Morgunblaðið - 05.05.1998, Side 66

Morgunblaðið - 05.05.1998, Side 66
66 ÞRIÐJUDAGUR 5. MAÍ 1998 MORGUNBLAÐIÐ pliargmiiMslíilí BRÉF TIL BLAÐSINS Grettir ÉG"IEt- PAG4NA TlL RAT- HLÖPUFZNARE&) Tommi og Jenni Ferdinand Smáfólk THI5 H0EIN6 VtHAT'5 BECAUSE VOU'RE 15 HARP UiORK., H0EIN6 ON THE 5IPEWALK.. |‘M NOT 6ETTIN6 YOU'RE 5UFP05ED T0 HOE ANYUIHERE.. A IN THE YARP.. i 3-19 / <m MOTHER DIPN'T' RAI5E ME TO BE A FARMER! Kringlan 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329 Það vantar stjórnun á borgina Frá Karli Ormssyni: HVER man ekki þær illræmdu biðraðir eftir sjálfsögðum nauðsynj- um á sjötta áratug þessarar aldar? Fólk beið í hundraðatali, stundum nótt eftir nótt eftir að opnaðar yrðu búðir til að kaupa sér skó, föt, eða bara rjóma, smjör og helstu nauð- þurftir. Þetta ástand varði allt fram á árið 1959 en vinstristjórn Her- manns Jónassonar hrökklaðist frá völdum við lítinn orðstír haustið 1958 og Viðreisnarstjómin tók við. En nú hefur R-listinn í Reykjavík endurvakið þennan biðraðadraug. Nú bíður fólk eftir svo sjálfsögðum hlutum sem byggingarlóðum til að reisa sér þak yfir höfuðið. Það er vart að maður hafi trúað þeim frétt- um sem Sjónvarpið og Morgunblað- ið færðu manni hinn 27. mars. Að fólk bíði allt að 30. klst. eftir svo sjálfsögðum hlutum sem byggingar- lóðum, sem eru þó aldeilis ekki gefnar. Byggingarlóð undir raðhús eða einbýlishús kostar 2-3 milljónir. Þegar vinstri meirihlutinn hrökklaðist frá í borginni 1982 hétu sjálfstæðismenn því að nú skyldi vera nóg framboð af byggingarlóð- um og eftir þetta þótti það sjálf- sagður hlutur. Þegar Davíð Odds- son varð borgarstjóri hélt hann áfram þeirri reglu sem Birgir ísleif- ur Gunnarsson kom á, að búið var að láta ganga frá öllum leiðslum í götur og þær malbikaðar áður en lóðum var úthlutað. Það var aldrei skortur á lóðum þar til núna. Maður hélt að sú tíð væri liðin að skortur yrði á lóðum, en það er nú öðru nær. Nú sér maður að eftir því sem R- listinn ræður lengur kemst maður betur að því hvers konar gífurlegt óhapp það var að hann skyldi slys- ast til að ná hér völdum á vordögum 1994. Mörgu fólki er það algjörlega hulið hversu mikil alvara er hér á ferðinni því R-listinn hefur ekkert hugsað fram í tímann. Það má segja að nær öll umferðarmannvirki í Reykjavík séu sprungin, allar götur fullar af bílum vegna aðgerðaleysis R-listans í umferðarmálum. Og það sem er kannski allra alvarlegast er að það verður ekkert hægt að gera hér, til dæmis í byggingarmálum, fram á næstu öld vegna umferðar- mála. Ekkert gagn verður að því landsvæði í Geldinganesi, Alfsnesi eða Kjalarnesi fyrr en Sundabrúin er komin. Nema R-listinn missi völdin í borginni. Ef engar lóðir verða til á næstu árum er ekkert fyrir fólk annað að gera en að flýja í næstu sveitarfélög til stórskaða fyrir Reykjavík sem verður af tekjum upp á tug milljóna vegna hugsunarleysis R-listans. Fróður maður benti á það, að þang- að til Sundabrú yrði byggð yrði ekki hálft gagn að Hvalfjarðargöngum og öll umferð mundi sneiða framhjá Reykjavík. Yfir okkur dynja auglýsingar ,AJlir í strætó“. Það á að þjappa saman fólki og útiloka einkabílinn. R-listinn vill sjá okkur fyrir ferða- máta hvort sem okkur líkar betur eða verr. Einstaklingurinn á ekki að fá að ráða sínum ferðamáta og R- listinn talar um rafmagns spor- vagna vegna þess að núverandi um- ferðarmannvirki bera ekki meira. Ástandið er svo alvarlegt að það verður að taka strax í taumana. Með öðrum orðum, það vantar gatnakerfi, það vantar byggingar- lóðir, það vantar Sundabrautina, það vantar breikkun Gullinbrúar, það vantar stórhuga framkvæmdir við umferðarmannvirki, það vantar með öðrum orðum stjórnun á borg- ina. Þær upplýsingar sem koma fram í Morgunblaðinu 27. mars að ástandið í lóðamálunum hafi verið svona alvarlegt 1996 og R-listinn blekkt svo almenning er hörmulegt. Það er erfitt að hugsa út í að fólk hafi mætt við skrifstofu borgar- verkfræðings með útigrill, matvæli og sólstóla til að sofa og að bíða þar í allt að 30 klukkustundir, en það segir kannski sína sögu. Ég segi bara, það er eins gott að góðærið haldist áfram og ríkisstjórn Davíðs Oddsonar verði við völd. Það forðar kannski mesta voðanum frá. KARL ORMSSON fv. deildarfulltrúi. Svikin loforð Frá Guðjóni Sigurðssyni: NÚ HEFUR R-listinn kynnt stefnu sína fyrir borgarstjórnarkosning- arnar í vor. Ég hef að vísu ekki séð þá stefnu í heild. Eitt rakst ég þó á, þar sem R-listinn lofar öllum börn- um eins árs og eldri þá vistun sem foreldrar þeirra vilja nýta sér, og meira að segja niðurgreidda. Eitt- hvað hljómar þetta kunnuglega. Jú, fyrir fjórum árum lofaði R-listinn að öll börn eins árs og eldri fengju þá vistun sem foreldrar þeirra vilja nýta á kjörtímabilinu. Þetta loforð var fyrir fjórum árum. Hver er nið- urstaðan? Nú eru skólamálin í brennidepli hjá R-listanum og þar segir: í dag m.a. 6-7 klst. samfelldur skóladag- ur. Hvað sagði R-listinn fyrir fjór- um árum að skóladagur nemenda verði lengdur í áföngum þannig að allir nemendur geti verið í skóla 6-7 klst. á dag. Þetta var fyrir fjórum árum. Og hverju lofaði R-listinn í húsnæðismálum? Þar sagði fyrir fjórum árum að gera þarf átak til að fjölga leiguíbúðum til að bæta úr mjög brýnni húsnæðisþörf. Hver er niðurstaðan? Hvar er 50 metra yfir- byggða sundlaugin sem R-listinn lofaði fyrir fjórum árum? Hvar er fjölnota innanhússaðstaðan sem m.a. átti að rýma knattspyrnuvöll og hvar eru öll hjúkrunarrýmin sem R-listinn lofaði? Þessi loforð voru gefin fyrir fjórum árum. Hver var árangurinn? Ég spyr hina brosandi konu Ingibjörgu Sólrúnu. GUÐJÓN SIGURÐSSON, Hátúni lOa, Reykjavík. Þetta er erfitt Það er vegna þess að þú ert að verk ... mér mið- vinna á gangstéttinni.. .þú átt ar ekkert. að losa um moldina í garðinum. Móðir mín ól mig ekki upp til þess að verða bóndi! Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt f upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.