Morgunblaðið - 23.04.1998, Blaðsíða 18
18 FIMMTUDAGUR 23. APRÍL 1998
MORGUNBLAÐIÐ
NEYTENDUR
Upp með grillhanskann
ÞÓ SVO enn sé allra veðra von
er ekki laust við að angan af
grillmat sé farið að leggja frá
grillum í húsagörðum víðsvegar
um borg og bæ.
Laufey Stein-
grímsdóttir, for-
stöðumaður
Manneldisráðs
Islands, minnir á
að fleiru sé
hægt að skella á
grillið en kjöti.
„Með hækk-
andi sól er full
ástæða til að
draga fram
grillið og
njóta góða
veðursins við
matargerðina. Tilvalið erað
Við höfum hins
vegar minnt
fólk á að gæta
hófs í grill-
matnum.
Nokkrar ástæður eru fyrir því
og felst ein ástæðan í því að fólk
grillar frekar kjöt en fisk. Okk-
ur fínnst nefnilega ekki heils-
unnar vegna ástæða til að hvetja
til meiri kjötneyslu,“ segir hún
og tekur fram að önnur aðal-
skýringin tengist einnig kjöt.i.
„Fólk leggur gjaman kjötið
beint á grillið og við bmnann
myndast svört skán á kjötið.
Skánin er talin geta verið
krabbameinsvaldandi."
Laufey minnir á að hægt sé að
skella nánast hvaða fisktegund
sem er á grillið. „Aðeins feitari
fískur á borð við lax, lúðu og
steinbít er bestur. Fisknum
er pakkað
inn í
álp-
appír
oggott
er að
skella græn-
meti
á grillið.
smjörklípu
fylgja með.
Grænmeti em
nauðsynlegt
meðlæti og er
hægt að pakka
því inn í ál-
pappír eins og
físknum. Önnur
leið er að selja grænmetið beint
á grillið eða þræða upp á tein.
Ekki er heldur úr vegi að þræða
fiskbitum inn á milli,“ segir
Laufey og mælir sérstaklega
með lauk á grillið. „Laukur er
nefnilega þrusuhollur,“ segir
hún í sumarskapi. Meðfylgjandi
uppskriftir era úr matreiðslu-
bók Manneldisráðs, Hjarta-
verndar og Krabbameinsfélags-
ins „Af bestu lyst.“
Vamaðarorð
Hjá Slysavaraafélaginu var
Iögð áhersla á að aðgát væri
höfð við grillið. Fyrst er að hafa
í huga að ástæða er til að fylgj-
ast vel með því þegar gasið er
að tæmast úr kútum gasgrilla.
Ef gasið tæm-
ist alveg úr
kútnum get-
ur sú hætta
skapast að
eldurinn
fari niður í
kútinn og
framkalli
spreng-
ingn. Þeg-
ar skipta
þarf um
kút og
Morg»n’
lWaðið/Kristinn
þegar
grillið
er tekið út að vori
þarf að huga vel að því að öll
skrúfuð tengi á gaskútnum séu
vel hert.
Síðast og alls ekki síst er
nauðsynlegt að hafa sérstakar
gætur á ungum börnum í kring-
um grillið enda er hætt á að þau
skaðbrennist við að snerta á
mjög heitum hlutum.
www.mbl.is
LÚÐA með grænmeti er hollur og góður grillmatur.
Lúða er fyrir-
tak á grillið
Grilluð lúða
með grænmeti
900 g smálúðuflök
eða rauðsprettuflök
salt
pipar eða sítrónupipar
1 msk. matarolía
Sósa:
4 dl léttmjólk
'A grænmetisteningur
4 msk. smurostur
3 msk. sósujafnari
jó tsk. sítrónupipar
________1 dl rækjur_______
1/2 búnt ný steinselja, söxuð
1. Leggið hreinsuð flökin á smurð-
an álpappír eða í smurt, ofnfast fat.
Penslið með olíu og sáldrið pipar eða
sítrónupipar yfir. Látið bíða meðan
sósan er gerð.
Sósa:
2. Hitið mjólkina og grænmetis-
kraftinn að suðu. Bræðið smurostinn
í mjólkinni.
3. Jafnið sósuna með sósujafnara.
4. Bætið sítrónupipar í eftir
smekk.
5. Setjið rækjurnar út í sósuna
rétt áður en hún er borin fram og
skreytið með steinselju.
Fiskurinn:
6. Sáldrið salti yfir fiskinn og setj-
ið undir glóð í miðjan ofn eða grill og
glóðið þar til hann hefur fengið fal-
legan lit og er gegnsteiktur í um það
bil 6-7 mínútur.
Sósur með
glóðarsteiktum mat
Agúrkusósa: ____
2 dl súrmjólk eöa AB-mjólk
____________2 msk. olía_____________
____________2 hvítlauksrif__________
_________1 msk. sítrónusafi__________
____________2 msk. nýtt dill________
____________'A tsk. salt____________
Vá agúrka, 150 g
1. Pressið hvítlauski'ifin og saxið
dMð.
2. Hrærið súrmjólk og olíu saman
í skál, bætið hvítlauk og sítrónusafa,
dilli og salti út í.
3. Afhýðið agúrkuna, skerið í ten-
inga og bætið henni út í sósuna. Lát-
ið sósuna bíða í tíu mínútur áður en
hún er borin fram.
Uppskriftin er fyrir sex. Undir-
búningur: 15 mínútur.
Sumarsósa:
_________ 5 dl jarðarber___________
____________Vz blaðlaukur___________
2 msk. sitgrónu- eða limesafi
_________2 msk. matarolía___________
_________1 msk. púðursykur__________
_________2 msk. steinselja__________
____________Vz tsk. salt____________
svartur pipar á hnifsoddi
cayenne-pipar á hnifsoddi
1. Skerið jarðarberin í litla bita.
2. Saxið laukinn smátt.
3. Blandið öllu saman og látið sós-
una standa í kæli í tvær klukku-
stundir áður en hún er borin fram.
Uppskriftin er fyrir tólf. Undir-
búningur: 10 mínútur.
LÉTTAR sósur sefja punktinn yflr i-ið.
Hugað að Bónus-
verslun á Akureyri
ÁHUGI er á stofnun Bónusversl-
unar á Akureyri.
Jón Ásgeir Jóhannesson, fram-
kvæmdastjóri Bónuss, sagði að
rekstur Bónusverslunar í sam-
vinnu við fjársterka heimamenn
væri í skoðun. Nú væri verið að
skoða húsnæði og væri fernt í
sigtinu. Húsnæðismálin myndu
væntanlega skýrast síðar í vik-
unni.
Jón Ásgeir sagði að væntan-
lega yrði um miðlungsstóra versl-
un að ræða. Ekki hefði verið end-
anlega ákveðið hvenær verslunin
yrði opnuð. Honum fannst hins
vegar ekki ólíklegt að hægt yrði
að opna hana innan þriggja mán-
aða.
Bónus hefur áður reynt fyrir
sér í rekstri á Akureyri. Jón Ás-
geir sagði í því sambandi að ef-
laust myndi hjálpa til að vera í
samvinnu við heimamenn.