Morgunblaðið - 05.05.1998, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 5. MAÍ 1998 15
AKUREYRI
Bátarnir hafa verið að moka upp afla við Grímsey síðustu vikur
Alveg hreint ævintýri
Morgunblaðið/Erlendur Haraldsson
GRÍMSEYJARFEÐGAR með góðan afla. Óli Bjarni stendur aftur á
en Óli Hjálmar er við stýrið. Þeir róa á bátnum Óla Bjarnasyni EA
279, sem þeir eiga og gera út frá Grímsey, en hann er af gerðinni
Sómi 860 og eru þeir feðgar með 370 tonna þorskkvóta á honum.
FEÐGARNIR Óli Bjarni Ólason
og Óli Hjálmar Ólason, oft nefndir
Grímseyjarfeðgar, hafa eins og
aðrir verið að gera það gott en
mokafli hefur fengist við Grímsey
síðustu vikur. „Við fengum eitt-
hvað á milli 7 og 8 tonn í dag, lögð-
um ellefu bala. Fyrst fórum við að
landi með um 5 tonn og erum að
leggja af stað núna með tvö og
hálft tonn,“ sagði Óli Hjálmar þeg-
ar Morgunblaðið náði tali af honum
um borð í Óla Bjarnasyni síðdegis í
gær, en þá var aðeins byrjað að
bræla á miðunum, „kominn kalda-
djöfull", eins og Óli Hjálmar orðaði
það.
Óli Hjálmar varð 67 ára í síðustu
viku, en hann byrjaði að róa frá
Grímsey 7 ára gamall. „Þetta er al-
Lögðu ellefu
bala og fengu
á milli sjö og
átta tonn í gær
veg hreint ævintýi-i, ég hef bara
aldrei lenti í öðru eins,“ sagði hann,
en þeir væru að fá þetta 7-800 kíló
af góðum þorski á bala, en það
hefði þótt gott fyrir nokkram árum
að fá um 200 tonn á bala.
Þorskurinn farinn að
éta sjálfan sig
Óli Hjálmar sagði að nú áraði
einstaklega vel, en veiðin gæti
hrunið eftir 2-3 ár, hún væri
sveiflukennd og greinilegt að
þorskurinn hefði ekki nægilegt æti.
„Hann fær ekki nóg að éta og er
farinn að éta ungviðið alveg brjál-
að. Það vantar bæði rækju og
loðnu í hann. Við höfum tekið eftir
því núna í vetur að það eru þrír og
fjórir smáfiskar ofan í hverjum
stórum físki sem við höfum fengið
við eyjuna," sagði Óli Hjálmar.
Hann sagði að loðnuna vantaði al-
veg við Grímsey, en fyrir tveimur,
þremur áratugum hefði mikið verið
um loðnu við eyjuna og þá hefðu
menn bara keyrt í loðnutorfurnar
og rennt færinu niður í þær. Nú
væri loðnan veidd við Kolbeinsey á
sumrin og hún kæmi ekki lengur
að Grímsey.
Törnin byrjaði um miðjan apríl
en í þeim mánuði fengu feðgamir
um 70 til 80 tonn og er það metafli.
„Eg vona að þetta haldi eitthvað
áfram, þetta er svo stórkostlegt,"
sagði Óli Hjálmar, en myndin er
tekin þegar þeir feðgar komu úr
róðri nú nýlega með á sjötta tonn
af þorski sem þeir fengu á aðeins
fjórtán línubala.
L-listinn, listi fólksins, kynnir
stefnuskrá fyrir kosningar
Lán til að auka
framkvæmdir
LISTI fólksins, L-listinn, sem býð-
ur fram til bæjarstjómar á Akur-
eyri, hefur kynnt stefnuskrá sína,
en meðal þess sem áhersla er lögð
á má nefna skólamál, atvinnumál
og tómstundamál. Þá hyggst list-
inn beita sér fyrir auknum forvöm-
um á sviði vímuefnamála.
Meðal þess sem L-listinn kynnir
í stefnuskrá er að stefnt sé að upp-
byggingu skólahúsnæðis, strax
verði ráðist í að byggja tvær nýjar
álmur við Síðuskóla og Lundar-
skóla og þær teknar í notkun
haustið 1999 auk þess sem upp-
byggingu við aðra skóla verði hrað-
að. Þá leggur listinn áherslu á tóm-
stundamál og að þau séu besta
vörnin gegn ávana- og fíkniefnum
sem og slæmum félagsskap. Akur-
eyrarbær eigi einnig að láta til sín
taka á sviði forvamarmála gegn
vímuefnum en það starf verði að
efla og auka. Einnig er nefnt í
stefnuskrá að íþróttaaðstaða á
Akureyri eiga að vera í fremstu röð
og því þurfí að sinna uppbyggingu
íþróttamannvirkja. Aðstaða Amts-
og Héraðsskjalasafna verði bætt
með viðbyggingu eða öðram lausn-
um og loks má nefna að L-listinn
vill athuga hvort svigrúm sé til
lækkunar verðs á heitu vatni á
Akureyri, m.a. með því að skoða
rekstur og fyrirkomulag veitu-
stofnana bæjarins.
Þá fer boltinn að rúlla
„Við viljum að bærinn taki lán til
að framkvæma, hann hefur til þess
svigrúm, en skuldir bæjarins eru
ekki miklar. Um leið og bærinn fer
út í auknar framkvæmdir fer bolt-
inn að rúlla og fleiri fara af stað,“
sagði Oddur. Eitt af því sem listinn
mun beita sér fyrir fái hann til
þess brautargengi er að ráða
starfsmenn á vegum Fram-
kvæmdasjóðs Akureyrar sérstak-
lega til að leita að heppilegum at-
vinnutækifæram.
Oddur sagði að á síðustu 15 mán-
uðum hefði Akureyringum fjölgað
um 50-60 manns en benti á að íbú-
um Kópavogs hefði á sama tíma
fjölgað um meira en 2.000. Tekju-
aukning Kópavogs vegna þessa
næmi um 240 milljónum króna, en
6-7 á Akureyri. Það þjrfti að leggja
áherslu á að gera bæinn meira að-
laðandi fyrir ungt fólks svo það
vildi setjast þar að.
Tveir menn í
bæjarstjóm
„Við stefnum að því að fá tvo
menn kjöma í bæjarstjórn og er-
um bjartsýn á að það takist, við
leggjum áherslu á að ef fólk vill
breytingar eigi það að gefa okkur
tækifæri," sagði Oddur, en fram-
boðið hyggst ekki eyða meira fé en
200 þúsund krónum í kosningabar-
áttuna, en þar af er framlag Akur-
eyrarbæjar 150 þúsund krónur.
Kosningaskrifstofan er við Ráð-
hústorg 7, 2 hæð og þar sýna þær
Jóna Jakobsdóttir, Rósa Þor-
steinsdóttir og Guðný Ósk Agnars-
dóttir verk sín.
Sumarbúðir KFUM og K á Hólavatni
Innritim hafín
INNRITUN í sumarbúðir KFUM
og K á Hólavatni í Eyjafírði er
hafín.
I sumar verða 5 dvalarflokkar á
Hólavatni, tveir verða fyrir drengi
og tveir fyrir stúlkur. Einnig verð-
ur unglingaflokkur fyrir stúlkur í
júlí.
Starfíð á Hólavatni hefst 5. júní
næstkomandi og koma þá drengir
á staðinn, en á Hólavatni geta dval-
ið þeir sem eru átta ára, fæddir
1990 og eldri.
Hólavatn er í innanverðum
Eyjafirði í skjólgóðum krika. Vatn-
ið hefur upp á marga skemmtilega
kosti að bjóða, hressandi bátsferð-
ií-, stangveiði og baðstrandarlíf á
heitum dögum. Kvöldvökur era
fastur liður og ýmsar íþróttir
stundaðar. Fagurt umhverfi gefur
kost á hollri útivist og síðast en
ekki síst fá bömin að fara í heim-
sókn á bóndabæ og kynnast störf-
um þar.
Innritun í sumarbúðimar fer
fram í félagsheimili KFUM og K í
Sunnuhlíð á Akureyri, mánudaga
og miðvikudaga frá kl. 17 til 18 en
nánari upplýsingar veita Jón Odd-
geir Guðmundsson og Salóme
Garðarsdóttir á Akureyri.
Til sölu eða leigu í Amaróhúsinu
t
§
Til leigu eða sölu á 2. hæð I Amaróhúsinu er verslunar- eða þjónustuhúsn. Stærðir eru frá 40 fm til 100
fm. Að auki eru minni skrifst. á hæðinni. Aðgengi er gott frá Hafnarstræti og Gilsbakkavegi. Fólks- og
vörulyftur eru í húsnæðinu. Húsið er staðs. á einum besta stað í miðbæ Akureyrar. í húsinu eru í dag 9
verslanir auk annarrar þjónustu. Á efri hæðum er starfsemi heilsugæslustöðvarinnar á Akureyri.
Allar frekari upplýsingar
S. 462 1744, 462 1820, fax 462 7746.
Lögmaður Jón Kr. Sólnes hrl.
Sölumenn:
Ágústa Ólafsdóttir, Björn Guðmundsson.
KY(iOI)
HIIGKKUGOTU 4
HAFÐU
SAMBAND!
Allar nánari upp-
lýsingar veita sölu-
og þjónustufulltrúar
auglýsingadeildár
Morgunblaðsins
en þeir verða á
skrifstofu Morgun-
blaðsins á Akuneyri
i Kaupvangsstræti 1
dagana 5.-7. maí nk.
cc
(/)
0c
<
o
>
U)
í tengslum við vöru- og þjónustusýninguna í íþróttahöllinni á Akureyri
dagana 15.-17. maí nk. gefiir Morgunblaðið út sérstaka sýningarskrá
sem mun fylgja sérblaðinu Daglegu lífi. Skránni verður dreift á öllu
dreifingarsvæði blaðsins frá Hvammstanga og austur á Egilsstaði og á
sýningunni. Þá verður Morgunblaðinu dreift inn á öll heimili á Akureyri
fbstudaginn 15. maí nk.
Daglegt líf verður þennan dag helgað fjölbreyttu mannlífi á Akureyri
með margvíslegum viðtölum og greinum.
Pantana- og skilafrestur auglýsinga
er til kl. 12.00 föstudaginn 8. maí.
Símanúmer á skrífstofu Morgunblaðslns á Akureyri er 461 1600, bréfasími 461 1603 ♦ Símanúmer í söludeild sérauglýsinga er 5691111, bréfaslmi 5691110