Morgunblaðið - 27.04.1999, Síða 12

Morgunblaðið - 27.04.1999, Síða 12
12 ÞRIÐJUDAGUR 27. APRÍL 1999 MORGUNBLADIÐ FRÉTTIR Morgunblaðið/Árni Sæberg HALLDÓR Blöndal samgönguráöherra kynnir Umhverfisskýrslu 1998. Honum á hægri hönd er Helgi Hailgrímsson vegamálastjóri. Listamönnum veitt verðlaun fyrir tillögur að gerð vatnspósta Verða settir upp a tjolíornum stoo- um í Reykjavík Umhverf- isskýrsla gefin út SAMGÖNGURÁÐUNEYTIÐ og stofnanir þess, Flugmálastjóm, Vegagerðin, Ferðamálaráð og Sigl- ingastofnun, hafa unnið umhverfis- skýrslu fyrir árið 1998. Þetta er í fyrsta sinn sem slík skýrsla kemur út._ í skýrslunni, sem kynnt var á blaðamannafundi í gær, eru teknar saman upplýsingar um þá umhverf- isþætti sem telja má mælanlega í rekstri stofnana og unnt er að fylgj- ast með frá ári til árs auk þess sem markmið ráðuneytisins um að draga úr útblæstri koltvísýrings eru kynnt. Þá voru kynntir tveir nýir bækling- ar. Til betri vegar fjallar um megin- markmið í vegagerð allt til ársins 2010 og Samgöngur í tölum þar sem er að finna tölfræðilegar upplýsingar um samgöngumálefni. ísland er aðili að rammasamningi Sameinuðu þjóðanna um loftslags- breytingar en ríkisstjórnin sam- þykkti framkvæmdaáætlun í um- hverfismálum í október 1995. Þrátt fyrir að ákvörðun hafi verið tekin um að skrifa ekki undir Kyoto-bókunina að sinni ætlar samgönguráðuneytið að ná sem mestum árangri í að draga úr útblæstri gróðurhúsalofttegunda í samgöngum. Um þriðjungur af heildarlosun koltvísýrings kemur frá samgöngum. Þær aðgerðir sem eru líklegastar til að ná árangri á þessu sviði eru, að mati ráðuneytisins, þær helstar að bæta þjóðvegakerfi lands- ins með því að auka bundið slitlag og stytta vegalengdii- þar sem kostur er, að skipulag samgangna á höfuð- borgarsvæðinu verði bætt sem og al- menningssamgöngur í landinu, bæði í þéttbýli og dreifbýli, að hugað verði að hertum reglum í innflutningi bíla og hugað verði að breyttri skattlagn- ingu bíla. Græn reikningsskil voru höfð að leiðarljósi við gerð umhverfisskýrslu samgönguráðuneytisins. Græn reikningsskil geta verið allt frá því að vera hluti af umfjöllun í árs- skýrslu fyrirtækja upp í sérstakar skýrslur sem eingöngu snúast um markmið, mælingar og árangur í umhverfismálum. Gerð var ein um- hverfisskýrsla fyrir samgönguráðu- neytið og stofnanir þess. Á næsta ári er ráðgert að sjálfstæð skýrsla verði gerð fyrir hverja stofnun. NIÐURSTÖÐUR úr hugmynda- samkeppni um gerð vatnspósta í Reykjavík voi-u kynntar nýlega og höfundum íjögurra verðlauna- tiliagna, sem útfærðar verða frekar, veitt viðurkenning. Dómnefnd, sem skipuð var stjórn Myndhöggvarafélagsins, Vatnsveitu Reykjavíkur og SÍM, mælti með tillögum Kristins E. Hrafnssonar, Þórðar Hall, Önnu Lísu Sigmarsdóttur og Matthews Rohrbachs og Kari Elise Mobeck til frekari útfærslu og fram- kvæmda. Stjórn Vatnsveitu Reykjavíkur ákvað á síðasta ári að efna til hugmyndasamkeppni um gerð vatnspósta í Reykjavík í tilefni af afmæli Vatnsveitunnar, en í ár eru liðin 90 ár síðan vatni var hleypt á dreifikerfi Vatnsveitunn- ar. Alls bárust 138 tillögur að vatnspóstum í hugmyndasam- keppnina og hafði dómnefnd eft- irfarandi að leiðarljósi við val sitt: Heildarlausn frá sjónarmiði . listrænnar sköpunar, hugkvæmni og nýsköpun með tilliti til út- færslu. Þá bar þátttakendum að taka tillit til notagildis fyrir alla notendur, þar með talda fatlaða og börn. Einnig áttu þátttakend- ur að taka tillit til viðhalds vegna mögulegra skemmda og veðrun- ar. Stefnt verður að því að hefja uppsetningu á fyrstu verðlauna- vatnspóstunum í sumar, eftir því hvernig næst að semja við höf- unda tillagnanna, en ætlunin er að setja vatnspóstana upp á fjöl- förnum stöðum í bænum og á göngu- og skokkleiðum Reykvík- inga. Morgunblaðið/Golli TILLAGA Kristins E. Hrafnssonar, sem nefnist Aqua Aqva, byggist á upprúllaðri vatnsslöngu steyptri í brons. Að mati dómnefndar er verkið einfalt, traust og frumlegt. TILLAGA Önnu Lísu Sigmarsdóttur og Matthews Rohrbachs nefnist Vatnsstrók- ur og er vatnspóstsuppistaðan gerð úr þykku gleri. Að mati dómnefndar er verkið útfært á stflhreinan og einfaldan hátt. TILLAGA Þórðar Hall nefnist Nykur og byggist á sívalningsformi sem sneitt er úr þannig að tveir láréttir fletir mynda skál- arnar. Að mati dómnefndar er verkið fall - egt og traust og býður upp á mikla möguleika til fjöldaframleiðslu. TILLAGA Kari Elise Mobeck nefnist Vatnsveita og hvetur að mati dómnefnd- ar til nálgunar og snertingar, er fallegt og gefur möguleika á góðum aðgangi fyr- ir alla notendur. Almenningur fái aðgang að lagagögnum án endurgjalds ALMENNINGUR á að hafa að- gengi að lagagögnum á veraldar- vefnum að mati fimm manna nefndar sem skilað hefur dóms- málaráðherra skýrslu sem rædd var á ríkisstjórnarfundi nýlega. Stefán Eiríksson, lögfræðingur hjá ráðuneytinu, sagði að nefndin hefði farið yfir allt sviðið og skilað tillögum í mörgum liðum. Megin niðurstöðuna sagði hann vera að rétt væri að öll lagaleg gögn ættu að vera aðgengileg almenningi og án endurgjalds. Stefán sagði að stór hluti væri þegar aðgengilegur á Netinu en þó vantaði nokkuð uppá að auðvelt væri að nálgast allt. „Við leggjum til að útbúin verði sérstök heima- síða þar sem tengingar verða í hin ýmsu gögn, svo sem reglugerðar- safn, stjómartíðindi, dóma og ann- að því um líkt,“ sagði Stefán og bætti því við að þá yrði líklega að ráða nokkurs konar ritstjóra til að hafa eftirlit með síðunni. Hann segir fjármuni á fjárlögum þessa árs fyrir þessu og nefndin hafi gert tillögu að skiptingu þess fjár. Morgunblaðið/Arni Sæberg NEMENDUR 8. Þ.R. í Álftamýrarskóla að lokinni afhendingu söfnunaríjárins, ásamt tilveru- og líffræðikennara sínum Fannýju Gunnarsdóttur og Borghildi Fenger, formanni Hringsins. Hringurinn fær kær- komna sumargjöf NEMENDUR í 8. Þ.R. í Álfta- mýrarskóla afhentu Borghildi Fenger, formanni Hringsins, 41 þúsund krónur í gær, sem safn- ast höfðu á íþróttaballi fyrir 5., 6., og 7. bekk skólans hinn 13. apríl siðastliðinn. Söfnunin, sem var verkefni í námsefninu til- verunni, var undirbúin af kost- gæfni um nokkurra vikna skeið og unnu nemendurnir sjálfir að honum í sjálfboðaliðastarfi með því að afla aðfanga hjá fyrir- tækjum og verslunum í hverf- inu. Voru skemmtinefnd, sjoppunefnd og önnur nauðsyn- leg ráð óðara skipuð til að íþróttaballið gengi sem best fyr- ir sig. Að sögn Fannýjar Gunnars- dóttur, tilveru- og líffræðikenn- ara nemendanna, er hefð fyrir því hjá 8. bekk að styðja góð- gerðarstarfsemi með þessum hætti og er það jafnframt liður í námi þeirra en jafnhliða undir- búningi að fjársöfnun sem þess- ari fá nemendur fræðslu um starfsemi viðkomandi samtaka sem ætlunin er að styrkja hveiju sinni. í augum nemendanna var ástæðan fyrir vali Hringsins einföld, en að sögn þeirra sjálfra eru þau umhyggjusöm og langaði til að hjálpa skjól- stæðingum Hringsins með því að Iáta söfnunarféð renna til þangað. Borghildur Fenger, formaður Hringsins, þakkaði kærlega fyr- ir stuðning nemenda 8. Þ.R. og sagði hann kærkomna sumar- gjöf og bætti því við að hún hefði ekki fyrr tekið á móti eins stórri upphæð og þessari.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.