Morgunblaðið - 05.05.1998, Blaðsíða 46
**46 ÞRIÐJUDAGUR 15. MAÍ1998
MORGUNBLAÐIÐ
HvammstHnga
pSSj hreppur
Laus störf
Á Hvammstanga eru eftirtalin störf laus til
umsóknar:
Grunnskóli Hvammstanga
Grunnskólakennarar. Kennslugreinar:
Kennsla yngri barna, heimilisfræði, íþróttir,
myndmennt, smíðar, tónmennt, tölvufræði.
Leikskólinn Ásgarður
Leikskólakennarar eða starfsmenn með
sambærilega menntun eða starfsreynslu.
Upplýsingar veita grunnskólastjóri, sími
451 2417, hs. 451 2475, leikskólastjóri, sími
451 2343, hs. 451 2655 og sveitarsjóri, sími
451 2353, hs. 451 4758.
Umsóknarfrestur er til 22. maí nk.
Umsóknir skal senda skrifstofu Hvamms-
tangahrepps, Klapparstíg 4, 530 Hvamms-
tanga, fax 451 2307.
Grunnskólinn er mjög vel búinn einsetinn skóli meö 100 nemendur
í 1, —10. bekk. Leikskólinn er í nýlegu, vel búnu húsnæði og rými
fyrir 26 börn samtímis. Hvammstangi er vaxandi bær, miösvæöis
milli Reykjavikur og Akureyrar. Hvammstangi er ekki á jarðskjálfta-
hættusvæði né snjóflóðahættusvæði. Á Hvammstanga er mjög fjöl-
breytt þjónusta, atvinnulíf og félagslíf. í vor sameinast öll sveitarfélög
í Vestur-Húnavatnssýslu í eitt sveitarfélag.
Velkomin til Hvammstanga
Við byggjum uppeldisstarf á metnaði
og umhyggju í anda nýrrar skólastefnu.
í Árborg
eru lausar kennarastöður.
Við leitum að áhugasömum
kennurum
í almenna kennslu, íslensku, stærðfræði, tón-
mennt, tölvufræði (upplýsingafræði), íþróttir,
smíðar, samfélagsfræði, raungreinar, ensku.
Upplýsingar um ofangreind störf veita
skólastjórar grunnskólanna:
Óli Þ. Guðbjartsson Sólvallaskóla,
í síma 482 1256 eða 482 1178,
Páll Leó Jónsson Sandvíkurskóla,
í síma 482 2799 eða 482 1500 og
Arndís Harpa Einarsdóttir, Barnaskóla Eyrar-
bakka og Stokkseyrar, í síma 483 1141 eða
483 1538.
Ennfremur má leita til fræðslustjóra, Þorláks
Helgasonar í síma 482-1977 eða á netfang
thorlak@skyrr.is.
í júni sameinast Selfoss, Eyrarbakki, Stokkseyri og Sandvikurhreppur
í nýtt sveitarfélag, ÁRBORG. í Árborg verða þrír heildstæðir grunnskól-
ar i sama skólahverfi og opnar það m.a. nýjar leiðirtil samvinnu
milli skóla og heimila. Stefnt er að því að skólahverfið tengist í eitt
staðarnet (Intranet) og Árborg verði miðstöð upplýsingatækni. Kenn-
arar verða þátttakendur í mótun metnaðarfullrar fræðslustefnu.
Fræðslustjóri.
Gagnfræðaskólinn
á Sauðárkróki
Kennarar
— kennarar!
Við Gagnfræðaskólann á Sauðárkróki vantar
kennara nk. skólaár:
★ íþróttir (piltar), 50% staða.
★ Raungreinar.
★ Myndmennt.
★ Almenn kennsla í 6. og 7. bekk.
★ Smíðar.
★ Skólasafnvörður, 50% starf.
★ Sérkennari - verksvið m.a. að skipuleggja
sér- og stuðningskennslu í skólanum.
Upplýsingar gefa Björn Sigurbjörnsson, skóla-
stjóri, vs. 453 5382/hs. 453 6622 eða Óskar
Björnsson, aðstoðarskólastjóri, vs. 453 5385/
hs. 453 5745.
\Jmsóknarfrestur er til 15. maí nk.
Sportvöruverslun!
VINTERSFORT
Intersport er nýstofnuð
sportvöruverslun.
Fyrirtækið býðurgóða
vinnuaðstöðu og er
með heimsþekktar
vörur á sviði útivistar,
íþrótta og tómstunda.
Fyrirtækið er reyklaust.
Intersport leitar að ungum og
röskum einstaklingum til
afgreiðslu- og sölustarfa.
Viökomandi þurfa aö hafa áhuga
á íþróttum, útivist, golfi, brettum
og línuskautum.
Viðkomandi þurfa að geta byrjað
strax.
Upplýsingar eru veittar hjá Ráðningar-
þjónustu Hagvangs hf. og umsóknum
skal skilað þangað fyrir 7. maí n.k.
Rótt þukking 6 róttum tima
-fyrír rótt fyrirtæki
HAGVANGUR RADNINGARMÚNUSIA
Coopers & Lybrand
Hagvangur hf.
Skeifan 19
108Reykjavík
Sími 581 3666
Bréfslmi 568 8618
Netfang
radningar@coopers. is
Veffang
http://www.coopers.is
Organisti
Sóknarnefnd Lögmannshlíðarsóknar Akureyri
auglýsir starf organista við sóknina lausttil
umsóknar. Auk umsjónar með tónlist við at-
hafnir í samstarfi við sóknarprest, sr. Gunnlaug
Garðarsson, skal organisti sjá um og stjórna
kirkjukór og barnakór Glerárkirkju.
Starfið veitist frá og með 1. september nk.
Laun skv. taxta Félags ísl. organista eða eftir
nánara samkomulagi.
Nánari upplýsingar gefur gjaldkeri sóknarinn-
ar, Hermann R. Jónsson, Búðasíðu 7, Akureyri,
hs. 462 5025, vs. 462 1878.
Umsóknum skal fylgja ítarleg skrá um mennt-
un og fyrri störf.
Umsóknum skal skilað eigi síðar en 20. maí
nk. í lokuðu umslagi merktu:
Glerárprestakall — Organisti
c/o hr. Hermann R. Jónsson,
Glerárkirkju v/Bugðusíðu,
603 Akureyri.
Embætti landlæknis
Embætti landlæknis er hér með auglýst laust
til umsóknar. Landlæknir er ráðunautur ráðherra
og ríkisstjórnar um allt er varðar heilbrigðismál
og annast framkvæmd tiltekinna málaflokka f.h.
ráðherra samkvæmt lögum, reglum og venjum
er þar um gilda. Hann hefur eftirlit með starfi
og starfsaðstöðu heilbrigðisstétta, skipuleggur
skýrslugerð og annast útgáfu heilbrigðisskýrslna
ásamt heilbrigðisráðuneytinu. Landlæknir veitir
embætti landlæknis forstöðu.
Samkvæmt lögum nr. 97/1990 um heilbrigð-
isþjónustu skipar heilbrigðis- og trygginga-
málaráðherra landlækni til fimm ára í senn.
Landlæknirskal vera embættislæknireða hafa
aðra sérfræðimenntun ásamt víðtækri reynslu
á sviði stjórnunar.
Kjör eru samkvæmt ákvörðun kjaranefndar.
Umsóknir, ásamt upplýsingum um menntun
og fyrri störf, sendist heilbrigðis- og trygginga-
málaráðuneytinu, Laugavegi 116,150 Reykja-
vík, eigi síðar en 1. júní nk.
Embætti landlæknis verður veitt frá og með
1. desember nk.
Nánari upplýsingar um embættið veitir ráðu-
neytisstjóri í heilbrigðis- og tryggingamálaráðu-
neytinu í síma 560 9700.
Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið.
Reykjavík, 30. apríl 1998.
Trésmiðir, múrarar og
kranamenn
Mótás efh., óskar eftir að ráða trésmiði, múrara
og kranamann sem fyrst.
Upplýsingar í síma 567 0765.
VERKMENNTASKÓLI
AUSTURLANDS
Lausar stöður
Við Verkmenntaskóla Austurlands í Neskaup-
stað eru eftirtaidar kennarastöður lausartil
umsóknar skólaárið 1998—1999.
1/2 staða náms- og starfsráðgjafa.
1/2 staða sérkennara til að vinna með fötluðum
nemendum og nemendum með námserfiðleika.
1/2 staða félagsmála- og forvarnarfulltrúa.
Stöður kennara í verklegum málmiðngreinum,
verkiegum tréiðngreinum, vélstjórnargreinum
og verklegum sérgreinum á sjávarútvegs-
braut.
Einnig vantar kennara til að kenna einstaka
áfanga í eftirtöldum greinum: Stærðfræði,
eðlisfræði, ritvinnslu, íslensku, dönsku, ensku,
þýsku og sálfræði.
Umsóknarfrestur er til 15. maí.
Laun samkvæmt kjarasamningi ríkisins og
kennarafélaga.
Allar nánari upplýsingar gefur Helga M. Steins-
son, skólameistari, í síma 477 1620.
Grunnskólakennarar
/sérkennarar
Kennara vantar að Borgarhólsskóla, Húsavík,
næsta skólaár. M.a. vantar bekkjarkennara á
yngsta stigi og miðstigi. Sérkennara vantar
í fullt starf. Enskukennara vantar í fullt starf
í unglingadeildum skólans. Reynt er að útvega
niðurgreitt húsnæði. Flutningsstyrkur er
greiddur.
Borgarhólsskóli er einsetinn, heildstæður
grunnskóli.
Vel er að skólanum búið í nýju húsnæði.
Nánari upplýsingar veita Halldór Valdimars-
son, skólastjóri, vs. 464 1660, hs. 464 1974,
og Gísli Halldórsson, aðstoðarskólastjóri,
vs. 464 1660, hs. 464 1631.
Umsóknarfrestur er til 17. maí.
Embætti héraðslæknis
í Reykjavík
Embætti héraðslæknis í Reykjavík er hér með
auglýst lausttil umsóknar. Héraðslæknirersér-
stakur ráðunautur heilbrigðisstjórnar um hvað-
eina er viðkemur heilbrigðismálum héraðsins.
Héraðslæknar skulu fylgjast með því að fram-
fylgt sé lögum og reglum um heilbrigðismál
í héraðinu.
Samkvæmt lögum nr. 97/1990 um heilbrigð-
isþjónustu skipar heilbrigðis- og trygginga-
málaráðherra héraðslækni í Reykjavíktil fimm
ára í senn. Héraðslæknir skal vera embættis-
læknir eða hafa aðra sérfræðimenntun ásamt
víðtækri reynslu á sviði stjórnunar.
Kjör eru samkvæmt ákvörðun kjaranefndar.
Umsóknir, ásamt upplýsingum um menntun
og fyrri störf, sendist heilbrigðis- og trygginga-
málaráðuneytinu, Laugavegi 116, 150 Reykja-
vík, eigi síðar en 1. júní nk.
Embætti héraðslæknis í Reykjavík verður veitt
frá og með 1. janúar 1999.
Nánari upplýsingar um embættið veitir ráðu-
neytisstjóri í heilbrigðis- og tryggingamálaráðu-
neytinu í síma 560 9700.
Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið.
Reykjavík, 30. apríl 1998.