Morgunblaðið - 27.04.1999, Side 16

Morgunblaðið - 27.04.1999, Side 16
16 ÞRIÐJUDAGUR 27. APRÍL 1999 MORGUNBLAÐIÐ LANDIÐ Garðyrkjuskólinn að Reykíum 60 ára LEIKSKÓLABÖRN frá Hveragerði og Þorlákshöfn tóku á móti forsetanum með fánum og söng. Hveragerði - Mikill mannfjöldi heimsótti Garðyrkjuskólann að Reykjum á 60 ára afmæli skól- ans sem haldið var hátíðlegt á sumardaginn fyrsta. í tilefni af þessum tímamótum var haldin fjögurra daga afmælishátíð en henni lauk á sunnudagskvöld. Um 15.000 manns sóttu skól- ann heim þessa daga og voru aðstandendur hátíðarinnar mjög ánægðir með þann fjölda^ sem lagði leið sína til Reykja. Á sýningunni voru nemendur með sölubása, námið við skólann var kynnt og nemendur sýndu af- rakstur námsins og vinnu sinn- ar í húsakynnum skólans. Þá kynntu ýmis fyrirtæki innan „græna geirans" vöru sína og þjónustu. Samstarfssamningur undirritaður Á föstudagsmorgun tóku all- ir nemendur Grunnskólans í Hveragerði þátt í ratleik á Ióð Garðyrkjuskólans sem nemend- ur Garðyrkjuskólans ásamt hópi kennara við Grunnskólann skipulögðu. Fólst leikurinn í því að börnin áttu að Ieysa ýmsar þrautir sem tengdust náttúrunni eða umhverfinu. Þessi leikur markaði upphaf að samvinnu skólanna er nefnist „Græn vinátta", en til þess Um 15.000 manns á af- mælishátíð skólans Morgunblaðið/Aldís Hafsteinsdóttir FORSETI íslands, hr. Ólafur Ragnar Grímsson, spjallar við börn í Hveragerði verkefnis fékk Grunnskólinn í Hveragerði 600 þúsund króna styrk úr Þróunarsjóði. Sunnudaginn 25. apríl var siðan undirritaður samningur um víðtækt samstarf á sviði umhverfísmála á milli Garð- yrkjuskólans, Hveragerðisbæj- ar, Ólfushrepps og nokkurra stofnana í þessum sveitarfélög- um. Samningurinn felur í sér að þessir aðilar skuldbinda sig til að vinna saman að mótun umhverfisstefnu, sértækrar fyrir hvern aðila en með sam- hæfðum markmiðum, í anda Staðardagskrár 21. Sveinn Aðalsteinsson, skóla- stjóri Garðyrkjuskólans, sagð- ist vonast til að þetta átak skil- aði íbúum og starfsmönnum þessara stofnana betra um- hverfí og styrkti enn frekar ímynd svæðisins sem grænnar miðstöðvar á landsvísu. Hápunktur afmælishátíðar- innar var heimsókn forseta fs- lands, hr. Ólafs Ragnars Gríms- sonar, á föstudeginum. Hópur Ieikskólabarna bæði frá Hvera- gerði og Þorlákshöfn tók á móti forsetanum og sungu börnin tvö lög fyrir hann. Að því loknu flutti forsetinn ávarp og skoðaði síðan Garðyrkju- skólann og þá starfsemi sem þar fer fram. Morgunblaðið/Guðrún Vala Elísdóttir ÞÁTTTAKENDUR endurmenntunarnámskeiðsins. Skólastjórar á endurmenntun- arnámskeiðum Eyja- og Miklaholtshreppi - Skólastjórar og aðstoðarskóla- stjórar í grunnskólum Vestur- lands hafa verið á endurmennt- unarnámskeiðum í vetur. Nám- skeiðin eru skipulögð í samvinnu Skólastjórafélags og skólaskrif- stofu Vesturlands. Björn Þráinn Þórðarson, starfsmaður skóla- skrifstofunnar, og Flemming Jessen, skólastjóri Varmalands- skóla, hafa haft yfirumsjón með verkefninu. Skólastjórar hafa hist einu sinni í mánuði ásamt fyrirlesur- um. Tekin hafa verið fyrir mál- efni af ýmsum toga, svo sem stefnumótun og áætlanagerð, stefna í upplýsingatækni, stjórn- unarstíll, skólaþróun, gæða- stjórnun, sjálfsmat skóla o.fl. Námskeiðin hafa verið haldin til skiptis hjá þeim bæjar- og sveit- arfélögum sem að skólunum standa. í síðustu viku var það Snæfellsbær sem hélt námskeið á Langaholti í Staðarsveit og síðasta námskeiðið verður á Varmalandi um miðjan maímán- uð. Morgunblaðið/Hafdís Bogadóttir STEFÁN Gunnarsson og Brynjólfur Reynisson voru ánægðir með ár- angur vinnslu á líparíti úr Hamarsfirði. Samningur upp á um 130 milljónir króna undirritaður við Borgarverk hf. Lagning dreifíkerfis í Stykkis- hólmi tekur aðeins sjö mánuði Stykkishólmi - Gengið hefur verið frá samningi á milli Stykkishólms- bæjar fyrir hönd væntanlegrar hitaveitu í Stykkishólmi og Borg- arverks hf. í Borgamesi um lagn- ingu dreifikerfis um bæinn. Það voru Olafur Hilmar Sverrisson bæjarstjóri og Sigvaldi Arason sem skrifuðu undir. I samningnum kemur fram að Borgarverk tekur að sér að leggja allt dreifikerfið um bæinn á aðeins sjö mánuðum og er greiðsla fyrir það verk um 127 milljónir króna. Dreifikerflð var boðið út í þremur verkhlutum vegna þess hve skammur tími var ætlaður til verksins. Borgarverk hf. átti lang- lægsta tilboð í alla þættina og ætl- ar sér að standa við sitt tilboð. Það kom fram hjá Sigvalda Arasyni að hann hefði ekki reikn- að með að eiga lægsta tilboð í alla þrjá áfangana, en fyrst svo varð væri ekki um annað að ræða en að bretta upp ermamar. Hann segist hefja framkvæmdir í byrjun næsta mánaðar. Það þurfi að hinkra aðeins við meðan frost er að minnka í jörðu. Hann segir að hér sé um miklar framkvæmdir að ræða og til þess þurfi mikinn mannskap. Mikið umrót verður í bænum á meðan á framkvæmdum stendur, en það er bót í máli hve verktíminn er stuttur. Sigvaldi segir að dreifikerfið eigi að verða rekstrarhæft í byrjun desember á þessu ári en frágengið í júní á næsta ári. Morgunblaðið/Gunnlaugur Árnason SIGVALÐI Arason hjá Borgarverki hf. í Borgarnesi og Olafur Hilmar Sverrisson bæjarstjóri skrifa undir samning um lagningu dreifikerfís hitaveitu í Stykkishólmi. Nýir mögu- leikar í vinnslu? Djúpavogi - Steinsmiðja Sigurðar Helgasonar í Kópavogi, hefur undanfarið unnið við sögun og vinnslu á lípraítgrjóti, til klæðn- ingar á sendiráðinu í Berlín, sem ísland á aðild að. Er grjótið tekið úr skriðum, rétt innan við Rauðuskriðu á Djúpavogi. Stefán Gunnarsson hefur unnið við töku líparítsins í skriðunum. Hann segir mjög erfitt að ná því, þar sem klettur ^ sá sem tekið er úr, sé lengst inni í hömrunum. Segir Stefán efnið ekki auðfáanlegt. Áður höfðu 60-70 tonn verið flutt til vinnslu en vegna eftirspurnar fóru nú 17 tonn til viðbótar. „Það sýnir sig að það er eftir- spurn eftir þessu. Þessi tegund þykir mjög falleg á lit og þegar grjótið hefur verið sagað koma hinir ýmsu litir í ljós, s.s. rauðir og gulir. Það stendur til að reyna að ná meiru og hefur komið til tals að klæða Dómkirkjuna með þessu efni,“ sagði Stefán Gunn- arsson á Djúpavogi.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.