Morgunblaðið - 05.05.1998, Blaðsíða 22
22 ÞRIÐJUDAGUR 5. MAÍ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
Raufarhöfn
’ Húsavík
Vopnafjöri
Patreksfjörður,
..OSÉ& 2
V', > Blönduós
> M
Seyðisflörður
v"'S-.-,Neskaupstaður
/’ á
/o'Eskifjörður
Stykkishólmur
^^.Gmjdaiðrðug
Djúpivogur
Akranes0-'
REYKJAVÍK
GSM-dreifikerfi
Farsímafélagið Tal hf. opnar í dag
Samkeppni í far-
símaþjónustu hafín
STARFSEMI farsímafélagsins
Tals hf. hefst í dag er símakerfí fé-
lagsins verður formlega tekið í
notkun kiukkan hálfníu, en verslun
og þjónustumiðstöð íyrirtækisins í
Síðumúla 28 verður opnuð við-
skiptavinum klukkan níu. Þar mun
fólki gefast kostur á að kaupa Tal-
kort, GSM-síma og flesta fylgihluti
þeirra, að því er fram kemur í
fréttatilkynningu. Þar með er brot-
ið blað í símaþjónustu hér á landi,
sem hefur hingað til alfarið verið í
höndum ríkisins.
Tal hf. mun í fyrstu bjóða upp á
þrjár þjónustuleiðir með alls tíu
verðflokkum. I grunnþjónustustig-
inu (altal) kostar mínútan 21 krónu
að degi til en 14 krónur um kvöld
og helgar. I svokölluðum frítals-
flokki, sem ætlað er að þjónusta þá
sem nota síma fyrst og fremst um
kvöld og helgar, kostar mínútan 25
krónur í dagtaxta en 10 krónur um
kvöld og helgar. Loks býður félag-
ið upp á þrískiptan tímatalsflokk,
þar sem viðskiptavinum gefst kost-
ur á að kaupa sér ákveðinn fjölda
frímínútna á mánuði.
Verðskrá Landssímans er frá-
brugðin verðskrá Tals að því leyti
að gerður er greinarmunur á því
hvort hringt er innan eða utan
GSM-kerfisins. Það kostar 21,90 að
hringja úr GSM-síma í hefðbund-
inn síma að degi til en 14,60 um
kvöld og helgar. Sé hins vegar
hringt úr einum GSM-síma í annan
lækkar verðið í 19,90 í dagtaxta en
13,30 í næturtaxta. Þá býður
Landssíminn upp á stórnotenda-
taxta þar sem hringing í hefðbund-
inn síma kostar 17,50 á daginn og
11,70 að nóttu til en milli GSM-
síma er verðið 15,90 í dagtaxta og
15,90 á nætumar. Þessu til viðbót-
ar hefur Landssíminn nýlega tekið
upp nýjan verðflokk, þar sem fólki
þTi
C T3L Þjónusta og taxti
Verð hver mínúta
Mánaðar- Frímínútur Kvöld- og
Þjónustuleiðir gjald á mánuði Dagtími helgartími
Frí-TAL 600 0 25,00 10,00
AI-TAL 600 0 21,00 14,00
Tíma-TAL 60 1.700 60 20,50 13,50
Tíma-TAL 180 3.800 180 19,50 12,50
Tíma-TAL 420 7.500 420 18,50 11,50
Ekki er hægt að færa mínótur milli greiðslutímabila. Grunngjald, 600 kr., er innifalið í mánaðargjaldi.
Bolur>garvík
tá-”......
Grindavík Porlákshofh
Vestmannaeyjar
LANDSSÍMI ÍSLANDS HF
FYRIRLESTUR ffSJS FYRIRLE STUR
a
Stórmarkaðir í Frakklandi.
tækifæri íslenskra útflytjenda!
Á morgun, miðvikudaginn 6. maí, heldur
franskur sérfræðingur, Frangois Cazals,
fyrirlestur á vegum viðskiptaþjónustu
utanríkisráðuneytisins um smásölu-
markaði í FYakklandi. Fyrirlesturinn fer
fram á ensku í Þingsal A á Hótel Sögu
frá kl. 13:00 til 17:00.
Frangois Cazals erframkvœmdastjóri
ráðgjafafyrirtœkisins Distriforce. Hann
hefur yfirgripsmikla þekkingu og
áralanga reynslu af sölu- og markaðs-
málum í Frakklandi. Distriforce hefur
sérhœft sig ífyrirlestrum við viðskipta-
háskóla, en selur jafnframt margvíslegar
vörur til stórmarkaða í umboði lítilla og
Meðal efnis verður:
• Innkaupastöðvar og innkaupa-
ferli á franska markaðinum
• Vörumerki stórmarkaða og birgja
• Miklir möguleikar íslenskra
útflytjenda
• Hvemig geta íslensku fyrirtœkin
komist inn á þennan markað?
• Hvemig geta íslensk stjómvöld
komið til liðs við íslenska
útflytjendur?
• Nytsamlegar ábendingar, m.a.
varðandi söluferli og samninga
meðalstórra fyrirtækja.
^ Fimmtudaginn 7. apríl er fyrirtækjum, sem sækja í fyrirlesturinn,
boðið að ræða í einkaviðtali möguleika þeirra til
markaðssetningar á franska smásölumarkaðinum.
Verð á fyrirlestrinum er 7.500 kr. á þátttakanda,
en gjald fyrir einkaviðtal er 5.000 kr. Þátitökugjald greiðist fyrirfram.
Væntanlegir þátttakendur eru beðnir að tilkynna þátttöku í dag
í síma 560 9930. Vinsamlega athugið að íjöldi er takmarkaður.
1
\
U-.
w
Viðskiptaþjónusta Utanrikisráðuneytisins
Utanríkisráðuneytið.Viðskiptaskrifstofa, Rauðarárstig 25, 150 Reykjavík.
Sími: 560 99 30. Bréfsimi: 562 48 78.Tölvupóstfang: postur@utn.stjr.is
gefst kostur á að tengja tvo GSM-
síma og greiða 10,95 fyrir símtöl
milli þeirra á daginn og 7,30 á
kvöldin. Að sögn Hrefnu Ingólfs-
dóttur, blaðafulltrúa Landssímans,
mun fyrirtækið fljótlega taka upp
nýtt reikningskerfi sem gerir því
kleift að bjóða viðskiptavinum upp
á enn fleiri þjónustulínur en til
þessa hefur tíðkast.
Hvað varðar aðra þjónustu, þá
bjóða fyrirtækin bæði upp á sólar-
hringsþjónustu, bæði hafa vefsíðu
á alnetinu auk almennrar símtals-
þjónustu, s.s. símtalsflutnings,
númerabirtingar, talhólfs o.s.frv.
Vaxandi markaður
Farsímaeign landsmanna hefur
aukist gífurlega frá því farið var að
bjóða upp á slíka þjónustu hér á
landi fyrir fjórum árum. Nú þegar
eiga 45.000 Islendingar GSM-síma,
sem er með því mesta sem gerist í
heiminum, og búast má við að sú
tala eigi eftir að vaxa hratt með
þeirri samkeppni sem nú fer í
hönd.
Eins og fram hefur komið mun
Tal hf. eingöngu bjóða upp á GSM-
farsímaþjónustu og áætlar félagið
að u.þ.b. 70% landsmanna geti nýtt
sér þjónustuna í upphafí. Dreifing-
arsvæði félagsins mun í fyrstu ein-
skorðast við suðvesturhom lands-
ins; Reykjanesbæ, stór-Reykjavík-
ursvæðið, Akranes og austur á Sel-
foss.
Eitt af skilyrðum fjarskipta-
stofnunar fyrir leyfisveitingunni
var að félagið skyldi hafa náð til
80% þjóðarinnar innan fjögurra
ára frá því starfsemin hæfist. Að
sögn Gísla Blöndal, kynningar-
stjóra Tals, er stefnt að því að gera
enn betur og næsta skref verður að
koma upp þjónustubúnaði á þétt-
býlissvæðum á Norðurlandi. Gísli
segir ítarlegar prófanir sem farið
hafa fram á kerfinu undanfamar
vikur lofa góðu og menn séu bjart-
sýnir á framhaldið.
Ferðaskrifstofa
Islands dótturfyrir-
tæki Urvals-Utsýnar
FERÐASKRIFSTOFA íslands
verður íramvegis rekin sem
dótturíyrirtæki Urvals-Utsýnar.
Skrifstofumar, sem báðar em í
eigu Flugleiða, verða reknar
með óbreyttu sniði og hingað til,
en talið er að með samvinnu á
ýmsum sviðum sé unnt að ná
aukinni hagræðingu með þessari
breytingu að sögn Einars Sig-
urðssonar, framkvæmdastjóra
stefnumótunar- og stjómunar-
sviðs Flugleiða.
Einar segir innri málefni
Flugleiða og dótturfyrirtækja
sæta stöðugu endurmati, þar
sem reynt er að tryggja aukið
hagræði í rekstri. Markaðssetn-
ing ferðaskrifstofanna tveggja
verður áfram óbreytt og aðskilin
en reynt verður að lækka
rekstrarkostnað þeirra á ýmsum
þjónustusviðum, t.d. með sam-
vinnu í hópferðum hér á landi.
Breytingin hefur þegar verið
kynnt samkeppnisyfirvöldum,
sem hafa heimilað að hún fari
fram með skilyrðum sambæri-
legum þeim sem sett vora þegar
hótel í eigu Flugleiða og dóttur-
félags þeirra voru sameinuð í
eitt fyrirtæki.
Starfsemi Úrvals-Útsýnar
verður áiram í Lágmúla 4 í
Reykjavík en starfsemi Ferða-
skrifstofu íslands í Skógarhh'ð 18.