Morgunblaðið - 05.05.1998, Blaðsíða 61

Morgunblaðið - 05.05.1998, Blaðsíða 61
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. MAÍ 1998 61 MINNINGAR GUÐRÚN FRÍMANNSDÓTTIR + Guðrún Frímannsdóttir fæddist í Reykjavík 15. jan- úar 1943. Hún lést á Landspítal- anuin 18. apríl síðastliðinn og fór útför hennar fram frá Foss- vogskirkju 28. apríl. Ég var að ljúka kennslu laugar- daginn 18. apríl þegar konan mín sagði mér að einkasystir hennar, Guðrún, hefði látist þá um morgun- inn. Öll vissum við að Guðrún átti að öllum líkindum ekki langt eftir, því þegar krabbinn sækir mann heim veit maður aldrei hversu langt er í lokin. Samt kom þetta okkur öllum á óvart. Við hjónin höfðum einmitt ákveðið að fá Rúnu og Fedda í mat um þessa helgi, en ákváðum að fresta því aðeins vegna anna. En svona er lífið, maður veit sjaldan hvenær endalokin koma. Guðrún mágkona mín var sérlega glæsileg kona og hafði til að bera þessa rólegu og glæsilegu framkomu sem einkennir vel menntaða og vel gefna konu, svo ekki sé minnst á góða kímnigáfu. Ég veit að Guðrún vissi hvað var í vændum og róleg og yfírveguð gekk hún sín síðustu skref vitandi það að ekkert var að óttast og sjálfsagt hef- ur hún gert eins og ég, að kenna í brjósti um Fedda, móður sína og börnin sem eftir voru. Það er vissulega skarð fyrir skildi þegar Rúna hverfur af sjónvarsviði lífsins, en minning um glæsilega konu mun ávallt fylgja mér. Ég votta Ferdinand, Margi'éti, börnum Guðrúnar og systkinum samúð mína og bið þeim öllum guðs blessunar. Heiðar R. Astvaldsson. Fátt er foreldrum mikilvægara en velferð þeiira bama sem þeir fá að annast og þar skipa góðir kennarar háan sess. Guðrún Frímannsdóttir var mjög góður kennari. Hennar fag var píanóleikur og hún miðlaði nem- endum sínum miklu í þekkingu, gleði, sjálfstrausti og sveigjanleika. Þeim börnum var sannarlega ekki í kot vísað sem nutu þess að læra hjá henni í Tónmenntaskóla Reykjavík- ur. Okkur er minnisstæður fyrsti pía- nótími sonar okkar. Drengurinn hafði bæði séð píanó og heyrt í því heima og heiman áður, en þegar Guðrún spjallaði um hljóðfærið, brosmild, hlý og elskuleg, og sýndi honum hvernig það virkar utan og innan var eins og opnaðist fyrh' hon- um nýr heimur. Verkefnin valdi Guð- rún af kostgæfni, og það var ótrúlegt hvað það var hægt að æfa sig stutta stund í einu, samt kom fljótlega áheyrilegt lag út úr nótnaheftinu og hljóðfærinu. Það jók áhugann og meðan sá stutti fagnaði nýjum lög- um, glöddust foreldrarnir yfir verk- efninu í sjálfu sér og góðri þjálfun hugar og handa. Píanótímar hjá Guðrúnu Frímanns voru fastur liður á vetrar- dagskránni hjá okkur í sjö ár. Tvisvar til þrisvar á vetri voru nem- endatónleikar sem foreldrar fengu að hlýða á, þess á milli samspil nem- enda þar sem bara þau og hún hitt- ust. Það var augljóst á þessum tón- leikum að Guðrún var mjög hæfur kennari. Það var ekki bara eitt barn sem stóð sig vel, heldur öll. Þau sátu vel við hljóðfærið, áslátturinn var skýr og jafn, hendingamótun meðvit- uð, framkoman hæfílega öguð og sjálfstraustið og spilagleðin fóru vax- andi. Hvert barn hafði fengið verk- efni sem það réð vel við, spilaði lagið sitt fyrir alla hina nemendurna og foreldrana og kom út sem sigurveg- ari. Guðrún kynnti þau hvetjandi með bros á vör og var fljót að koma til aðstoðar ef eitthvað fór úrskeiðis. Það var auðvelt fyrir alla foreldrana að gleðjast yfir góðu verki nemend- anna og kennarans. Við eigum skemmtilega mynd af Guðrúnu með þremur nemendum sínum, strákum sem fylgdust að í nokkur ár og æfðu saman sexhent á píanó. Það eru ekki margir píanó- kennarar sem geta státað af því að hafa venjulega fótboltastráka í námi hjá sér fram yfir fermingu. En hún kunni á unglingamálin. „Ef við erum ekki sveigjanleg núna hætta strák- arnir,“ sagði hún brosandi og færði píanótímana til, svo að útiæfingar i fótbolta yrði ekki til þess að strák- arnir segðu skilið við hljóðfærið. Þessar tilfærslur stóðu í nokkrar vikur seinni hluta vetrar í þrjú ár. Okkur fannst það sannarlega ekki sjálfsagt og finnst enn við standa í ómetanlegri þakkarskuld við Guð- rúnu. Þegar Guðrún Frímanns hvarf tímabundið frá störfum vegna veik- inda nokkra vormánuði fyrir tveimur árum, kom góður kennari í hennar stað, en það var mikill fögnuður að fá hana aftur brosandi og bjartsýna um haustið. Við nutum handleiðslu hennar þann vetur, en þegar veikindi hennar ágerðust ráðstafaði hún nem- endum sínum í aðrar góðai' „frí- mennskar" hendur. Sumir virðast halda að hljóðfæra- nám sé til þess að búa til tónlistar- fólk. Flestir hallast hins vegar að því að hljóðfæranám þjálfi jafnvel þá sem eru „ekki músíkalskir" (hvað sem það nú er) í samhæfmgu hugar og handa, sjálfsaga, einbeitingu og lesti'i ásamt ýmsu öðro. Að tónlist auðgi og fegri tilveruna er auk þess skoðun margra. Þessarar afstöðu til tónlistarkennslu barna finnst okkur við hafa notið ríkulega í frábæru dagsverki Guðrúnar Frímannsdótt- ur. Við vonum að okkur hafi á þessum góðu ái'um tekist að tjá Guðrúnu sjálfri þakklæti okkar að einhverju leyti, en við stöndum áfram í mikilli þakkarskuld við hana og hörmum ótímabært fráfall hennar. Eigin- manni, börnum og öðrum ástvinum Guðrúnar Frímannsdóttur vottum við okkar innilegustu samúð. Sesselja Halldórsdóttir og Daði Kolbeinsson. Látin er Guðrún Frímannsdóttir píanókennari. Er þar skarð fyrir skildi, þar sem vart má ímynda sér hvernig kenna megi ungu fólki betur á hljóðfæri en hún gerði. Ekki minn- ist undirritaður að nokkurn tímann vantaði lof á það sem vel var gert, né oflofað væri þegar lítið var gert, hvað þá að hafa fundið fyrir óánægju með ábendingar og leiðréttingar. Framfarir fylgdu dug og hæfileikum nemandans, og útkoman var traust- ur gi-unnur sem stóðst misjafna út- reið síðari tíma. Ég naut leiðsagnar hjá Guðrúnu í fjögur ár að 11 ára aldri, en aldrei stóð síðar á að fá aukatíma við ýmis tilefni svo sem stigapróf. Tímarnh' voru ekki einungis æfingar, spilun og ábendingar, heldur var maður að hitta vin, og tími vannst alltaf til að rabba. Það var ekki fullorðinn að tala til barns, heldur tvær persónur að ræða - ein lítil og önnur stór. Eftir á að hyggja var þetta merkilega fólskvalaust; slíkt gerist, en sjaldan eins vel heppnað og hér. Það sem mér er efst í huga nú er hversu mik- ið ég á persónunni Guðrúnu Frímannsdóttur að þakka fremur en píanókennaranum. Guðrún var ein glaðlyndasta manneskja sem ég hef þekkt og af- skaplega stutt var í innilegan hlátur. Yfirleitt var nóg af honum, ekki síst við fremur spaugilegar óboðnar komur eins samkennara hennar inn í tírna. Kímnin var svo undantekning- arlaus að ég minnist sterklega þessa eina skiptis sem hana vantaði. Á þeim tíma skildi ég það lítið, en það vai' daginn eftir jarðai-fór föður hennar. Langt var síðan við hittumst síð- ast, en alltaf var meiningin að taka þráðinn upp að nýju (helst eftir að hafa byrjað aftur að æfa sig í minnst klukkutíma á dag). Af því varð aldrei og er mér mikil eftirsjá í því. Ég vona að þessar lítilmótlegu þakkh' fyrir kennsluna og fyrir samveruna komist til skila. Fjölskyldu hennar sendi ég innilegar samúðarkveðjur. Magnús M. Halldórsson. JÓHANNA ÞÓRUNN ÞORS TEINSDÓTTIR + Jólianna Þórunn Þorsteins- dóttir fæddist á Helgafelli í Helgafellssveit 11. maí 1913. Hún lést á Garðvangi í Garði 24. apríl síðastliðinn og fór útfór hennar fram frá Keflavíkur- kirkju 2. maí. Þegar ég leystur verð þrautunum frá, þegæ' ég sólfagra landinu á, lfii og verð mínum lausnai'a hjá. Það verður dásamleg dýrð handa mér. Astvini sé ég, sem unni ég hér, árstraumar fagnaðar berast að mér: blessaði frelsari, brosið frá þér. Það verður dásamleg dýrð handa mér. (Þýð. Lárus Halldórsson.) Elsku amma, nú ertu loksins búin að fá hvíldina sem þú hafðir þráð svo lengi, en söknuður okkar hinna sem eftir lifa er mikill. Þú varst fasti punkturinn í lífi okkar systkin- anna, og var gott að leita til þín ef eitthvað bjátaði á. Sjálfur flutti ég til þín á Heiðarveginn 1986 og bjuggum við þar saman til ársins 1992 þegar þú flutth- á Hlévang. Þessi sambúð okkar var mér ómet- anleg og á ég margar góðar minn- ingar frá þeim árum. Og ekki síst vil ég þakka þér hve vinir mínir voru alltaf velkomnir inn á heimilið. Árið 1991 kynntist ég Ernu og flutti hún til okkar. Við þrjú bjugg- um svo saman einn vetur. Það var oft glatt á hjalia hjá okkur og það brást vai’la að fjölskyldan í Eyja- byggðinni og fjölskyldan á Máva- brautinni kíktu í kaffi um helgar. En svo fór að heilsa þín var orðin svo slæm að þú þurftir að flytjast af Heiðarveginum á Hlévang. Á Hlé- vangi fékkstu bjart og fallegt her- bergi og þar leið þér vel, sérstak- lega þegar þú fékkst heimsóknir. Þér leið best innan um fjölskylduna og þú varst alltaf ung í anda og gott að tala við þig um daginn og veginn. Helgafellssveitin og ættfræðin var umræðuefni sem oft bar á góma, og þar kom svo sannarlega enginn að tómum kofanum. Ái'ið 1994 var svo komið að þú þurftir enn meiri umönnun en í boði var á Hlévangi, svo þú varðst að flytjast á Garðvang og þar dvaldir þú síðustu árin. Við Ema höfum oft velt því fyrir okkur hvað sumir þurfa að reyna í lífinu, en við trúum því að allt sem þú gekkst í gegnum hafi tilgang sem við þó ekki skiljum núna. Nú muntu hitta ástvinina sem fóru á undan þér og þrautum þínum hefur nú loksins linnt. Elsku amma, við sem eftir lifum minnumst þín með virðingu og þakklæti fyrir allt sem þú gafst okk- ur. Kristinn Þór og Erna Margrét. Þökkum ykkur af heilum hug, kæru vinir, þann mikla hlýhug og tryggu vi- náttu sem þið sýnduð okkur með margvíslegum hætti við andlát og útför bróður okkar og mágs, HALLGRÍMS EYLEIFS GUÐNASONAR, Jórufelli 12. Fjóla Bærings og Gunnar Þorsteinsson. + Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug við and- lát og jarðarför ástkærrar eiginkonu minnar, dóttur okkar, móður og ömmu, KATRÍNAR SVERRISDÓTTUR, Aðalstræti 38, Akureyri. Starfsfólk deildar 11E á Landspítalanum og heimahlynningar á Akureyri fær sérstakar þakkir fyrir góða umönnun. Jón Ásmundsson, Sverrir Hermannsson, Auður Jónsdóttir, Auður Elva Jónsdóttir, Guðrún Lilja Jónsdóttir, Sverrir Már Jónsson, Birkir Már Viðarsson. t Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför eigin- manns míns, sonar, föður, tengdaföður og afa, HERMANNS SAMÚELSSONAR, pípulagningarmeistara, Hraunbæ 78, Reykjavík. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Heima- hlynningar Krabbameinsfélagsins. Sigrún Garðarsdóttir, Helga Magnúsdóttir, Helga Björg Hermannsdóttir, Guðmundur Þ. Guðmundssson, Páll Þórir Hermannsson, Ásta Mósesdóttir, Samúel Hermannsson og barnabörn. + Öllum þeim fjölmörgu ættingjum og vinum, sem sýndu okkur hlýhug við andlát og útför, HELGA HINRIKS SCHIÖTH, Akureyri, sendum við okkar innilegustu þakkir og bless- unaróskir. Sérlegar þakkir sendum við hjúkr- unar- og starfsliði á Seli og Kristnesspítala fyrir kærleiksríka umönnun í veikindum hans. Sigríður Schiöth, Reynir H. Schiöth, Margrét A. Schiöth, Valgerður G. Schiöth, og fjölskyldur. + Hjartans þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar móður okkar, tengdamóður og ömmu, LAUFEYAR GUÐJÓNSDÓTTUR, Háagerði 91, Reykjavík. Sérstakar þakkir til heimilishjálpar/heima- hjúkrunar Reykjavíkurborgar og starfsfólks Hrafnistu Reykjavík. Lilja Sigurðardóttir, Gísli H. Friðgeirsson, Þórir Sigurðsson, Anna Sigurðardóttir og barnabörn. + Innilegar þakkir fyrir samúð og hlýhug við andlát og útför systur okkar, ÞORGERÐAR SIGRÚNAR JÓNSDÓTTUR frá Vopnafirði. Sérstakar þakkir til starfsfólks Droplaugar- staða. Guð blessi ykkur öll. Einar Jónsson, Gísli Jónsson.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.