Morgunblaðið - 20.03.1998, Side 40
40 FÖSTUDAGUR 20. MARZ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
Stj órnmál
götuvitans
Þrátt fyrir sérstöðuna einstöku og ein-
stöðuna sérstöku greina íslensk stjórn-
mál sig tæpast frá öðrum í neinum að-
alatriðum. Þau eru um flest lögmáls-
bundin og ágætlega fyrirsjáanleg.
S
lýðræðisríkjum velja
kjósendur að öllu jöfnu
þau stjórnmálaöfl sem
best eru talin geta
tryggt afkomuöryggi og
stöðugleika. Því skal ekki fram
haldið hér að þessi orð feli í sér
ný og áður óþekkt sannindi.
Vitanlega geta aðrir þættir
haft áhrif á val kjósenda, svikin
loforð, spillingarmál, persónu-
vinsældir einstakra manna, svo
dæmi séu tekin en þessi póli-
tíska greining virðast eiga furðu
víða við þegar kjósendur ganga
að kjörborðinu í þokkalega stöð-
ugu efnahagsástandi. Neyðist
menn ekki til að taka áhættuna,
kjósa þeir að öllu óbreyttu ekki
að gera það.
Raunar kom
UinunDE þetta fram með
VIUnUKh skýrum hætti í
Eftir Ásgeir þingkosningun-
Sverrisson um { Dan-
mörku í fyiri
viku. Stjórn Poul Nyrup
Rasmussen hélt velli vegna þess
J að óákveðnir kjósendur ákváðu
þegar inn í kjörklefann var
komið að viturlegast væri að
kalla ekki yfir sig neinar þær
breytingar sem raskað gætu af-
komunni og þeim stöðugleika
sem ríkir í landinu.
Þegar horft er yfir sviðið
virðast þessi sannindi eiga við
víðar. Breski Verkamannaflokk-
urinn komst ekki til valda fyrr
en vinsæll leiðtogi hafði boðað
að engar róttækar breytingar
yrðu gerðar á efnahagsstefnu
þeirri sem ríkisstjórnir íhalds-
manna höfðu íylgt. Mestu skipti
vafalaust að hann hét því jafn-
framt að skattheimta yrði ekki
' aukin og miðstýring ekki inn-
leidd. Kjósendur voru með öðr-
um orðum ekki neyddir til að
taka áhættu og reyndust þá
ólmir vilja skipta um ráðamenn.
í Bandaríkjunum töpuðu
repúblíkanar kosningunum árið
1992 vegna þess að Bush forseti
hafði svikið loforð um að skattar
yrðu ekki hækkaðir. Þegar Bill
Clinton hét hinu sama og full-
yrti að auki að tímar hinnar
miklu miðstýringar væru liðnir
treystu kjósendur sér til að taka
áhættuna.
Vera kann að Helmut Kohl,
kanslari Þýskalands, tapi kosn-
ingunum í haust af þessum
sömu sökum. Jafnaðarmenn
hafa - raunar í anda Tony Blair
og Bill Clinton- fært sig svo
næri-i málflutningi Kohls og
hans manna að kjósendur
kunna að álykta sem svo að það
sé áhættunnar virði að hleypa
nýjum mönnum að.
Skyldi það sama eiga við um
Island? Er sú sterka staða sem
núverandi ríkisstjórn virðist
njóta, ef marka má skoðana-
kannanir, til marks um að al-
menningur hugsi á sama veg og
fólk í Þýskalandi, Danmörku,
Bretlandi og Bandaríkjunum?
Þótt íslendingum verði tíð-
rætt um sérstöðu lands og þjóð-
ar verður ekki annað séð en
þessi hljóti að vera skýringin á
þeim pólitísku staðreyndum
sem við blasa hér á landi. Mikill
meirihluti kjósenda ver ekki at-
kvæði sínu á grundvelli hug-
sjóna eða háleitra hugmynda
um réttlæti eða stöðu íslensku
þjóðarinnar í framtíðinni svo
dæmi sé tekið. Almenningur í
þessu landi hefur einkum
áhyggjur af afkomuöryggi sínu
og vill ekki breytingar þegar
það telur þeim hagsmunum
borgið. Skoðanakannanir gefa
með öðrum orðum til kynna að
fólk telji upp til hópa ástæðu-
laust að taka áhættuna með því
að kalla yfir sig nýja ríkisstjórn
og nýja ráðamenn.
En fylgifiskar þessarar grein-
ingar, sé hún rétt, eru margir.
Við blasir að stór hluti kjósenda
getur verið óánægður með
ákveðna þætti stjórnarstefn-
unnar án þess að það komi
glögglega fram í kosningum.
Öánægja vegna andstöðu við
veiðileyfagjald eða sökum að-
gerðaleysis stjórnvalda í tengsl-
um við spillingarmál manna,
sem treyst hefur verið til að
gegna mikilvægum embættum,
gætu verið dæmi um þetta.
Eins má tengja þessa grein-
ingu við umræður um samein-
ingu á vinstri vængnum. Felur
hún ekki í sér tilraun til að nálg-
ast „miðjuna" í íslenskum
stjórnmálum með sama hætti og
jafnaðarmenn gerðu í Bretlandi
og Þýskalandi og demókratar
þar áður í Bandaríkjunum? Get-
ur talist skynsamlegt að bjóða
fram þetta nýja samstarfsform í
næstu þingkosningum þegar
flest bendir til þess að Islend-
ingar muni ekki reynast tilbúnir
til að taka áhættuna? Og meðal
annarra orða hvernig ber að
skilgreina „miðju“ íslenskra
stjórnmála nú um stundir og
hvaða flokkar standa skýrlega
utan hennar?
Þegar aðgreinandi málefni
skortir fá einstaklingarnir óhóf-
legt vægi í pólitísku tilliti.
„Sterkir einstaklingar" hafa
löngum þótt einkenna íslensk
stjórnmál (þeir einkenna raunar
stjórnmál almennt og yfirleitt
en það er önnur saga). Nú þeg-
ar ekki verður annað séð en að
flestir stjórnmálaflokkanna
standi enn nær „miðjunni" en
oftast áður má auðveldlega
halda því fram að einstakir
menn fái meira vægi en hug-
myndir og baráttumál. Því má
einnig auðveldlega halda fram
að slík þróun geti ekki talist
sérlega heppileg í lýðræðislegu
rökræðuþjóðfélagi.
Þrátt fyrir sérstöðuna ein-
stöku og einstöðuna sérstöku
greina íslensk stjórnmál sig
tæpast frá öðrum í neinum aðal-
atriðum. Þau eru um flest lög-
málsbundin og ágætlega fyi-ir-
sjáanleg; líkust götuvitanum,
því undursamlega afsprengi
mannsandans. Lögmálsbundin
ljósaröðin tryggir greiða fram-
rás þegar réttum hraða er fylgt
en utanaðkomandi truflanir
geta svipt þetta galdratæki
helstu eigindum sínum og kallað
á nýjar akstursleiðir.
gs Akcsuu
Sokolov : C I H
Ward L.
erkialand
mmmumm•#> k l » t fc » « » »
Í5LÝSINGAR
OG SKILTÍ
ViSA
V/SA lv;m Sokolov
‘A r i —V \~t~T
JAFNTEFU |
, Morgunblaðið/Þorkell
IVAN Sokolov t.v. og Larry Christiansen sigurvegari mótsins tefla í síðustu umferð.
Þröstur missti Miles
af önglinum
XVIII Reykjavíkurskákmótið 1998
Reykjavik, 10-18.3.1998
Nr. Keppandi 1 2 3 4 5 6 7 8 9 Mls
1 Larry M. Christiansen SM USA 2575 1» 1 > 1 “ T ■T 1 13 1J %J 7 'A
2 Nick E. DeFíimian SM USA 2590 141 15 14 11 iJJ 'A ' 14 y." 1iJ íT5-
3 Curt Hansen SM DEN 2595 ’/.■*' 1“ T 'Ab 114 0 1 1 13 1n 6 'A
4 Ivan Sokolov SM BIH 2625 iSi y.’s 0 17 144 14B o2 149 1 '• V21
5 Ralf Akesson SM SWE 2505 i4' 0 2 1“ T 'A4 %14 144 </.1 'A7
6 Igors Rausis SM LAT 2520 1* 1ía 1444 ’/.u ’/T T 'A*
7 Christopher Ward SM ENG 2480 T5T 0 1 1J/ 04“ T 1Jl y.# 1 23 'A 5
8 Nigei R. Davies SM ENG 2515 0* 1 ■» T Anr 'A 1 T y,“ 6
9 Jesper Hall AM SWE 2460 'A 44 %i4 1“ ’/.’4 T y.23 1'» y." 'A“ 6
10 Stefan Kindermann SM GER 2565 34“ 1» 'Aiú ’/T 14 44 049 144 1 J' 1 ‘4 6
11 Heikki M.J Westerinen SM FIN 2410 1 ’‘i 'A 34 yT y.“ T y.J 'A9 03 5'A
12 Jonny Hector SM SWE 2505 1A 0 1 1JI -jvr 0 J T % ” 14 14 5 %
13 Joseph G. Gallagher SM SUI 2490 y.4 1 * 14 4 144 0 1 y. ’• 0 3 1 5 A
14 Simen Agdestein SM NOR 2570 -jnr 0” 1““ >/.“ T 'Ab 1u 02 % 11 5A
15 Helgi Ólafsson SM 2505 11* ib/ 'A2 y.41 1441 Tw TT %26 y, “ 5 'A
16 Anthony J. Miles SM ENG 2595 y.“ 14* T 1' ’/.14 y.|J oú 144 ’/," 5 'A
17 Þröstur Þórhallsson SM 2480 1" y.JS 14 y.44 ’/T 'Ati o14 T ’/T 5 'A
18 Karel Van Der Weide FM NED 2450 1“ T' ’/T 14* 14” 0 4 134 5 'A
19 Jón Viktor Gunnarsson 2390 1» TT 0ti y. “ 1J/ 1 34 ’/.13 ’/.14 14 ’5 5'A
20 Einar Gausel SM NOR 2555 “T y.’9 </.a1 'A 32 1 J“ 0 11 0 4 1* 1 * 5'A
21 Slavko Cicak AM SWE 2480 TTr 1 T 03 T T 'Ab 0* 1Ji 5 A
22 Björgvin Jónsson AM 2380 Tw 1 44 1* 02 -JW T O5 0 16 1 5
23 Hannes H. Stefánsson SM 2540 iT 1 49 y.30 T ’/.14 %i# 0 7 'Azú 5
24 Heini Olsen FAI 2270 141 14“ 14 “ 0 4 y.44 1 * 1 “ 1iJ 0 “ 5
25 Friso Niiboer SM NED 2580 1M 14“ 148 0 1 ou 1 M 0 30 'A 41 ■IJJ 5
26 Tiger Hillarp Persson AM SWE 2410 o“ 1S/ 0“ 1 * 1,u 14* y,lj 0‘u 5
27 Eriing Mortensen AM DEN 2510 1 14* O44 T 02í T o24 141 5
28 Stuart Conquest SM ENG 2480 jjr 14“ o25 •t1,8 0 4 0jJ 144 106 y,u 5
29 Neil H. Bradbury AM ENG 2360 1“ 14“ ’/.4/ 02J ’/T o39 1J" \4u 5
30 Mikhail M. Ivanov SM RUS 2440 -pT iur •/.* 14’° 0* T 1 25 0° 013 4'A
31 Jón G. Viöarsson FM 2380 T* 14“ ’/.* 0 12 1“ 0 7 144 0 IJ %35 4 'A
32 John R. Richardson FM ENG 2315 0 4 1“ T TT 0 14 ^ ÖS 0 12 144 0'1 4'A
tt 1® 0 13 1 0“ T 0 ,J o32 1Jl 4'A
34 Rune Djurhuus SM NOR 2510 i» 144 'A 11 'AiJ 01J 019 14“ 1Jl 0 4 'A
0 4 1“ 0 14 T 0 49 o24 1m 1 ^ 'AJ) 4'A
36 Arinbjöm Gunnarsson 2240 0 1 1“ 03Í ^ 63 o4' 1« 031 ’/,3" 1 ^ 4'A
37 Kristján Eövarösson 2205 0 14 1* 0 ' T 0 19 'A 40 ’/.S3 ’/T 1 J‘ 4 'A
38 Jón Ámi Halldórsson 2185 o'4 T 021 0“ ’/T 1 ’/T ’/T 1 JU 4'A
39 Tómas Bjömsson FM 2235 -jw 0^ 14W 1 ^ 0 ; 144 1 * 0 17 02é 4
40 Júlíus Friðjónsson 2215 14“ 0’“ y.44 T 021 T 02> 1 0 29 4
41 Áskell ö. Kárason 2260 y.s’ 'A3 T 0b 0““ 1 “ %M 14» 0“ 4
42 Þorvarður F. Ólafsson - o" 1" 0 41 oi7 jrw 149 04“ ’/T -IJU 4
43 Ulf Dewenter GER 2245 1“ 0 J4 0 44 141 ’/T 030 14“ ’/,J' ’/,4' 4
44 Davíö Kjartansson 2100 0* y2*> 14 44 14 46 0jJ 0 58 194 1Jj 4
45 Stefán Kristjánsson 2255 o2 0“J %lJ 141 'A 44 ’/.“' 0.,l y,“3 1Jl 4
46 Stefán Briem 2185 o'4 o“ 1 “4 'A44 14 44 0JJ ’/T 'A^ \J0 4
47 Hubert Petermann GER2125 0 17 0 44 y.44 045 T o48 1 °J 1 jJ 'A 43 4
48 Gunnar Finnlaugsson SWE2215 “Pir 0 42 068 ^ 66 TT 14/ TT \ ^ 022 4
49 Helgi E. Jónatansson - 0* 14 4’ 040 0 M o42 j é6 \ bJ 1 u 4
50 Einar Kristinn Einarsson 2085 %h 0Ji 14“ % 19 'A43 ’/.4“ 14 41 04j 0 JU 3 'A
o27 'A4y 1 "4 ’/T 0 4J 1 ^ 034 0JJ Z'A
52 Bjöm Þorfmnsson 2100 %a 0« 14 44 oJi ’/." 1 T 0* o37 3 'A
53 Hrannar Baldursson - 0* 0 J“ ’/.4/ T 1* 0JJ 14 37 'A 40 0 36 3'A
54 Pertti llari Lehikoinen FIN 2250 “P5 0 J obl 0 “J i| Ó3 14 46 047 106 3'A
14/ o6 044 T 'A34 0*'“ 3 'A
56 Halldór Pálsson - o’” 0 Jb 1 *■ Tj“3iT T 021 024 0 40 0 46 3
T* 0 15 0 * 0“ ’/T o38 1“ ~%* o^ 3
o8 .j éé 14* 0* 14® o4' 1 44 0 48 04‘ 3
0“ 0“" 044 1 49 T ’/T 0 35 O44 3
60 Siguröur P. Steindórsson - oid 1« TU® 0 33 "Í4® Qlki ■j 6Ö 0 04 3
61 Hans-Joachim Wiese GER 2165 ob o21 1 ^ 043 'A42 obi 14 u ’/,57 ’/,44 3
62 Torfi Leósson 2160 0 QÍVÍ ^ 6é -yss oj1 “ö33 0,ji r| Ö3 0-“ 3
63 Heimir Ásgeirsson 2140 0 y 14i 0“ 036 0 0M TT 0b‘ •10J 2'A
64 Hans-Joach Schubert AUT 2070 o“ 0Jl -ya y.4s o41 T o57 0 2
65 Hialti Rúnar Ómarsson - 04- 0 3 0“ ’/.“ 1 66 -pa 0 47 0J" 063 1 'A
66 Guðión H. Valgarösson - 0« T5 T^ 044 06S q6J 0 49 06ú 1* 1
SKAK
Skákheimili Tafl-
félags Iteykjavíkur
18. REYKJAVÍKUR-
SKÁKMÓTIÐ
BANDARÍKJAMAÐURINN
Larry Christiansen efstur af 66
þátttakendum. 10.-18. mars.
ÞAÐ varð jafntefli á mörgum
borðum í síðustu umferð Reykja-
víkurskákmótsins og staða efstu
manna breyttist lítið. Ivan
Sokolov gerði harða hríð að
Christiansen og var kominn með
vænlega stöðu, en enn einu sinni
leysti Bandaríkjamaðurinn vanda-
mál sín á fullnægjandi hátt. Curt
Hansen skaust upp í þriðja sætið
með því að sigra Finnann
Westerinen og tekur því forystuna
í nýrri umferð norrænu VISA-bik-
arkeppninnar.
Islensku keppendurnir á mótinu
náðu ekki að blanda sér í baráttuna
um efstu sætin. Jón Viktor Gunn-
arsson stóð sig þó mjög vel og er
greinilegt að hann stendur vel und-
ir nýfengnum alþjóðlegum meist-
aratitli sínum og gott betur. Jón
Viktor á nú skilið að fá tækifæri til
að spreyta sig með íslenska lands-
liðinu og gæti það orðið á Ólympíu-
mótinu í haust. Björgvin Jónsson
stóð sig einnig vel þrátt fyrir langt
hlé frá taflmennsku. Fimm Is-
lendingar eru komnir á blað með
stig í norrænu bikarkeppninni, þeir
Jón Viktor, Þröstur Þórhallsson,
Helgi Ólafsson, Hannes Hlífar og
Björgvin.
Þröstur Þórhallsson tefldi langlíf-
legast af íslensku stórmeisturunum
og hefði getað náð hærra sæti ef
hann hefði landað enska stórmeist-
aranum Tony Miles í síðustu um-
ferð. Það vai- greiniiegt af þessari
skák að báðir lögðu allt undir til að
freista þess að bæta lokastöðu sína
á mótinu. Þessi staða kom upp eftir
45. leik Þrastar sem var með hvítt.
Svart: Miles
Hvítt: Þröstur
46. - Be5!
Hótar máti á b2
47. Dh7+ - Kd6?
Svartur átti að leika 47. - Kf8,
því þá á hvítur ekkert betra en
jafntefli með þráskák: 48. Dg8-I—
Ke7 49. De6+ og nú gengur 50.
Dxe6?? auðvitað ekki vegna 50. -
Dc2+ og svartur vinnur)
48. Bb3+?
Nú sleppur Miles með skrekk-
inn. Rétt var 48. Bf3+ - Bd4 (Eða
48. - Kc5 49. Hd5+ - Kb4 50. a3+
- Kxa3 51. Dd3+ - Bc3 52. Da6+
- Ba5 53. Hxa5+ - bxa5 54.
Dxa5+ - Kb3 55. Bdl+ - Hc2 56.
Da2+ og vinnur) 49. Dg6+ - Kc5
50. Dxh5+ - Kb4 51. Be2! - Hc4!
(Betra en 51. - Hc5 52. Dg4 - Hc4
53. Hfl og vinnur) 52. Df3! Með
vinningsstöðu á hvítt, þar sem
svartur má ekki fara í drottninga-
kaupin) 48. - Bd4 49. Dg6+ - Kc5
50. Hcl+ - Kb4 51. Dd6+ - Kb5
52. Dd5+ - Hc5 53. Dd7+ - Ka6
54. Da4+ - Kb7 55. Dd7+ - Ka6
56. Da4+ - Kb7 57. Dd7+ og hér
var samið jafntefli.
Margeir Pétursson
Daði Örn Jónsson