Morgunblaðið - 23.04.1998, Blaðsíða 63
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 23. APRÍL 1998 63
I
i
i
í
i
1
(
í
(
i
(
4
4
i
4
\
(
4
4
AÐSENDAR GREINAR
Um hvað
snúast kosn-
ingarnar?
UM HVAÐ snúast
kosningarnar í Dags-
brún og Framsókn -
stéttarfélagi? Snúast
þær um valdastöðu ein-
stakra manna og um
ólýðræðisleg vinnu-
brögð formanns félags-
ins í Dagsbrún og síðan
í Dagsbrún og Fram-
sókn - stéttarfélagi?
Þannig lítur mótfram-
boðið í D&F - stéttarfé-
lagi greinilega á málið.
Hver er
sannleikurinn?
En hver er sannleik-
urinn um hin meintu
ólýðræðislegu vinnubrögð? Er það
merki um ólýðræðisleg vinnubrögð
að 19 sinnum á síðastliðnum tveim-
ur árum hafa farið fram atkvæða-
greiðslur um mikilvæg mál innan
félagsins, s.s. stjórnarkosningar,
sameiningu félaga, lagabreytinga
og í ýmsum öðrum mikilvægum
málum félagsins?
Á sama tíma hafa verið haldnir á
annað hundrað fundir í félaginu,
stjórnarfundir, trúnaðarráðsfundir,
félagsfundir og vinnustaðafundir.
Þá var það fyrsta verk stjórnarinn-
ar í Dagsbrún eftir að hún tók við
að loknum kosningum 1996 að Iáta
fara fram á vegum hlutlauss aðila
viðhorfskönnun um stjórn og starf-
semi félagsins. Sams konar könnun
fór fram í Vkf. Framsókn. Um nið-
urstöður þeirra var fjallað með öll-
um trúnaðarmönnum á fjölda funda.
Þær niðurstöður voi'u notaðar við
undirbúning síðustu samninga. Að
sjálfri kjarasamningagerðinni unnu
síðan á annað hundrað félagsmenn
og sameiginleg samninganefnd
Dagsbrúnar og Framsóknar var sú
allra fjölmennasta í verkalýðshreyf-
ingunni með um 130 manns.
Eru þetta dæmi um einræðis-
kennd og ólýðræðisleg vinnubrögð?
Eg segi nei. Þetta eru dæmi um að
við treystum dómgreind félags-
manna til að taka sjálfstæða
ákvörðun hver íyrir sig í öllum mik-
ilvægum málum. Það sama er á
engan hátt hægt að segja um B-
listaframboðið.
Þau sem standa að B-listanum
hafa á öllum stigum mála reynt að
koma í veg fyrir það að félagsmenn
fengju að taka ákvarðanir beint. Nú
síðast í atkvæðagreiðslu um sam-
einingu við Sókn og FSV greiddi
þessi hópur atkvæði gegn þvi að fé-
lagsmenn fengju að segja skoðun
sína í póstatkvæðagreiðslu um sam-
eininguna. í öllu félagsstarfmu hef-
ur þessi hópur haft mjög neikvæða
afstöðu.
En hver var svo niðurstaðan í at-
kvæðagreiðslunni? Níu af hverjum
tíu félagsmanna samþykktu samein-
ingu félaganna. Það er í
raun einsdæmi í sögu
verkalýðshreyfingar-
innar að stjóm félags
hafi fengið slíkan
stuðning við mál sem
hún hefur barist fyrir.
Að hverju
stefnum við?
Hvað viljum við sjá
fyrir okkur í framtíð-
inni?
- Við viljum vinna að
stofnun eins öflugs
stéttarfélags fyrir
ófaglært fólk á höfuð-
borgarsvæðinu.
- Við viljum deilda-
skipta því félagi þannig að aukið
lýðræði og meiri valddreifing verði í
stjóm félagsins.
- Við viljum öflugan undirbúning að
starfsmenntamálum.
- Við viljum brjóta niður múra fé-
lagssvæða þannig að fólk geti færst
milli vinnustaða án þess að eiga á
hættu að tapa félagslegum réttind-
um.
- Við viljum vera þátttakendur í
breytingum í þjóðfélaginu, en ekki
fulltrúar stöðnunar og afturhalds.
Við biðjum um traust
Munurinn á okkur í A-listanum
og þeim sem standa að B-listanum
er sá, að við treystum á dómgi-eind
félagsmanna. Við viljum leita til fé-
lagsmanna í öllum mikilvægum mál-
um sem varða hag þeirra og af-
Viljum við halda
áfram á framfarabraut,
spyr Halldór Björns-
son, eða viljum við vera
fólk einangrunar og
stöðnunar?
komu. Því viljum við að félagsmenn
greiði atkvæði í öllum meginmálum
sem upp koma.
Svarið við spumingunni í upphafi
er því augljóst. Kosningarnar í
Dagsbrún og Framsókn - stéttarfé-
lagi snúast ekki um valdastöðu ein-
stakra manna eða ólýðræðisleg
vinnubrögð. Þær snúast fyrst og
fremst um það hvort við viljum
halda áfram á framfarabraut eða
vera fólk einangrunar og stöðnunar
þar sem engu má breyta. A-listinn
treystir fólki og biður um traust.
Iíöfundur er annar formaður bráða-
birgðastjómai• Dagsbrúnar og
Framsdknar, stéttarfélags, og for-
mannsefni A-lista ti! stjórnarkjörs.
Halldór
Björnsson
V ®
KÆLISKÁPAVIKA
10-10%
AFSLÁTTUR
Heimilistæki hf
SÆTÚNI 8 SlMI 5691500
BYGGINGAVÖRUTILBOÐ MÁNAÐARINS
Apríl 1
1 Ariston eme 145 1 Kæliskápur 0 Metabo - SITpirokkur
25.650,-
I Áöur: 34.200,-1
13.799,-
Aður: 17.300,-
jr
BYKO - Grunnviöarvörn (5 Itr.)
1.820,-
Aður: 2.275,-
Wolf 22 - Greinaklippur
1mS95jm stk.
is£S> I Áður: 2.522~
Huffy Storm - 26“ flallahjól
15.900,-
Ariston - Baökar (170 cm)
Doll - Loftastigi
11.189,- j
| Áður: 13.9877] “
590,-
| Áður: 698,- [
5.347,-
Bjálkaklæ5ning - Greni (10,5x300)
154,-
;i' _
EITT MESTA URVAL RAFMAGNSHANDVERKFÆRA Á ISLANDI AFGREIÐSLUTÍMI í BYKO
BOSCH D Metabo
TnakittL
AEG
Einhelí
Komdu og skoöaöu nýjar og glæsilegar deildir meö rafmagnshandverkfæri
í öllum verslunum BYKO. Vönduð verkfæri frá þekktum framleiðendum.
Virkir dagar Laugard. Sunnud.
Breiddin 8-18 Sími: 515 4001 10-16
Hólf&Gólf 8-18 Sími: 515 4001 10-16 13-17
Hringbraut 8-18 Sími: 562 9400 10-16 11-15
Hafnarfj. 8-18 STmi: 555 4411 9-13
Su&urnes 8-18 Stmi: 421 7000 9-13