Morgunblaðið - 05.05.1998, Síða 71
b
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 5. MAÍ 1998 71' '
FÓLK í FRÉTTUM
Stone tekinn í sátt
STONE fékk Óskarsverðlaun
fyrir handritið að kvikmyndinni
„Midnight Express“ sem Randy
Quaid, Brad Davis og John
Hurt léku í.
Upp koina svik um síðir?
JFK var löng mynd um lögfræð-
ing sem hyggst sanna að Lee Harv-
ey Oswald hafí ekki verið einn að
verki þegar hann réð Kennedy af
dögum. Kevin Kostner þurfti að
flytja endalausa ræðu í sögulok.
Kostner hefur þröngt túlkunarsvið
og leikur hans í þessum erfíða
lokakafla var fyrir neðan allar hell-
ur. Stone teygði lopann og lýsti fjöl-
skyldulífi söguhetjunnar. Nokkrir
ágætir leikarar í aukahlutverki
gátu lífgað upp á myndina.
Oliver Stone er mergjaður og að-
sópsmikill sögumaður. Hins vegar
verður að teljast nokkuð óvíst hvort
leikstjórinn er í stakk búinn að ger-
ast sagnaritari fjöldans. Myndir
hans minna stundum á sovéskar
áróðursmyndir frá þriðja áratugn-
um. Ekkert er undanskilið í samtöl-
um. Leikarar kalla skilaboð höf-
undar hám raust. Boðskapurinn er
endurtekinn sí og æ.
Ef að er gáð kemur fram í Liðs-
sveitinni að Akkillesarhæll Stones
er þunglamalegur frásagnarstfll.
Þótt Liðssveitin væri oflofuð hafði
Stone gengið með handritið bón-
leiður manna á milli árum saman.
Áhorfendur hiifust af einlægni leik-
stjórans. Ýmislegt má finna Stone
til foráttu. Þó fer ekki á milli mála
að honum liggur ætíð mikið á
hjarta.
Myndin hlaut Oskarsverðlaun
sem besta mynd ársins. Stone var
sæmdur sömu verðlaunum fyrir
leikstjórn sína.
Kauphöllin (Wall Street) segir
frá kaupahéðnum í New York borg.
Myndin er að hluta til sjálfsævi-
söguleg þar sem faðir Stones
fékkst við slíkt. Stone hélt askvað-
andi inn í kauphöllina og hratt um
borðum vtxlaranna og stólum
MYNDIN Fæddir morðingjar olli
iniklum deilum og reynt var að
gera Stone ábyrgan fyrir svoköll-
uðum „eftirhermumorðum“.
NÝJASTA mynd Stone „U-Turn“ verður frumsýnd hérlendis á næstunni
en meðal Ieikara eru Claire Danes, Joaquin Phoenix og Sean Penn.
dúfnasalanna. Maðurinn sem áður
gerði glæpa- og skylmingamyndir
var farinn að prédika og orðinn
samviska þjóðar sinnar.
Þjóðarsálin í beinni útsendingu
(Talk Radio) er með skári-i mál-
efnamyndum sem Stone hefur gert.
Ræður ef til vill miklu um að mynd-
in er kammerverk. Greinir þar frá
bersöglum útvarpsmanni og litiTk-
um hlustendum. Stone leyfir hér
kímnigáfunni að njóta sín á ný. I
beinni útsendingu fékk nánast enga
aðsókn.
Myndin Fæddur fjórða júlí (Born
on the Fourth of July) var óþarfur
eftirmáli við Liðssveitina. Himinn
og jörð (Heaven and Earth) var síð-
asti kapítulinn í þessum þrfleik um
Víetnamstríðið. Ef til vill á Ví-
etnambálkur Stones brýnna erindi
við Ameríkumenn en aðra. Þótt
yrkisefnið sé vissulega hrikalegt
hættir höfundi til að miðla sárri
reynslu sinni með offorsi. Þessar
myndir er þrungnar ungæðislegi’i
angist. Rithöfundurinn Henry Da-
vid Thoreau hélt því fram að að
þorri manna lifði í þögulli örvænt-
ingu. Reynslusaga Stones risti því
eflaust dýpra ef hann kynni að
greina frá á lágu nótunum í stað
þess að berja sér á brjóst.
Myndir leikstjórans eru of ein-
strengingslegar. Stone fjallar um
þörf málefni. Aftur á móti eru efn-
istök hans oft svo klunnaleg að göf-
ug skilaboð höfundar verða hálf-
kjánaleg fyrir bragðið. Því hátíð-
legri sem frásagnarstfll Stones
verður, þeim mun erfiðara reynist
að taka hann alvarlega.
I myndinni Doors segir frá sam-
nefndri hljómsveit og söngvaranum
Jim Momson. Sá lést langt fyrir
aldur fram úr ólifnaði. Morrison er
orðinn píslarvottur líkt og allar
söguhetjur í myndum Stones. Höf-
undur gerir því skóna að flugu-
menn CIA hafi ráðið Morrison
bana. Leikstjórinn sér héðan í frá
samsærismann á hverju strái.
Fæddir morðingar
Stone lætur sér ekki allt fyrir
brjósti brenna og hefur sýnt svo að
um munar að hann er óragur að
takast á við hvaða viðfangsefni sem
er. Næsta mynd hans dró heldur
betur dilk á eftir sér. Skilaboð
Stones eru skrifuð skýrum stöfum í
hverju einasta atriði í Fæddum
morðingjum (Natural Born Kill-
ers). Þar sem niðurstaða hans er
helst til einfeldningsleg er fullmikið
af hinu góða að minna áhorfandann
á fagnaðarerindið við hvert fótmál.
Leikstjórinn sótti efnistök sín í
myndinni í tónlistai-myndbönd.
Þetta söguform ber þolinmæði
áhorfandans ofurliði þótt Stone
grípi til þessa stflbragðs í háði. Var
mjög fundið að því hve blóði drifin
myndin var. Nokkrir morðingjar
héldu því fram að sagan hefði blásið
sér kjark í brjóst. Stone væri hinn
eiginlegi sökudólgur. Gleymdist al-
farið í þessu írafári að skamma Sto-
ne fyrir hve drepleiðinleg og yfir-
drifin þessi mynd er. Illmenni á
borð við Norman Bates í Vitfirr-
ingnum (Psycho) og Hannibal
háskólabíó
fhe Big Lebowski ★ ★★
Coenbræður eni engum líkir. Nýja
n>yndin er á köflum meinfyndin og kol-
Seggjuð en nær ekki að fylgja eftir
jneistaraverkinu Fargo. Leikararnir
hver öðrum betri í sundurlausri frá-
sögn af lúðum i Los Angeles.
®dá/far ★★★
Virkilega skemmtileg barna- og fjöl-
skyldumynd, sem hægt er að mæla
með fyrir alla aldursflokka.
^ hættumörkum ★★
Cæmileg spennumynd sem tekur
stundum á taugarnar en er ekki sér-
lega áhugaverð.
Ufmitt íbleiku ★★★
Lítil og nett mjmd sem tekur á stórum
málum einsog hræsni og þröngsýni.
°S óvenjuleg þar sem hún gengur út
frá því að sumir séu ekki af réttu kyni
samkvæmt umbúðunum. Til umhugs-
unar fyrir afhommara og almenning.
Undur vel leikin og sérstök.
Kundun ★★■/í
Laglega gerð kvikmynd um ævi 14.
Lalai Lama sem er frekar leikin heim-
fldarmynd en bíómynd.
F
Wag the Dog ★★Vá
Sniðug og vel til fundin kvikmynd sem
hefur ýmislegt til síns máls, en hand-
ritið er ekki nógu beitt.
Bíóstjarnan Húgó ★★%
Sagan mætti vera skemmtilegri, en
Húgó er sætur og bönium finnst hann
fyndinn.
Titanic ★★★‘A
Mynd sem á eftir að verða sígild sök-
um mikilfengleika, vandaðra vinnu-
bragða í stóru sem smáu og virðingar
fyrir umfjöllunarefninu. Falleg ástar-
saga og ótrúlega vel unnin endurgerð
eins hrikalegasta sjóslyss veraldarsög-
unnar.
Stikkfrí ★★,/2
Islensk gaman- og spennumynd þar
sem þrjár barnungar leikkonur bera
með sóma hita og þunga dagsins og
reyna að koma skikk á misgjörðir for-
eldranna.
KRINGLUBÍÓ
Mr. Magoo ★
Ófyndin mynd, 20 árum of seint á ferð-
inni. Leslie Nielsen lyftir henni ekki
upp, er leiðinlegur Mr. Magoo.
Litla hafmeyjan ★★★‘/2
Falleg og fyndin kvikmynd þar sem
töfrar ævintýrisins blómstra að fullu.
Skjóttu eða vertu skotinn ★★‘/z
Stíllinn er á hreinu í þessari mynd.
Töff kvikmyndataka og leikur, en sag-
an, sem fjallar um leigumorðingja og
hefnd, mætti vera frumlegri.
Flubber ★★
Dáðlítil, einsbrandara gamanmynd um
viðutan prófessor og tölvufigúrur.
Robin Williams hefur úr litlu að moða.
Ágæt skemmtun fyrir smáfólkið.
LAUGARÁSBÍÓ
Hoodlum *Va
Klisjuverk út í gegn, þar sem svipljótir
gangsterar takast á á götum Harlem.
Allir fyrir einn ★★
Ævintýramynd í stíl gullaldarmynda
Hollywood. Vænlegt þrjúbíó en ekki
mikið meira.
Það gerist ekki betra ★★★1/2
Jack Nicholson í sallafínu formi sem
mannhatari, rithöfundur og geðsjúk-
lingur sem tekur ekki inn töflurnar
sínar - fyrr en gengilbeinan Helen
Hunt, homminn Greg Kinnear og tfldn
vekja upp í honum ærlegar tilfinning-
ar. Rómantískai- gamanmyndir
Lechter í Lömbin þagna (The Sil-
ence of the Lambs) heilla áhorfend-
ur á vissan hátt, þó ekki í návígi.
Bob og Malory í mynd Stones
hljóta hins vegar að vera leiðinleg-
ustu fjöldamorðingjar í manna
minnum.
Stone valdur að morði?
Reyfarahöfundurinn John Gris-
ham, sem mörgum þykir góður,
réðst harkalega á Stone í blaðagrein.
Rakti hann hannsögu tveggja ung-
linga. Drengurinn myrti góðan vin
Grishams en stúlkan örkumlaði af-
greiðslukonu. Kváðust þau hafa
framið þetta ódæði eftir að þau sáu
Fædda morðingja. Grisham skellti
skuldinni á Stone. Lét hann í veðri
vaka að skötuhjúin hefðu komist á
glapstigu vegna þess eins að þau
slysuðust til að sjá myndina. Trúi
þeir sem trúa vilja. Grisham hvatti
aðstandendur fórnarlambanna í
greinarlok til að höfða skaðabótamál
gegn leikstjóranum. Þess ber að
geta að morð í sögum Grishams eru
afar snyrtileg, nánast sársaukalaus
að því er virðist. Engum sögum fer
af þátttöku Grishams í Víetnam eða
öðru sti-íði. Stone svaraði Grisham
sem von var fullum hálsi.
Ur predikunarstól
í dómarasæti
Myndin Nixon var mjög í anda
JFK. Rangfærslur Stones eru
engu líkar. Stone túlkaði valdatíð
Nixons eins og skrattinn les biblí-
una. Fjölskylda Nixons mótmælti
því hvernig leikstjórinn hélt á mál-
um og sagði hinn látna ekki hafa
notið sannmælis. Stone bar við
skáldaleyfi. Þetta hlýtur að teljast
nokkuð vafasöm málsvörn í ljósi
þess að Stone fjallar um mann sem
er honum ekki fjarlægur í tíma og
rúmi.
Stone er djarfur leikstjóri. Hann
ræðst ekki á garðinn þar sem hann
er lægstur heldur tekur hverja
áhættu á fætur annarri. Oliver
Stone hefur reynt meira en margur
kvikmyndamaður. Hann er meðal
fáira núlifandi leikstjóra sem barist
hafa í stríði. Ofstopamaðurinn
Stone er að sama skapi ekki eins
gagnsýrður af myndum annarra
höfunda og margh- starfsbræður
hans á sama reki. Myndir Stones
eru persónlegar en höfða þó til
fjöldans. Þessi magnaði sögumaður
þarf að læra að segja frá án reiði og
ofurkapps.
Eitt verður þó að segjast sem er
þessum gamla stríðsmanni til máls-
bóta. Þótt hann fari misvel með
flókið -og vandasamt efni geta
áhorfendur einatt tekið viljann fyr-
ir verkið og hrifist af sannfæringu
hans.
Stone hefur í bili látið af þeim
ósið að halda reiðilestur yfir áhorf-
endum. Var löngu tími til kominn.
Nýjasta mynd Stones, U-Beygjan,
(U-Tui-n) er spennumynd. Hann er
þvi kominn á gamlar slóðir og hér
nýtur hann sín best.
Jónas Knútsson
GREINAKLIPPUR
RUNNAKLIPPUR
TRJÁKLIPPUR
ÞÓR HF
Reykjavík - Akureyrl
Reykjavik: Armúla 11 -Sími 568-1500
Akureyri: Lónsbakka -Sími 461-1070
Sigga
Beinteins og
Grétar
Örvarsson.
mai
Hljómsveitin
Sangria
maí
Hljómsveitin
Sangria
REYK AVIK
sigga
Beinteins
og
Grétar
Örvarsson
skemmta
í kvöld.
Hljómsveitin
Karma
10 m
mai
Rut og Birgir
II m
mai
Rut og Birgir
12m
ítiai
Eyjóifur
Kristjánsson
Glæsilegur salatbar
og súpa í hádeginu
alla daga á aðeins
kr. 890
7AFFI
REYMAVIK
HEITASTI
STAÐURINN
í BÆNUM