Morgunblaðið - 05.05.1998, Page 52
52 ÞRIÐJUDAGUR 5. MAÍ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
KOSNINGAR 98
Á veruleikaflótta
frá Reykjavík
Fi'ambjóðendur
D-listans í Reykjavík
hafa undanfarið reynt
að læða því inn hjá
Reykvíkingum að haf-
inn sé fólksflótti frá
höfuðborginni til Kópa-
vogs. Þetta er hlálegur
málflutningur í ljósi
- .sögunnar.
Staðreyndin er auð-
vitað sú að nágranna-
byggðir höfuðborgar-
innar hafa verið í
hraðri uppbyggingu
allan síðari hluta ald-
arinnar, fyrst og
fremst vegna nálsegð-
ar við borgina. Ibúa-
þróun á höfuðborgarsvæðinu hefur
verið þannig að árið 1950 voru
Reykvíkingar 86% af öllum íbúum
svæðisins en 1996 aðeins 65,4%.
Samkvæmt áróðri D-
listans hefur því verið
hraður flótti til ná-
grannabyggðanna allan
þennan tíma en megnið
af honum hafa þeir
sjálfir stjórnað í
Reykjavík. Þegar nánar
er að gáð kemur þó í
ljós að Reykvíkingar
hafa haldið sínu miðað
við landið allt, og gott
betur.
Árið 1950 var hlutfall
Reykjavíkur af íbúatölu
alls landsins 38,8% en
39,1% árið 1996. Að
jafnaði hefur fjölgunin
því verið eðlileg allan
þennan tíma og svo er enn. Flutn-
ingar af landsbyggðinni hafa hins
vegar fremur komið nágranna-
byggðum Reykjavíkur til góða.
Þetta er svipuð þróun og í fjölmörg-
um borgum um allan heim. Fólk
hefur tilhneigingu til leita út fyrir
borgarmörkin sjálf en njóta eigi að
síður nálægðar borgarinnar.
Flótti sjálfstæðismanna
Ef litið er á allt tímabilið frá 1950
hafa komið kippir í vöxt nágranna-
byggðanna af og til, stundum í
Kópavogi, stundum í Hafnarfírði,
Garðabæ eða Mosfellsbæ. Lang-
versta flóttaskeiðið í sögu Reykja-
vík á þessum tíma, ef nota á rök-
semdafærslu D-listans, voru árin
1975-78 en þá fækkaði Reykvíking-
um beinlínis meðan íbúum ná-
grannabyggða fjölgaði verulega.
Samtals var fækkun um 1.480 íbúa á
þessu tímabili.
Samkvæmt bráðabirgðatölum
Hagstofunnar fjölgaði Reykvíking-
um um 1.159 milli áranna 1996-97
Sigrún
Magnúsdóttir
UNDANFARNA daga
hafa yfirlýsingar Ingi-
bjargar Sólrúnar um ár-
angur í borgarmálum
ekki farið fram hjá mér.
Sumu verður maðm'
bara að trúa, af því að
maður þekkir það ekki
-■Jhíjálfur. Eigin reynsla
segir mér að í dagvistar-
málum séu langir biðlist-
ar og að þar sé rekin
undarleg hentistefna
þæ. hvaða börn séu tekin
inn á leikskólana.
Nýjasta reynsla mín er
að vera virt að vettugi af
borgarstjóra „allra
Reykvíkinga“ (að henn-
ar eigin sögn). Til fróð-
leiks hafa tvær greinar birst hér í
Morgunblaðinu þar sem borgarstjóri
var spurður um svikin kosningalof-
orð Reykjavikurlista, s.s. að öll böm
2 ára og eldri fengju vistun á vegum
borgarinnar, á sínum tíma gekk hún
jafnvel svo langt að lofa öllum börn-
"DUm 1 árs og eldri vistun fyrir lok
þessa kjörtímabils.
Rökbrellur
Ingibjörg Sólrún segir að hún hafí
staðið fyi'ir mestu leikskólafram-
kvæmdum fyrr og síðar í Reykjavík.
Loforð um 3.500 ný dagvistarpláss
eiga ekki lengur við, nú
er talað um mestu leik-
skólaframkvæmdh' á
öldinni. Samkvæmt
skýrslu sem gefin var út
af Dagvist barna í maí
árið 1997 kemur fram
að heildarfjölgun barna
á leikskóium sé rúmlega
400 á kjörtímabilinu. Og
að foreldrar sem sækja
um heilsdagsvistun fyr-
ir barn sitt hafí forgang.
Þetta er gert þrátt fyrir
að niðurstöður könnun-
ar sem gerð var af Dag-
vist barna í samvinnu
við Halldór Jónsson,
stjórnmálafræðing þar
sem rúm 25% foreldra
vildu ekki heilsdagsvistun fyrir börn
sín, af því má ráða að 70% óska eftir
vistun í skemmri tíma en nemur
heilsdagsvistun og tæp 5% annað.
Þrátt fyrir þessar niðustöður er ver-
ið að þröngva heilsdagsplássum inn
á foreldra, væri ekki eðlilegra að láta
vilja foreldra ráða því hve lengi
börnin eru hverju sinni!
Virðingarleysi
Ingibjörg Sóli-ún hefur látið hafa
eftir sér að hún sé borgarstjóri allra
Reykvíkinga. Sagt er að konur séu
konum verstar, ég ætla ekki að
Eigin reynsla segir
mér að í dagvistarmál-
um séu langir biðlistar,
segir Björg Kristín
Sigþórsdóttir, og að
jar sé rekin undarleg
hentistefna, þ.e. hvaða
börn séu tekin inn á
leikskólana.
leggja mat á hvort það eigi við í
þessu máli, þ.e. af hverju hún hefur
ekki svarað spurningum mínum
hvort það sé vegna þess að ég sé
kona en ekki karl og hvort það sé
fyrir neðan hennar virðingu að svara
konu sem teiur að sér hafí verið mis-
boðið sem móður. Eins og þeir sem
fylgst hafa með aðsendum greinum
vita hefur ekki borið á svari frá
borgarstjóra. í mínum huga kemur
upp orðið virðingarleysi, fyi'ir mér
og öllum þeim er krefjast betra og
upplýstara samfélags.
Valkostir
Undarlegt þykir mér að heim-
greiðslur voru afnumdar og skattar
hækkaðir um leið og Reykjavíkur-
listi tók við borginni. Ahugavert væri
að vita hvort Arni Sigfússon oddviti
Sjálfstæðismanna vilji svara mér
hvaða valkostir standi okkur borgar-
búum til boða í dagvistarmálum!
Höfundur er konditormeistari.
Rökbrellur og
virðingarleysi
Björg Kristín
Sigþórsdóttir
*■ ÖRSTUTT DV-frétt,
laugardaginn 25. apríl,
gæti reynst R-listanum
örlagarík. Fréttin er
það fyrirferðarlítil að
hún er nánast falin. Hún
segir að í skoðanakönn-
un C&L Hagvangs, sem
gerð var nýlega, hafí
49,3% þeirra er könnun-
un nær til, talið að Ingi-
björg Sólrún Gísladóttir
ætli að leiða sameigin-
legan lista félags-
hyggjufólks í þingkosn-
ingum að ári, það er
sameiginlegan lista Al-
þýðubandalags, Alþýðu-
fíokks, Kvennalista og
Þjóðvaka.
Svo virðist sem hún ætli að pretta
fólk til að kjósa R-listann í Reykja-
_ vík en stökkva svo frá vandanum, er
fengið svar við þeirri spruningu
sem Guðrún Péturs-
dóttir spurði Ingi-
björgu Sólrúnu í sjón-
varpsþættinum Dags-
ljósi en hún neitaði að
svara.
Stærsta frétt skoð-
anakönnunarinnar er
þó máski sú að yfir 70%
aðspurðra gátu ekki
nefnt neinn af R-listan-
um sem viðtakandi
borgarstjóra, ef svo
færi sem hér er um
rætt. Hún er verðugt
íhugunarefni kjósenda
er þeir ganga að kjör-
borði 23. maí nk.
Nú skal ég gjarnan
viðurkenna að Ingibjörg Sólrún hef-
ur aldrei vakið sérstakt traut mitt,
þótt hún næði stuðningi til borgar-
stjóra árið 1994. En mér er spurn:
Hvaða vægi hefur R-listinn í hugum
Helmingur aðspurðra í
skoðanakönnun telur
að Ingibjörg Sólrún
muni leiða vinstra
framboð til Alþingis að
ári. Karl Ormsson
spyr: Hvaða R-lista-
maður sest þá í stól
borgarstjóra, ef sá listi
heldur meirihluta?
kjósenda, ef hann slysaðist til að
halda meirihluta ef og eftir að Ingi-
björg Sólrún hverfur af hans vett-
vangi? Hvað trausts nýtur R-listinn
án Ingibjargar Sólrúnar?
Ég skora á fólk að meta R-listann
í því ljósi, sem tilvitnuð skoðana-
könnun varpar á hann. Ég bið fólk
að hugsa sér stjórnina á borginni
næstu fjögur árin, ef R-listin heldur
velli undir þessum ki'ingumstæðum.
HOfundur er fv. deildarfulltrúi.
Blekking
aldarinnar
Karl Ormsson
sem er 37% af heildarfjölgun á
svæðinu, en í Kópavogi fjölgaði um
1.252 íbúa eða 39,9% af heildar-
fjölgun. Um 75% af allri fjöigun á
svæðinu í fyrra er því í þessum
tveimur sveitarfélögum. I öðrum
grannbyggðum hefur íbúafjöldi
vaxið mun hægar. Sé litið á Kópa-
vog sérstaklega koma í ljós miklar
sveiflur á þessum áratug. Fyrsta
Málflutningur D-listans
um fólksflótta frá
Reykjavík er jafn óá-
byrgur og hann er
rangur. Sigrún Magn-
úsdóttir segir íbúaþró-
un Reykjavíkur
eðlilega.
stökkið kom 1995-96 en þá var
fjölgunin í Kópavogi 33,5% af heild-
arfjölgun á svæðinu það árið. Sama
ár var fjölgunin í Reykjavík þó
45,1% af heildarfjölgun á svæðinu.
Þess ber að geta að í tölum Hag-
stofunnar er Kjalarnes enn talið
sérstakt sveitarfélag en hefur í
rauninni verið sameinað Reykjavík
og er því raunveruleg fjölgun í
borginni 1.747 manns á síðasta ári.
Borgin hefur því allan þennan ára-
tug haldið sínum hlut. Með samein-
ingunni við Kjalarnes opnast ný og
spennandi byggingasvæði við
ströndina og mun það gera hlut
höfuðborgarinnar góðan í heildar-
fjölgun á svæðinu næstu ár, ekki
síst með tilliti til þess að útsvar og
ýmis önnur gjöld eru lægri í
Reykjavík en víðast í nágrenninu.
Álfsnesið sem liggur á skjólríkum
og gróðursælum stað er til dæmis
mun stærra en allur Kópavogur.
Þar mun í framtíðinni byggjast
mikið íbúðarhverfi.
Málflutningur D-listans er því
jafn óábyrgur og hann er rangur.
Ibúaþróun Reykjavíkur er með
eðlilegum hætti og á stjórnarárum
núverandi meirihluta hefur hún
verið hagstæðari með tilliti til höf-
uðborgarsvæðisins í heild en hún
hefur verið lengst af síðan um 1960.
Eini flóttinn sem merkja má í
Reykjavík er veruleikaflótti D-list-
ans.
Höfundur er borgarfulltrúi og í
öðru sæti Reykjavíkurlistans í borg-
arstjórnarkosningunum í vor.
Betur má ef
duga skal
VIÐ SEM erum að
ala upp börn, höfum
áhuggjur af framtíð
þeirra og velferð, enda
ekki að ástæðulausu.
Við heyrum daglega
fréttir af gi'ófu ofbeldi
þar sem níðst er á
mönnum, dýrum og
umhverfi. Almenn
virðing er á undanhaldi
og meiri harka að fær-
ast í allt. T.d. virðist
auðvelt fyrir unglinga
að nálgast fíkniefni
jafnvel á skólalóðum. í
Morgunblaðinu 26.
febrúar sl. var fjallað
um þennan vanda í
grein eftir Albert Jensen. Hann
hitti borgarstjóra að máli og fór
fram á aðgerðir. Svarið sem hann
fékk var: „Þetta er alls staðar
svona.“ Því miður sýnir þetta mátt-
leysi okkar og úiræðaleysi núver-
andi borgaryfirvalda í þessum mál-
um. Öll vitum við að vandamálin í
miðbænum eru gífurleg. Uppsetn-
ing myndavéla og frjáls opnunar-
tími skemmtistaða leysa ekki þann
vanda. Unglingarnir hafa ekki ald-
ur til að sækja skemmtistaðina. Þá
vantar viðfangsefni við hæfí. í Degi
28. janúar sl. var grein sem bar
nafnið „Rottur Reykjavíkur". Þar
kom fram að hópur unglinga hefur
ekki í neitt hús að venda, er með
öðrum orðum á götunni og yljar
sér á hitaristum. Slíkt er smánar-
blettur á samfélagi okkar. Ég hef
aldrei skilið hvers vegna R-listinn
lagði niður útideildina. Þörfin fyrir
hana hefur aldrei verið meiri.
Rannsóknir sýna að tíminn með
foreldrunum er mikilvægastur fyr-
ir vellíðan og velferð barna. Þeim
mun betra sem tíminn er meiri. Við
sem erum heimavinnandi ættum að
hætta að afsaka okkur fyrir það
val. Þrýstingur samfélagsins hefur
verið gífurlegur að fá okkur út á
vinnumarkaðinn. Stundum hefur
mér hreinlega dottið í hug að ég sé
að eyðileggja fyrir frama kvenna
almennt eða auknu jafnrétti kynj-
anna með því að vera heima. Stefn-
an hefur verið að börnin fari sem
fyrst í leikskólana og helst allan
daginn. Fyrst svo er, fer uppeldið
að mestu leyti fram þar fyrstu árin.
Borgaryfirvöld hafa byggt mikið á
kostnað gæða og öryggis barna.
Leikskólarnir verða að vera í stakk
búnir til að sinna vel innra starfi
sínu. Til þess þurfa þeir nægjan-
legt fjármagn og starfsfólk. Hvert
barn er einstakt, með persónulegar
þarfir s.s. tíma með for-
eldrum,^ hvatningu og
hlýju. í uppbyggingu
leikskólanna hefði verið
betra að sjá minni ein-
ingar, heimilislegri
leikskóla og meiri ald-
ursskiptingu í deildir
eins og áður var.
Kenna þarf kristnu
gildin í skipulegi'i
fræðslu, þ.e.a.s. að bera
virðingu fyrir mönnum,
dýrum og verðmætum.
Það eru innri gæðin
sem skila sér út i sam-
félagið, ekki stein-
steypan.
Við, sem eigum börn
og unglinga í dag, gátum valið úr
sumarvinnu þegar við vorum ung-
lingar. Við fengum að læra að
vinna sem í er fólginn mikill auður.
Nú fá mörg börn vinnu í bæjar-
vinnunni. Eftir að hafa fylgst með
unglingum þar, tekur maður eftir
almennu áhugaleysi á vinnunni.
Eitthvað er að! Þarna held ég að
hægt sé að gera betur. Hvatning er
t.d. mikilvæg frá verkstjórn. Bjóða
Ég fagna nýrri fjöl-
skyldustefnu D-listans,
segir Sveinbjörg
Björnsdóttir. Hún hríf-
ur og er nauðsynleg við
núverandi aðstæður.
má upp á einhvern aukabónus ef
verk klárast fyrir tilsettan tíma. Þá
væri hægt að viðhalda gömlum og
góðum sið með því að hafa töðu-
gjöld í verklok, en aðeins ef vel er
unnið. Þetta getur kallað fram já-
kvæðara umhverfi og meiri afköst.
Forgangsröðun borgaryfirvalda
verður að vera börnum og ungling-
um í vil. Koma þarf til móts við
þarfir þeirra og styðja þarf við
bakið á þeim félagasamtökum og
forvarnahópum sem vinna að því
að skapa unga fólkinu okkar betri
framtíð. Ég fagna því nýrri fjöl-
skyldustefnu D-listans. Hún hrífur
og er nauðsynleg við núverandi að-
stæður, eigi að skapast hér heil-
brigðara og öruggara umhverfi.
Höfundur er hdtelrekstrarfrœðing-
ur og í foreldraráði leikskóia.
Sveinbjörg
Björnsdóttir