Morgunblaðið - 20.03.1998, Blaðsíða 26
26 FÖSTUDAGUR 20. MARZ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Fyrsti blaðamannafundur nýs forsætisráðherra Kína
Utilokar endurmat á
blóðbaðinu í Peking
Peking. Reuters.
ZHU Rongji sagði í gær á fyrsta
blaðamannafundi sínum frá því
hann var kjörinn forsætisráðherra
Kína að ekki kæmi til greina að
endurskoða afstöðu kínverskra
stjómvalda til blóðsúthellinganna á
Torgi hins himneska friðar í Peking
árið 1989.
Zhu var borgarstjóri Shanghai á
þessum tíma og kom í veg fyrir
blóðsúthellingar þar með því að
sefa námsmenn, sem héldu útifundi
í borginni til að krefjast lýðræðis
og mótmæla spillingu meðal kín-
verskra embættismanna. Hann gaf
þá til kynna að kröfur námsmann-
anna samræmdust markmiðum
kínverska kommúnistaflokksins.
Li Peng, forveri Zhus í embætti
forsætisráðherra, lýsti því hins veg-
ar yfir í sjónvarpi í júní 1989 að sett
hefðu verið herlög í Peking og
hernum var síðan skipað að bæla
niður mótmæli námsmanna í höfuð-
borginni.
Zhu sagði á blaðamannafundin-
um í gær að ekkert væri hæft í því
að hann hefði verið andvígur þeirri
ákvörðun. „Borgaryfírvöld í Shang-
hai voru algjörlega sömu skoðunar
og stjórnin í Peking í þessu máli,“
sagði hann.
Forsætisráðherrann bætti við að
algjör einhugur væri meðal for-
ystumanna kommúnistaflokksins
um að rétt hefði verið að beita
hernum til að binda enda á mót-
mælin. „Á síðustu árum hefur
flokkurinn og stjómin komist að
réttri niðurstöðu í málinu á hinum
ýmsu fundum. Þeirri niðurstöðu
verður ekki breytt.“
Ekki „Gorbatsjov Kína“
Zhu neitaði að ræða pólitíska for-
tíð sína á blaðamannaftmdinum, en
hann er eini ráðherrann í nýju
stjórninni sem var rekinn úr komm-
únistaflokknum fyrir að vera
„hægrimaður" og „endurskoðunar-
sinni“ þegar mörgum menntamönn-
um var vikið úr flokknum árið 1957.
Forsætisráðherrann kvaðst
kunna því illa að vera kallaður
„Gorbatsjov Kína“ og „efna-
hagskeisari“, eins og vestrænir fjöl-
miðlar hafa lýst honum. Hann var
spurður hvort hann væri hlynntur
því að æðstu embættismenn lands-
ins, svo sem forsetinn og forsætis-
ráðherrann, yrðu kjömir í almenn-
um kosningum og hann sagði að til
þess þyrfti að breyta kosningalög-
gjöf landsins. „Ég hygg að nauð-
synlegt sé að rannsaka það mál
frekar.“
Zhu sló á létta strengi á blaða-
mannafundinum og svaraði öllum
spurningum blaðamannanna. Að
því leyti var hann mjög ólíkur Li
Peng, sem er nú forseti þingsins og
hélt einnig blaðamannafund í gær í
tilefni þess að árlegum fundi þings-
ins var slitið. Li þótti gjörsneyddur
kímnigáfu, vildi aðeins svara fjór-
um spurningum og svörin vom
undirbúin fyrirfram.
Nýi forsætisráðherrann ræddi
m.a. myndir af honum sem birtar
vom í Time og Newsweek og lét
þau orð falla að myndin í fyrr-
nefnda tímaritinu hefði verið betri.
„Ég get þó ekki álasað Newsweek
því ég er í rauninni fremur ljótur,“
sagði Zhu, sem er þekktur fyrir að
vera oft ólundarlegur á svipinn og
uppstökkur.
Tæki til að syngja
eins og
London. The Daily Telegfraph.
BRESKUR vísindamaður við
Oxford-háskóla, Ken Lomax,
hefur hannað búnað, sem gerir
hverjum sem er kleift að syngja
með rödd átrúnaðargoða sinna,
söngvara eins og Elvis Presley,
Mariu Callas og Kiri Te
Kanawa.
Þessi tækni byggist á því að
safna ýmsum þáttum sem ein-
kenna stíl söngvaranna á tölvu-
diskum, svo sem framburði
þeirra og tónum. Lomax og
Presley
samstarfsmenn hans hafa hann-
að tölvuforrit og hljóðgervil sem
breytir rödd þeirra sem syngja í
hljóðnema þannig að þeir hljómi
eins og söngvararnir. Markmið-
ið er síðan að búa til karaoke-
tæki, sem byggist á þessari
tækni, en langt er í að þeirri
hönnun ljúki.
Fyrirtækin Sony, Sharp og
IBM eru sögð vera að kanna
búnaðinn með það fyrir augum
að framleiða slíkt tæki.
Von um að blinda
verði læknanleg’
London. The Daily Telegraph.
KOMIÐ hefur í ljós við erfðarann-
sóknir hvað veldur meðfæddri
blindu í hundum og hefur það vak-
ið vonir um, að lækna megi sams
konar galla í mönnum með erfða-
fræðilegum aðferðum.
Vísindamenn við Cornell-há-
skóla í New York og Fred
Hutchinson-krabbameinsstofnun-
ina í Seattle hafa fundið gallaða
konið, sem veldur meðfæddri
blindu í hundum, en það á sér ann-
að samsvarandi í mönnum. Er nú
verið að þróa aðferð við að finna
arfberana meðal hunda en þessi
meðfædda blinda kemur fram i
fimm kynjum.
Hugsanlega verður reynt að
lækna hunda með þennan galla
með erfðafræðilegum aðferðum og
takist það vel þá menn einnig. Yrði
þá heilbrigt kon sett inn í saklausa
veiru og henni síðan komið fyrir
bak við augað. Þaðan bærist hún
og heilbrigða konið inn frumurnar
og læknaði sjúkdóminn.
Reuters
Mótmæli
í Jakarta
NÁMSMENN í Indónesfu æptu
slagorð gegn stjórnvöldum er þeir
efndu til mótmælaaðgerða á göt-
um Jakarta í gær en þá féll úr
gildi bann sem yfirvöld höfðu sett
við slíkum aðgerðum utan skóla-
garða. Um 500 nemendur við
ISTN-háskólann létu í sér heyra í
suðurhluta höfuðborgarinnar.
Námsmennirnir eru óánægðir með
stjóm Suhartos og sérstaklega við-
brögð hennar við efnahagskreppu
sem ríkt hefur í landinu síðan um
mitt ár í fyrra og m.a. leitt til gíf-
urlegrar hækkunar á verði mat-
væla.
Dómur um ESB-aðild
Danmerkur 6. apríl
Kaupmannahöfn. Reuters.
HÆSTIRÉTTUR Danmerkur til-
kynnti í gær að hann muni kveða
upp dóm sinn í dómsmáli um lög-
mæti aðildar landsins að Evrópu-
sambandinu (ESB) á hádegi 6. aprfl
næstkomandi. Þessa dómsúrskurðar
hefur verið beðið með allnokkri eftir-
væntingu í Danmörku - og reyndar
víðar. Hópur Dana sem kallar sig
„stjórnarskrárnefndina" kærði ríkis-
stjóm landsins fyrir að hafa brotið
stjórnarskrána með því að framselja
of mikið vald þjóðríkisins til yfirþjóð-
legra stofnana ESB. Hópurinn tap-
aði málinu í undiiTétti en áfrýjaði því
til hæstaréttar.
Niímskcið um þjómislusljóriuin
Cuslomer Servlce „ttow-To’s*1
Grand Hólel, Sigtiíni 38, Reykjavfk
25. mars n.k. kl. 9-17
Leiðbeinancll Kriih Dhanam
Vlnstonlegu stuðfestlð
pantanir struxl
ðrfá sætl íaus.
Laugavegi 103-105 Reyk|avlk • sfmi 5100 900 • fax 5100 901 • netlang: bretaskeismennt.l8
Ellefu ríki virðast örugg
um stofnaðild að EMU
ÞEIR sem trúa því að stofnríki
Efnahags- og myntbandalags Evr-
ópu (EMU) verði ellefu talsins
fengu í gær nýjar ástæður til að
styrkjast í þeirri trú.
Sir Leon Brittan, sem fer með
fjármál og viðskipti í fram-
kvæmdastjórn ESB, lét þau orð
falla að þessi niðurstaða virtist svo
gott sem frágengin. Þar að auki
greindi belgíska dagblaðið De
Standaard frá því að það hefði
heimildir fyrir því að fram-
kvæmdastjórnin muni í næstu viku
leggja blessun sína yfir væntan-
lega stofnaðild þessara ellefu ríkja,
og hið sama myndu seðlabanka-
stjórar ESB-ríkjanna gera.
Samkvæmt heimildum blaðsins
verða bæði Belgía og Ítalía með í
þessum hópi, þrátt fyrir að skuldir
hins opinbera í þessum ríkjum séu
mun hærri en skilyrði Maastricht-
sáttmálans kveða strangt til tekið
á um.
Hin löndin níu, sem tilheyi-a
þeim hópi ríkja sem þannig er bú-
izt við að megi gera sér vonir um
að verða meðal stofnaðila mynt-
bandalagsins þegar það gengur í
gili um næstu áramót, eru Austur-
ríki, Finnland, Frakkland, Þýzka-
land, írland, Holland, Lúxemborg,
Portúgal og Spánn.
Mat framkvæmdastjórnar og
EMI lagt fram í næstu viku
Peningamálastofnun Evrópu
(EMI), fyrirrennari Evrópska
seðlabankans (ECB), og fram-
kvæmdastjóm ESB eiga að leggja
fram mat sitt á stofnaðildarhæfni
ESB-ríkjanna fimmtán um miðja
næstu viku. Þar sem þetta mat
liggur ekki enn fyrir eiga, að sögn
talsmanna brezkra stjórnvalda,
vangaveltur um hvaða ríki verði
með frá upphafi og hver ekki, ekki
að vera á dagskrá sérstaks fundar
fjármálaráðherra og seðlabanka-
stjóra ESB-ríkjanna í Jói-vík á
Englandi um helgina.
IBM notendaráðstefna Hótel Örk 23. og 24. mars
Slsíáissíraiij T’T h-Tiíúi; w,ivy;ht?rjt.ís
vidskipti Nánari upplýsingar á Nýherjavcfnum og hjá Omari: amarít/ nyherji.is
NÝHERJI