Morgunblaðið - 23.04.1998, Blaðsíða 60
60 FIMMTUDAGUR 23. APRÍL 1998
MORGUNBLAÐIÐ
AÐSENDAR GREINAR
Vatnaskóg'ur - sumarbúðir í 75 ár
GLEÐILEGT sumar!
A komandi sumri verða 75 ár frá
því KFUM í Reykjavík hóf rekstur
sumarbúðanna sívinsælu í Vatna-
skógi, sem er í Svínadal í Hval-
fjarðarstrandarhreppi. Fyrstu
drengirnir dvöldu í Vatnaskógi
sumarið 1923.
Margt hefur breyst á 75 árum
eins og gefur að skilja, einkum
hvað varðar uppbyggingu staðar-
ins og fjölbreytileika starfseminn-
ar. Kjaminn og markmiðið er og
hefur þó alltaf verið hið sama. Að
leiða menn til fundar við frelsarann
sinn Jesúm Krist ásamt því að
njóta verunnar á allan hugsanlegan
hátt við leiki og íþróttir.
Bjartsýni og
dugnaður
Bjartsýni og dugnaður hefur
einkennt þá fjölmörgu sem lagt
hafa starfínu í Vatnaskógi lið.
Margir hafa lagt þar hönd á plóg-
inn og flestir unnið í sjálfboðavinnu
svo árum og jafnvel áratugum
skiptir.
I fyrstu þurftu menn að búa við
frumstæð skilyrði, því gist var í
tjöldum og lítill timburskúr var
notaður undir eldhús. Síðar var
reistur skáli með svefnsal í öðrum
endanum og eldhúsi í hinum. Gátu
átján drengir dvalið í skálanum
með sæmilegu móti að næturlagi.
„Gamli skáli“
Það var árið 1939 við ótrúlegar
aðstæður á tímum efnisskorts og
hafta að hinir ungu, framsýnu og
dugmiklu Skógarmenn hófust
handa við að reisa stóran skála,
sem hefur nú í nokkra áratugi
gengið undir nafninu „Gamli skáli“.
Skálinn góði er þó lík-
ari höll, svo reisulegur
og fallegur er hann.
Hefur hann verið and-
lit Vatnaskógar allt frá
því hann var reistur.
Skálinn var vígður árið
1943 og með tilkomu
hans varð mikil breyt-
ing á öllum högum í
starfsemi sumarbúð-
anna.
Nú standa mörg hús
í Vatnaskógi; matskáli,
kapella, íþróttahús,
bátaskýli og flerri
svefnskálar. Nokkrir
knattspyrnuvellir eru
á svæðinu og aðstæður
til íþróttaiðkana hverskonar hinar
ákjósanlegustu, jafnt innandyra
sem utan, sem og aðstaða öll.
Fjölmenni og
íjölbreytileiki
Nú dvelja að jafnaði um 1.000
drengir í Vatnaskógi yfir sumar-
tímann. Tæplega hundrað í hverri
viku. Auk þess er nú boðið upp á
blandaða flokka fyrir unglinga
14-17 ára þar sem drengir og
stúlkur eru til jafns.
A haustin hafa verið haldnir
mjög vinsælir flokkar fyrir feðga,
enda allt að fjórir ættliðir sem
dvalið hafa í dvalarflokkum í
Vatnaskógi frá fyrstu tíð.
Karlaflokkar fyrir 17-100 ára
eni jafnan fullir og alveg ómissandi
á hverju hausti.
Hin síðari ár hefur verið boðið
upp á fermingarnámskeið í Vatna-
skógi yfír vetrartímann. Koma þá
væntanleg fermingarbörn með
prestum sínum og starfsliði og fá
viðeigandi fræðslu-
pakka.
Böm úr flestum
sóknum í Reykjavík-
urprófastsdæmum og
víðar hafa sótt þessi
námskeið, sem þótt
hafa takast vel í flest-
um tilvikum.
Dagarnir fljótir
að líða
Dvöl í Vatnaskógi
hefur haft áhrif til
þroska þúsunda
drengja í gegnum tíð-
ina. Jafnt til andlegs
og líkamlegs þroska.
Margir hafa stigið
sín fyrstu spor á sviði íþrótta þótt
árangurinn hafi að sjálfsögðu verið
misjafn.
Ekki má gleyma að minnast á
hið vinsæla Eyrarvatn, sem er í
senn bæði kalt og hressandi. I
vatninu svamla drengirnir í tíma
og ótíma og þarf ekki góðviðris-
daga til- Silungsveiði er í vatninu
og hafa margir rennt fyrir silung í
fyrsta sinn í Eyrarvatni. Þá kom-
ast menn á hinar ýmsu tegundir
báta, sem ávallt hafa verið feikilega
vinsælir. Að sjálfsögðu fer enginn
út á bát án björgunarvestis og eru
sérstakir verðir sem fylgjast með
vatninu og því sem fer fram á því.
Þótt möguleikarnir séu margir í
Vatnaskógi, þá slær náttúrufeg-
urðin allt út. Hún er upplifun út af
fyrir sig. Einstök sköpun Guðs.
Helgaður staður
Ætla má að um 10% núlifandi ís-
lenskra karlmanna hafí dvalið í
Vatnaskógi.
í dag, sumardaginn
fyrsta, efna Skógar-
menn til kaffisölu í höf-
uðstöðvum KFUM og
KFUK við Holtaveg.
Sigurbjörn Þorkelsson
minnir á að ágóði af
sölunni gengur til
starfsins í Vatnaskógi.
Blessun Guðs hefur hvílt yfir
Vatnaskógi og starfinu þar, á því
leikur ekki vafi, það hafa þeir fund-
ið sem dvalið hafa þar í lengri eða
skemmri tíma. Dvöl í Vatnaskógi
er tími, sem menn munu seint
gleyma.
Með sumarbúðunum í Vatna-
skógi vilja þeir sem að þeim standa
reyna að hjálpa mönnum að finna
hinn óbifanlega grundvöll, bjargið
sem aldrei bregst og er frelsarinn
Jesús Kristur.
Hver dagur hefst með bæn og
orð Guðs í Biblíunni er hugleitt og
rætt í stutta stund. Margir hafa
einmitt lært að biðja og fara með
bænir í Vatnaskógi auk þess sem
margir hafa einnig lært að nota
Nýja testamentið sitt.
Að kvöldi er Guðs orð síðan aft-
ur rætt og hugleitt í stutta stund
og boðið er upp á bænastundir í
litlu fallegu kapellunni. Guði eru
færðar þakkir fyrir lífið og liðinn
dag.
Beðið er fyrir hvíld næturinnar,
næsta degi, ástvinum heima eða
Sigurbjörn
Þorkelsson
annars staðar, meðbræðrum og
systrum nær og fjær, framtíðinni
og lífinu öllu.
Slík vitneskja og þjálfun í bæn
og lestri Biblíunnar er veganesti
sem hundruð Skógarmanna búa að
alla tíð og þakka.
Frábær staður
Sem drengur dvaldi ég í Vatna-
skógi, einn flokk á sumri nokkur
sumur í röð. Dvölin gekk nú að vísu
svona alla vega, sérstaklega í
fyrstu. Eg bý þó að henni og er
þakklátur fyrir hana. I Vatnaskógi
vann ég marga sigra, þó einkum á
sjálfum mér.
Undanfarin tíu ár hef ég verið
beðinn að gegna starfi forstöðu-
manns í sumarbúðunum tvo til
fjóra flokka á sumri.
Því starfi hef ég sinnt af gleði og
hefur það gefið mér mikið þótt það
geti vissulega verið mjög krefjandi
og erfitt á stundum.
Kaffisala í dag
Um leið og ég vil fá að þakka
fyrir mig minni ég alla Skógar-
menn, fjölskyldur þeirra og vel-
unnara á kaffisöluna sem verður í
dag, í upphafi sjötugasta og fimmta
starfssumars hinna sívinsælu sum-
arbúða. Kaffisalan fer fram í aðal-
stöðvum KFUM og KFUK við
Holtaveg í Reykjavík. Allur ágóði
af kaffisölunni fer til uppbyggingar
starfsins í Vatnaskógi.
Það er bæn mín að góður Guð
haldi áfram að láta blessunardagg-
ir sínar drjúpa yfir Vatnaskóg og
starfið þar, svo fjölmörgum til
ómetanlegra heilla og blessunar.
Til hamingju með 75 ára afmælið
Skógarmenn. Áfram að markinu!
Höfundur er framkvæmdastjóri
Gideonfélagsins á Islandi og höf-
undur bænabókarinnar Vefmig
vængjum þínum.
Ap
IBM
E3
0
iv
á gjafverð
-Varilun-
Skaftahllö 24 • Sími 569 7700
Slóð: http://www.nyherll.ts
Netfang: nyherjl@nyherjl.ls
<Q>
NÝHERJI
Nú er rétti tlminn til að festa kaup á
Aptiva E 30. IBM h efur löngum verið tál
gæða og áreiðanleika og hýðst nú þessi
hágæða margmiðlunartölva á frábæru
verði. Aptiva tölvurnar eru hannaöar me
afköst í huga enda er í þeim allt sem þarf
til að vinnslan verði skemmtileg, auðvelc
og umfram allt hröð. Þeir sem kjósa
vandaöa vöru velja IBM Aptiva.
IXIiOOtBYj
D I O I T * L
Sound by
20QMHz MMX.
Vinnsluminni: 32MB SDRAM,
Harðdiskur: EnhancedIDE 4,2GB.
Skjár: 15" IBM G51 lltaskjár.
Skjátninni: 2MB SGRAM.
Skjákort. ATi 3D Rage II + .
Tangirauiar 6, þar ai 5 lausar.
Margtniðlun: 24 hraða gelsladrif,
hljóökort, hátalarar og bassabax.
Samskipti: 33.600 baud mótald.
Hugbúnaður: Windows 95, Lotus
SmartSuite 97, Simply Speaking,
IBM Antivirus.