Morgunblaðið - 05.05.1998, Blaðsíða 80

Morgunblaðið - 05.05.1998, Blaðsíða 80
Atvinnutryggingar MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN1,103 REYKJAVIK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF5691181 PÓSTHÓLF3040, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1 ÞRIÐJUDAGUR 5. MAÍ 1998 VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK Krían komin frá Afríku Breiðþotur Atlanta og British Airways í 37 þúsund feta hæð yfír Súdan Stefndu hvor á aðra í sömu flughæð FLUGMENN B747-þotu Atlanta- flugfélagsins urðu að lækka flugið um 500 fet og flugmenn sams konar þotu frá British Airways að hækka flugið um 500 fet til að koma í veg fyrir árekstur þar sem vélamar stefndu hvor á aðra í sömu flughæð. Þetta gerðist yfir Súdan í síðasta mánuði. Ekki er ljóst hver fjarlægð- —dn milli vélanna var. Ein af B747-þotum Atlanta var á leið frá Dakar í Senegal til Jeddah í Saudi-Arabíu og var einungis áhöfn- in, 16 manns, um borð. Flogið var í 37 þúsund feta hæð að næturlagi og var skyggni gott. Þegar þota Atl- anta nálgaðist Khartoum í Súdan, sem er einn af svokölluðum leiðar- punktum, heyrði áhöfnin tilkynn- ingu frá þotu British Airways um áætlaðan komutíma á sama leiðar- punkt. Kom sú vél úr gagnstæðri átt og var í sömu flughæð. Var áhöfn Atlanta-vélarinnar ljóst að miðað við eigin áætlaðan komutíma yrðu vélarnar yfir leiðarpunktinum á sama tíma. Áhöfnin kallaði þá á talbylgju til áhafnar British Air- ways-þotunnar og tilkynnti að þeir væru að lækka flugið um 500 fet til að forðast árekstrarhættu. Þota British Airways hækkaði flugið um 500 fet og á sama tíma gerði árekstravari Atlanta-þotunnar við- vart um of litla fjarlægð á milli véla. Hafþór Hafsteinsson, flugrekstr- arstjóri Atlanta, tjáði Morgunblað- inu að skyggni hefði verið gott og hvor áhöfn um sig séð siglingaljós hinnar. Hann kvaðst ekki vita um farþegafjölda um borð í bresku þot- unni. Hafþór sagði hættu á atvikum sem þessu löngum hafa verið fyrir hendi í flugi yfir ríkjum Afríku sök- um ófullnægjandi búnaðar flugum- ferðarstjórna þar í álfu og því yrðu áhafnir að treysta á tilkynninga- kerfi á talbylgju milli véla. Hætt við fiugtak Þá segir hann árekstravara hafa aukið öryggi til muna á síðari árum. Allar B747-þotur Atlanta eru búnar árekstravara. Þá varð það óhapp 23. apríl sl. að hætt var við flugtak af öryggis- ástæðum á einni B747-þotna félags- ins sem var í flugtaksbruni í Medina í Saudi-Arabíu. Flugmenn tóku eftir misvísandi upplýsingum hraðamæl- is og hættu við flugtakið. Sakir mik- ils hita við flugvöllinn og hitaálags á hemla vélarinnar lak úr hjólbörðun- um þegar vélin hafði verið stöðvuð. Um borð voru 444 pílagrímar og 16 manna áhöfn en engan sakaði. Skipt var um hjólbarðana og hluta af hemlakerfi þotunnar, en 16 hjól- barðar eru í aðalhjólastelli B747- þotna. Eftir viðgerðirnar og skoðun voru gerðar akstursprófanir og haldið til Frankfurt í Þýskalandi. KRÍAN er komin til landsins eftir langt ferðalag frá suðurhveli jarð- ar. Hún kemur vanalega til íslands síðustu dagana í aprfl, og í ár sást fyrst til hennar í kringum 25. apr- fl, að sögn Ævars Petersen fugla- fræðings. Krían heldur sig í Suður-Afríku og við Suðurheimskautið á vet- _ urna og heldur síðan norður til ís- lands, Grænlands og Norðurland- anna á sumrin. Varptími kríunnar hefst um mánaðamótin maí-júní og er eins gott að verja höfuð sitt álpist maður inn í varpland henn- ar. Ævar sagði að líklega kæmu um 400 þúsund kríupör hingað til lands á ári hveiju. Krían er einn helsti ferðalangur meðal fugla og getur ferðin frá norðri til suðurs verið allt að 16 þúsund kflómetrar. Ljósmyndari Morgunblaðsins hitti fyrir þennan kríuflokk þar sem hann var að „kanna aðstæð- ur“ á Seltjamarnesinu um helg- ina. Tal hf. Mínútan á 21 krónu í dagftaxta FARSÍMAFÉLAGIÐ Tal hf. hefur formlega starfsemi í dag. Þar með er samkeppni í símaþjónustu orðin að raun- veruleika hér á landi. Símakort hjá fyrirtækinu kostar 2.000 kr., en félagið býður upp á þrjár ólíkar þjón- ustulínur með alls tíu gjald- taxta. Almennur dagtaxti á grunnþjónustunni er nefnist „altal“ er 21 króna á mínútuna en kvöld- og helgartaxti er 14 krónur. Þeim sem nota síma aðallega um kvöld og helgar gefst kostur á svokölluðum frítalstaxta þar sem mínútu- gjaldið á daginn er 25 krónur en 10 krónur um kvöld og helgar. Þjónusta fyrirtækisins mun fyrst í stað einskorðast við suðvesturhom landsins auk þess sem hægt verður að nota kerfið í Evrópu og víðar. ■ Samkeppni/22 Kennslustund í mannúð Mjög góður afli frystitogara Samherja síðustu daga Aflaverðmæti 5 skipa um 370 milljónir króna FRYSTITOGARAR Samherja hf. hafa verið að koma með mikinn ‘afla að landi síðustu daga og er aflaverðmæti fjögurra togara fé- lagsins, sem komu inn til löndunar í síðustu viku, samtals tæpar 300 milljónir króna. Þá kemur nóta- skipið Þorsteinn EA inn til löndun- ar í vikunni með aflaverðmæti upp á rúmar 80 milljónir króna. Baldvin Þorsteinsson EA kom til hafnar sl. laugardag og var afla- verðmæti skipsins um 97 milljónir króna. Nokkur hluti aflans var út- hafskarfi af Reykjaneshrygg. Guðbjörg úr leigu Fyrr í vikunni kom Akureyrin EA með 65 milljóna króna afla- verðmæti, Víðir EA með 77 millj- óna króna aflaverðmæti og Guð- björgin með 50 milljóna króna aflaverðmæti. Guðbjörg var í leigu í Þýska- landi og var að veiða úr þýskum kvóta við Noreg og Grænland en skipinu hefur nú verið flaggað heim til íslands á ný. Akureyrin og Víðir voru við veiðar á heimamið- um en eru nú bæði komin til veiða á Reykjaneshrygg. Þá er Þor- steinn EA að koma úr grálúðutúr. Öll eru skipin að koma úr um og yfir 30 daga túrum. ■ Næstlengsta/14 TYRKNESKA blaðið Sabah fjall- aði í gær um mál Miiruvet Basar- an, tyrknesku konunnar, sem ut- anríkisráðuneytið bauð að koma hingað til lands frá Tyrklandi ásamt Martin, syni sinum, í Qór- dálka frétt á forsíðu og segir að Islendingar hafi veitt Tyrlqum kennslustund í mannúð. Fréttina skrifar Ahmet Özay, tyrkneskur blaðamaður, sem kom hingað til lands í síðustu viku, og sagði hann í gær að hann hefði viljað bera saman að meðan sjö ára barátta Sophiu Hansen fyrir því að fá dætur sín- ar stóð yfir hefðu tyrknesk stjórnvöld engan stuðning veitt, en Miiruvet Basaran hefði verið boðið að koma til Islands eftir að hafa skrifað eitt lesandabréf. Miiruvet eignaðist son, Martin, með Þráni Meyer, sem hún gekk að eiga um helgina, í Þýskalandi og flutti með hann til Tyrklands þegar þýskt dvalarleyfi hennar rann út. f blaðinu Sabah, sem kemur út í 550 þúsund eintökum, er einnig fjallað um málið á innsíðum og þar er að auki frásögn af máli Sophiu Hansen. ■ íslendingar sagðir/6
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.