Morgunblaðið - 20.03.1998, Side 35
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 20. MARZ 1998 35
AÐSENDAR GREINAR
Enn á ný gengur
Röskva á bak
orða sinna
ÞANN 19. febrúar s.l.
gengu stúdentar að
kjörborðinu og völdu sér
fulltrúa í Stúdenta- og
Háskólaráð. Úrslitin
urðu þau að Röskva og
Vaka fengu sinn fulltrú-
ann hvor í Háskólaráð. I
Stúdentaráð fékk Vaka
fjóra fulltrúa en Röskva
fimm og hélt þannig
meirihluta sínum í ráð-
inu. I stjóm Stúdenta-
ráðs sitja sex fulltrúar.
Þessi úrslit segja okkur
líka að eðlilega ætti
Vaka að fá tvo fulltrúa í
stjóminni. En hvað ger-
ist? Enn á ný sýnir
Röskva einræðistilburði
og kemur í veg fyrir að Vaka fái sína
réttkjörnu menn í stjóm, með þvi að
hleypa aðeins einum fulltrúa að.
Er Röskva heiðarlegt félag?
Það er kaldhæðnislegt að lesa fyr-
irsagnir frá fulltrúum Röskvu um
hversu heiðarlegt félagið er. Þessir
fulltrúar virðast varla skilja hvað
orðið heiðarlegt stendur fyrir. Það
þýðir hvorki að maður eigi að lofa
kjósendum þessu og hinu, sem svo er
ekki staðið við né heldur að gefa út
yfirlýsingar til samstarfsaðila sem
síðan eru sviknar. Það hefur verið
sátt um það meðal fylkinganna í
nokkum tíma, eins og yfirlýsingar
fyrrverandi formanna Stúdentaráðs,
þeirra Vilhjálms H. Vilhjálmssonar
og Guðmundar Steingrímssonar bera
með sér, að stjóm SHÍ eigi að endur-
spegla valdahlutfóllin í Stúdentaráði.
Þegar hins vegar Vaka vinnur á, eins
og gerðist í síðustu kosningum, er
komið annað hljóð í strokkinn.
Samstarf fylkinganna
Síðustu ár hefur samstarf fylking-
anna verið mjög gott. Þær hafa í sam-
einingu unnið gott starf í hagsmuna-
baráttu stúdenta. Með því að ganga á
bak orða sinna með þessum hætti
hefur Röskva því ekki aðeins brugðist
okkar fólki heldur líka sínum eigin
kjósendum. Kosningar til Stúdenta-
og Háskólaráðs eru lýðræðislegar
kosningar. í síðustu kosningum lagði
stór hluti stúdenta
traust sitt á Vöku. Okkur
þykir miður að Röskva
standi í vegi fyrir því að
Vaka fái sina réttkjömu
menn í stjóm og komi
þannig í veg fyirr að
Vaka fái rými til að
starfa á þessum vett- ^
vangi og geti sinnt kalli
þeirra fjölmörgu stúd-
enta sem kusu okkur.
Framkvæmdarvaldið
Þau rök Röskvu að
stjórnin verði að vera
skipuð fimm röskvu-
mönnum gegn einum
vökumanni, svo að fram-
kvæmdarvaldið sé
tryggt, em út í hött. Eg vil minna á
það að Röskva hefur launaða starfs-
menn sem sjá um að reka Stúdenta-
Það er kominn tími til,
segir Kristín Péturs-
dóttir, að lýðræðið nái
líka inn á borð meiri-
hlutans í Stúdentaráði
og þeir dagar séu taldir
þar sem lýðræðið er lát-
ið þoka fyir einræðinu.
ráð, auk þess sem fjórir fulltúar
Röskvu í stjórn gegn tveimur mönn-
um Vöku ættu að tryggja Röskvu
áframhaldandi meirihluta í stjórn.
Einræðisvaldið Röskva
Allt eftir því hvað er hentugast í
hvert skipti. Þau veigra sér ekki við
að hygla sínum eigin mönnum, enda
undantekning ef það em ekki harðir
röskvumenn sem ráðnir eru í allar
stöður eða fá öll verkefni. Við búum í
lýðfrjálsu þjóðfélagi, þar sem farið
er eftir viija meirihlutans.
Höfundur er laganemi og oddviti
Vöku, félags lýðræðissinnaðra stúd-
enta.
Kristín
Pétursdóttir
(í\>nió oelhomm !
GRÍSAFIÐRILDI Duxel, meö Dijon-sósu og gljáöu graenmeti ÁÐEINSKR. 1490- , Marineruð KJUKUNGABRINGA meö rjómalagaðri paprikusósu. aððnskr.1490.-
| íhádeginuvirkadaga:|
HLAÐBORÐ SÆLKERANS Frjálst val: Súpa, salatbar og heitur matur, margartegundir. kr.790-
Grillaður LAMBAVÖÐVI með bakaöri kqrtöflu og Bemaisesosu. AÐEINSKR. 1490.- Ristaðar GELLUR meö Julian-grænmeti og hvítlauksrjóma AÖBNSKR. 1.490.-
RASTA aö hætti kokksins, boriö fram með hvitlauksbrauði. AE€1NSKR. 1.280.- Grillaðar Laxakótilettur í Basilsósu. MfflNSKR. 1.490.-
Tilboð öll kvöld
og um helgar.
Bamamatseðill
fyrir smáfólkið!
. //cd ölluin /lessunij/ónistetw réttum
^jijlyii' súfni, brauuSban, salatbar■ otj isfiar.
POTTURINN
OG
cVviHSlijhlmr
atf aótSu!
BRfiUTflRHOLTI 22
SlMI 551-1690
Bæta þarf réttarstöðu
sjónskertra barna
BRÝNT er orðið að
bæta aðstöðu sjón-
skertra barna í þjóðfé-
laginu. Sjónskert böm
hafa um langan tíma
búið við það að fá miklu
minni aðstoð frá samfé-
laginu en heymarskert-
ir. Heyrnarskert böm á
skólaskyldualdri eiga
rétt á nauðsynlegum
heyrnartækjum sér að
kostnaðarlausu, sem er
auðvitað alveg sjálfsagt
og eðlilegt.
Aftur á móti er ekki
greitt fyrir gleraugna-
kaup sjónskertra barna,
nema í undantekningar-
tilvikum. Vandamál
tengd sjón og heym eru þó jafnmik-
ilvæg í læknisfræðilegum skilningi.
Öll heilsuskerðing sem þeim tengist
er samkvæmt upplýsingum Augn-
læknafélags íslands jafnlíkleg til
þess að valda þeim einstaklingum
sem í hlut eiga erfiðleikum, óþæg-
indum og kostnaði.
Fyrir Aiþingi liggur nú frumvarp
sem undirrituð hefiu' flutt ásamt
Astu Ragnheiði Jóhannesdóttur og
Guðmundi Áma Stefánssyni, sem
bæta á réttarstöðu sjónskertra
barna og jafna aðstöðu þeirra á við
heyrnarskerta.
15% barna yngri en 18 ára
eru sjónskert
12 þúsund böm af 80 þúsund, eða
um 15%, þurfa á gleraugum að
halda. Þessi böm njóta ekki nauð-
synlegrar aðstoðar hjá samfélaginu
og því hættara en öðrum að verða
fyrir erfiðleikum í námi. Upplýst er
af Augnlæknafélagi Islands að sjón
bama breytist mjög ört og þurfa
þau því oft að skipta um gleraugu
ólíkt því sem gildir um fullorðna.
Það getur því vegið þungt i fram-
færslu heimilanna, ekki síst hjá lág-
launafjölskyldum, þegar jafnvel
fleiri en eitt barn í sömu fjölskyldu
þarf á gleraugum að halda. Sjónlag
er ættarfylgja og því algengt að
systkini noti t.d. bæði eða öll gler-
augu. Samkvæmt upplýsingum
Augnlæknafélags íslands koma for-
eldrar sjaldnar en ella
með böm sín í augn-
skoðun, vegna þess
hversu dýrt er að kaupa
gleraugu fyrir börnin
og hve oft þau þurfa að
skipta um gleraugu.
Sjón ungra Islend-
inga hefur hrakað mjög
undanfarin ár. Nærsýn-
um hefur fjölgað um-
talsvert, sérstaklega í
grann- og framhalds-
skólum. Mikilvægt er
að bregðast við þessum
breytingum og gera
börnum yngri en 18 ára
kleift að eignast gler-
augu, óháð eftiahag,
þannig að þau geti
stundað nám sitt á eðlilegan hátt
eins og aðrir.
Skref til jöfnunar
Á Norðurlöndum era börn undir
15 ára aldri hlutfallslega flest hér á
landi. Af heildinni eru börn hér á
landi 24,5%, af heildinni en á hinum
Norðurlöndunum á bilinu 17-19%.
Útgjöld á íbúa til barna og fjöl-
skyldna þeirra er engu að síður lang
lægst hér á landi, eða 42 þúsund
krónur á hvem íbúa, en frá 72 þús.
upp í 87 þús. á íbúa á hinum Norð-
urlöndum. Bætt réttarstaða sjón-
skertra bama í samfélaginu, eins og
hér er lagt til, er í samræmi við op-
12 þúsund börn af 80
þúsund, eða um 15%,
eru sjónskert, segir Jd-
hanna Sigurðardóttir.
Þessi börn njóta ekki
nauðsynlegrar aðstoðar
hjá samfélaginu.
inbera fjölskyldustefnu sem sam-
þykkt var á Álþingi á sl. ári. Sam-
kvæmt frumvarpinu er gert ráð fyr-
ir að ríkið taki þátt í greiðslu sjón-
glerja að tveimur þriðju hlutum að
lágmarki hjá sérhverjum þeim sem
er yngri en 18 ára og þarf á gler-
augum að halda. Meginreglan er sú
að börn fái ný gleraugu á tveggja
ára fresti nema í undantekningartil-
vikum. Hér er einungis stigið fyrsta
skrefið til jöfnunar á aðstöðu sjón-
skertra og heyrnarskertra barna.
Heymarskertir 18 ára og eldri eiga
rétt á því að ríkið greiði 60% af
kostnaði þeirra við nauðsynleg
heyrnartæki, en sjónskertir 18 ára
og eldri fá ekki sambærilega aðstoð.
Hér er á ferðinni brýnt réttlætis-
mál til að bæta réttarstöðu bama í
samfélaginu sem vonandi fær fram-
gang á Alþingi fyrr en seinna.
Höfundur er alþingismaður.
Jóhanna
Sigurðardóttir
Bjóðum nú á ótrúlegu tilboði m.a.
Vönduð Spice-Girls arbandsúr á......kr. 998, áður 3.330
Spice-Girls vekjaraklukka á.........kr. 898, áður 2.400
Spice-Girls dagatal ................kr. 398, áður 898
Kerti hvít 20 cm. 8 stk. í kassa,
2 fyrir einn .......................kr. 198, áður 396
Drykkjarkönnur með myndum 4 stk.....kr. 198, áður 396
Gúmmívettlingar þunnir,
stærð smali-medium 2 stk............kr
Gúmmívettlintar þykkir 2 stk........kr
Bogasög ............................kr
Traktor með kerru ..................kr
198, áður 396
198, áður 396
198, áður 298
298, áður 498
Otmlega
bwin
EITT VERÐ Á ÖLLUM VÖRUM
KRINGLUNNI - LAUGAVEGI - KEFLAVÍK