Morgunblaðið - 05.05.1998, Blaðsíða 72

Morgunblaðið - 05.05.1998, Blaðsíða 72
-72 ÞRIÐJUDAGUR 5. MAÍ 1998 MORGUNBLAÐIÐ FÓLK í FRÉTTUM „ÞESSI mynd er í sérstöku uppáhaldi hjá mér en liún er tekin á Þróttarvellinum. Ég vann hana aðeins og tdk út það sem var á bak við strákinn. Þetta er vinur litla bróður mins, sem ég borgaði tíu krónur fyrir að stilla sér upp.“ „ÞETTA er uppi í sveit. Afi átti sumarbústað og við fórum alltaf með honum þangað þegar við vorum yngri. Ég fékk hann til að fara þangað fyrir skömmu og sitja fyrir á mynd. Við fundum nokkrar beljur þarna og stilltum honum upp með fótanuddtækið." Úr myndaalbúmi Ijósmyndara Ungur en margverðlaun- aður áhugaljósmyndari Morgunblaðið/Golli BALDUR Kristjánsson er 15 ára áhugaljós- myndari sem vann átta af níu mögulegum verð- launum í ljósmynda- keppni grunnskóla, sem -haldin var fyrir skömmu. „Eg hef aðeins lesið mér til um ljósmyndun og pabbi hefur kennt mér eitthvað en hann er áhugaljósmyndari og var á tímabili með myrkra- herbergi heima. Ég hef aðstöðu í félagsheimilinu Þróttheimum og það var starfsmaður þar sem kenndi mér að fram- kalla,“ sagði Baldur um fyrstu skref sín sem ljós- myndara. „Ég vann nokkur „verðlaun í keppninni í fyrra og það hvatti mig til að halda áfram. Ég hef mestan áhuga á svarthvítum myndum og hef Iítið notað litfílmur. Mér fínnst í raun gaman að mynda allt mögulegt en reyni þó að hafa BALDUR Knstjánsson í gegnum linsu Golla ljósmyndara. einhverja persónu eða dýr inni á myndinni. Annars fer ég bara út þegar birtan er góð og hjóla um bæinn. Ef ég sé eitt- hvað áhugavert þá mynda ég það.“ Baldur segist hafa fengið mjög jákvæð viðbrögð við myndunum sínum og segir starfsmenn Þrótt- heima hafa gert allt sem þeir geta til að bæta að- stöðuna. „Ég reyni að fylgjast svolítið með því sem atvinnuljósmyndar- ar eru að gera. Það þarf bara að skoða Moggann og þá sér maður fullt af flottum myndum, til dæmis eftir Raxa. Það væri mjög skemmtileg- ast að ferðast, um erlend- is og taka myndaseríur eins og hann gerir. Það væri líka gaman að fara í skóla erlendis og leggja ljósmyndun fyrir sig í framtíðinni. Ég ætla þó að klára menntaskóla áður. Draumurinn er að lifa af ljós- myndun en ég held ég vilji ekki verða fréttaljósmyndari. List- rænar myndir höfða meira til nn'n. Best væri að vinna sjálf- stætt og fá að ráða því hvað maður rnyndar." Morgunblaðið/Baldur Kristjánsson „MÉR finnst svartur og hvítur mjög skemmtilegar andstæður og reyni mikið að ná þeim fram. Þetta er litli bróðir minn, sem ég myndaði í fyrrasumar. Hann er ekkert alltof hress með að stilla sér upp og fara út með mér þegar ég fæ einhverja hugdettu en ef ég borga honum smáræði fyrir lætur hann oftast undan.“ „Hjólabrettastrák- urinn er vinur minn sem ég myndaði síðasta sumar. Ég tók bara eina mynd í þetta skipti en ég keypti mér mótor- drif í fyrra og þá fór ég að taka fleiri myndir / einu.“ „ÞETTA eru bróðir minn og vinir hans í heita pottinum í garðinum. Ég stillti þeim ekkert sérstaklega upp og það var mjög gaman að ná rétta augnablikinu.“ „GAMLI maðurinn sat á bekk í Laugardalnum þegar ég kom auga á liaiin. Ég spurði hann ekkert hvort ég mætti taka mynd en mér var sagt að hann héti Eggert og væri listamaður. Hann sá mig en ég spyr fólk yfirleitt ekki um leyfi til að mynda það.“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.