Morgunblaðið - 20.03.1998, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 20. MARZ 1998 13
FRETTIR
Stjórn Dagvistar barna
Almennt átak í
menntamálum
starfsmanna
á leikskólum
TILLAGA fulltrúa Sjálfstæðis-
ílokksins í stjórn Dagvistar barna
um að menntun ófaglærðra starfs-
manna verði efld á leikskólum
borgarinnar, sem sagt var frá í
Morgunblaðinu í gær, er viðauka-
tillaga við tillögu stjórnarinnar um
átak í menntamálum, samkvæmt
upplýsingum Arna Þórs Sigurðs-
sonar, formanns stjórnarinnar.
Samkvæmt tillögum stjórnarinnar
nær átak í menntamálum einnig til
faglærðra starfsmanna.
I tillögu stjómarinnar, sem er í
átta liðum, er gert ráð fvi'ir að
skipulögð verði námskeið í starfs-
mannastjóm fyrir leikskólastjóra
og aðstoðarleikskólastjóra. Að
skipulögð verði námskeið í stjórn-
un fýrir leikskólakennara og aðra
starfsmenn er vinna sem deildar-
stjórar. Að skipulögð verði nám-
skeið fyrir Sóknarstarfsmenn,
sem lokið hafa 100 stunda nám-
skeiði, og að þessu viðbótarnámi
verði lokið með formlegu mati,
sem hægt verði að meta til ein-
inga.
Sérhæfninámskeið
Lagt er til að fleiri starfsmönn-
um, sem þess óska, verði gefinn
kostur á að sækja 100 stunda sér-
hæfninámskeið, og að skipulagt
verði viðbótarnám fyrir þá starfs-
menn gæsluleikvalla, sem lokið
hafa 100 stunda sérhæfninám-
skeiði.
Tillagan gerir einnig ráð fyrir að
tryggt verði að allir nýútskrifaðir
leikskólakennarar, sem hefja störf
hjá Dagvist barna 1998, fái reglu-
bundna handleiðslu í starfí, að
minnsta kosti fyrsta árið.
Styrkir til náms-
og kynnisferða
Lagt er til að styrkjum til
náms- og kynnisferða verði fjölgað
og slíkar ferðir verði skipulagðar
fyrir leikskólastjóra og aðra
stjórnendur hjá Dagvist barna á
árinu í þeim tilgangi að kynnast
því sem aðrar þjóðir eru að gera
markvert í þjónustu við böm á
leikskólaaldri. Loks er gert ráð
fyrir aukinni áherslu á þróunar-
og nýbreytnistarf, meðal annars
með því að auka framlög í þróun-
arsjóð leikskóla, sem nemur allt
að 50%.
Stjórnarformaður Landssfmans hf. um kaup í Skímu/Miðheimum
Sala allra hluthafa
forsenda kaupanna
ÞÓRARINN V. Þórarinsson, stjórn-
arformaður Landssímans hf, segir
að hluthafar í Skímu/Miðheimum fái
bréf þess efnis að forsenda fyrir
kaupum Landssímans á hlutafélag-
inu hafi verið að samningurinn gilti
fyrir öll hlutabréf í fyrirtækinu og að
öll hlutabréf í fyrirtækinu væru til
sölu.
„Síminn hefur markað þá stefnu
að byggja upp og efla intemetþjón-
ustu Landssímans. Við höfum þá trú
að Netið muni á komandi árum taka
við miklu stærri hluta af heildarum-
ferð í fjarskiptakerfinu og það sé
beinlínis skylda stjórnenda fyrirtæk-
isins að halda því í fremstu röð með
því að fylgja tækniþróuninni og
þjóna okkar viðskiptavinum með
þeim hætti,“ sagði Þórarinn.
Þreifingar í nokkrar vikur, við-
ræður stóðu stutt yfír
Þórarinn sagði að þreifíngar um
kaup Landssímans á Skímu/Mið-
heimum hafi staðið í nokkrar vikui’
en viðræður hafi hins vegai' staðið
stutt yfir og komist á það stig á
þriðjudaginn að vilji Landssímans til
að kaupa alla hluti í Skímu fyrir til-
tekið verð hafi verið staðfestur. Núna
sé málið í höndum Skímu/Miðheima
og það velti alfarið á því fyrirtæki
hvert framhald málsins verður. Þór-
arinn segir að meðan á þreifingunum
stóð hafi Landssíminn vitað að hlut-
hafamir voru í viðræðum við aðra að-
ila. „Það eru fullkomlega eðlileg við-
skipti að þeir sem eru að selja fyrir-
tæki leiti fyrir sér með þeim hætti,“
sagði Þórarinn.
Morgunblaðið fékk staðfest í gær
að það sé afstaða tveggja hluthafa í
Skímu/Miðheima, þeirra Amþórs
Jónssonar og Inga Þórs Bjömsson-
ar, sem stofnuðu Miðheima og eiga
samtals 8% í Skímu/Miðheimum, að
þeir muni leita til dómstóla eftir við-
kenningu á því að þeir eigi forkaups-
rétt á 92% hlutafjár í fyrirtækinu.
Ekki náðist tal af þeim í gær, en
heimildarmaður sem þekkir málatil-
búnað þeirra fullyrti í samtali við
blaðamann að enginn fyrirvari um
kaup á 100% hlut hafi fylgt þeim
ski'iflega kaupsamningi sem kynntur
var stjóm Landssímans á þriðjudag
og á því hygðust þeir byggja kröfu
sína í samræmi við samþykktir
Skímu/Miðheima.
Á hinn bóginn herma heimildir
Morgunblaðsins að eigendur Islandia
Intemet hafi frá því í fyrradag haft
samband við þingmenn og leiðtoga í
flestum eða öllum stjómmálaflokkum
í því skyni að hafa áhrif á stjóm
Landssímans til að koma í veg fyrir
kaup Landssímans á fyrirtækinu.
Samþykktum breytt?
Þá hefur Morgunblaðið upplýsing-
ar um að vegna þess að skilyrði
Landssímans um kaup á 100% hlut í
Skímu/Miðheimum gangi ekki eftir
vegna afstöðu eigenda 8% muni hlut-
hafafundur verða haldinn í
Skímu/Miðheimum á næstunni og
þar verði samþykktum félagsins
breytt. Forkaupsréttur hluthafa á
fólum hlutum í félaginu verði afnum-
inn. Tvímenningamir eru sagðir
telja slíkar fyrirætlanir ólöglegar,
enda hafi forkaupsrétturinn orðið til
þegar kaupsamningur án fyrirvara
um 100% sölu var undirritaður, sem
þeir segjast hafa upplýsingar um að
gert hafi verið. Forkaupsrétturinn
verði því ekki tekinn úr sambandi
eftir á með breytingum á samþykkt-
um félagsins.
Ráðstefna um krabbameins-
rannsóknir á Islandi
Virtir vísindamenn
ræða um rannsóknir
RAÐSTEFNA um krabbameins-
rannsóknir á Islandi verður sett í
dag í húsi Krabbameinsfélagsins
við Skógarhlíð, þar sem meðal ann-
ars þrír víðkunnir vísindamenn á
þessu sviði greina frá rannsóknum
sínum. Ráðstefnan hefst klukkan
9.30 í dag og verður henni fram
haldið á morgun, laugardag.
Samtök um krabbameinsrann-
sóknir á Islandi, sem stofnuð voru
fyrir þremur árum og hafa um eitt
hundrað félaga innan sinna vé-
banda, standa að ráðstefnunni
ásamt Rannsóknastofu Krabba-
meinsfélags Islands í sameinda- og
frumulíffræði. Ráðstefnan er haldin
í tilefni af tíu ára afmæli rannsókn-
arstofunnar.
I hópi fremstu
manna
Á ráðstefnunni verða kynnt
rannsóknarefni frá þrjátíu og
tveimur innlendum vísindamönnum
eða rannsóknarhópum. Að auki
flytja fyrir hádegi í dag þrír vís-
indamenn erlendis frá fyrirlestra,
þeir dr. Curtis C. Harris, dr.
Shoukat Dedhar og dr. Snom Þor-
geirsson, en allir starfa þeir í
Bandaríkjunum og Kanada og
þykja á meðal fremstu manna í
sinni grein.
Snorri fæst við grundvallarrann-
sóknir á tilurð krabbameina, meðal
annars í tilraunadýrum, við banda-
rísku krabbameinsstofnunina,
National Cancer Institute.
Harris er í forsvari fyrir sam-
eindarerfðafræðii'annsóknir á
krabbameinum í mönnum við sömu
stofnun, auk þess að vera prófessor
við læknadeild Georgstown-háskól-
ans í Bandaríkjunum og ritstýra
ýmsum kunnum vísindaritum.
Dedhar er prófessor við lífefna-
fræði- og sameindaerfðafræðideild
við Háskólann í British Columbia í
Vancouver í Kanada þar sem hann
rannsakar samskipti eðlilegi'a og
illkynja fruma við nánasta umhverfi
sitt.
Ráðstefnan er opin öllum áhuga-
mönnum um krabbameinsrann-
sóknir.
Staða prófessors í tauga-
sjúkdómafræði við HÍ
Kæru hafnað
í háskólaráði
MENNTAMALARAÐUNEYTIÐ
framsendi stjórnsýslukæru dr.
Martins Grabowski, læknis við há-
skólasjúkrahúsið í Lundi í Svíþjóð,
til Háskóla Islands. Háskólaráð
fjallaði nýlega um hana og hafnaði
kærunni en hún er tilkomin vegna
þess að dómnefnd læknadeildar HÍ
taldi Martin óhæfan til að gegna
prófessorsstarfi í taugasjúkdóma-
fræði við Háskóla Islands og gaf
deildarfundi þ.a.l. ekki færi á að
velja hann í embættið.
Martin vildi sýna fram á í
kærunni að hann hefði mesta rann-
sóknarreynslu af umsækjendum,
sem voru fimm, og að rannsóknirnar
hefðu hátt vísindagildi. Hann kærði
líka á þeim forsendum að jafnræðis-
regla með umsækjendum hefði verið
brotin og benti á gögn sem áttu að
sýna að einn umsækjenda hefði öðl-
ast ákveðna vitneskju, hjá dóm-
nefndinni, sem gefði hefði honum
forskot á aðra umsækjendur til að
keppa að starfinu.
Háskólaráð taldi framlögð gögn
ekki duga til að ógilda ákvörðun
deildarfundar læknadeildar sem
lagði til að Elías Ólafsson yrði próf-
sessor og þarf ráðherra að sam-
þykkja hana.
Martin Grabowski sendi mennta-
málaráðherra stjórnsýslukæruna eft-
ir að hafa áður sent honum kvörtun-
arbréf vegna málsins. Ráðherra
ft'amsendi kvörtunarbréfið til há-
skólaráðs sem fjallaði um það 29. jan-
úar sl. og komst að þeirri niðurstöðu
þá að dómnefndin hafi ekki vikið frá
þeiiri skyldu sinni að gæta jafnræðis
gagnvart umsækjendum og ekki
brotið gegn ákvæðúm reglna um
veitingu starfa háskólakennara við
mat á hæfni umsækjenda.
Háskólaráð fékk stjómsýslu-
kærana svo til umfjöllunar og sendi
ráðherra niðurstöðu sína. Ráðherra
er samkvæmt 11. gr. laga nr.
131/1990 bundinn af tillögu deildar-
fundar þannig að hann getur ein-
ungis hafnað tOlögunni ef hann fellst
ekki á hana, og verður staðan þá
auglýst að nýju, eða samþykkt hana.
Hann getur ekki gert athugasemdir
við málsmeðferð eða fjallað um
stjórnsýslukærur vegna mála.
Nú er ákvörðunar hans beðið.
Morgunblaðið/Golli
Dúfna-
veislan
MISJAFNLEGA þröngt er í búi
smáfugla eftir veðri og vindum
og má búast við að heldur lítið
æti hafi verið undanfarnar vik-
ur. Fuglavinir muna þó ætíð eft-
ir vængjuðum gestum þegar
harðnar í ári og gera sér far um
að tryggja þeim viðurværi við
hæfí. Við Tjörnina í Reykjavík
hefur fuglaskari nær fasta bú-
setu og þegar Ijósmyndari Morg-
unblaðsins átti þar leið hjá á
dögunum rakst hann á einn áð-
urnefndra fuglavina sem sá ekki
eftir brauðbitanum í dúfurnar.
Fuglarnir létu sér veisluföngin
vel líka.
------------
Vísindasjóð-
ur úthlutar
styrkjum
VÍSINDASJÓÐUR úthlutaði ný-
lega árlegum styrkjum til vísinda-
rannsókna. Alls úthlutaði sjóðurinn
165 milljónum króna til rannsókna
en umsóknir bárust upp á rúmlega
687 milljónir króna að þessu sinni.
Heildarúthlutunarhlutfall sjóðsins
er því 25% en var 27% á síðasta ári
og 45% árið 1990.
I fréttatilkynningu segir að ráð-
stöfunarfé Vísindasjóðs hafi nánast
staðið í stað síðan 1992 en sjóðurinn
hlýtur framlag úr ríkissjóði og frá
Seðlabanka íslands.
Hæstan styrk að þessu sinni
hlaut Vilmundur Guðnason fyrir
nýtt verkefni á sviði heilbrigðis- og
lífvísinda sem tengist rannsóknum
á erfðaþáttum í blóði Islendinga.
Á sviði hug- og félagsvísinda
hlaut Steinunn Kristjánsdóttir
fomleifafi-æðingur 1,5 milljóna
króna framhaldsstyrk fyrir verk-
efnið „Mörk heiðni og kristni" og
Valur Ingimundarson sagnfræðing-
ur hlaut 1,1 milljón í nýtt verkefni
um samskipti Islands og Banda-
ríkjanna 1961-1968.
Á sviði heilbrigðis- og lífvísinda
hlaut Sigurður Ingvarsson hæstan
styrk til framhaldsverkefnis sem
felst í kortlagningu á breytingum í
erfðamengi brjóstakrabbameins.
Hæstan styrk á sviði náttúruvís-
inda og umhverfisrannsókna hlutu
Hilmar J. Malmquist og Stefán
Arnórsson til framhaldsverkefna,
alls 1,5 milljónir hvor. Verkefni
Hilmars er yfirlitskönnun á lífríki
íslenskra vatna en Stefán hyggst
kanna jarðefnafræði vatns í Skaga-
firði. Á sama sviði hlaut Bryndís
Brandsdóttir 1,2 milljóna króna
styrk til nýs verkefnis sem lýtur að
kortlagningu kvikuhólfa undir
Vatnajökli.