Morgunblaðið - 27.04.1999, Síða 4

Morgunblaðið - 27.04.1999, Síða 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 27. APRÍL 1999 MORGUNB LAÐIÐ FRÉTTIR Norðurál tekur formlega til starfa Hugað að stækkun NORÐURÁL tók formlega til starfa á laugardaginn og var tíma- mótunum sérstaklega fagnað á svæði fyrirtækisins á Grundartanga í glampandi sólskini, þar sem saman voru komnir starfsmenn fyrirtækis- ins og fjölskyldur þeirra sem og aðrir gestir. Eftir ræðuhöld, þar sem m.a. kom fram að fyrirhugað væri að stækka álverið strax á næsta ári, var boðið upp á skoðun- arferðir um álverið. „Það má segja að það sé sól í Hvalfirði nú,“ sagði Ingibjörg Pálmadóttir heilbrigðisráðherra, um leið og hún óskaði forystumönn- um Norðuráls til hamingju með daginn. Framkvæmdir gengu vel Að sögn Ragnars Guðmundsson- ar, framkvæmdastjóra fjármála- og stjórnunarsviðs, gekk bygging ál- versins í meginatriðum mjög vel. Hann sagði að álið sem verið væri að framleiða nú væri allt af þeim gæðastuðli sem álverið hefði sett sér í upphafí. Þá sagði hann að framleiðslan hefði öll verið seld fyr- irfram til tólf ára, þannig að í fyrir- tækinu væri ekki starfandi nein söludeild. Ragnar sagði að álverð væri reyndar lágt um þessar mund- ir, eða um 1.300 dollarar fyrir tonn- ið, en verðið hefur farið í 2.800 doll- ara tonnið. Á svæði fyrirtækisins var reist stórt hvítt tjald en inni í tjaldinu fóru ræðuhöldin fram. Kenneth D. Peterson Jr., forstjóri Columbia Ventures Corporation, eigandi Norðuráls, hóf ræðu sína með bæn, sem hann fór með á ensku, en í henni þakkaði hann guði almáttug- um fyrir það hversu vel hefði tekist til með framkvæmd álversins. Eftir bænina þakkaði hann íslenskum stjórnvöldum stuðninginn, en hann sagði byggingu og starfsemi álvers- ins, bera vitni um það hversu góðir starfskraftar íslendingar væru, því nú ynni í fyrirtækinu fólk sem aldrei áður hefði komið nálægt ál- vinnslu, en um 150 manns starfa hjá fyrirtækinu. Framleiðslan aukin í 180 þúsund tonn á ári Peterson sagði að fyrirhugað væri að stækka álverið og auka framleiðsluna um helming á næsta ári eða um leið og næg raforka verði tiltæk. Álverið framleiðir nú um 60.000 tonn af áli á ári og notar til þess um 100 megavött af rafmagni, sem samsvarar um 12% af heildar- framleiðslugetu raforku á Islandi. í bæklingi frá fyrirtækinu kemur fram að stefnt sé að því að auka framleiðslugetu álversins í 180.000 tonn á ári og að það verði gert í þremur áföngum. Annar áfanginn var sá sem Peterson talaði um að framkvæmdur yrði á næsta ári, en þar er um að ræða aukningu um 30.000 tonn. Þriðji áfanginn er aukning um 90.000 tonn, en ekki liggur fyrir hvenær ráðist verður í hann. Finnur Ingólfsson iðnaðarráð- herra sagði að það hefði vakið sér- staka athygli hversu hratt og vel hefði verið unnið að framkvæmdum, en hann sagði það staðfestingu á því að vel hefði verið staðið að öllum undirbúningi. Finnur sagði að nú væri sagan rétt að hefjast því framundan væri langur og farsæll tími. Hann sagði að bygging álvers- ins væri ekki bara mikilvæg fyrir Peterson og fyrirtæki hans heldur fyrir íslensku þjóðina alla, því út- flutningstekjur af 60.000 tonnum af áli næmu um 6,8 milljörðum króna, og þá væru beinar og óbeinar tekjur einnig miklar. Friðrik Sophusson, forstjóri Landsvirkjunar, sagðist vonast til þess að landnám Petersons á Is- landi yrði öðrum frumkvöðlum í at- vinnulífi til eftirbreytni. Hann sagði að Islendingar hefðu fundið Banda- ríkin langt á undan Kólumbusi en tekist að týna þeim aftur. Hann sagðist aftur á móti vonast til þess að Peterson myndi ekki týna Is- landi aftur. Gísli Gíslason, bæjarstjóri á Akranesi, óskaði Norðurálsmönnum til hamingju, en bætti því við að svæðið sunnan Skarðsheiðar væri afar eftirsóknarvert og að hann væri viss um að það yrði enn blóm- legra en það væri nú. Fyrsta skóflustungan tekin í mars 1997 Álver Norðuráls, sem er um 50 km frá Reykjavík, hóf starfsemi sína í júní 1998, um 14 mánuðum eftir að fyrstu jarðvinnuvélar komu á staðinn. Það var hins vegar í ágúst árið 1995 að fréttir bárust um að Columbia Ventures Corp. hefði áhuga á að reisa hér álver og tveim- ur mánuðum seinna hófst mat á um- hverfisáhrifum. í febrúar árið 1996 samþykkti skipulagsstjóri ríkisins umhverfis- matið og í mars 1997 gaf umhverfis- VANDSfRÆGT ÚRVAH í-r.OÞID ÚI'.VAIIÞ Á HflíITAÍ*ÍDVJ (^rr.AR, WWW.HI r. I A.lí- sölu VW Polo, ekinn 40.000 km. Nýskráður 24.10.97. 5 dyra, 5 gíra. 15“ álfelgur, spoiler, geislaspilari. Ásett verð kr. 1.150.000. Nánari upplýsingar hjá Bílaþingi Heklu í símum 569 5660 og 569 5500. opnunartími: mánud.- föstud. kl. 9-18, II i icmu i oiimuiii j BÍLAÞING HEKLU N O T A Ð I R B I L A R laugardagar kl. 12-16 LAUGAVEGI 174 • SÍMl 569 5660 • FAX 669 5662 Nokkur hundruð tölvur óstarfhæfar TÖLVUVEIRAN W32/CIH.1003 olli talsverðum usla í gær þegar tugir tölvunotenda urðu fyrir óþægindum af völdum hennar en samkvæmt upplýsingum tölvufyrir- tækja leituðu margir notendur, bæði einkaaðilar og fyrirtæki, til þeirra í gær eftir að tölvur urðu óstarfhæfar. Friðrik Skúlason tölvufræðingur sagði að þeir sem lentu í vandræð- um hafi ekki verið með vírusleitar- forrit. „Miðað við það sem tölvufyr- irtækin hafa sagt þá er ljóst að fjöldi véla nemur einhverjum hund- ruðum,“ sagði hann en að auki bár- ust um fjörutíu fyrirspurnir til hans í gær. „Flestir sem lenda í þessu eru einstaklingar eða minni fyrir- tæki með fáar tölvur. Stóru fyrir- tækin eru vernduð af vírusleitarfor- ritum.“ Jón Kristinn Jensson deildar- stjóri hjá Nýherja sagði að nokkuð hafi verið leitað til þeirra og sér- staklega í gærmorgun áður en menn áttuðu sig á því að kveikja ekki á tölvunum. Nefndi hann sem dæmi að eitt fyrirtæki hafi misst allar tölvur nema fimm af tuttugu. „Þetta hleypur á einhverjum tugum í heildina,“ sagði hann. „Ef vírusinn fer af stað þá er það þannig að í besta falli getum við bjargað öllum gögnum og sett vélina upp aftur og það kostar um 30-40 þús. krónur fyrir hverja vél. Ef gögnin eru ekki merkileg þá er hægt að setja vélina upp frá grunni og það kostar um 10 þús. krónur en síðan getur farið illa og allt farið. Þetta fer allt eftir því hvað viðskiptavinurinn vill.“ Hjá Tæknival fengust þær upp- lýsingar að mikið hefði verið að gera í gær og að fyrirtæki með allt að 30-40 vélar hafi leitað eftir að- stoð og svipaður fjöldi leitaði til Einars J. Skúlasonar hf. STARFSMENN Norðuráls og fjölskyldur þeirra fögnuðu því að álverið skyldi formlega vera tekið til starfa, en boðið var upp á skemmtiatriði, mat, drykk og skoðunarferðir um álverið. Morgunblaðið/Arnaldur KENNETH D. Peterson Jr., forstjóri Columbia Ventures Corp., eiganda Norðuráls, spjallar við Friðrik Sopbusson, forsljóra Landsvirkjunar. ráðuneytið út starfsleyfi til handa álverinu og fyrsta skóflustungan var tekin 29 mars. í ágúst 1998 var fyrsta álið flutt út frá Grundar- tangahöfn og í janúar 1999 var 120. og síðasta kerið tekið í notkun. Norðurál er dótturfyrirtæki bandaríska álfyrirtækisins Col- umbia Ventures Corp., sem rekið er af Kenneth Peterson Jr. Columbia á níu dótturfyrirtæki í álvinnslu víðs vegar um Bandaríkin og Mexíkó, sem fást m.a. við völsun, framleiðslu og endurvinnslu. Sala á tóbaki til 14-15 ára unglinga könnuð í Reykjavík 85 verslanir af 125 leyfðu sölu tóbaks Morgunblaðið/Sverrir REIKNAÐ hefur verið út að grunnskólanemar kaupi tóbak fyrir um 100 milljónir króna árlega. UNGLINGAR á aldrinum 14 og 15 ára gátu keypt tó- bak í 85 verslunum í Reykjavík af 125 sem það var reynt í. Kom þetta fram í athugun á vegum íþrótta- og tómstundaráðs Reykja- víkur, lögreglunnar og Tó- baksvarnanefndar. Sam- kvæmt lögum um tóbaks- varnir má hvorki afhenda né selja tóbak þeim sem yngri eru en 18 ára. Fulltrúar ofangreindra aðila kynntu niðurstöður at- hugunarinnar í gær en hún fór þannig fram að dagana 29. og 30. mars fóru ung- lingar í 125 verslanir ásamt starfsmönnum ÍTR. Fengu unglingarnir leyfi foreldra til að taka þátt í þessu verkefni. Var bæði farið í sölutuma og stærri verslanir. Unglingamir freistuðu þess að fá keypt tóbak og starfsmenn ÍTR fylgdust með. Alls fengu þau af- greiðslu í 85 verslunum af 125, eða 68% þeirra, en neitað var í 40 versl- unum að selja þeim tóbak. Nokkuð misjafnt var eftir hverf- um hvort unglingarnir fengu tóbak og þannig var hæst hlutfall þeirra verslana sem neituðu í Seljahverfi, Bústaðahverfi og í Grafarvogi. I Seljahverfi gátu unglingarnir keypt tóbak í einni verslun af 6 sem voru heimsóttar, í Bústaðahverfi í 5 af 12 sem er 42% og í Grafarvogi fékkst tóbak afgreitt í helmingi verslana sem heimsóttar vom. í vesturbæn- um var hlutfallið 61%, 76% í Breið- holtshverfunum, 79% í Árbæ, 90% í Sundunum og 92% í Hlíðunum. Fram kom á fundinum að í hverf- unum þremur sem unglingum gekk verst að kaupa tóbak hefðu félags- miðstöðvar ÍTR kynnt bannið fyrir verslunareigendum og gert sam- bærilega könnun áður. Soffía Páls- dóttir og Gísli Árni Eggertsson, hjá ÍTR, segja að í framhaldi af könn- uninni fái þessir verslunareigendur sent bréf, þeir sem ekki seldu unglingunum tóbak fá viðurkenningu en hinir verða upplýstir um þessi ákvæði tóbaksvarnalaganna en samkvæmt þeim er refsi- vert að afhenda eða selja unglingum yngri en 18 ára tóbak. Eftirlit í molum Þorgrímur Þráinsson, framkvæmdastjóri Tóbaks- vamanefndar, segir ljóst að eftirlit með lögunum sé í molum. Það sé á vegum heil- brigðiseftirlits sveitarfélag- anna og segir hann erfitt að reka forvamir ef eftirlit vanti með því að lögunum sé framfylgt. Hann segist sjá það ráð til úrbóta í þessum efnum að tóbakssala verði háð leyfum eða færð inn í lyfja- búðir úr þvi ekki sé hægt að treysta almennum verslunum til þess. Þor- grímur benti á að samkvæmt könn- unum á reykingum grunnskólanema væri ljóst að þeir keyptu tóbak fyrir um 100 milljónir króna á ári. Samkvæmt síðustu könnun hér- aðslækna landsins og Krabbameins- félagsins reyktu 7,8% 12 til 16 ára grunnskólanema daglega árið 1998 en árið 1994 voru það 7,2%, en kannanir þessar fara fram á fjög- urra ára fresti.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.