Morgunblaðið - 05.05.1998, Page 10
10 ÞRIÐJUDAGUR 5. MAÍ 1998
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Yfir 5.588 fóstur-
eyðingar á sjö árum
Rannsókn á orsökum þess að Æsa IS fórst
Niðurstaðna
að vænta um
AÐ MINNSTA kosti 5.588 fóstrum
hefur verið eytt hér á landi á und-
anförnum sjö árum eða frá árinu
1991 til 1997. Þetta kemur fram í
skriflegu svari Ingibjargar Pálma-
dóttur heilbrigðis- og trygginga-
málaráðhen-a við fyrirspum ísólfs
Gylfa Pálmasonar, þingmanns
Framsóknarflokks. Fæstar vora
fóstureyðingarnar árið 1991 á
þessu tímabili en þá voru þær sam-
tals 658. Frá þeim tíma hefur þeim
farið fjölgandi og voru flestar árið
1997 eða samtals 920. Þær tölur
ásamt tölum fyrir árið 1996, þar
sem fóstureyðingar vora alls 858,
eru þó ekki endanlegar þar sem úr-
vinnslu upplýsinga er ekki að fullu
lokið.
í svarinu kemur einnig fram að
af þeim 3.810 fóstureyðingum sem
gerðar voru á árunum 1991 til 1995
var 3.461 á grundvelli félagslegra
aðstæðna. AUs 97 fóstm-eyðingai-
Annir á
Alþingi
SÖKUM mikilla anna á Alþingi
hefur verið horfið frá því að
fresta þingfundi hinn 8. maí nk.
Þinglokum
Alþingis frestað
Yfir 40
stjórnar-
frumvörp
bíða af-
greiðslu
FORSÆTISNEFND Aiþingis hef-
ur komist að þeirri niðurstöðu að
ekkert geti orðið af þinglokum Al-
þingis næsta föstudag eða 8. maí nk.
eins og upphafleg starfsáætlun Al-
þingis gerir ráð íyrir. Að sögn Guð-
mundar Árna Stefánssonar 4. vara-
forseta Alþingis er ekki annað hægt
en að fresta þinglokum í ljósi þeirra
fjölmörgu frumvarpa sem bíða um-
fjöllunar á þingfundi. Endanleg
ákvörðun um það hvenær Ijúka eigi
þingi í vor liggur þó ekki íyrir, en að
sögn Guðna Agústssonar 3. varafor-
seta Alþingis er vonast til þess að
þingflokkar geti náð samkomulagi
um það innan skamms.
Þingmenn stjómarandstöðu gagn-
rýndu í gær að ekki skyldi vera búið
að ná samkomulagi milli þingflokka
um þinglok og störf þingsins fram að
þeim. Bentu þeir m.a. á að 43 stjóm-
arfrumvörp hefðu nú verið afgi’eidd
úr þingnefndum Alþingis og biðu
umfjöllunar og afgreiðslu á þing-
fundi. ,Aðeins eitt af þeim, frumvarp
um sveitarstjómarlög, hefur kostað
umræðu í þrjá daga,“ sagði Sighvat-
ur Björgvinsson, þingflokld jafnað-
armanna, en annarri umræðu um
það frumvarp er enn ekki lokið. Ög-
mundur Jónasson, þingmaður Al-
þýðubandalags og óháðra, gat þess
aukinheldur að önnur stjórnarfram-
vörp væra einnig umdeild, til dæmis
húsnæðisfrumvarpið og fóru stjóm-
arandstæðingar fram á að vita hvaða
frumvörp stjómarliðar legðu áherslu
á að afgreiða sem lög á þessu þingi.
Davíð Oddsson forsætisráðherra
varð íyrir svöram og sagði m.a. að
menn þekktu þau umdeildu frum-
vörp sem hefðu verið rædd á Alþingi
og að það væri vilji ríkisstjórnarinn-
ar og þingmeirihlutans að þau mál
yrðu afgreidd á vorþingi.
Fyrirspurn um yfírlit yfír skýrslur og greinargerðir
Engar samræmdar
reglur í ráðuneytunum
EKKI eru til samræmdar reglur
um það í ráðuneytunum hvernig
upplýsingum um skýrslur og grein-
argerðir sem unnar eru á þeirra
vegum er haldið til haga. Hins veg-
ar hafa mörg ráðuneytanna komið
sér upp sérstökum skrám í þeim til-
gangi að veita greinargóða yfirsýn
yfir efni sem til er í ráðuneytunum
og þau hafa gefið út. Þetta kemur
fram í svari Davíðs Oddssonar for-
sætisráðherra við fyrirspum Mar-
grétar Frímannsdóttur, þingmanns
Alþýðubandalags, um yfirlit yfir
skýrslur og greinargerðir.
Metnaðarmál að veita greinar-
góðar upplýsingar
Fyrirspurn Margrétar var í
þremur liðum. Spurt var hvort
skráð væri reglulegt yfirlit yfir
skýrslur og greinargerðir sem unn-
ar eru á vegum ráðuneyta og stofn-
ana og ef svo væri, hvort það væri
aðgengilegt almenningi. Síðasti lið-
ur íyrirspurnai-innar beindist að því
að ef yfirlitið væri ekki til, myndi
ráðherrann þá beita sér fyrir því að
slíkt yfirlit yfir skýrslur og greinar-
gerðir sem þegar hafa verið gefnar
út verði gert, það skráð í framtíð-
inni og gert aðgengilegt fyrir al-
menning.
í svari forsætisráðherra kemur
fram að engin lagaákvæði skyldi
ráðuneytin til að halda sérstakar
skrár yfir ofangreind gögn en sam-
kvæmt upplýsingalögum, nr. 50 frá
1996, sé stjórnvöldum skylt að skrá
kerfisbundið mál sem koma til með-
ferðar hjá þeim og að varðveita
málsgögn þannig að þau séu að-
gengileg. I þessu sambandi sé nýtt
málaskrárkerfi, sem ráðuneytin
hafa nú öll tekið í notkun, afar mik-
ilvægt. „í vöxt færist að leitað sé til
ráðuneytanna og beðið um skýrslur,
greinargerðir og önnur gögn sem til
era og á það að vera metnaðarmál
ráðuneytanna að veita ávallt svo
greinargóðar upplýsingar um fyrir-
liggjandi gögn sem kostur er. Til að
verða við slíkum óskum, og ekki síð-
ur til að gera stjórnsýslu hins opin-
bera betri og skilvirkari, er mikil-
vægt að hægt sé að afla upplýsinga
um skýrslur og greinargerðir auð-
veldlega og án tafar,“ segir í svari
ráðherra.
Almenningi gert kleift að afla
sér upplýsinga milliliðalaust
Þá er bent á að ráðuneytin hafi á
undanfömum áram unnið að því að
koma upplýsingum um efni í þeirra
vörslu á framfæri ó Netinu og nú sé
unnið ötullega að því að setja inn á
vefsíður ráðuneytanna enn meiri og
greinarbetri upplýsingar um starf-
semi þeirra. Þá sé jafnframt stefnt
að því að gera almenningi kleift að
afla sér milliliðalaust upplýsinga um
hvaða efni, skýrslur og greinargerð-
ir þau hafi í vörslu sinni. Vitnað er í
stefnumótun ríkisstjórnarinnar í
málefnum upplýsingasamfélagsins,
þar sem m.a. segir í markmiðslýs-
ingu „að stjórnvöld eigi að vinna að
því með hjálp upplýsingatækninnar
að veita aðgang að opinberum upp-
lýsingum og þjónustu, m.a. með það
að markmiði að jafna stöðu einstak-
linga óháð efnahag og búsetu".
Að síðustu segir í svari ráðherra
að enn hafi ekki verið tekin ákvörð-
un um að Stjórnarráðið í heild og
þar með einstök ráðuneyti haldi
sérstakar skrár yfir skýrslur og
greinargerðir sem unnar eru á
þeirra vegum. í upplýsingalögum sé
forsætisráðherra, í 23. grein, veitt
heimild til að gefa út reglugerð, að
fengnu áliti þjóðaskjalavarðar, þar
sem mælt sé fyrir um hvernig
skjalastjóm skuli hagað í stjórn-
sýslu ríkisins, þar með talið hvernig
tölvuhugbúnað skuli nota. Þessi
reglugerðarheimild hefur þó enn
ekki verið nýtt.
Morgunblaðið/Kristinn
ALÞINGI
vora gerðar á grandvelli félags-
legra og læknisfræðilegra ástæðna
á þessu sama tímabili.
Sextán stúlkur yngri en 15 ára
Þá kemur fram í svarinu að alls
níu umsóknum um fóstureyðingu
hafi verið hafnað á áranum 1993 til
1997. Astæður synjunar eru í flest-
um tilvikum lengd meðgöngu eða
að tilgreindar félagslegar ástæður
eru ekki taldar réttlæta fóstureyð-
ingu.
Isólfur Gylfi spyr einnig að því
hve margar konur hafi gengist
undir fleiri en eina fóstureyðingu. I
svarinu kemur fram að af þeim
konum sem hafi látið eyða fóstri á
árunum 1991 til 1995 hafi 765 farið
einu sinni áður í fóstureyðingu. 142
konur höfðu farið tvisvar áður í
fóstureyðingu og 37 höfðu þrisvar
áður látið eyða fóstri.
Þá kemur fram í svarinu að að
minnsta kosti sextán stúlkur yngri
en 15 ára hafi farið í fóstureyðingu
á tímabilinu frá 1991 til 1996. Þær
konur sem fóra í fóstureyðingu á
þessu sama tímabili voru hins veg-
ar flestar í aldurshópnum 20 til 24
ára eða um 1.324, en næstflestar
vora í aldurshópnum 15 til 19 ára
eða um 957. Og að minnsta kosti
tuttugu konur 45 ára og eldri létu
eyða fóstri á þessu sama tímabili.
miðjan júní
HALLDÓR Blöndal samgönguráð-
herra segh’ að niðurstaðna frá
Rannsóknarnefnd sjóslysa um orsök
þess að kúfískskipið Æsa ÍS fórst í
Arnarfirði fyrir bráðum tveimur ái--
um, megi vænta um miðjan næsta
mánuð. Þetta kom fram í svari ráð-
herra við fyrirspurn Kristins H.
Gunnarssonar, þingmanns Alþýðu-
bandalags og óháðra, á Alþingi í
gær.
I máli ráðherra kom einnig fram
að kostnaður Siglingastofnunar ís-
lands vegna köfunar niður að flaki
Æsu sl. sumar hefði numið um 13,7
milljónum ki-óna, en Siglingastofn-
un samdi við breskt köfunarfyrir-
tæki um köfunina að flakinu, í sam-
ræmi við tilboð fyrii-tækisins frá 11.
apríl 1997. Af þessum 13,7 milljón-
um voru 12,4 miljónir kr. beinn út-
lagður kostnaður, að sögn ráðhema,
en fjárveiting fékkst á fjáraukalög-
um 1997 til að standa straum af
honum. „Óbeinn kostnaður Sigl-
ingastofnunar nam 1,3 milljónum
kr. m.a. vegna launa þein-a starfs-
manna sem að verkinu unnu. Þann
kostnað bar stofnunin sjálf,“ sagði
ráðherra.
í umræddum tölum er hins vegar
ekki kostnaður vegna varðskipsins
Óðins, lögregluyfirvalda eða svo-
kallaðrar ID-nefndar.
Ekki barst tilboð um
köfun frá íslenskum aðilum
Um það hvort íslenskir aðilar
hefðu boðist til þess að kafa niður
að flaki Æsu sagði ráðherra að
Siglingastofnun hefði ekki borist
tilboð frá íslenskum aðilum um að
kafa niður að kúfiskskipinu. Sam-
gönguráðuneytinu hefði hins vegar
borist bréf frá fyrirtækinu Djúp-
mynd hinn 26. febrúar 1997 þar
sem sótt var um styrk til að ná Æsu
Is upp af hafsbotni og koma henni
til Isafjarðar til nánari rannsóknar.
Kristinn spurði ráðherra einnig
að því hvers vegna ekki hefði farið
fram útboð á því verki að kafa niður
að Æsu. Að sögn ráðherra var
ástæðan m.a. sú að það hefði verið
talið mjög brýnt að kafa niður að
flakinu svo fljótt sem auðið væri og
það hefði breska kafarafyrirtækið
getað. „Þeir vora lausir með búnað
og menn, en besti tíminn til að
vinna verk sem þetta er í maí eða
júní meðan birta er næg og þör-
ungagróður ekki farinn að byrgja
sýn,“ sagði ráðherra m.a.
Alþingi
Stutt
Fjalli um
vandamál
sem tengjast
ártalinu 2000
DAVÍÐ Oddsson forsætisráð-
herra skýrði frá því á Alþingi
í gær að ákveðið hefði verið
að skipa nýja nefnd sem fjalla
á um vandamál sem tengjast
ártalinu 2000 í upplýsinga-
kerfum og tækjabúnaði. Kom
þetta fram í svari ráðherra
við fyrirspurn Hjörleifs Gutt-
ormssonar, þingmanns Al-
þýðubandalags og óháðra.
Að sögn ráðherra á nefnd-
in að vera viðeigandi aðiluni,
jafnt einkafyrirtækjum sem
ríkisfyrirtækjum, til ráðu-
neytis um þau vandamál sem
tengjast ártalinu 2000. Sagði
ráðherra að óskað hefði verið
eftir tilnefningum í nefndina
frá ýmsum aðilum, eins og til
dæmis Ríkiskaupum, Seðla-
banka Islands og Vinnuveit-
endasambandi Islands, og er
búist við að fijótlega verði
gengið frá skipun nefndar-
innar.
Alþingi
Dagskrá
ÞINGFUNDUR Alþingis
hefst kl. 10.30 í dag. Eftirfar-
andi mál verða á dagskrá:
1. Sveitarstjórnarlög. Frh.
2. umr.
2. Þjóðlendur. 2. umr.
3. Eignarhald og nýting á
auðlindum í jörðu. 2. umr.