Morgunblaðið - 20.03.1998, Qupperneq 55

Morgunblaðið - 20.03.1998, Qupperneq 55
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR FÖSTUDAGUR 20. MARZ 1998 55<- + Jónas Kristjáns- son fæddist á ísafirði 28. septem- ber 1921. Hann lést á Landakotsspítala 9. mars síðastliðinn. Foreldrar hans voru hjónin Jóhanna Mar- ía Benónýsdóttir, f. 13.4. 1892, d. 15.7. 1984, og Kristján Guðni Jónsson, skip- stjóri og neta- og seglagerðameistari, f. 12.7. 1884, d. 27.9. 1971. Börn þeirra hjóna: Einar Magnús, f. 19.12. 1910, d. 1982, Randver Klængur, f. 4.1. 1912, d. 1990, Ragnhildur, f. 7.7. 1913, d. 1982, Sigurður, f. 9.7. 1916, d. 1989, Björg Guðný, f. 15.9. 1917, Anna, f. 22.12. 1919, d. 1989, Hrefna Regína, f. 25.7. 1924, d. 1994, Inga Jóna, f. 7.9. 1928, Jakobína Þóra, f. 31.1. 1933. Árið 1944 hóf Jónas sambúð með Sveinsínu Ingigerði Traustadóttir frá Hólmavík, f. 26.1. 1920. Börn þeirra: María Kristín, maki Helgi J. Helgason. Þau skildu. Börn: Helgi Jónas, Ingigerður Guðrún, í sambúð með Stefáni Gíslasyni. Börn: Guðrún María og Gísli. Þórður, Svandís, Sveinn Finnur og Guð- mundur Magni. Sambýlismaður Maríu Kristínar er Hans Óli Hansson. Trausti Hólm, maki Nína Heiðrún Jónsdóttir. Dóttir þeirra, Inga Jóna í sambúð með Jó- hannesi R. Guðna- syni. Hennar synir: Trausti Rúnar og Sigurður Benedikt Egilssynir. Hans dóttir, Bryndís. Orn Ármann, maki Erna Njálsdóttir. Hennar dóttir, Helga. Henn- ar sambýlismaður, Marvin ívarsson. Sonur þeirra, Isak Snorri. Sambýlis- kona Jónasar frá 1980 er Ingibjörg Guðmundsdóttir, f. 22.7. 1921, frá Naustvík í Reykjarfirði, Strandasýslu. Jónas lauk vélstjórnarnámi á fsafirði um tvítugsaldur, starfaði sem vélstjóri í síldarverksmiðju í Djúpuvík á Ströndum. Starfaði og bjó um nokkur ár í Reykjavík og fluttist þaðan til Hólmavíkur og gerðist þar vélstjóri á fiski- skipi og hóf síðan rekstur véla- verkstæðis sem hann rak í 10 ár. Árið 1964 flutti Jónas til Reykja- vfkur aftur. Starfaði hann við vélstjórn á millilandaskipum, kælitækjauppsetningum og við- gerðum hjá Rafmagnsveitum rík- isins og síðan um tuttugu ára skeið hjá Hitaveitu Reykjavíkur og lauk þar starfsferli sem verk- stjóri mæladeildar. Útför Jónasar fer fram frá Fossvogskirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 15. Nú er hann afi og langafi farinn. Núna þarf hann langafi ekki að vera lengur veikur. Núna líður honum miklu betur sagði Siggi Benni yngri sonur minn daginn sem við fengum fréttirnar af láti langafa. Hann var búinn að liggja lengi bæði heima og uppi á spítala. En við vitum að núna hefur hann það betra. Trausta Rún- ari og Sigga Benna fannst alltaf gaman að koma til langafa og Ingi- bjargar og þar fengum við alltaf eitthvað góðgæti með kaffinu og ég veit að þó svo að afi og langafi sé ekki lengur hjá okkur þá höfum við ennþá Ingibjörgu kaffið og góðgæt- ið. _ Ég man vel eftir því þegar afi bjó niður á Freyjugötu og ég heimsótti hann oft þangað og alltaf átti hann eitthvað gott að narta í, síðan feng- um við okkur bíltúr niður í bæ áður en hann keyrði mig heim. Ég man líka svo vel eftir því þeg- ar ég var hérna heima með eldri son minn Trausta Rúnar, þá tveggja ára,að við fórum niður í vinnu til afa hvað hann varð alltaf glaður og hress að sjá okkur og þá sérstaklega þann stutta sem þurfti að skoða allt og prófa allt , skreið inn í hillur og skápa og var svo orð- inn eins og lítill vinnukarl á eftir, allur útataður smurningu frá and- liti og niður á skó en þá sagði langafi bara; það eru til hreinsiefni sem þrífa þetta og rétti þeim stutta kexköku. Afi og langafi. Við komum til með að sakna þín mikið, en huggum okkur við það að núna líð- ur þér betur Élsku Ingibjörg og allir hinh’. Guð veri með ykkur. Inga Jóna, Trausti Rúnar, Siggi Benni. JÓNAS KRISTJÁNSSON Látinn er í Reykjavík tengdafaðh- minn Jónas Kristjánsson. Andlát hans kom okkur ættingjum og vin- um ekki á óvart því hann var búinn að vera lengi veikur. Við gleðjumst yfir því að þrautum hans er lokið en eftir lifa minningar um góðan dreng. Ég sá Jónas fyrst árið 1966, þá trú- lofuð syni hans. Hann tók mér vel frá fyrstu kynnum, var alltaf tilbú- inn að hjálpa okkur ef við báðum hann. Þá voru foreldrar hans á lífi háöldruð og bjuggu á Þórsgötunni í Reykjavík. Þar fékk ég í fyrsta sinn hina frábæru vestfirsku hnoðmörs- stöppu. Eins voru þau Ingibjörg höfðingjar heim að sækja. Það var alltaf gott að koma til þeirra, eins og var að fá þau í heimsókn. Jónas átti alltaf bíl meðan ég þekkti hann og var góður bílstjóri. Ferðalög voru þeim hjónum mik- ið yndi og síðustu ár ferðuðust þau með fellihýsi meðal annars norður á Strandir, þar sem Ingibjörg fæddist og ólst upp. Að Jónasi stóðu góðir ættstofnar að vestan. Hann ólst upp í Silfurgöt- unni nr. 8 á Isafirði á mannmörgu og umsvifamiklu heimili hjá foreldr- um og níu systkinum. Þau voru nafntoguð fyrir gestrisni og höfð- ingsskap, og sagan segir að það hafi ekki verið hvítari þvottur annars staðar úti á snúrum en hjá móður hans og þetta virðast systkynin hafa fengið í arf því það er sama hvert þeirra við heimsækjum; það er sama gestrisnin og góðmennskan. Jónas var frá sjö ára aldri til þrett- án ára í sveit í Hornvík og undi þar hag sínum vel hjá góðu fólki. Þar varð hann fullgildur sigmaður í Hornbjargi og það var stoltur ung- ur maður sem seig niður í fjöru með sinn feng af eggjum í bú foreldra þegar veru hans lauk þar og faðir vitjaði sonar á báti sínum eftir síð- ustu sumardvöl hans þar. Árið 1990 var haldið ættarmót á Núpi í Dýra- firði. Með okkur í bílnum var Bubba, systir Jónasar. Við fórum Djúpið á leið vestur í frábæru veðri og gaman að aka þessa leið, og auðvitað var stoppað í Silfurgötunni á Isafirði. Þá bjó eng- inn í húsinu þeirra og við gátum kíkt inn um gluggana og Bubba sagði okkur hvernig allt hefði verið og sagði svo skemmtilega frá að það var allt ljóslifandi fyrir okkur. Þetta er ferð sem við gleymum aldrei, en því miður gátu þau Jónas og Ingi- björg ekki komið. Nokkrum árum áður var haldið mót á Hótel Örk í Hveragerði sem var mjög vel sótt og þar voru þau, og var Jónas hrók- ur alls fagnaðar. Ég kveð tengdaföður minn með mikilli virðingu og þakklæti fyrir liðnar stundir. Elsku Ingibjörg. Mínar innilegustu samúðarkveðjur og óska þér farsældar á ókomnum árum. Nína. Að kvöldi dags hinn 9. mars barst mér sú fregn að Jónas væri látinn. Þótt hann hafi átt við van- heilsu að stríða um þó nokkra hríð kom andlátsfréttin, sem barst mér símleiðis djúpt út á Eldeyjarbanka, nokkuð óvænt. Upp í hugann komu ósjálfrátt þankar um að hverjum manni sé víst skammtaður sinn tími - misjafnlega langur - hér á jörð, því varla er hálft ár liðið síðan Jónas tók í hönd mína og vottaði mér samúð vegna fráfalls föður + Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ANNA MARÍA VALDIMARSDÓTTIR, Landmótaseli, lést á Sjúkrahúsi Þingeyinga aðfaranótt mið- vikudagsins 18. mars. Þórhallur Bragason, Helga Erlingsdóttir, Valdimar Bragason, Rósa Þorgilsdóttir, Benedikt Bragason, Guðrún Sigurðardóttir, Klara Bragadóttir, Guðjón Skarphéðinsson, barnabörn og barnabarnabörn. + Útför móður okkar, GUÐRÚNAR GÍSLADÓTTIR, Ysta-Hvammi, fer fram að Grenjastaðarkirkju laugardaginn 21. mars kl. 14.00. Börnin og fjölskyldur þeirra. + Innilegar þakkir til allra þeirra, sem auðsýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför eiginkonu minnar, uppeldismóður, ömmu, dóttur og systur, GUNNHILDAR ÓLAFSDÓTTUR, Efstaleiti 28, Keflavík. Borgar Ólafsson, börn og barnabörn, Soffía Þorkelsdóttir, Ása Ólafsdóttir. míns. Mig langar hér í fáeinum orð- um ■ að minnast þessa manns, Jónasar Krisjánssonar, sem ég kynntist rejmdar frekar seint á hans ævi. Á lífshlaupi hans þar á undan hef ég aðeins brotakennda þekkingu og held mig því hér við hin persónulegu kynni. Þau kynni urðu gegnum Ingibjörgu Guð- mundsdóttur tengdamóður mína en Jónas var sambýlismaður hennar til margra ára. Við Jónas tengd- umst því fjölskylduböndum þar sem samgangur á milli hefur verið verulegur og náinn. Þegar ég lít til baka yfir þau samskipti og samvist- ir finnst mér þau öll hafa verið hin ánægjulegustu og á Ingibjörg ekki síst þátt í að svo hefur verið. Eins og gengur voru hátíðisdagar alltaf fastur tími gagnkvæmra fjöl- skylduboða en oft var einnig komið saman utan þess ramma. Jónas var þægilegur maður í umgengni en hlédrægur nokkuð. Fljótlega kom þó í ljós að undir yfirborði sem gat virkað dálítið hrjúft var hinn ljúfasti maður. Strax og sonur okk- ar Guðrúnar fæddist og fór að skríða um gólf tók Jónas miklu ást- fóstri við þennan skríkjandi barn- unga. Gaman var að fylgjast með hve þessi áhugi Jónasar á barninu var sannur og án tilgerðar. Og Jónas uppskar einnig þá ánægju að drengurinn endurgalt atlæti hans. Strax og sá stutti fór að geta ba- blað nefndi hann ömmu sína og Jónas í sömu andránni. En Jónasarnafnið reyndist hálfgerður tungubrjótur ungum manni sem var að læra að tala svo úr varð nafnið Nóa eða Nói sem upp frá því varð einskonar gælunafn á Jónasi á mínu heimili. Góðar minningar á ég og frá ýmsum sumardvalaferðum með þeim Ingibjörgu og Jónasi. Hann átti hjólhýsi sem þau fóru með vfða um landið meðan kraftar og heilsa Jónasar leyfðu. Held ég að þær ferðir hafi verið þeim báð- um mikið ánægjuefni. Stundum sóttum við þau heim í hjólhýsið, ýmist á Laugai-vatn eða í Borgar- fjörð og áttum við með þeim ógleymanlegar ánægjustundir. Aðrar ferðir voru árvisst farnar í sumarbústaði og var það orðin föst venja að þau Jónas og Ingibjörg dveldu með okkur í slíkum ferðum, oftast allan tímann. Mér var ekki síst kappsmál að fá þau með í þess- ar sumarbústaðaferðir þar sem aldraður faðir minn var og orðinn fastagestur með okkur og fannst honum samneyti við þau Ingi- björgu og Jónas vera næsta nauð- synleg forsenda slíkra dvala. Þetta voru sannarlega skemmtilegar ferðir þar sem þrjár kynslóðir áttu saman ánægjustundir í viku eða hálfan mánuð í senn. En lífið geng- ur sinn gang og þar skiptast á gleði- og sorgarstundir. Það feng- um við að reyna eitt sinn er þessi stórfjölskylda hafði dvalið um hríð í yndislegum sumarbústað uppi í Borgarfirði. Þá barst til okkar and- látsfregn móður minnar. Sú frétt kom ekki beinlínis á óvart og lát hennar var í raun líkn og lausn frá margra ára mjög erfiðum veikind- um. En þrátt fyrir það er koma dauðans alltaf nöpur og sár þegar endalokin eru orðin staðreynd. Glaðvært andrúmsloftið í litla skóg- arhúsinu breyttist og varð hljóðlátt og alvarlegt. Fyrir mig og föður minn var það mikið happ að vera umvafðir þessari stóru fjölskyldu þetta kvöld og skynja hluttekningu allra. Fráfall mömmu var skiljan- lega sárast fyrir föður minn. Mér stendur enn í minni að þessa kvöld- stund kom Jónas að máli við okkur og lagði á ráðin um hvernig gera mætti pabba stundirnar léttari á þessum erfiða tíma. Þetta voru*° ekki mörg orð en sögð af slíku næmi og skilningi að þau gleymast ekki og sýna hve hlýtt hjarta Jónas átti á raunastundu. Nú þegar hann. er allur vil ég votta Ingibjörgu mína dýpstu samúð. I nær tvö ár annaðist hún Jónas ein í heimahúsi í veikindum hans og það var ekki fyrr en um síðustu jól að veruleg- um byrðum var af henni létt er Jónas fékk varanlega inni á sjúkra- húsi. Aldrei heyrði ég falla hjá henni æðruorð þótt sjúkdómurinn!, ! yrði sífellt erfiðari enda Ingibjörg af þeirri kynsíóð sem alin er upp við að erfiðleikarnir séu til þess að takast á við þá en ekki til að bogna undan þeim. Gott er að eiga að svo sterka og einbeitta konu. Við fráfall föður samhryggist ég þrem börn- um Jónasar og fjölskyldum þeirra. Einar Jónsson. + RÖGNVALDUR RAGNAR GUNNLAUGSSON, kaupmaður, andaðist á Hrafnistu miðvikudaginn 18. mars. Fyrir hönd aðstandenda, Hulda Ósk Ágústsdóttir. + Útför ástkærra foreldra okkar, tengdaforeldra, afa, ömmu, langafa og langömmu, ÁRNA JÓNASSONAR og JÓHÖNNU INGVARSDÓTTUR, Borgarholtsbraut 23, Kópavogi, sem létust fimmtudaginn 12. og mánudginn 16. þessa mánaðar, verður gerð frá Fossvogskirkju mánudaginn 23. mars kl. 13.30. Jarðsett verður í Görðum á Álftanesi. Arnaldur Árnason, Ólína J. Halldórsdóttir, Ingvar Helgi Árnason, Christa Árnason, barnabörn og barnabarnabörn. 'rÍ'ý*
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.