Morgunblaðið - 20.03.1998, Side 59
MORGUNBLAÐIÐ
BREF TIL BLAÐSINS
Borgarstjóri sýnir
Grafarvogsbúum
vanvirðingu
Frá Karli Ormssyni:
EF borgarstjóra fínnst það ekki
meira alvörumál sem blasir við hjá
Grafarvogsbúum í umferðannálum
næstu árin en það sem kemur fram
hjá henni í Morgunblaðinu laugar-
daginn 21. febrúar, þar sem hún
segir „Ég skal gefa þér Gullinbrú“
þá er málið orðið alvarlegt. Borgar-
stjóri vogar sér að skopast að þessu
fólki, þar sem það er nánast inni-
lokað í fjölmennu hverfi vegna sam-
gönguerfiðleika. Petta er ekkert
gamanmál. Ingibjörg Sólrún af-
hjúpar með þessu getuleysi og
aumingjaskap R-listans fyrir al-
þjóð. Hollt væri henni að lesa grein
Guðmundar Gunnarssonar, for-
manns Rafiðnaðarsambands Is-
lands í sama blaði um að hafa Akra-
borgina tilbúna til að leysa mesta
vandann.
Það er bláköld alvara að ef ekki
verður tekið fegins hendi þeirri
hugmynd Árna Sigfússonar og Vil-
hjálms Vilhjálmssonar að athuga
með að fjármagna Sundabrú, ann-
aðhvort með einkaframtaki eða öðr-
um sértækum aðferðum, til dæmis
eins og Hvalfjarðargöngin, og með
því leysa samgönguerfiðleika við
Grafarvog, gæti verið vá fyrir dyr-
um. Að skopast að bréfum sem
Grafarvogsbúar hafa fengið, eins
og hún segir sjálf, frá allskonar sér-
skipuðum sérfræðingum sýnir fá-
heyrðan hroka. Með kynningum
eru Grafarvogsbúar kannski betur
upplýstir um hvernig þeir eiga að
bregðast við á hættustundu. Borg-
arstjóri vogar sér að fara með köp-
uryrði um þúsundir Reykvíkinga,
segir þá stunda pólitískan hrá-
skinnaleik í þessu máli, svo Grafar-
vogsbúar fái óbragð í munninn.
Svona ábyrgðarleysi og stráksskap
geta óábyrgir haft um hönd en að
lesa svona eftir aðila sem er þó
kjörinn borgarstjóri, það er heldur
betur lítillækkun fyiir viðkomandi.
Borgarstjóra ber skylda til að biðja
Grafarvogsbúa afsökunar í Morg-
unblaðinu fyrir að skopast að þeim
frekar en að taka mál þeirra alvar-
lega. R-listinn er búinn að verða sér
of lengi til skammar í þessu máli.
Það ber að vinna sem skynsamleg-
ast að því að koma þangað góðum
samgöngum, jafnvel þó það sé gert
að frumkvæði Sjálfstæðismanna í
borgarstjórn. Það er enginn minni
maður fyrir það að gefa eftir í
svona máli, en það er skömm að því
að líta á þúsundir kjósenda sem
einhverskonar annars flokks kjós-
endur.
KARL ORMSSON,
ív. deildarfulltrúi.
KIRKJUSTARF
Safnaðarstarf
Hallgrímskirkja. Orgelleikur og
lestur Passíusálma kl. 12.
Langholtskirkja. Opið hús kl. 11-16.
Kyirðar- og fyrirbænastund kl.
12.10. Fyrirbænaefnum má koma til
prests eða djákna. Súpa og brauð á
eftir. Allir velkomnir.
Laugarneskirkja. Mömmumorgunn
kl. 10-12.
Neskirkja. Félagsstarf aldraðra
laugardag kl. 15. Farið í heimsókn 1
nýtt hjúkrunai'heimili Rauða kmss-
ins í Skógarbæ. Kaffiveitingar. Þátt-
taka tilkynnist í síma 551 6783 milli
kl. 16-18. Allir velkomnir. Sr. Frank
M. Halldórsson.
Hvítasunnukirkjan Ffladelfía. Ung-
lingasamkoma kl. 20.30. Allir hjart-
anlega velkomnir.
Landakirkja, Vestmannaeyjum. Kl.
20.30 Siðfræði sjávarútvegs. Loka-
samvera í fundaröð Landakirkju,
Hafrannsóknastofnunar og Þróunar-
félags Vestmannaeyja haldin í sal
Listaskóla Vestmannaeyja. Dr. Vil-
hjálmur Árnason heimspekingur
flytm- erindi. Fundarstjóri dr. Er-
lendur Jónssön, heimspekingur.
Heitt á könnunni.
Sjöunda dags aðventistar á Islandi:
Á laugardag: Aðventkirkjan, Ing-
ólfsstræti 19. Biblíufræðsla kl. 10.15.
Guðsþjónusta kl. 11.15. Ræðumaður
Björgvin SnoiTason.
Safnaðarheimili aðventista, Blika-
braut 2, Keflavík. Guðsþjónusta kl.
10.15. Biblíufræðsla að guðsþjónustu
lokinni. Ræðumaður Einar Valgeir
Arason.
Safnaðarheimili aðventista, Gagn-
heiði 40, Selfossi. Biblíufræðsla kl.
10. Guðsþjónusta kl. 11. Umsjón:
Suðurhlíðarskóli.
Aðventkirkjan, Brekastíg 17, Vest-
mannaeyjum. Hvíldardagsskóli kl.
10. Guðsþjónusta kl. 11. Ræðumaður
Derek Beardsell.
Loftsalurinn, Hólshrauni 3,'Hafnar-
firði. Biblíufræðsla kl. 11. Ræðu-
maður Jón Hjörieifur Jónsson.
FÖSTUDAGUR 20. MARZ 1998 59»
ESTEE LAUDER
Ráðgjafar frá Estée Lauder
verða í Hygeu, Kringlunni, i
dag og á morgun, laugardag.
H Y G E A
.inyrtivöruvcrólun
Kringlunni 8-12,
sími 533 4533.