Morgunblaðið - 05.05.1998, Blaðsíða 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 5. MAÍ 1998
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
J
■■
Sextán ára piltur skerst illa á hægri hendi í skurðarvél í Garðinum
Orygg-
issláin
ótengd
„ÉG VAR hræddur við að vinna við
vélina, enda hafði legið við slysi
þremur vikum áður. Pabbi talaði við
verkstjóra í fyrirtækinu þá, samt
var ekki búið að gera við öryggis-
slána,“ segir Jón Asgeir Harðarson,
16 ára. Hann skarst illa á hægri
hendi í skurðarvél, svokallaðri fés-
vél, í fískvinnslufyrirtækinu Marvík
í Garði í síðustu viku. Öryggisslá á
fésvélinni var ekki ísambandi þegar
slysið varð. Jóni Ásgeiri tókst að
koma í veg fyrir að höndin færi í
gegnum vélina með því að ýta með
vinstri hendi á öryggisrofa á vélinni.
Jón Ásgeir fór að vinna í Marvík í
haust. „Eg var að vinna við fésvél-
ina þegar slysið varð. Fyrst eru
þorskhausarnir settir á tein og svo
grípur keðja í hausana og tveir hníf-
ar taka við og skera efst á hausbein-
ið. Fésvélin sér um að taka innan úr
hausunum. Fyrir ofan vinnuborðið
er öryggisslá. Ef höndin er komin of
nálægt vélinni er nóg að koma við
slána til að vélin stöðvist. Sláin var
ekki í sambandi og því stöðvaðist
vélin ekki þegar keðjan togaði í
jakkann og hægri höndin fór i hníf-
ana. Mér tókst að slökkva á vélinni
með vinstri hendinni. Vinnufélagi
minn skutlaði mér á sjúkrahúsið og
þaðan var ég sendur á Sjúkrahús
Reykjavíkur í Fossvogi. Ég kom
heim af sjúlo-ahúsinu á fímmtudag,“
segir Jón Ásgeir og sagði að sér
skildist að sláin hefði ekki verið í
sambandi af því að hún væri biluð
og slægi alltaf út.
Víða pottur brotinn
Sóley Kristinsdóttir, móðir Jóns
Ásgeirs, rifjar upp að hann hafí
Morgunblaðið/RAX
JÓN Ásgeir ásamt litla bróður sfnum, Kristni Sveini. Jón Ásgeir fór að vinna í Marvík til að safna fyrir bfln-
um sem þeir bræður eru við. Hann ætlar ekki að láta slysið koma í veg fyrir að hann taki bflpróf í sumar.
komið heim þremur vikum áður og
verið verulega brugðið. „Jóni Ás-
geiri hafði rétt tekist að kippa hend-
inni út úr hanskanum áður en hann
fór inn í vélina. Hann sá auðvitað
hvemig hanskinn fór í gegn og átt-
aði sig á því hversu illa hefði getað
farið. Við hefðum átt að hringja
beint í Vinnueftirlitið en ákváðum
að fara fyrst í fyrirtækið og tala við
yfirmennina. Maðurinn minn þekkir
vélina og lagði ríka áherslu á að ör-
yggisreglum væri fylgt. Honum var
sagt að verið væri að panta rofa. Að
tala um að panta rofa er bara fyrir-
sláttur, því flestir rafvirkjar eru
með svona rofa heima hjá sér. Núna
er skaðinn skeður og hefði getað
farið verr, enda var Jón Ásgeir
kominn alveg upp að öxlum í vélina
þegar hann náði að slökkva á henni.
Ég er ekki viss um að allir hefðu
áttað sig nógu fljótt á því, en við
höfum brýnt fyrir honum hvað mik-
ilvægt sé að slökkva á vélinni,“ seg-
ir Sóley og tekur fram að eftir að
slysið varð hafí verið gert við slána
og komið fyrir öryggisrofum og
nokkrum dögum síðar hafí öllum
kröfum Vinnueftirlitsins verið fram-
íyigt.
Sóley tók fram að víðar en í Mar-
vík væri pottur brotinn í öryggis-
málum. „Nú er nóg að gera, allir að
vinna og öryggisatriðum þar af leið-
andi veitt lítil athygli. Ungir krakk-
ar eru oft settir á stórar vélar án
þess að þeim sé kennt á þær áður.
Aðstæðumar eru oft slæmar og get
ég nefnt að strákamir vora látnir
standa á fiskkassa við fésvélina."
Vísifingur alltaf stífur
Sóley hefur eftir lækni Jóns Ás-
geirs að varanlegar afleiðingar
slyssins felist væntanlega í því að
vísifingur hægri handar verði alltaf
stífur. Með þjálfun verði vonandi
hægt að bjarga löngutöng. Lófínn
fór í sundur inn að miðju. Hann var
víraður saman og puttamir tveir við
lófann. Forsvarsmaður Marvíkur
vildi ekkert láta hafa eftir sér um
slysið.
Varaforseti
Mannrétt-
indadóm-
stólsins
ÞÓR Vilhjálmsson hefur verið
kjörinn einn af varaforsetum
Mannréttindadómstóls Evr-
ópu. Hann hefur um árabil
setið í Evrópudómstólnum og
var kjörinn dómari við EFTA-
dómstólinn árið 1993.
Hann var fyrst kjörinn til
starfa fyrir Evrópudómstólinn
árið 1971 og endurkjörinn árin
1980 og 1988.
Morgunblaðið/Golli
Utför
Leifs Þórar-
inssonar
ÚTFÖR Leifs Þórarinssonar tón-
skálds, sem lést 24. aprfl, var
gerð frá Kristskirkju, Landakoti
í gær að viðstöddu fjölmenni.
Séra Iljalti Þorkelsson jarðsöng.
Líkmenn voru tónskáldin Kjart-
an Ólafsson, Snorri Sigfús Birg-
isson, Áskell Másson og Atli
Heimir Sveinsson (Qær) og Þor-
kell Sigurbjömsson, Þorsteinn
Hauksson, Jón Nordal og Jón Ás-
geirsson.
Forstjóri Landsvirkjunar um risnu og ferðakostnað fyrirtækisins
Ekki komið til
tals að breyta
reglunum
EKKI hefur komið til tals innan
stjórnar Landsvirkjunar að breyta
reglum um risnu og ferðakostnað í
kjölfar fyrirspurnar Jóhönnu Sig-
urðardóttur á Alþingi um kostnað
vegna þessara þátta í starfsemi
fyrirtækisins á síðastliðnum fímm
árum. Halldór Jónatansson for-
stjóri Landsvirkjunar segir að
stjórnsýsluendurskoðun hafi síðast
farið fram fyrir þremur áram, að
beiðni stjórnar, og ekki hafí við
það tækifæri fundist dæmi um
misbeitingu á reglum um risnu og
utanlandsferðir. Að sögn Halldórs
hófst ný og sjálfstæð stjórnsýslu-
endurskoðun á ýmsum þáttum í
rekstri fyrirtækisins fyrir fáeinum
mánuðum.
Samkvæmt núgildandi reglum
um risnu og ferðakostnað Lands-
virkjunar, sem settar eru af for-
stjóra fyrirtækisins, er óheimilt að
greiða ferðakostnað maka starfs-
Utanlandsferðir á vegum Landsvirkjunar 1997
D Fjöldi ferða Fjöldi starfsmanna og ráðgjafa Fjöldi I hverri ferð
Lánamál, ráðstefnur, þjálfun og námskeið 37 52 1,4
Stóriðjusamningar og sæstrengsmál 23 46 2,0
Verksamningar 22 42 1,9
Lykiltölugreining 7 10 1,4
Samtals 89 150 1,7
manna erlendis nema við sérstak-
ar aðstæður. Skal þá greiða ferða-
kostnað og hálfa dagpeninga með-
an á dvöl erlendis stendur, sam-
kvæmt ákvörðun forstjóra hverju
sinni, en að sögn Halldórs hafa
dagpeningar aldrei verið greiddir.
Á árunum 1993-97 var ferðakostn-
aður Landsvirkjunar vegna maka
starfsmanna ríflega 469 þúsund
krónur á sama tíma og heildar-
ferðakostnaður vegna starfs-
manna og ráðgjafa á vegum fyrir-
tækisins losaði eitt hundrað millj-
ónir króna.
Núgildandi reglur voru, að sögn
Halldórs, síðast endurskoðaðar árið
1994 vegna skipulagsbreytinga inn-
an Landsvirkjunar. Reglur um
ferðakostnað leystu þá af hólmi
reglur frá árinu 1978 og reglur um
risnu komu í stað reglna sem settar
voru árið 1986. Reglurnar taka mið
af reglum hins opinbera.
Farsælt og
áfallalaust
samstarf
„ÉG vil ekkert um þetta segja
annað en það að allan þann
tíma, sem ég hef átt sæti í
bankaráði Landsbankans, hef
ég átt ákaflega farsælt og
áfallalaust samstarf við alla
bankastjóra bankans,“ sagði
Kjartan Gunnarsson, varafor-
maður bankaráðs Landsbanka
íslands.
Kjartan var inntur álits á
ummælum í opnu bréfi Sverris
Hermannssonar, fyrrverandi
bankastjóra Landsbankans, til
formanns Sjólfstæðisflokksins,
sem birtist í Morgunblaðinu 3.
maí sl., en þar segir hann að
mestu vonbrigði, mannleg og
pólitísk, sem hann hafi orðið
fyrir hafi verið þegar honum
var sagt að Kjartan væri ásamt
Finni Ingólfssyni höfuðpaurinn
í aðfórinni að Sverri í Lands-
bankamálinu. Því trúi hann
ekki enn.
Svarar ekki
með opnu
bréfi
DAVÍÐ Oddsson forsætisráð-
herra mun ekki svara opnu
bréfí Sverris Hermannssonar,
fyrrverandi bankastjóra
Landsbanka íslands, á opin-
berum vettvangi heldur svara
honum persónulega. I opna
bréfínu, sem birtist í Morgun-
blaðinu á sunnudag, segir
Sverrir sig úr Sjálfstæðis-
flokknum og tilkynnir jafn-
framt að hann ætli að beita sér
í kvótamálinu.
„Ég hef aldrei svarað held ég
opnu bréfí. Ég vil ekki að
fimmtíu þúsund manns séu að
kíkja í mín bréf,“ sagði Davíð.
Sjávarútvegs-
ráðherra vill
ekki tjá sig
ÞORSTEINN Pálsson sjávar-
útvegsráðherra vildi í gær ekk-
ert tjó sig um afstöðu Sverris
Hermannssonar, fyrrverandi
bankastjóra Landsbanka Is-
lands og fyrrverandi ráðherra
Sjálfstæðisflokksins, til kvóta-
málsins. í opnu bréfi til Davíðs
Oddssonar forsætisráðheira,
sem birtist í Morgunblaðinu sl.
sunnudag, gefur Sverrir það
m.a. til kynna að hann muni í
bili beita þeim kröftum sem
hann kunni að eiga til að brjóta
á bak aftur einu stóru mistökin
á stjómmálaferli forsætisráð-
herra: Kvótamálið.
Man ekki af
hverju útboð
fór ekki fram
í GREIN Sverris Hermanns-
sonar, fyrrverandi bankastjóra
Landsbankans, sem birtist í
Morgunblaðinu fóstudaginn 1.
maí sl., kemur fram að Lind hf.
hafí keypt stórvirkar vinnuvél-
ar af Toyota, umboðinu án þess
að kaupin væru boðin út.
Halldór Guðbjarnason, sem
var stjórnarformaður Lindar
hf. þegar kaupin fóru fram,
sagði í samtali við Morgunblað-
ið, þegar hann var spurður af
hverju kaupin hefðu ekki verið
boðin út: „Þetta er svo langt
síðan að ég bara man ekki eftir
þessu. Mig rámar jú í þegar
keyptar voru vinnuvélar, en þú
verður að tala við fram-
kvæmdastjóra um þetta, það
var ekki á borði stjórnar að
taka ákvörðun um slíkt.“
í
i
)
I
h