Morgunblaðið - 05.05.1998, Blaðsíða 45
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 5. MAÍ 1998 45
ATVINNUAUGLYSINGA
Samvinnusjóður íslands hf.
er lánastofnun sem starfar samkvæmt lögum nr. 123/1993 um lánastofnanir aðrar en
viðskiptabanka og sparisjóði. Félagið hefur starfsleyfi sem fjárfestingarbanki. Starfsemi
Samvinnusjóðsins hefur vaxið og dafnað síðustu ár og námu heildartekjur s.l.árs 671 mkr.
Niðurstaða efnahagsreiknings var 6.820 mkr.
í lok s.l. árs voru starfsmenn 15 talsins.
Vegna vaxandi umsvifa leitar Samvinnusjóðurinn nú að starfsfólki til eftirfarandi starfa:
L Innra eftirlit
Leitað er að viðskiptafræðingi af endurskoðunarsviði. Einhver starfsreynsla er kostur en þó
ekki skilyrði. Starfið felst í innra eftirliti og innri endurskoðun á félaginu og starfsemi þess.
Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.
2. Bókhald
Leitað er að starfsmanni með haldgóða reynslu af bókhaldsstörfum. Starfið felst í merkingu
fylgiskjala og innslætti gagna, afstemmingu og aðstoð við uppgjör.
3. Gjaldkeri
Leitað er að starfsmanni með haldgóða reynslu sem gjaldkeri í banka. Starfið felur í sér
almenna gjaldkeravinnu og aðstoð við daglega afgreiðslu viðskiptamanna.
Almennar hæfniskröfur í störfin eru að umsækjendur séu metnaðarfullir, þjónustulundaðir
og góðir í mannlegum samskiptum.
Samvinnusjóður íslands er reyklaus vinnustaður.
Nánari upplýsingar um ofangreind störf fást á skrifstofu félagsins, Sigtúni 42, 105 Reykjavík.
Skriflegar umsóknir þurfa að berast Samvinnusjóði íslands hf. fyrir 11. maí n.k.
Samvinnusjóður íslands lif.
Fjárfestingarbanki
Sigtúni 42 105 Reykjavík Sími:533 3100 Fax:533 3110
Q Leikskólar Seltjarnarness
Leikskólakennarar
Óskum eftir að ráða aðstoðarleikskóla-
stjóra og leikskólakennara við leik-
skólann v/Vallarbraut frá 1. júní nk.
Leikskólinn við Vallarbraut verður opnaður
í vor og er lítil eining sérbúin fyriryngstu leik-
skólabörnin.
Einnig vantar okkur fleiri leikskólakenn-
ara til starfa vid leikskólana Mánabrekku
og Sólbrekku.
Mánabrekka er nýr 4ra deilda glæsilegur leik-
skóli. í uppeldisstarfi skólans er lögð áhersla
á umhverfis- og náttúruvernd.
Sólbrekka er 5 deilda leikskóli. Þar verða gerð-
ar endurbætur á húsnæði í sumar og unnið
er að breytingar- og þróunarverkefni sem felst
í námskrárgerð fyrir aldursskiptar deildir. Þema
skólans er leikurinn. Báðir skólarnir vinna að
þróunarverkefni um tölvukennslu fyrir elstu
börnin og tónlistarverkefni í samvinnu við
Tónlistarskóla Seltjarnarness.
Umsóknarfrestur er til 12. maí.
Nánari upplýsingar gefur leikskólafulltrúi á
Skólaskrifstofu Seltjarnarness í síma 561 2100
og Dagrún Ársælsdóttir leikskólastjóri Mána-
brekku í síma 561 1375 og Soffía Guðmundsd-
óttir leikskólastjóri Sólbrekku í síma 561 1961.
Leikskólar Seltjarnarness eru reyklausir
vinnustaðir.
Leikskólafulltrúi Seltjarnarness.
Lausar stöður hjá
Skaftárhreppi
Við Kirkjubæjarskóla, næsta skólaár:
Aðstoðarskólastjóri (til eins árs)
Kennarar (heimilisfr., handmennt, alm.
kennsla, danska)
Bókasafnsfræðingur (hlutastarf)
Við Héraðsbókasafn:
Bókasafnsfræðingur eða kennari m/skóla-
safns menntun (1 staða)
Kirkjubæjarskóli er á Kirkjubæjarklaustri sem er þéttbýliskjarni í 270
km fjarlægð frá Reykjavík. Þar er öll almenn þjónusta til staðar, sam-
pöngur eru góðar og staðurinn þekktur fyrir fegurð og veðursæld.
I skólann er ágæt vinnuaðstaða, bæði fyrir nemendur og starfsfólk.
Bókasafnið er samsteypusafn; Héraðs- og skólabókasafn, í góðu
sérhönnuðu húsnæði og með mikinn bókakost.
Við leitum að jákvæðum, áreiðanlegum og
hugmyndaríkum einstaklingum sem hafa
áhuga á að taka þátt í metnaðarfullum störfum.
Skólinn, ásamt sveitarfélaginu, vinnur að víð-
tækri stefnumótun í fræðslumálum til næstu
ára, jafnframt mun skólinn í samvinnu við for-
eldraráð standa fyrir skólafærninámskeiðum
á næsta skólári. Ýmis þróunarverkefni og sam-
starf við aðila utan skólans hafa verið í gangi
sem „krydda" venjubundið skólastarf.
Boðinn er flutningsstyrkur og lág húsaleiga.
Umsóknarfresturertil 15. maí nk. og upplýs-
ingar veita undirrituð.
Hanna Hjartardóttir, skólastjóri,
í síma 487 4633/487 4635
Guðmundur Þorsteinsson, aðst. skólastjóri,
í síma 487 4633/487 4826
Bjarni J. Matthíasson, sveitarstjóri,
í síma 487 4840
Sigurjón Einarsson, form. skólanefndar,
í síma 487 4618
„Au pair" — Osló
íslensk „au pair" óskast til að gæta tveggja
barna, 3ja og 4ra ára og vinna heimilisstörf
á heimili í miðborg Óslóar og á sumrin í sum-
arhúsi út við ströndina. Þarf að geta byrjað
1. ágúst nk. og vera í eitt ár. Mikilvægt er að
viðkomandi geti talað norsku eða dönsku.
Vinsamlega sendið umsóknirtil afgreiðslu Mbl.
merktar: „Osló — au pair — 8/98".