Morgunblaðið - 23.04.1998, Blaðsíða 40
40 FIMMTUDAGUR 23. APRÍL 1998
MORGUNBLAÐIÐ
Fasteign til sölu
Skrifstofu minni hefur verið falið að annast sölu á fasteigninni
Lynghóli í Aðaldælahreppi. Nánar tiltekið er um að ræða 137
fm hús, byggt 1993 ásamt 3000 fm lóðarréttindum úr landi
Knútsstaða. Fasteignin er mjög vel staðsett, rétt við Laxá og í
ca 15 km fjarlægð frá Húsavík. Tilvalið fyrir félagasamtök.
Nánari upplýsingar veitir Berglind Svavarsdóttir hdl.,
Höfða 2, Húsavík, sími 464 2545.
Adalfundur
Aðalfundur Jökuls hf. verður haldin í Hótel Norður-
Ijósum, Raufarhöfn, laugardaginn 25. apríl 1998 og
hefst kl. 14.00
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt 13. gr.
samþykkta félagsins.
2. Tillaga um útgáfu jöfnunarhlutabréfa
3. Tillaga um heimild stjórnar til kaupa á
eigin hlutabréfum í félaginu
4. Önnur mál löglega upp borin.
Ársreikningar félagsins fyrir árið 1997 ásamt þeim tillögum
sem liggja fyrir fundinum verða hluthöfum til sýnis á
skrifstofu félagsins, Aðalbraut 4-6, Raufarhöfn.
Raufarhöfn 31. mars 1998
Sljórn Jökuls hf.
ÍHUNDBERT, LáNó/lí SKRÁLURNAR? c k. dó /© lesa) " Éll/S i 1 V mfM
TIL HVERS? É6 6ET HLEólÐ AÐ ÞÉR ÞEóAR f LIÉR SMSJ. > i mk ""T3H j
DILE alla fimrr VQ>SKIPn/2 Pltrgmi 5ERT ítudaga í QVINNUIÍF nMmUk
LISTIR
Alþjóðlega bókmenntahátíðin í Molde
Vigdís setur hátíðina,
Heaney flytur ljóð sín
BJ0RNSONHÁTÍÐIN, alþjóðlega bókmenntahátíðin í
Molde í Noregi, hefst að þessu sinni 9. ágúst og stendur
til 16. ágúst. Vigdís Finnbogadóttir, fyiTverandi forseti,
setur hátíðina. Forseti hátíðarinnar, Rnut 0degárd
skáld, segir að Vigdís muni að öllum líkindum tala í anda
þess sem hún lagði hvað mesta áherslu á í forsetatíð
sinni, það er að segja máli menningarinnar og skáld-
skaparins, ekki síst halda fram gildi bókmenntanna fyi-ir
sjálfsvitund þjóða og mannlegan skilning milli þeirra.
írska Nóbelsskáldið Seamus Heaney flytur ljóð sín á
hátíðinni og mun sitja fyrir svörum. Meðal annarra
kunnra rithöfunda sem kynna verk sín eru Ruth Rendell
sem kemur fram ásamt norskum sakamálasagnahöfund-
um, Anne Holt, Karin Fossum, Kim Smáge og Jo Nes-
bö.
Sérstakur ljóðadagur
Fleiri höfundar en þeir sem skrifa um sakamál láta að
sér kveða á hátíðinni. Sérstakur ljóðadagur verður með
Heaney í fararbroddi, en þátttakendur auk hans verða
m.a. Áse Marie Nesse, Kolbein Falkeid, Ai’ne Ruset og
Gro Dahle.
Norrænar bókmenntir eiga fulltrúa á hátíðinni sem
eim m.a. nýr verðlaunahafi Norðurlandaráðs, finnska
skáldkonan Tua Forsström, Steinunn Sigurðardóttir,
Göran Tunström, Soren Ulrik Thomsen og Kjartan
Flogstad.
Fjöldi norski’a rithöfunda les að venju upp á hátíðinni.
Frá Bandaríkjunum kemur Richard Ford, Pulitzer-
verðlaunahafi og afganski rithöfundurinn Maryam
Azimi, sem fékk pólitískt hæli í Noregi 1994, kynnir
verk sín.
Hátíðin í Molde er alþjóðleg í eðli sínu og verður boðið
upp á margt fleira en bókmenntir. Leiklist, myndlist,
tónlist, djass og dagskrár með þjóðlegu efni eru fyrir-
hugaðar. Einnig verður efnt til sýningar á íslenskri sam-
tímalist, enda er hátíðin mjög íslensk að þessu sinni.
Verðlaun sem Rithöfundasambandið norska veitir í
nafni hins frjálsa orðs og prentfrelsis verða veitt og er
það í anda Bjornstjerne Bjornsons og hugsjóna hans.
Vigdís
Finnbogadóttir
Steinunn
Sigurðardóttir
Seamus Heaney
Knut 0degárd
Bjomsonhátíðin er nú haldin í sjötta sinn og er viður-
kennd sem stærsta og ein áhrifamesta norræna bók-
menntahátíðin.
Norrænu
útvarpsleik-
húsverð-
launin 1998
NORRÆNU útvarpsleikhúsverð-
launin hafa verið veitt útvarpsleik-
húsi norska ríkisútvarpsins fyrir
útfærslu sína á
leikritinu „Pétur
Gautur“ eftir Hen-
rik Ibsen.
Utvarpsstjóri,
Markús Orn Ant-
onsson afhenti Nils
Heyerdahl, leiklist-
arstjóra norska
ríkisútvarpsins,
verðlaunin. Þau
nema átta hundrað
tuttugu og fimm þúsundum króna.
Að auki var veittur verðlaunagrip-
ur; listaverk eftir Þórunni S. Þor-
grímsdóttur, en kjarni þess er
hlust úr steypireyð.
Útvai-psleikgerðin að Pétri Gaut
var unnin af Carl Henrik Grön-
dahl, Aasmund Feidje samdi tón-
list og Arne Barca sá um hljóð-
vinnslu. Leikstjóri var Steinar
Berthelsen, en hann hefur leikstýrt
bæði í leikhúsi og útvarpi frá því
hann útskrifaðist frá Dramatiska
Institutet í Stokkhólmi. Hann hlaut
hin virtu verðlaun Prix Italia árið
1992 fyrir leikstjóm á útvarpsleik-
ritinu Alvhild, eftir Karl Hoff.
Inga Faarborg flutti dómnefnd-
arálit dönsku dómnefndarinnar, en
þar segir m.a.: „...sagan fangar
mann, vekur til umhugsunar og er
á sama tíma heill hljómheimur út
af fyrir sig. Tónlistin, hljóðmynd-
irnar og kraftmikill leikurinn
skapa í sameiningu smekklega
heildarmynd. Það sýnir hversu
mikil og góð forvinna hefur vei’ið
unnin, að tónlistin fær sitt pláss og
kemur manni sífellt á óvart... Leik-
urinn er frábær.
Steinar
Berthelsen
Þíða í Peking
KVIKMYMPIR
Kringlubíó
„RED CORNER" ★ ★
Leikstjóri: Jon Avnet. Handrit:
Robert King. Aðalhlutverk:
Richard Gere, Bai Ling. Metro
Goldwyn Meyer. 1997
í SPENNUMYNDINNI
„Red Corner" leikur Richard
Gere bandarískan kaupsýslu-
mann sem vaknar við það á hót-
elherbergi í Peking að vera rif-
inn upp úr rúminu af kínversku
lögreglunni og hent í fangelsi
sakaður um að myrða kín-
verska lagskonu sína, sem ligg-
ur í blóði sínu í herberginu.
Gere hafði aldrei séð hana fyiT
en hann fylgdi henni upp á her-
bergið kvöldið áður og man
óglöggt atburði næturinnar en
neitar staðfastlega að hafa átt
þátt í morðinu á henni. Kín-
versk yfirvöld blása á þesskon-
ar væl og við manninum blasir
dauðadómur sem framfylgt er
viku eftir dómsuppkvaðningu
og reikningur fyrir byssukúl-
una, sem skotið verður í hnakk-
ann á honum, mun sendur fjöl-
skyldu hans.
Þetta er dæmigerð
Hollywoodsaga sem gerst hefði
í Moskvu ef blessað kalda stríð-
ið væri enn við lýði. Nú hefur
Kína tekið við sem hið illa
heimsveldi og saklausi Amer-
íkumaðurinn upplifir þar
martröð einræðis og kommún-
istastjórnar en eygir von um
betri framtíð og bjartara stjórn-
arfyrirkomulag í ungu kynslóð-
inni. Fulltrúi hennar er gullfal-
legur og harðákveðinn kven-
maðm-, lögfræðingur í Peking,
sem Ameríkananum er skipað-
ur. Myndin kemur inná allar
helstu gömlu lummurnar úr
svipuðum myndum sem áður
gerðust í Sovétgúlaginu og er að
því leyti talsvert fyrirsjáanleg; í
hvert sinn sem Gere gagnrýnir
Kína fær hann andsvar um tíðni
glæpa og ungbarnadauða í
blessuðum Bandaríkjunum.
En „Red Corner" er einnig
fyrirsjáanleg sem spennumynd.
Það liggur ljóst fyrir frá upp-
hafi að verið er að koma Gere í
klípu og það er aðeins einn aðili
sem kemur til gi’eina í þeim
efnum. Myndin er of löng og
svipljótum Kínverjum tekst
ekki að draga úr því hætishót.
Einnig dregur nokkuð úr krafti
myndarinnar að morðmálið er
notað sem einskonar uppfylling
í sögu um ólík lífsviðhorf sem
endurspeglast í kínverska lög-
fræðingnum og bandaríska
kaupsýslumanninum. Myndin
virkar fyrst og fremst sem lýs-
ing á batnandi sambúð og skiln-
ingi á milli Kína og Bandaríkj-
anna. Kínversk stjórnvöld era
ekki gersneydd mannúð. Kóka-
kóla er bara gosdrykkur.
Gere virðist í toppformi sem
fórnarlambið í myndinni, gáfu-
legur með gleraugun og brattur
alltaf þrátt fyrir miklar raunir.
Bai Ling heitir unga konan sem
fer með hlutverk lögfræðings
hans og virðist ástríðufull leik-
kona. Aðrir fara með mun
minni hlutverk.
Fyrir þá sem hafa áhuga á
því gleymda hugtaki þíðu á milli
tveggja stói-velda er „Red
Corner" myndin. Hún hefur all-
ar réttu meiningarnar. Það er
engin óþægð í henni og það er
kannski hennar stærsti galli.
Arnaldur Indriðason