Morgunblaðið - 20.03.1998, Síða 36
36 FÖSTUDAGUR 20. MARZ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
JHttrgtmHfifrtfe
STOFNAÐ 1913
ÚTGEFANDI
FRAMKVÆMDASTJÓRI
RITSTJÓRAR
Árvakur hf., Reykjavík.
Hallgrímur B. Geirsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
STÆKKUN NATO
FYRRI umræða um þingsályktunartillögu um stækkun
Atlantshafsbandalagsins fór fram á Alþingi í gær, en
á leiðtogafundi bandalagsins í Madríd á síðasta ári, var
samþykkt að bjóða þremur nýjum ríkjum, Póllandi, Tékk-
landi og Ungverjalandi aðild að því. Aðildarviðræðum
lauk í desember á síðasta ári.
Stækkun Atlantshafsbandalags hefur verið fagnað í
flestum aðildarríkjum og ríkir víðast hvar almenn sam-
staða um mikilvægi þess að veita nýjum ríkjum aðild. Það
á einnig við hér á landi og voru það einungis þingmenn
Alþýðubandalagsins er höfðu efasemdir um stækkunina í
umræðunum í gær.
Aðildarríkjum hefur áður verið fjölgað og ávallt hefur
það orðið til að styrkja NATO-samstarfið. Nú gefst í
fyrsta skipti tækifæri til að veita ríkjum í austurhluta
Evrópu aðild að þessu samstarfí, sem að flestu leyti er
einstakt í sögunni. Aðild Ungverja, Tékka og Pólverja
mun treysta lýðræðið í þessum ríkjum og þar með stöð-
ugleika í Evrópu.
Það er helst í öldungadeild Bandaríkjaþings, sem
heyrst hafa gagnrýnisraddir vegna stækkunarinnar, þótt
flest bendi til að hún verði samþykkt þar með miklum
meirihluta. Efasemdamenn um stækkun hafa bent á að
hættulegt geti verið að einangra Rússa og jafnframt hef-
ur á síðustu misserum heyrst gagnrýni á hugsanlegan
kostnað vegna stækkunar. Rússar hafa hins vegar sætt
sig við stækkunina í raun og eru ýmis ummæli rússneskra
ráðamanna að undanförnu til marks um það. Samstarfs-
samningur Rússa og NATO, er undirritaður var í maí á
síðasta ári, ætti jafnframt að tryggja að samráð verði haft
við Rússland í mikilvægum málum. Þá hafa kostnaðará-
ætlanir bent til að kostnaðurinn við stækkun verði veru-
lega minni en í upphafí var talið.
Flest bendir því til að stækkunin verði samþykkt
átakalítið. Það liggur hins vegar jafnframt fyrir, ekki síst
í Ijósi umræðna í bandarísku öldungadeildinni, að hart
verður tekist á um næstu lotu stækkunar.
BANKAR í BREYTTU
UMHVERFI
BANKAR, bæði hér og erlendis, standa frammi fyrir
gjörbreyttum aðstæðum. Tæknibyltingin hefur leitt
til þess, að bankaviðskipti fara í vaxandi mæli fram með
rafrænum hætti. Sá viðskiptamáti á eftir að breiðast út á
næstu árum. Áhrifin verða þau, að færra fólk kemur í
bankaútibúin til að stunda viðskipti. Það má sjá nú þegar
í bankaútibúum hér fyrir utan örfáa daga í hverjum mán-
uði. Þetta þýðir aftur að bankarnir þurfa ekki á jafn
mörgum starfsmönnum að halda og áður.
Þessi gjörbreytta staða var til umræðu á ársfundi Sam-
bands bankamanna í Borgarnesi í fyrradag. Það sýnir
raunsæi bankamanna sjálfra að taka þessi málefni til um-
ræðu enda mikið í húfí fyrir stai-fsfólk bankanna að gera
sér grein fyrir þeim breytingum, sem framundan eru og
snúa beint að hagsmunum þeirra og starfsöryggi. í ís-
landsbanka einum voru sjálfsafgreiðslur árið 1990 5% af
færslum, en nú er hlutfallið 56% og spá segir 80% árið
2000. Með þessu minnkar þörfin fyrir mörg útibú, en
fækkun bankaútibúa hérlendis á þessum áratug er aðeins
1% á meðan hún er mun meiri á hinum Norðurlöndunum,
t.d. 30% í Finnlandi.
Bankastjórarnir, sem töluðu á ársfundi bankamanna
telja nauðsynlegt að bylta bankakerfínu. „Við lifum á tím-
um örra breytinga og okkur er nauðsynlegt að taka þátt í
þessum breytingum. Ef við gerum það ekki þá verðum við
að steingervingum og missum þennan veigamikla þátt
sem fjármálaþjónustan er til annarra aðila“, sagði Guð-
mundur Hauksson, sparisjóðsstjóri hjá Sparisjóði
Reykjavíkur og nágrennis.
Það virðist nokkuð almenn samstaða um þá skoðun að
sameina beri banka og að þeim hljóti að fækka. Nauðsyn-
legt er að hagræða og spara í bankakerfinu. En í þessu
sambandi er þó vert að hafa í huga að bezti vinur við-
skiptamannsins í bankakerfinu er samkeppni. Samkeppn-
in, sem kemur frá öðrum fjármálaíyrirtækjum en bönk-
unum virðist vera að breyta þeim og hugsunarhætti
þeirra, en hún er einnig nauðsynleg þeirra í milli. Það má
aldrei gleymast.
Utvegsmenn felldu miðlunartillögur
íslands. „Ég veit sannast sagna ekki
hver næstu skref verða en mér þyk-
ir trúlegt að við munum reyna að ná
sambandi við sjávarútvegsráðherra
og heyra ofan í hann hvað verður
um þessi frumvörp ef deilan verður
löng,“ sagði Helgi einnig og kvað
það nýmæli ef ekki einsdæmi að
vinnuveitendur felldu miðlunartil-
lögu.
„Ég geri mér ekki alveg grein
fyrir ástæðu þess að þeir fella tillög-
una en ég held að þyngst vegi þessi
frumvörp þríhöfðanefndarinnar,
sennilega fyrst og fremst kvótaþing-
ið. Það segir okkur það kannski að
þeir hafa engan áhuga á því að
hætta kvótabraskinu, það er
kannski kjarninn í þessu og að
minnsta kosti rökrétt ályktun að
mínu mati.“
Verður að byrja
upp á nýtt
Helgi sagði ekkert annað að gera
nú en setjast niður og halda áfram
viðræðum, deilan væri enn hjá
sáttasemjara og hann hlyti að kalla
menn saman fljótlega og hún færi
ekkert frá mönnum. „Það er ekki
um annað að ræða en setjast niður
og byrja upp á nýtt.“
En hvaða erindi telur hann vél-
stjóra eiga við sjávarútvegsráð-
heiTa? „Hann setti það sem skilyrði
til þess að frumvörpin færu inn á
þing að verkfalli yrði aflýst. Við er-
um búnir að gera það sem í okkar
valdi stendur til þess, búnir að fara
fram með miðlunartillöguna og fá
SÆVAR Gunnarsson, formaður Sjc
hana samþykkta með 85% meiri-
hluta en verkfallið stendur ennþá og
enginn kjarasamningur kominnn á.
Þá er spurningin sú hvort ráðherra
líti svo á að við séum búnir að upp-
fylla þau skilyrði sem hann setti
okkur með þessu. Það sem skiptir
máli er að fá að vita hver afstaða
hans er til málsins," sagði Helgi
Laxdal að lokum.
Niðurstaðan
afgerandi
„Þessi niðurstaða er nokkuð í
samræmi við það sem ég hafði
skynjað meðal félaga okkar og ég er
mjög þakklátur fyrir hvað menn
lögðu mikla áherslu á þetta með því
að sýna svo mikla þátttöku," sagði
Kristján Ragnarsson, formaður
Landssambands íslenskra útvegs-
manna, en nærri 90% þeirra
greiddu atkvæði um miðlunartillög-
umar. „Niðurstaðan er mjög afger-
andi og menn eru ósáttir við tillög-
una og ósáttir við að ekki skuli hafa
náð inn í hana miðlun á þeim ágrein-
ingi sem uppi er um áhrif þess þeg-
ar fækkar í áhöfn, að útgerð þurfí
ekki að greiða þeim sem eftir eru
meira en hinum sem fóru,“ og segir
Kristján þetta einn aðal ásteyting-
UTVEGSMENN felldu
miðlunartillögur sátta-
semjara en samtök sjó-
manna samþykktu þær en
talningu eftir atkvæðagi-eiðslu lauk
hjá sáttasemjara laust fyrir klukkan
19 í gær. Verkfall stendur því áfram
og kvaðst ríkissáttasemjari mundu
verða í sambandi við deiluaðila til að
meta hvort boðað yrði til nýs samn-
ingafundar einhvern næstu daga.
Niðurstöður atkvæðagreiðslunn-
ar eru sem hér segir: Utvegsmenn
felldu tillöguna gagnvart Vélstjóra-
félagi Islands og Vélstjórafélagi ís-
firðinga en 72% voru andvigir henni,
27% meðmæltir og 1% seðla var
autt. Þátttaka var 89,3%. Gagnvart
öðrum samtökum sjómanna, þ.e.
Sjómannasambandi Islands, Far-
manna- og fiskimannasambandi ís-
lands, Alþýðusambandi Vestfjarða
og Skipstjóra- og stýrimannafélag-
inu Bylgjunni, fór atkvæðagreiðslan
þannig að 72% útvegsmanna voru
henni andvígir, 25% meðmæltir og
3% þeirra skiluðu auðu. Þátttakan
var hin sama, 89,3%.
Hjá vélstjórum var miðlunartil-
lagan samþykkt. Já sögðu 288 eða
85%, nei sögðu 49 sem eru 14% og
tveir seðlar eða 1% voru auðir. A
kjörskrá voru 1.226 en 349 greiddu
atkvæði.
Talið var sameiginlega hjá öðrum
samtökum sjómanna sem þátt tóku í
atkvæðagreiðslunni og samþykktu
1.195 tillöguna eða 71,5%, 466 eða
27,9% höfnuðu henni en 10 eða 0,6%
skiluðu auðu. Þátttaka var samtals
43,9% hjá þessum samtökum sjó-
manna.
Eru á sama reit
og fyrr
„Þetta sýnir í hversu hörðum
hnút deilan er,“ sagði Þórir Einars-
son ríkissáttasemjari í samtali við
Morgunblaðið í gær þegar niður-
stöðurnar lágu fyrir. „Ég mun verða
í sambandi við menn, mun ekki boða
til fundar á morgun en sjá til hvort
grundvöllur verður fyrir fundi fljót-
lega,“ sagði ríkissáttasemjari enn-
fremur.
Sáttasemjari kvaðst gera ráð fyr-
ir að deiluaðilar vildu nú hugsa ráð
sitt og sagði menn nú í sömu spor-
um og fyrr: „Við erum á sama reit
og við vorum eftir að lagafrumvörp-
in komu fram. Það er ennþá verkfall
og frumvörpin eru til, en gagnvart
mér er verkefnið óleyst" sagði Þórir
Einarsson.
„Verkfall heldur áfram, málið er
ekki flóknara en það,“ sagði Helgi
Laxdal, formaður Vélstjórafélags
FULLTRÚAR sjómanna og vararíkissáttasemjari rýna í i
Verkfall
áfram og-
engir fund-
ir í bili
Pátttaka sjómanna í atkvæðagreiðslu um
miðlunartillögurnar var mun minni en út-
vegsmanna. Sáttasemjari segir niðurstöð-
una sýna í hversu hörðum hnút deilan sé.
Hjálmar Jónsson og Jóhannes Tómasson
hleruðu sjónarmið deiluaðila þegar niður-
stöðurnar lágu fyrir.