Morgunblaðið - 05.05.1998, Síða 14
14 ÞRIÐJUDAGUR 5. MAÍ 1998
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ
Morgunblaðið/Kristján
NÓTA- og togskipið Gardar EA 310 við bryggju í Bergen í Noregi. Þetta mun vera næst lengsta skipið í íslenska fiskiskipaflotanum.
Nóta- og togskipið Gardar EA
er engin smásmíði
Næstlengsta
fiskiskip ís-
lenska flotans
NÓTA- og togskipið
Gardar EA 310, sem
útgerðarfélagið
Kistufell ehf. keypti
frá Noregi, hélt til
kolmunnaveiða í fær-
eysku lögsögunni sl.
fimmtudagskvöld.
Eins og fram hefur
komið er Kistufell í
eigu Samherja hf. á
Akureyri og tók Arn-
grímur Brynjólfsson
við skipstjórn
Gardars við eigenda-
skiptin en hann hefur
verið skipstjóri á
skipum Samherja til
fjölda ára.
Fulltrúar frá Sam-
herja fóru til Noregs sl. fimmtu-
dag, eftir að gengið hafði verið frá
samningum um kaupin. Þorsteinn
Már Baldvinsson, forstjóri Sam-
herja, var í Noregi og tók á móti
hópnum við komuna. Með í för
voru einnig formaður Sjómannafé-
lags Eyjafjarðar og blaðamaður
Morgunblaðsins. Þorsteinn Már
sýndi hópnum hið nýja og glæsi-
lega skip, sem er engin smásmíði,
76 meti-ar á lengd og 12 metrar á
breidd. Samkvæmt upplýsingum
Morgunblaðsins er Gardar næst-
lengsta skipið í íslenska fiskiskipa-
flotanum og aðeins frystitogarinn
Venus HF lengri.
Veiðarnar gengið vel
Ekki stóð annað til en að skipið
héldi úr höfn strax á fimmtudags-
kvöld og eftir að lokið var við að
mála einkennisstafína EA 310 á
skipið og Þorsteinn Már hafði rætt
við hina norsku áhöfn þess, hélt
Gardar frá bryggju áleiðis í fær-
eysku lögsöguna. Að sögn Þor-
steins Vilhelmssonar, fram-
kvæmdastjóra útgerðar Samherja,
hafa veiðarnar gengið vel undir
stjórn Amgríms.
í skipinu er fullkominn vinnslu-
búnaður fyrir upp-
sjávarfisk með 6 flök-
unarvélum og frysti-
getu sem nemur 150
tonnum á sólarhring.
Þá er í skipinu full-
kominn sjókælibúnað-
ur og er þetta eina
skip sinnar tegundar
hérlendis, sem búið er
fullkomnum vinnslu-
búnaði fyrir uppsjáv-
arfisk. Á næstunni
verða íslenskir sjó-
menn ráðnir á skipið
og verður óskað eftir
viðræðum við stéttar-
félög þeirra hér á
landi, þar sem sérstök
ákvæði fyrir mann-
frek nótaveiði- og vinnsluskip af
þessari stærð er ekki að finna í ís-
lenskum kjarasamningum.
Gardar hefur stundað veiðar á
kolmunna, síld, lonu og makríl og
mun gera svo áfram. Einnig er
fyrirhugað að nýta skipið hluta úr
árinu til vinnslu á afla sem keypt-
ur yrði af skipum við veiðar utan
lögsögu Islands.
Ævintýrið hófst
fyrý' 15 árum
Hinn 1. maí sl. voru 15 ár frá því
að Akureyrin EA, frystitogari
Samherja, kom til Akureyrar og
ævintýi'i þeirra Samherjafrænda,
Þorsteins Más Baldvinssonar og
bræðranna Kristjáns og Þorsteins
Vilhelmssona, hófst fyrir alvöru.
Frá þeim tíma hefur mikið vatn
runnið til sjávar og fyrirtækið orð-
ið eitt umsvifamesta sjávarútvegs-
fyrirtæki landsins í dag. Samherji
hefur gengið í gegnum miklar
breytingar á skömmum tíma og er
fyrirtækið fór á hlutabréfamarkað
á síðasta ári margfaldaðist fjöldi
hluthafa. Samherji tekur nú virk-
an þátt í flestum greinum sjávar-
útvegsins og stundar jöfnum hönd-
um landvinnslu og útgerð.
ARNGRÍMUR Brynj-
ólfsson, skipstjóri á
Gardari EA 310.
ÞORSTEINN Már Baldvinsson, forstjóri Samhetja, ræðir um
vinnslubúnað skipsins við þá Konráð Alfreðsson, formann Sjó-
mannafélags Eyjafjarðar, t.v., og Finnboga Alfreðsson, fram-
kvæmdastjóra landvinnslu og útgerðar Samheija í Grindavík.
ÞORSTEINN Már Baldvinsson, t.v., Þorsteinn Villielmsson og Arn-
grímur Brynjólfsson, skipstjóri á Gardari, fara yfir stöðuna í brúnni
áður en lagt er úr höfn frá Bergen í Noregi sl. fimmtudagskvöld.
STJÓRNARMENN Samherja, Kári Arnór Kárason, t.v., og Kristján
Jóhannsson skoða vinnslubúnaðinn á millidekki Gardars. Þeir fé-
lagar voru að vonum ánægðir með hið nýja skip.
Úthlutað úr
Menningar-
sjóði Svarf-
dæla
ÚTHLUTAÐ hefur verið úr Menn-
ingarsjóði Svarfdæla en alls hafði
sjóðurinn til ráðstöfunar rúmar
tvær milljónir króna.
Félagið Hákarla-Jörundur fékk
400 þúsund krónur til endurbygg-
ingar Gamla Syðstabæjarhússins í
Hrísey og sóknarnefnd Vallakirkju
sömu upphæð vegna endurbygg-
ingar kirkjunnar.
Foreldrafélög leik- og grunn-
skóla í Svarfaðardal, á Dalvík og
Árskógsströnd fengu 150 þúsund
krónur til eflingar barnamenning-
ar, sömu upphæð fékk Leikfélag
Dalvíkur, Kirkjukórar Hríseyjar-
og Stærri Árskógskirkju til sam-
eiginlegrar söngferðar, Þórarinn
Hjartarson og Ingibjörg Hjartar-
dóttir vegna ritunar sögu Hjartar
Þórarinssonar og sýning á mál-
verkum Eiríks Smith. Karlakór
Dalvíkur og Skátafélagið Land-
vættir vegna varðveislu skátaminja
fengu 100 þúsund krónur.
Einar Emilsson fékk 100 þúsund
krónur vegna myndlistar, Rósa
Kristín Baldursdóttir til söngnáms,
Jón Þórarinsson til söfnunar og
samantektar á sögu Þinghússins
Grund og Sigurvin Jónsson til út-
gáfustarfsemi.
----------------
Bókasafn Háskólans
Island og hafíð
ÍSLAND og hafið er heiti á sýn-
ingu sem sett hefur verið upp á
Bókasafni Háskólans á Akureyri á
vegum kennslugagnadeildar í til-
efni af ári hafsins. Á sýningunni eru
myndir, textar, munir og minjar frá
Sjóminjasafninu í Hafnarfirði og
Minjasafninu á Akureyri.
Sýningin verður opin til loka
maímánaðar og er opin á af-
greiðslutíma safnsins, frá kl. 8 til 18
virka daga. Þykir hún sérstaklega
henta nemendum mið- og unglinga-
stigs grunnskóla og var hún m.a.
sett upp í því skyni að bjóða kenn-
urum að skoða hana með nemend-
um sínum og er mælt með því að
þeir sem hyggjast nýta sér það
panti sérstakan tíma til þess.
Meðal þess sem á sýningunni er
að finna eru upplýsingar um landa-
fundi í vestri, siglingar til Vestur-
heims, skreiðarsölu á miðöldum,
hákarlaveiðar, hvalveiðar, saltfisk,
sfld og sjómannslíf, útgerð á opnum
bátum, skútuöldina og kaupskipa-
og togaraútgerð.
------♦-*-♦-----
Iðnaðarhverfí við
Krossaneshaga
Götuheiti úr
goðafræði
FYRSTU lóðunum í nýju iðnaðar-
hverfi við Krossaneshaga hefur
verið úthlutað, en m.a. hefur P.
Samúelssyni, Steinco ehf., Albert
og Benny Jensen og Magnúsi Sig-
urbjörnssyni verið úthlutað lóðum
á svæðinu.
Götuheitin eru fengin úr goða-
fræði og kennd við nes, en Bygg-
inganefnd Akm'eyrarbæjar hefur
lagt til að götunöfnin í þessu nýja
iðnaðar- og þjónustuhverfi verði
Baldursnes, Freyjunes, Goðanes,
Njarðarnes, Óðinsnes, Sjafnames,
Týsnes, Þórsnes, Ægisnes og
Lokanes.
AKSJÓN
Þriðjudagur 5. maí
21.00 ► Fundur er settur.
Fundur í bæjarstjórn Akur-
eyrar.