Morgunblaðið - 05.05.1998, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
PRIÐJUDAGUR 5. MAÍ 1998 11
SIGURÐUR Stefánsson, yfirmaður flugstöðva Flugleiða vestan hafs,
var nýverið kjörinn niaður ársins meðal stjórnenda á vellinum.
Maður ársins meðal
stjórnenda á
Kennedy-flug’velli
STÖÐVARSTJÓRI Flugleiða vest-
an hafs, Sigurður Stefánsson í New
York, var í síðustu viku valinn mað-
ur ársins meðal þeirra sem starfa
við stjórnun á John F. Kennedy
flugvellinum við borgina, sem er
einn sá stærsti í heimi. Samtökin
velja mann og konu ársins í árleg-
um hádegisverði sem kenndur er
við Bishop Wright en hann var fað-
ir Wright bræðra, frumherja flugs-
ins.
Viðurkenningin er veitt stjórn-
endum sem starfa hjá flugvallayfír-
völdum, flugfélögum, kirkjunum og
viðskipta- og þjónustufyrirtækjum
á vellinum. Konan sem hlaut titilinn
er Toni Carbonaro, aðstoðarfram-
kvæmdastjóri flugvallarins.
„Þetta er ánægjuleg viðurkenn-
ing og ekki síst fyrir það að þessi
hópur stjórnenda á vellinum er um
átta þúsund manns. Það er líka
gaman að þessu fyrir Flugleiðir,"
sagði Sigurður í samtali við Morg-
unblaðið í gær og segir þetta beina
sjónum manna að félaginu ekki síð-
ur. Viðurkenningin var veitt í há-
degisverði í síðustu viku sem 260
manns sátu. Sigurður er yfirmaður
allra stöðva Flugleiða í Bandaríkj-
unum og Halifax í Kanada.
Alls starfa á JFK flugvellinum
um 40 þúsund manns. Viðurkenn-
ingin er veitt fyrir framlag manna á
starfssviði sínu og starfsreynslu.
Auk langrar starfsreynslu hefur
Sigurður setið um árabil í stjórn
samtaka erlendra flugfélaga á
Kennedy-flugvelli, Intemational
Airlines Terminal Association. Var
hann formaður samtakanna árin
1994 og 1995 og er viðurkenningin
ekki síst veitt fyrir framlag hans í
þágu þeirra samtaka. „Þetta eru
samtök 25-30 erlendra flugfélaga
og við í stjórninni gengum hart
fram í því við flugvallarstjórnina
fyrir nokkrum árum að ná niður
rekstrarkostnaði við flugstöðvar-
bygginguna hérna og tókum við
rekstrinum meira og minna sem
kostaði þá um 70 milljónir dollara á
ári. Þannig spöruðum við flugfélög-
unum milljónir dollara, trúlega
kringum 24 milljónir,“ sagði Sig-
urður. Hann segir Hollendinga síð-
ar hafa tekið við rekstri byggingar-
innar og að þeir hafi nýlega ákveðið
að rífa hana og byggja nýja.
Áttu að vera tvö ár
I lok ársins verða 30 ár frá því
Sigurður hóf störf á Kennedy-flug-
velli. „Þetta eru orðin nokkuð mörg
ár, ekki síst af því það var talað um
það í upphafi að þau yrðu kannski
tvö en áður en ég kom hingað hafði
ég starfað hjá félaginu heima í
fimm ár,“ segir Sigurður og telur
líklegast að hann haldi áfram þar til
eftirlaunaaldri er náC. „Eg er 54
ára og hér verða menn að starfa að
minnsta kosti til 62 ára aldurs til að
ná sæmilegum eftirlaunum," segir
Sigurður og telur ólíklegt að hann
sé á leiðinni heim - ekki úr þessu.
„Hér eru börnin og barnabörnin en
ég kem heim öðiu hverju vegna
funda og get stundum stoppað
nokkra daga til að heimsækja ætt-
ingja.“
Sigurður segir ýmislegt
framundan í starfi Flugleiða á
Kennedy-flugvelli, m.a. að nú
standi yfir leit að nýju húsnæði og
sé verið að skoða möguleika á leigu
í annarri flugstöðvarbyggingu en
félagið hefur nú aðsetur í við völl-
inn.
Húsaleiga hefur
hækkað um 14%
VSÍ og ASÍ hafa ritað félagsmála-
ráðherra sameiginlegt bréf til þess
að beita sér fyrir afnámi verðtrygg-
ingar á húsaleigu. Samtökin benda
á að á síðastliðnu einu og hálfu ári,
hafi verðbótahækkun húsaleigu
numið tæpum 14% á sama tíma og
vísitala neysluverðs án húsnæðis
hefur jiækkað um 2%.
VSÍ og ASÍ segja að stjórnvöld
hvetji ótvírætt til verðtryggingar
húsaleigu með þeim árangri að
mikill meirihluti húsaleigusamn-
inga sé verðtryggður. Hvatningin
birtist m.a. í því að í eyðublöðum
fyrir húsaleigusamninga, sem Hús-
næðisstofnun er með lögum gert
skylt að útbúa, eru leigusala og
leigutaka boðnir fjórir kostir varð-
andi breytingar á leigufjárhæðinni.
„Einn þeiiTa, og sá sem oftast
mun valinn, er að leigan skuli breyt-
ast samkvæmt tilkynningum Hag-
stofu íslands um verðbótahækkun
húsaleigu. Með þessu eru stjórnvöld
ótvírætt að hvetja til verðtrygging-
ar húsaleigu með þeim árangri að
mikill meii-ihluti húsaleigusamninga
er verðtryggður samkvæmt um-
ræddri vísitölu,“ segir í bréfi ASI og
VSI. Þar segir ennfremur að þessa
víðtæku vísitölubindingu megi rekja
til verðbólguþjóðfélags sem heyii til
liðinni tíð.
„Við þetta ástand verður ekki un-
að og vilja samtökin beina því til
ráðhen-a að hann beiti sér fyrir því
að lög nr. 62/1984 |um húsaleigu
sem fylgir breytingum vísitölu hús-
næðiskostnaðar] verði felld niður,“
segir í bréfinu sem Þórarinn V.
Þórarinsson, framkvæmdastjóri
VSI og Ari Skúlason framkvæmda-
stjóri ASÍ undirrita.
*
FIB telur veggjald-
ið um 40% of hátt
í FORSENDUM útreikninga sem
unnir voru fyrir Spöl ehf. um akst-
urstengdan kostnað er reiknað
með bensínkostnaði að fullu, hluta
af viðhalds- og þriíkostnaði, hjól-
barðakostnaði að fullu og fjórðungi
af afskriftum bílsins. Félag ís-
lenskra bifreiðaeigenda telur að
hinn almenni bíleigandi geri ekki
ráð fyrir öllum þessum kostnaði
þegar hann vegur það og metur
hvort hann noti Hvalfjarðargöngin
eða aki fyrir Hvalfjörðinn. Hann
muni fyrst og fremst íhuga hve
mikill bensínsparnaðurinn verði af
því að aka göngin í stað þess að
fara fyrir fjörðinn. FIB telur að
fullt veggjald fyrir fólksbíla sé um
40% of dýrt miðað við þær forsend-
ur sem félagið gefur sér.
Utreikningar sem unnir voru
fyrir Spöl miðast við þrjá verð-
flokka af fólksbílum og einn jeppa-
flokk. Gert er ráð fyrir mismun-
andi þyngd ökutækja, mismunandi
eyðslu en að akstur sé 15 þúsund
km á ári og eignarár 7. I kostnað-
argreiningu vegna aksturstengds
kostnaðar er miðað við meðaltals-
kostnað sjö ára.
Aksturstengdur kostnaður er sá
kostnaður sem eykst við akstur
ökutækis ákveðna vegalengd eða í
ákveðinn tíma. Aksturstengdur
kostnaður er í útreikningunum
miðaður við hvern ekinn kíló-
metra. Þeir kostnaðarliðir sem
falla undir aksturstengdan kostn-
að eru bensín og hjólbarðar að
fullu og er notkun þessa kostnað-
arliðar aðeins bundinn við akstur
ökutækisins.
Kostnaður vegna viðhalds, við-
gerða og þrifa er 85%. I forsendum
útreikninga segir að þrátt fyrir að
ökutæki standi nánast óhreyft í sjö
ár þurfi að endurnýja ákveðna
hluta þess eftir þann tíma, þar sem
sumir hlutar bifreiða hafa ákveðinn
endingartíma, eins og t.d. yfir-
byggingin, og aðrir þurfi raunveru-
lega að vera í notkun af og til til að
þorna ekki upp. Að teknu tilliti til
þess þá sé gert ráð fyrir því að eig-
endur hafi um 15% viðhaldskostn-
að af ökutæki eftir sjö ár þrátt fyr-
ir engan akstur.
Afskriftir stærsti
kostnaðarliðurinn
Stærsti einstaki kostnaðarliður-
inn í útreikningunum eru afskriftir
sem nema 8,20 kr. á hvern ekinn
kílómetra miðað við fólksbfl sem
kostar 1.150.000 kr. og miðað við
sjö eignarár.
í greinargerð með útreikningun-
um segir að álitamál sé hversu
stóran hluta afskrifta eða verð-
mætarýrnunar eigi að taka með
sem aksturstengdan kostnað.
Hæfilegt þyki að miða við að fjórð-
ungur afskrifta sé kominn til vegna
notkunar ökutækisins en þrír
fjórðu afskrifist þrátt fyrir litla
sem enga notkun. Hér ráði mark-
aðurinn því töluvert hvað fáist fyrir
ónotað eða lítið notað ökutæki.
Runólfur Olafsson, fram-
kvæmdastjóri FIB, segir að sé
miðað við algengan fólksbfl, sem
flestar íslenskar fjölskyldur aka,
og miðað við 42 km spamað í vega-
lengd sparist um 600 kr. að aka
göngin í stað þess að aka fyrir
fjörðinn. FIB tók tillit í sínum út-
reikningum til bensínkostnaðar,
viðhalds og almenns slits, s.s. hjól-
barða og olíu og verðrýrnunar í
endursölu ef göngin era ekki not-
uð.
„Flestir munu hins vegar ein-
ungis horfa í bensínkostnaðinn. Við
höfum talið að 700 kr. veggjald
væri ekki óeðileg verðlagning fyrir
fólksbíla," sagði Runólfur.
Tímasparnaður hugsanlega
minni vegna tafa í hliði
Hann bendir á að tímasparnaður
getur orðið minni en margir telja
vegna ákveðinna tafa sem hætta er
á að myndist við hlið og auk þess sé
lægri hámarkshraði í göngunum en
ef ekið er fyrir Hvalfjörðinn.
Sparnaður í tíma geti legið í 20-30
mínútum en hugsanlega minna.
Mikill umferðarþungi er um Hval-
fjörðinn á sumrin og stóran hluta
má rekja til ferðamanna. Hætt sé
við að stór hluti sniðgangi göngin
því menn muni vega það og meta
hvað það kosti þá að fara um göng-
in og þeir sem era í sumarfríi meti
tíma sinn á annan hátt en þeir sem
eru í atvinnutengdri starfsemi.
„Við teljum að það geti verið
markaðslega neikvætt ef stór hluti
þein-a sem fer um göngin á ekki
kost á því að nýta sér afsláttarkjör
sökum þess að þeir munu ekki
þurfa að fara það oft um göngin.
Þeir munu greiða umtalsvert
hæraa gjald en það sem er beinn
kostnaður við að fara um göngin,“
segir Runólfur.
Honda Civic 1.5 LSi VTEC
1.550.000,-
Umboðsaðilar:
Akureyri: Höldur, s: 461 3014 • Akranes: Bílver, s: 431 1985 • ísafjörður: Bítasala Jóels, s: 456 4712
Keflavík: B.G. Bílakringlan, s: 421 1200 • Egilsstaðir: Bíla og Búvélasalan, s: 471 2011
HONDA
Traustur bíll fyrir ungt fólk á öllum aldri
Verð á götuna:1.455.000.-
Sjálfskipting kostar 1 00.000,-
HONDA
Sími: 520 1100
115 hestöfl
Fjarstýrðar samlæsingar
4 hátalarar
Hæðarstillanlegt ökumannssæti
Sjálfskipting 100.000,-
1400cc 16 ventla vél með tölvustýrðri innsprautunl
Loftpúðar fyrir ökumann og farþega4
Rafdrifnar rúður og speglar4
ABS bremsukerfi4
Samlæsingar 4
14" dekk4
Honda teppasett4
Ryðvörn og skráning4
Útvarp og kassettutæki 4