Morgunblaðið - 05.05.1998, Síða 26
26 ÞRIÐJUDAGUR 5. MAÍ 1998
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ
Sljórnvöld í Indónesíu hækka bensín um 75% í samræmi við kröfur IMF
Vara við auknum átökum
Efnahagur Asíu sagður á uppleið
Jakarta. Canberra. Singapore. Reuters.
ÓTTAST er að aukin átök brjótist
út milli stúdenta og óeirðalögreglu í
Indónesíu eftir að stjómvöld þar til-
kynntu í gær mikla verðhækkun á
eldsneyti og fargjöldum almenn-
ingssamgangna. Jafnframt munu
rafmagnsreikningar íbúa í
Indónesíu hækka umtalsvert. Að-
gerðimar eru í samræmi við skil-
mála samnings við Alþjóðagjaldeyr-
issjóðinn (IMF) en IMF fór fram á
að verulega yrði dregið úr niður-
greiðslum ríkisins í skiptum fyrir 40
milljarða dollara efnahagsaðstoð.
í gær lýstu áströlsk stjórnvöld
áhyggjum sínum vegna ásakana um
að leiðtogar stúdenta í Indónesíu
hefðu sætt ofsóknum og pyntingum.
Á síðustu vikum hafa 15 helstu leið-
togar þeirra horfið sporlaust og
Unabomber
Fjórfaldur
lífstíðar-
dómur
Sacramento. Reuters.
THEODORE Kaczynski, sem
fundinn var sekur um morð á þrem
mönnum og að særa rúmlega 20
aðra, var í gær dæmdur í fjórfalt
h'fstíðarfangelsi án möguleika á
náðun.
Persónuleg hefnd
Kaczynski hlaut viðumefnið
Unabomber og í 17 ár sendi hann
banvænar sprengjur í pósti víðs
vegar um Bandaríkin í baráttu
sinni gegn því sem hann nefndi of-
urvald tækninnar. Áður en til rétt-
arhalda í máli hans kom náðist
dómssátt um að hann játaði sig
sekan.
Saksóknari birti í fyrri viku brot
úr dagbókum Kaczynskis þar sem
m.a. kom fram að ástæða þess að
hann hafí myrt fólk hafi verið „per-
sónuleg hefnd“.
telja sum mannréttindasamtök
indónesíska herinn ábyrgan. Stúd-
entar hafa síðan í febrúar krafíst af-
sagnar Suhartos forseta vegna
efnahagsöngþveitisins og hefur
skorist í odda með stúdentum og
óeirðalögreglu á síðustu vikum.
Wiranto hershöfðingi, vamarmála-
ráðherra Indónesíu, sendi í gær frá
sér viðvörun þess efnis að mótmæl-
endur gætu átt von á harðari að-
gerðum óeirðalögreglunnar.
Stjómmálaskýrendur töldu hins
vegar vaxandi óeirðir óhjákvæmi-
legar í kjölfar verðhækkana. „Nú er
aðeins hægt að telja dagana þar til
lokauppgjör milli kyrrstöðustjómar
og úrbótaaflanna rennur upp,“
sagði Hermawan Sulistyo, starfs-
maður Vísindarannsóknastofnunar
Indónesíu. Tiltölulega rólegt var þó
í gær, enda margir stúdentar í próf-
um.
Efnahagsvandi
Asíu í rénun
Michel Camdessus, fram-
kvæmdastjóri IMF, sagði á fundi í
Singapore í gær að hann myndi
leggja til við stjóm sjóðsins að lán
til Indónesíu yrðu afgreidd sem
fyrst, enda virtust indónesísk
stjómvöld ætla að halda sinn hluta
samningsins. Camdessus sagði að
efnahagsvandræðum Asíuríkjanna
væri alls ekki lokið en að þau væm í
rénun. „Við höfum ekki leyst vand-
ann en við erum að ná tökum á hon-
um.“ Camdessus taldi að þegar
hefði náðst umfangsmikill árangur í
Tælandi og Kóreu og að önnur ríki
Asíu myndu fylgja í kjölfarið, enda
hefðu allir aðilar lagst á eitt um að
takast á við vandann.
Bill Clinton, Bandaríkjaforseti,
hvatti Japani í gær til að grípa til
úrbóta í efnahagsmálum til að blása
nýju lífi í efnahag sinn. Hann sagði
efnahagsvanda Asíu „ekki hafa svo
slæm áhrif á bandarískan efnahag
einmitt núna“ en að Bandaríkin
þyrftu samt nauðsynlega að styðja
IMF og efnahagsúrræði sjóðsins í
Asíu því hagvöxtur í Bandaríkjun-
um væri t.a.m. háður útflutningi til
Asíuríkja.
Reuters
GÍFURLEGAR biðraðir mynduðust við bensínafgreiðslur í gærdag í Jakarta, höfuðborg Indónesíu, eftir að
stjórnvöld tilkynntu að frá og með miðnætti myndi eldsneyti hækka um 71%.
Nýtt krabbameinslyf
virkar vel á mýs
í RANNSÓKNUM á nýju krabba-
meinslyfí, sem reynt hefur verið á
músum, hefur tekist að útrýma
krabbameinsæxlum svo til alveg
og jafnframt kemur fram í frétt
Associated Press að lyfið, sem er
blanda próteina, hægir mjög ó
þróun krabbans.
Enn er óvíst hvort lyfið virkar á
menn og vöruðu sérfræðingar í
gær við of miklum væntingum í þá
veru. Judah Folkman, prófessor
við Harvard-háskóla, taldi niður-
stöður rannsóknarinnar hins vegar
lofa góðu og fjármálamarkaðurinn
virtist sama sinnis því hlutabréf í
lyfjafyrirtækinu, sem stendur fyr-
ir rannsóknunum, hækkuðu í verði
um 588%.
75% Dana
andvíg
Scheng’en
Kaupmannahöfn. Reuters.
TVEIR af hverjum þremur Dönum
eru andvígir því að landamæraeftir-
liti verði aflétt samkvæmt Schengen-
samkomulagi Evrópusambandsins
(ESB), að því er fram kemur í skoð-
anakönnun sem vikuritið Ugebrevet
Mandag morgen lét gera. Sagði
helmingur þeirra sem enn hafa ekki
gert upp hug sinn gagnvart Amster-
dam-sáttmálanum sem verður bor-
inn undir atkvæði í lok mánaðarins,
að andstaðan við Schengen gæti orð-
ið til þess að þeir myndu greiða at-
kvæði gegn honum.
Samkvæmt könnuninni eru 20%
algerlega fylgjandi afnámi
landamæraeftirlits, og 10% eru fylgj-
andi því að hluta. Hins vegar eru
51% algerlega andvíg. Danir eru ein
EVROPA^
þeirra þjóða sem hafa undirritað
Schengen-samkomulagið en það hef-
m- hins vegar ekki tekið gildi að
fullu.
Meirihluti þeirra sem er fylgjandi
Amsterdam-samkomulaginu er and-
vígur Sehengen og sagði í grein með
skoðanakönnuninni að andstaðan við
afnám landamæraeftirlitsins kynni
að hafa úrslitaáhrif á þjóðarat-
kvæðagreiðsluna um Amsterdam-
sáttmálann. Hann opnar Evrópu-
sambandinu leið til að stækka í aust-
ur, auk þess sem hann kveður m.a. á
um sameiginlega stefnu í málefnum
flóttamanna.
Enn sem komið er virðist þó
meirihluti Dana vera fylgjandi Am-
sterdam-sáttmálanum þótt teikn séu
á lofti um að önnur atriði, t.d. all-
herjarverkfallið í Danmörku, kunni
að draga úr fylginu við hann.
Hvalveiðar hafn-
ar með leynd
Ósl<S. Morgunblaðið.
HVALVEIÐIVERTIÐIN er hafin
í Noregi og ríkir mikil Ieynd yfir
veiðunum. Talin er svo mikil
hætta á því að andstæðingar
hvalveiða muni láta til skarar
skríða gegn sjómönnunum að
engar upplýsingar eru gefnar
um hvar verið er að veiðum.
Veiða má 671 hrefnu.
Fiskistofan norska hefur
ákveðið að nær allt er lýtur að
hvalveiðunum sé leynilegar upp-
lýsingar, þar á meðal hveijir
stundi þær. Þá fæst ekki upplýst
hvar hrefnurnar hafa veiðst,
hvar og hvenær þeim er landað
og hverjir kaupi kjöt og hvalspik,
að því er segir í Aftenposten.
Ákvörðun um leyndina var
tekin að fengnum ráðleggingum
rannsóknarlögreglunnar í Osló
en Interpol hefur einnig fylgst
með. Norges Ráfisklag hefur
hönd í bagga með veiðunum og
dreifir hvalkjötinu til kaupenda.
Af 671 hrefnu má veiða 178 í
Norðursjó og afganginn undan
ströndum Noregs og við Bjarnar-
ey og Jan Mayen. 35 hvalveiði-
skip hafa leyfí til að skjóta
hrefnu og í síðustu viku voru
skytturnar sendar á námskeið í
Lofoten. Þá verður eftirlitsmað-
ur, með próf í dýralækningum,
um borð í hveijum bát til að
fylgjast með því að dýrin séu af-
lífuð hratt og sársaukalaust.
22 aðilar hafa leyfi til að kaupa
hvalkjöt og spik. Veiðist vel er
gert ráð fyrir að um 900 tonn af
kjöti og 250 tonn af hvalspiki fá-
ist. Lágmarksverð á kjöti verður
sem svarar til 270 ísl. kr. en 30
kr. ísl. fyrir spik. í fyrra fékkst
aðeins ein króna fyrir hvert kíló
af hvalspiki.
Stríðssvæðatryggingar
Hvalveiðimenn, strandgæsla
og lögregla eru sammáia um
leyndina sem hvílir yfir veiðun-
um enda vilja þeir ekki að lætin
sem orðið hafa undanfarin ár
endurtaki sig. Árið 1992 var
reynt að sökkva hvalveiðiskipi í
höfn, árið 1994 gripu Green-
peace-samtökin til aðgerða gegn
skipum er voru við hvalveiðar og
önnur tilraun var gerð til að
sökkva skipi í höfn. Sama ár
sigldi Paul Watson, formaður
Sea Sheperd-samtakanna, skipi
sínu inn í Vesturfjörð, sigldi á
hvalveiðiskip og stakk af. Watson
var dæmdur fyrir áreksturinn
fyrir norskum dómstól og náðist
í Holiandi þar sem hann sat dóm-
inn af sér.
Þetta hefur orðið til þess að
hvalveiðiskipin eru tryggð eins
og þau væru á stríðssvæði og
komið hefur verið fyrir viðvörun-
arkerfi í þeim flestum. Þá ræðast
hvalveiðimennimir við á lokuð-
um rásum svo ekki komist upp
hvar þeir em á veiðum.
Þjóðar-
fylking
missti
sætið
ÞJÓÐARFYLKINGIN í
Frakklandi, stjómmálasam-
tök hægriöfgamanna, misstu
um helgina sitt eina sæti á
franska þing-
inu. Hafði
flokkurinn
fengið mann
kjörinn fyrir
Toulon en í
aukakosning-
um á sunnu-
dag var fram-
bjóðandi Sósí-
alistaflokks-
ins kjörinn með aðeins 33 at-
kvæða mun. I þingkosningun-
um í júní í fyrra náði Jean-
Marie Le Chevallier, borgar-
stjóri í Toulon, kjöri fyrir
Þjóðarfylkinguna en síðar var
hann sviptur þingsætinu og
bannað að bjóða sig fram í
eitt ár vegna þess, að hann
hafði eytt meira fé í kosninga-
baráttuna í fyrra en leyfilegt
er. Var þá efnt til aukakosn-
inga og sóttist" kona hans,
Cendrine, eftir þingsætinu.
Cendrine fékk flest atkvæði í
fyrri umferðinni og í þeirri
síðari stóð slagurinn á milli
hennar og Odette Casanova,
frambjóðanda sósíalista.
Fékk Odette 50,07% atkvæða
og Cendrine 49.93%.
60 manns
drukknuðu
MEIRA en 60 manns drukkn-
uðu í Tanzaníu á sunnudag er
fólksflutningabifreið fór út í
fljót. Var bílstjórinn að reyna
að komast yfir brú, sem var
hálf á kafi vegna flóða, þegar
straumurinn hreif bflinn með
sér. 10 manns komust lífs af.
Eldur í óper-
unni í Genúa
ÓPERAN í Genúa var lokuð í
gær en á sunnudag varð
nokkur eldur laus í kjallara
hússins. Batt hann enda á
sýningu á „Macbeth“ eftir
Verdi og urðu 2.000 manns að
forða sér út. Eldinum olli
skammhlaup í ljósaborði en
búist er við, að allt verði kom-
ið í samt lag eftir nokkra
daga.
Jarðskjálfti
í Japan
MJÖG öflugur jarðskjálfti
varð í fyrrinótt á sjávarbotni
undan Ökinawa, syðstu eyju
Japans. Olli hann engum
skemmdum og ótti við hættu-
legar flóðbylgjur reyndist að
mestu ástæðulaus þegar til
kom. Upptök jarðskjálftans
voru í Kyrrahafi, um 260 km
suðaustur af Ishigakijima,
sem er syðsta eyjan í Ok-
inawa-eyjaklasanum. Varð
skjálftans vart mjög víða, til
dæmis á Tævan, en ekki urðu
neinar skemmdir þar fremur
en annars staðar. I Japan var
fólk í sumum strandhéruðum
varað við hættu á flóðöldu,
allt að tveggja metra hárri, en
hún reyndist ekki nema 10
sentimetra há þegar til kom.
Cendrine Le
Chevallier