíflu á Háumýrum, við
Sandmúladalsárdrög, NNV af Þrí-
hyrningi, en þar um liggur hin forna
Eyvindargata til Mývatns, og líkleg
gatnamót til Austurlands sunnan
Dyngjufjalla að Vaðöldu. Svo má
ætla að umrædd aðstaða skapist við
stíflugerð í Jökulsá á Brú sunnan
Kárahnjúka vegna næstu virkjanaá-
forma.
HALLDÓR EYJÓLFSSON,
fv. starfsmaður Landsvirkjunar
Gjörðu svo vel, ég bjó til Sérðu? Ég skrifaði lítið ljóð Það er í svörtu og hvítu ...
Valentínusarkort og síðan teiknaði ég hjörtu í
handa þér ... kringum það ...
Þekkir einhver
manninn?
ÞESSI mynd fylgdi bréfi frá Dan-
mörku, þar sem óskað er upplýs-
inga um hver maðurinn sé. Hann er
sagður íslendingur, fæddur árið
1926 eða þar um bil, að nafni Magn-
ús Benjamínssen og hafa verið í
Danmörku á árunum 1945 til 1946.
Þekki einhver manninn á myndinni
er sá hinn sami beðinn um að hafa
samband við Morgunblaðið, Magn-
ús Finnsson, sími 5691100.
HVER er maðurinn?
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.