Morgunblaðið - 20.03.1998, Síða 14
14 FÖSTUDAGUR 20. MARZ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
Hugmyndir uppi um að hefja strætóferðir um allan Eyjafjörð
Mikilvægt skref til að
styrkja byggðirnar
MIKILL áhugi er á því að styrkja
samgöngukerfið í Eyjafirði og eru
uppi hugmyndir um að hefja akst-
ur strætisvagna milli Ólafsfjarðar
og Akureyrar, áfram inn Eyjafjörð
og út fjörðinn að austan til Greni-
víkur. Ferðamálamiðstöð Eyja-
fjarðar á Akureyri hefur staðið fyr-
ir úttekt á þessum hugmyndum og
hefur sú vinna verið í höndum
Árna Steinars Jóhannssonar, um-
hverfisstjóra Akureyrarbæjar og
formanns stjómar Ferðamálamið-
stöðvarinnar.
Ferðir á þriggja
klukkutíma fresti
„Ferðamálamiðstöðin er byggða-
samlag allra sveitai-félaga í Eyja-
firði og innan hennar er mikill
áhugi á því að styrkja samgöngu-
kerfið á svæðinu og styrkja um leið
möguleika í ferðaþjónustunni. Það
var með stuðningi Jakobs Bjöms-
sonar, bæjarstjóra á Akureyri að
við fóram í þessa athugun, þ.e. að
breyta kerfinu úr sérleyfisferðum
og yfir í strætókerfi. Þetta eru
hlutir sem búið er að tala um í
mörg ár en aldrei komist á koppinn
og menn hafa verið bundnir af sér-
leyfishöfunum. Ég sé fyrir mér að
gangi þessar hugmyndir eftir gæti
þessi tilraun hafist um næstu ára-
mót eða vorið 1999,“ sagði Árni
Steinar í samtali
við Morgunblað-
ið. __
Ami Steinar
hefur unnið að
grunnhugmynd-
um verkefnisins
undanfamar vik-
ur og m.a. átt við-
ræður við sveit-
arstjórnarmenn,
stofnanir, félaga-
samtök og hagsmunaaðila í flutn-
ingum. Málið hefur einnig verið
kynnt í forsætisráðuneytinu og
Ámi Steinar hefur átt viðræður við
félagsmálaráðherra og samgöngu-
ráðherra um málið. „Ailir þessir að-
ilar lýsa sig mjög velviljaða grann-
hugmyndinni. Við fáum áætlun frá
einkaaðila um hvað kerfið muni
kosta og Sérleyfisbílar Akureyrar
hafa skilað okkur reikningsdæmi
og áætlun um kostnaðinn og við
bíðum eftir að fá tilsvarandi áætlun
frá framkvæmdastjóra SVA.
Það má segja að hér yrði um að
ræða útvíkkun á starfsemi Strætis-
vagna Akureyrar, þannig að farnar
yrðu reglubundnar ferðir um
svæðið, frá Ólafsfírði að vestan til
Grenivíkur að austan á þriggja
klukkutíma fresti. Fólksflutninga-
kerfi af þessu tagi þarf opinberan
stuðning og gróflega má áætla að
kostnaðurinn, fyrir utan það sem
lagt er í rekstur SVA, yrði um 40
milljónir króna á ári. Varlega áætl-
að gætu tekjur á móti numið um
helmingi þeirrar upphæðar fyrstu
árin. Þó verður að hafa í huga að
sérleyfi og fólksflutningar af ýmsu
tagi era með alls kyns framlögum í
Eyjafirði, sem gætu sparast eða
nýst í þessu nýja kerfi.“
Vítamínsprauta fyrir
ferðaþjónustuna
Árni Steinar sagði að fram kæmi
í öllum fyrirliggjandi skýrslum að
mjög mikilvægt væri til byggða-
styrkingar að menn hafi greiðar
samgöngur og geti notið þess á
auðveldan hátt sem til boða er á
svæðinu, t.d. hvað varðar afþrey-
ingu og menningu.
„Eyjafjörður er eitt atvinnu-
svæði og strætókerfi af þessu tagi
opnar möguleika og auðveldar al-
menningi að stunda vinnu hvar sem
er á svæðinu. Við eram einnig að
tala um möguleika fólks til að
sækja framhaldsskóla og Háskól-
ann. Þá eram við að tala um fram-
tíðarsýn varðandi orkusparnað, þar
sem menn myndu frekar leggja
einkabflnum og nýta sér strætó. Og
síðast en ekki síst eru menn í ferða-
þjónustunni sammála um að þetta
yrði vítamínsprauta fyrir greinina."
Árni Steinar
Jóhannsson
Samlagið kynnir
verk Rannveigar
Helgadóttur
SAMLAGIÐ, félag myndlista-
og listiðnaðarfólks, heldur
áfram að kynna meðlimi sína
með því að stilla verkum
þeirra upp í listhúsinu við
Grófargil. Nú er röðin komin
að Rannveigu Helgadóttur sem
sýnir lítil og stór verk unnin í
akrýl auk nokkurra graf-
íkverka, en þau eru öll gerð á
þessu ári og eru til sölu.
Kynningin hefst í dag, föstu-
daginn 20. mars, kl. 14 og
stendur liún yfir til 27. mars
næstkomandi, en Samlagið er
opið alla daga frá kl. 14 til 18.
Rannveig er fædd árið 1971
og útskrifaðist af myndlistar-
braut Menntaskólans á Akur-
eyri 1992 og úr fagurlistadeild
Myndlistaskólans á Akureyri
vorið 1995. Vinnustofa hennar
er í Listaskálanum í Grófar-
gili.
Hjálparsveit skáta
Freyvangsleikhúsið
Vélsleða-
Fagnar tillögu
um að létta rekstur
bj örgunarsveita
AÐALFUNDUR Hjálparsveitar
skáta á Akureyri var haldinn ný-
lega og þar var fagnað þingsálykt-
unartillögu sem lögð hefur verið
fram á Alþingi um að samgöngu-
ráðherra skipi nefnd sem hafi það
að markmiði að létta rekstur björg-
unarsveita. Vill hjálparsveitin taka
undir með Ólafi Erni Haraldssyni
þingmenni um að fundnar verði
leiðir til að styrkja björgunarsveit-
MESSUR
LAUFÁSPRESTAKALL:
Kirkjuskóli í Svalbarðskirkju
á morgun, laugardag kl. 11.
Kirkjuskóli í Grenivíkur-
kirkju á morgun, laugardag,
kl. 13.30 og kyrrðar- og
bænastund á sama stað kl. 21.
irnar í því rekstrarformi sem þær
starfa í.
Hagur ríkisvaldsins að
hlúaað björgunarsveitum
„Sjálfsaflafé sveitanna er skattlagt
að fullu og minnkar verulega svigrúm
til endurnýjunar tækja og búnaðar.
Tækja og búnaðar sem hið opinbera
þyrfti sjálft að kosta til ef björgunar-
sveitanna nyti ekki við. Állt starf
hjálparsveita er sjálfboðaliðastarf og
því óeðlilegt að skattleggja það eins
og gert er nú. Flestum hlýtur að vera
ljóst mikilvægi björgunarsveitanna í
landinu og það hlýtur að vera hagur
ríkisvaldsins að hlúa að þessum
rekstri þar sem björgunarsveitirnai'
spara hinu opinbera mikið fé á hverju
ári,“ segir í ályktun frá aðalfundi
Hjálparsveitar skáta á Akureyri og
að lokum vill sveitin þakka einstak-
lingum og fyrirtækjum í bænum fyrir
veittan stuðning á liðnum árum.
f„Akureyri, menningarbær
á leið í nýja ölcT
Málþing um menningu í Safnaðarheimili Akureyrar-
kirkju laugard. 21. mars kl. 14.00-18.00
Fundarstjóri verður Stefán Jón Hafstein, ritstjóri Dags.
Erindi flutja Tapio Havebro, kulturchef í Vasterás, Svíþjóð, sem
ræðir um „framkvæmd menningarstefnu", Jón Björnsson, fram-
kvæmdastjóri menningar-, uppeldis- og félagsmála, Reykjavík,
sem ræðir um „hlutverk sveitarfélaga í menningarmálum" og Þor-
steinn Gunnarsson, rektor Háskólans á Akureyri, sem ræðir um
„búsetu og menningu."
Að loknum framsöguerindum verða hópumræður og dagskránni
lýkur með pallborðsumræðum, þar sem framsögumenn og full-
trúar framboða til bæjarstjórnarkosninga sitja fyrir svörum.
Menningarmálanefnd Akureyrar.
Velkomin í
villta vestrið
Morgunblaðið/Beiyamín
HANNA Rúna Jóhannsdóttir og Ólafur
Helgi Theodórsson í hlutverkum sínum hjá
Freyvangsleikhúsinu.
Eyjafjarðarsveit.
Morgunblaðið. Nýtt ís-
lenskt leikrit, „Vel-
komin í villta vestrið“,
verður frumsýnt hjá
Freyvangsleikhúsinu í
Eyj af j arðarsveit. í
kvöld, föstudags-
kvöldið 20. mars, kl.
20.30. Höfundur þess
er Ingibjörg Hjartar-
dóttir, Eiríkur Bóas-
son, Ingólfur Jóhanns-
son og Jóhann Jó-
hannsson sömdu tón-
listina, en ýmsir
gerðu texta við lögin.
Leikstjóri er Helga
Elínborg Jónsdóttir.
Ingibjörg samdi
leikritið sérstaklega
fyrir Freyvangsleik-
húsið og fjallar það
um hestamenn, kúa-
bændur og ást. Leik-
ritið er skáldskapur
og á sér ekki hlið-
stæðu í veruleikan-
um, en þó er vísað til
ýmissa atvika sem
upp hafa komið í
Eyjafjarðarsveit síð-
ustu misseri. Meðal annars er
komið inn á deilur milli hesta-
manna og kúabænda í sveitinni
um reiðvegi, kaup og sölu á
mjólkurkvóta og ýmislegt
fleira.
Ástar- og
örlagasaga
„Þetta er skemmtilegt leikrit,
það er í léttum dúr en þó með
alvarlegum undirtón. Inn í það
fléttast ástar- og örlagasaga
bónda eins sem fær til sín
vinnukonu og verður, eins og
reyndar fleiri í sveitinni, fyrir
miklum áhrifum í kjölfar þeirra
kynna. Það verður enginn sam-
ur eftir kynni af þessari vinnu-
konu.“
í aðalhlutverkum eru Stefán
Guðlaugsson og Elísabet B.
Björnsdóttir, sem leika Friðrik
stórbónda og sveitarstólpa og
Álfheiði ráðskonu. í öðrum
veigamiklum hlutverkum eru
Ólafur Theodórsson, Hanna
Rúna Jóhannsdóttir, Sigríður
Arnardóttir, Valþór Brynjars-
son, Friðrik Stefánsson og Leif-
ur Guðmundsson.
Alls taka um tuttugu leikarar
þátt í sýningunni, en um fímmtiu
manns í allt koma nálægt sýn-
iugunui með einum eða öðrum
hætti.
menn hittast
í Nýjadal
FÉLAG vélsleðamanna í Eyjafirði
efnir til fjallamóts S Nýjadal við
Sprengisandsleið nú um helgina.
Félagið hélt slíkt mót í fyrsta
skipti í fyrra og tókst það vel þrátt
fyrir að veðrið hafi brugðist.
Þarna fóru margir í sína fyrstu al-
vöra fjallaferð enda er mótinu
ekki síst beint til þeirra sem lítið
hafa ferðast á sleðum en langar að
kynnast töfrum hálendisins að
vetralagi.
Gert er ráð fyrir að flestir móts-
gestir komi á staðinn á föstudags-
kvöldi og verður gist S tvær nætur
í skálum Ferðafélags íslands. Far-
ið verður í skoðunarferð um Von-
arskarð á laugardag, sem er fal-
legt hverasvæði sem tiltölulega fá-
ir hafa séð enda svæðið ekki að-
gengilegt nema þá helst að vetrar-
lagi. Sameiginleg grillveisla og
kvöldvaka verður á laugardags-
kvöld en á sunnudag heldur hver
til slns heima. Mótsstjóri er Guð-
mundur Hjálmarsson.
Að viku liðinni, þ.e. dagana
27-29 mars má búast við mikilli
umferð vélsleða á hálendinu, en þá
verður haldið hálendisrall, hið
fyrstá sinnar tegundar hérlendis
en ekið verður út frá Hveravöll-
um.
aksjón
20.30 ►Sjónvarpskringlan á Akur-
eyri
21.00 ►Baráttusætin
► Rætt við frambjóðendur í bar-
áttusætum við komandi bæjar-
stjórnarkosningar.
ftiyyn 21.10 ►Níubíó-Saganaf
Irl I nll Litla Jo (The Balladof Little
Jo) Árið 1866 áttu konur í villta
vestrinu um fáa kosti að velja - þær
urðu eiginkonur eða undirmáls. Jos-
ephine Monagan tók stóra ákvörðun
- hún ákvað að verða karlmaður.
Aðalhlutverk SuzyAmis. Bandarísk
1993.