Morgunblaðið - 27.04.1999, Page 1
93. TBL. 87. ÁRG.
ÞRIÐJUDAGUR 27. APRÍL 1999 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Fjármálaráðherrar G-7 ríkjanna funda
Blásið verði lífí
í efnahag1 Japans
og Evrópuríkja
Reuters
Washington. Reuters.
BANDARIKJASTJORN þiýsti í
gær á stjórnvöld í Japan og Evr-
ópuríkjunum að blása lífí í efnahag
sinn en fjármálaráðherrar sjö
helstu iðnríkja heims, hinna
svokölluðu G-7 ríkja, hittust í gær í
Washington til að ræða um stöðu
efnahagsmála í heiminum. I yfirlýs-
ingu fundarins var tekið undir kröf-
ur Bandaríkjamanna og jafnframt
staðhæft að efnahagsvandinn, sem
hófst með hruninu í Asíu fyrir
tveimur árum, væri i rénun.
Mikill hagvöxtur í Bandaríkjun-
um hefur tryggt viðunandi stöðu
efnahagsmála í heiminum undan-
farin misseri en Lawrence Sum-
mers, aðstoðarfjármálaráðherra
Bandaríkjanna, sagði íyrir fundinn
í gær að Bandaríkjamenn gætu
ekki til lengdar haldið efnahag
heimsins á floti, Japanir og Evr-
ópumenn yrðu að leggja sín lóð á
vogarskálarnar og reyna að auka
hagvöxt í ríkjum sínum. Fulltrúar
Evrópuríkjanna kváðust hins vegar
vera að gera allt sem í þeirra valdi
stæði til að auka hagvöxt og full-
yrtu að staða mála í Evrópu væri
alls ekki eins slæm og af væri látið.
Embættismenn Alþjóðagjaldeyr-
issjóðsins (IMF) og Alþjóðabank-
ans höfðu á sunnudag sagt að svo
virtist sem fjármálakreppunni í
heiminum væri að ljúka en spáðu
því að félagslegra afleiðinga hennar
myndi gæta næstu árin.
Betri andi á fundi IMF
en fyrir hálfu ári
Michel Camdessus, fram-
kvæmdastjóri Alþjóðagjaldeyris-
sjóðsins, sagði á blaðamannafundi í
tilefni af vorfundi IMF og Alþjóða-
bankans í Washington að það
myndi taka langan tíma að bæta
lífskjör þeirra sem fjármálakrepp-
an hefur einkum bitnað á.
Andinn á fundinum var mun
betri en fyrir hálfu ári þegar svo
virtist sem ekkert lát yrði á út-
breiðslu fjármálakreppunnar sem
hófst í Asíu sumarið 1997. Sérfræð-
ingar IMF, sem höfðu varað við
hættunni á heimskreppu, spá því
nú að hagvöxturinn í heiminum
aukist verulega á næsta ári.
Peter Stephens, embættismaður
hjá Alþjóðabankanum, sagði að
hættan á efnahagshruni í heiminum
væri afstaðin en kreppunni væri
ekki lokið að því er varðar lífskjara-
skerðinguna sem hún hefur valdið í
mörgum löndum.
Aðstoðarutanríkisráðherra Bandaríkjanna til viðræðna við rússneska ráðamenn
NATO segir vaxandi sund-
urlyndi ríkja í Belgrad
Bjargar
Connery
þjóðern-
issinnum?
„SKOTLAND á að Standa jafn-
fætis öllum öðrum þjóðum í
heiminum," sagði skoski leikar-
inn Sean Connery í ræðu sem
hann hélt f gær á fundi Skoska
þjóðarflokksins (SNP) í Edin-
borg í gær og hvatti Connery
skoskan almenning til að greiða
SNP atkvæði sitt í kosningum til
nýs heimastjórnarþings, en þær
fara fram 6. maí næstkomandi.
Connery er síðasta hálmstrá
þjóðernissinna í SNP, sem berst
fyrir sjálfstæði Skotlands, því
skoðanakönnun, sem birt var í
gær, sýndi að maðurinn sem
varð frægur fyrir túlkun sína á
James Bond yrði að vinna
kraftaverk ætti SNP að takast
að saxa á forskot Verkamanna-
flokksins. Skoðanakönnun The
Scotsman sýndi að Verka-
mannaflokkurinn hefur átján
prósenta forskot á SNP og er
einungis hársbreidd frá því að
tryggja sér hreinan þingmeiri-
hluta, hefur 47% fylgi á meðan
SNP hefur aðeins 29%. Fylgi
flokkanna var svipað fyrir að-
eins tveimur mánuðum og segja
fréttaskýrendur að fylgistap
SNP valdi því að Alex Salmond,
leiðtogi flokksins, sé orðinn
valtur í sessi.
Bann við
hvalveiðum
framlengl?
Óslcí. Reuters.
ALLAR líkur eru á því að Al-
þjóða hvalveiðiráðið (IWC)
íramlengi bann við hvalveiðum
á fundi sínum í næsta mánuði
þrátt fyrir minnkandi andstöðu
við veiðar Norðmanna og
Japana, að sögn norskra stjórn-
arerindreka. „Ég held ekki að
við munum ná sáttum um að
veiðar verði leyfðar á fundi okk-
ar nú í ár,“ sagði Halvard Jo-
hansen, fulltrúi Noregs í IWC, í
Ósló í gær. Ársfundur IWC fer
fram á Grenada 24.-29. maí.
Johansen sagði að norsk
stjórnvöld sæju merki um að
fleiri og fleiri þjóðir, sem aðild
eiga að IWC, væru að sættast á
þau rök hvalveiðimanna að
hrefnustofninn sé nægilega
stór til að hefja megi veiðar að
nýju. En hann bætti við að
stórþjóðir eins og Bandaríkin
væru enn mótfallnar veiðunum.
Skopje, London, Belgrad. Reutere, AP.
FLOTTAFÓLK hélt í gær áfram að
streyma frá Kosovo á meðan Atl-
antshafsbandalagið (NATO) herti
enn sóknina gegn stjórnvöldum í
Belgrad og gerði nýjar tilraunir til
að draga úr hættu á beinum átökum
við Rússa vegna aðgerðanna í Júgó-
slavíu. A sama tíma tók júgóslav-
neska stjórnarandstaðan að gagn-
rýna stefnu stjórnvalda og fulltrúar
NATO sögðu að vaxandi sundur-
lyndi einkenndi samskipti ráða-
manna í Belgrad. Seint í gærkvöld
bárust síðan fregnir um að loftárás-
ir NATO á skotmörk í Júgóslavíu
væru hafnar á ný.
Fjölmiðlar í Makedóníu sögðu í
gær að von væri á allt að þrjátíu
þúsund flóttamönnum frá Kosovo til
viðbótar á næstu dögum. Kiro
Gligorov, forseti Makedóníu, sakaði
Evrópuþjóðir um að hafa ekki stað-
ið við gefín loforð um að taka við
flóttafólki og Zanko Cado, efna-
hagsmálaráðheira Makedóníu,
sagði af sér í gærkvöldi, m.a. vegna
þess ástands sem myndast hefur í
landinu vegna fjölda flóttafólks.
Tanjug-fréttastofan júgóslavneska
hélt því fram að a.m.k. sautján
manns, þ.á m. ellefu mánaða gamalt
bam, hefðu fallið í loftárásum
NATO sem eyðilögðu brú yfir Dóná
við borgina Novi Sad í gærmorgun.
Á sama tíma lýsti NATO því yfir að
herskip þess myndu ekki beita valdi
í þeirri viðleitni bandalagsins að
koma í veg fyrir olíuflutninga til Jú-
góslavíu. Virtist þessi yfirlýsing
draga úr líkum á átökum við Rússa
sem hafa sagt að þeir muni ekki
hætta olíuflutningum til slavneskra
bandamanna sinna á Balkanskaga.
Strobe Talbott, aðstoðarutanrík-
isráðherra Bandaríkjanna, kom í
gærkvöld til Moskvu til viðræðna
við rússneska ráðamenn um ástand-
ið í Kosovo. Fyrr um daginn hafði
Viktor Tsjernómýrdin, ráðgjafi
Moskvustjómar í málefnum
Balkanskaga, látið hafa eftir sér að
Rússar hefðu nýjar hugmyndir
fram að færa í málinu.
Vuk Draskovic harðorður
Bresk stjórnvöld sögðu að engar
áætlanir væru uppi um að gera alls-
herjar innrás í Kosovo og Tony
Blair forsætisráðherra sagði land-
hernað gegn Serbum varasaman
nema búið væri að draga verulega
úr hemaðarmætti þeirra. Á hinn
bóginn ítrekaði Blair að allir kostir,
þ.m.t. landhernaður, væm enn uppi
á borðinu, Milosevic hefði ekki
neitunarvald á aðgerðir NATO.
Stjómarandstaðan í Júgóslavíu
hefur ekki haft sig mikið í frammi
undanfarna mánuði en fulltrúar
hennar lýstu sig í gær sammála
málflutningi Vuks Draskovics, að-
stoðarforsætisráðherra Júgóslavíu.
Draskovic sagði í samtali við þýska
sjónvarpsstöð í gærkvöld að e.t.v.
væri óhjákvæmilegt að hersveitir
NATO kæmu til Kosovo til að
standa vörð um frið í héraðinu.
Draskovic, sem var áður leiðtogi
stjórnarandstöðunnar í Belgrad en
gekk til liðs við stjóm Milosevics
fyrr á þessu ári, sakaði tiltekna
stjórnmálaleiðtoga í Belgrad um að
ljúga að þjóð sinni um framgang
mála í stríðinu við NATO. Stað-
reyndin væri sú að Serbar gætu
ekki unnið sigur á NATO, eins og
stjórnvöld hafa fullyrt í þarlendum
fjölmiðlum, og að engar líkur væru
á að Rússar myndu veita Serbum
hjálparhönd. Sögðu fulltrúar NATO
að ummæh Draskovics væm vís-
bending um að glufur væm farnar
að myndast í samstöðu æðstu valda-
manna í Belgrad.
■ Sjá umfjölhiu bls. 28-30
Vinsæl sjón-
varpskona
myrt í London
London. Reutere.
BRESKA sjónvarpskonan Jill
Dando, sem unnið hafði um árabil
hjá BBC, var myrt í gær fyrir fram-
an heimili sitt í Vestur-London.
Morðið vakti sterk viðbrögð í Bret-
landi enda Dando meðal þekktari
andlita á sjónvarpsskjánum.
Lík Dando
fannst á tröppum
íbúðarhúsnæðis
hennar í Fulham-
hverfi London um
hádegisbil í gær og
hafði hún verið
barin ítrekað í höf-
uðið. Áverkar
Dando vora svo
slæmir að það tók
lögreglu dágóðan tíma að kveða úr
um að hún hefði látist af völdum
byssukúlu í höfuðið. Ódæðismaðui--
inn var enn ófundinn og lögregla gat
lítið fullyrt um ástæður morðsins en
Sky-sjónvarpsstöðin sagði í gær-
kvöldi að lögregla teldi ýmislegt
benda til að atvinnumorðingi hefði
hér verið á ferð. Vitni höfðu séð
mann á fimmtugsaldri yfirgefa
morðstaðinn og er hans nú leitað.
Dando var þrjátíu og sjö ára göm-
ul og á hátindi frægðar sinnar í
breskum fjölmiðlaheimi. Hún hafði
m.a. verið einn helsti fréttalesari
BBC, kynnt mánaðarlega sjónvarps-
þætti, „Crimewatch“, um óleyst
glæpaverk, séð um vinsæla ferða-
þætti og í síðustu viku prýddi hún
forsíðu nýjasta tölublaðs vikuritsins
Radio Times.
Jill Dando