Morgunblaðið - 27.04.1999, Síða 30

Morgunblaðið - 27.04.1999, Síða 30
30 ÞRIÐJUDAGUR 27. APRÍL 1999 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT Reynt að einangra her- sveitir Serba í Kosovo Reuters BANDARÍSKUR hermaður stendur vörðinn við Apache-árásarþyrlu á flugvellinum í Tirana, höfuðborg Alb- aníu. Á sunnudag bættust fleiri slíkar þyrlur við flugflota NATO á Balkanskaga. Þyrlurnar eru taldar geta aukið árásargetu NATO til muna. ARASIRNAR Belgrad, Brussel. Reuters, AP. TALSMENN Atlantshafsbandalags- ins (NATO) tilkynntu í gær að í loft- árásum bandalagsins, aðfaranótt mánudags, hefði síðasta brúin yfir Dóná við borgina Novi Sad, aðra stærstu borg Júgóslavíu, verið eyðilögð. Árásir bandalagsins beindust ennfremur að flugvöllum nærri Pristina, héraðshöfustað Kosovo, auk þjóðvega, lestarspora og samskiptastöðva. Sögðu talsmenn bandalagsins að Kosovo-hérað væri orðið mjög einangrað frá Serbíu og að Slobodan Milosevic Júgóslavíuforseti væri að tapa og að hann vissi af þvi. Brúin við Novi Sad er talin vera mjög mikilvæg þar sem hergögn hafa verið flutt um hana til Kosovo. Þrjár brýr tengja Novi Sad, sem stendur við norðurbakka Dónár, við Serbíu, sunn- an megin árinnar. Loftárásum NATO hafði áður verið beint að brúnum með þeim afleiðingum að tvær þeirra voru eyðilagðar en sú þriðja, 466 metra löng lestarbrú, enn nothæf. Eftir árásir gærdagsins er talið að komist hafi verið fyrii- nær allar samgöngur milli borgai'innar, sem er höfuðstaður Vojvodina-héraðs, og Belgrad. Ákveðið að stöðva ohuflutninga til Serbíu Þá hefur linnulausum loftárásum verið beint að skriðdrekum, herflutn- ingabílum, og stórskotaliðsvögnum júgóslavneska hersins í Kosovo, síð- ustu sólarhringa. Olíubirgðastöð nærri Valjevo, suðaustur af Belgrad, var eyðilögð og lýstu talsmenn NATO því yfir að verið væri að „skrúfa fyrir“ möguleika stjómvalda í Belgrad að sjá hersveitum sínum íyrir eldsneyti. Wesley Clark, æðsti yfirmaður her- deilda NATO, er nú talin leita allra leiða til að stöðva birgðaflutninga júgóslavneska hersins til Kosovo-hér- aðs. Talið er að árangurs verði ekki lengi að vænta þar sem á hátíðarfundi NATO í Washington um helgina var ákveðið að stöðva oh'uflutninga til Jú- góslavíu um Svartfjallaland sem ligg- ur að Adríahafi. Þrátt fyrir umfangsmiklar loftárás- ir um helgina var ekki ráðist á eins mörg skotmörk og ráðgert hafði verið. Slæm veðurskilyrði settu strik í reikn- inginn. „Skilyrði til loftárása eru ekki ákjósanleg,“ var haft eftir einum tals- manna NATO í Brussel í gær og sagði hann veðrið hafa hindrað aðgerðir að nokkru leyti. í gær var beðið eftir liðsauka breska hersins sem koma átti til Skopje í Makedóníu eftir að stjóm- völd þar í landi höfðu samþykkt opin- berlega aukinn liðsafnað NÁTO-hers- ins í landinu. Talið er að um 1.800 breskir hermenn séu á leiðinni til Ma- kedóníu og að þeim fylgi 12 Challen- ger-skriðdrekar og 40 Warrior bryn- varðir árásarvagnar. George Robert- son, vamarmálaráðherra Bretlands, sem hélt blaðamannafund í Lundún- um í gær eftir að hafa snúið írá Was- hington, sagði að ekki væri verið að undirbúa landhemað, og dró þar með nokkuð úr herskáum yfirlýsingum breskra stjómvalda frá liðinni viku. Sagði Robertson að verið væri að end- urskoða áætlanii’ um innrás í Kosovo sem væri skynsamlegt, í ljósi breyttr- ar stöðu á Balkanskaga. Alþjóðlegir aðilar fylgist með olíuviðskiptum Svartfellinga Áætlunum NATO um að stöðva ol- íuinnflutning til Serbíu um Svari> fjallaland hefur verið mætt af ríkis- stjóm Svartfellinga sem hafa lýst því yfir að alþjóðlegii’ aðilar fái leyfi til að hafa eftirlit með oh'uviðskiptum í höfn- um landsins. Er talið að Svartfellingar óttist að olíusölubann kunni að valda óstöðugleika í landinu og ýta þannig undir valdaránstilraunir stjómarinnai’ í Belgrad. Hafa háttsettir menn í stjóm Svartfjallalands viðurkennt að olíuskip hafi lagst að bryggju við borgina Bai’, en að eingöngu sé um ol- íu að ræða sem ætluð sé Svartfelling- um, ekki Serbum. Filip Vujanovic, forsætisráðheira landsins, hefur lýst því yfir að eftirlitsaðilamir geti stýrt viðtöku og dreifingu olíu í landinu. Innan NATO hafa mismunandi hugmyndir verið uppi um á hvem hátt olíubanni verði framfylgt. Frönsk stjómvöld hafa sagt að valdbeiting við leit um borð í skipum sé ekki æskileg. Bandaríkjamenn hafa hins vegar lýst því yfir að öllum beri að gangast undir bannið, einnig Rússum. Peking Fjölmenn- ustu mót- mæli í áratug Peking. Reuters, AP. YFIR 10.000 af meðlimum Fa Lun Gong sértrúasafnaðarins söfnuðust saman við höfuð- stöðvar stjórnvalda í Peking í Kína á sunnudag til að krefjast þess að yfirvöld viðurkenndu trú þeirra, en kínversk stjórn- völd hafa löngum haft horn í síðu sértrúarsöfnuða. Mótmæl- in era þau fjölmennustu í kín- versku höfuðborginni frá því að námsmenn mótmæltu á Torgi hins himneska friðar árið 1989. Meðlimir Fa Lun Gong, sem flestir eru miðaldra og eldri borgarar, kröfðust þess að fá að hitta Zhu Rongji forsætis- ráðherra og ræða við hann um réttindi sín. Auk þess að vilja fá trú sína viðurkennda kröfð- ust þeir þess að ríkisreknir fjölmiðlar hættu að fjalla nei- kvætt um starfsemi trúarhópa og sértrúarsöfnuða. Meðlimir Fa Lun Gong í Kína eru sagðir vera um 100 milljónir. Sögðu skipuleggjendur mót- mælanna að ríkisstjómin hefði seint á sunnudag samþykkt að hefja viðræður við þá. Talsmenn iTkisstjómarinnar vora hins vegar loðnii’ í tilsvörum um það hvort að af viðræðunum yrði. Ríkisstjórnin boðaði til fund- ar í gær og að sögn talsmanns hennar ákváðu ráðamenn að „láta sem mótmælin hefðu ekki átt sér stað“. Undimót mótmælanna á sunnudag var grein sem birt var í tímariti í borginni Tianjin, þar sem varað var við þeim hættum sem stöfuðu af sértrú- arsöfnuðum í Kína. í kjölfarið efndi lítill hópur Fa Lun Gong meðlima til mótmæla í Tianjin í sl. viku sem endaði með því að tólf þeirra voru handteknir. N aglasprengjur kynda undir kynþáttastríði AP BRAK bifreiðar sem eyðilagðist þegar sprengja sprakk á Brick Lane í austurhluta London á laugardag. London. Morgnnblaöiö. BREZKA lögreglan hefur gripið til sérstakra aðgerða um land allt í kjöl- far tveggja naglasprengna, sem sprangu í hverfum blökkumanna og Bengala í London og eru taldar tfi- raunir öfgasamtaka tfi þess að kynda undir kynþáttastríði. Mest athygli beinist nú að samtökum, sem kalla sig „Hvítu úlfana“ og hafa sent hót- anir í garð blökkumanna, fólks af ásískum uppruna og gyðinga. Sprengjan á laugardaginn sprakk á Brick Lane í austurhluta London réttri viku eftir að naglasprengja sprakk í Brixton í suðurhluta borg- arinnar. Þá særðust 49 manns og eru ijórir þeirra enn í sjúkrahúsi. Nú á laugardaginn særðust sex manns af völdum glerbrota, en í Brixton særð- ist fólk líka fila af völdum nagla. Talsvert eignatjón varð í báðum sprengingunum. Ibúar Brixton era að stærstum hluta blökkumenn en Brick Lane er þar sem kallað er „Banglatown“, en þar eru íbúarnir flestir Bengalar og er þetta sögð þeirra stærsta byggð utan Bangladesh. Eins og í fyrra skiptið var sprengjan skilin eftir í íþróttatösku við fjölfarna verzlunar- götu og eins og í fyrra skiptið kom vegfarandi töskunni þannig fyrir, að minna tjón varð af en ella. Maðurinn, sem fann töskuna við Brick Lane, hugðist fara með hana á lögreglu- stöðina, sem reyndist lokuð. Þá ákvað hann að setja hana í skottið á bílnum sínum meðan hann færi og hringdi í neyðamúmerið. Sprengjan sprakk á meðan. Eins og í fyn-a skiptið var hringt í lögregluna eftir sprenginguna, nú tveimur stundum síðar en um fyrri helgi leið á annan sólarhring, og henni lýst á hendur hægri öfgasamtakanna Combat 18. Lögreglan tók þó þeirri fullyrðingu strax með fyrirvara og beindi athygl- inni einnig að öðram þekktum sam- tökum slíkum. Og nú beinist athyglin aðallega að samtökum, sem nefna sig „Hvítu úlfana“, en þau hafa sent talsmönnum þjóðemishópa og þing- mönnum hótunarbréf, þar sem m.a segir, að allt þeldökkt fólk og gyð- ingar eigi að verða á brott úr London fyrir aldamótin. Talið er að „Hvítu úlfamir" geti verið fámennur hópur, sem hafi tekið sig út úr Combat 18. Þessar sprengjur koma ofan í um- ræður um kynþáttahatur í Bretlandi, í brezkum stofnunum, skólum og í röðum lögreglunnar, sem hafa krist- allast í opinberri skýrslu um Lawrence-málið. Stephen Lawrence var blökkupfitur, sem var stunginn til bana í London fyrir sex árum. Margt þykir benda til að hópur hvitra pilta, sem þekktur er að kyn- þáttahatri og ofbeldi, hafi orðið hon- um að bana, en allur málatfibúnaður á hendur piltunum fimm virðist hafa ónýtzt, fyrst og fremst vegna slæ- legrar frammistöðu lögreglunnar. Foreldrar Stephen Lawrence hafa allan tímann haldið uppi gagnrýni á rannsókn lögreglunnar, sem hafi stjórnast af kynþáttahatri, og í síð- ustu viku bárust fréttir af því, að lög- reglan hefði boðið þeim sátt með peningagreiðslu, sem sagt er eins- dæmi. Foreldrarnir hafa nú höfðað einkamál, skaðabótmál, gegn piltun- um fjórum og líka lögreglunni. Eftir að Lawrence-málið komst aftur í hámæli nú í ársbyrjun hefur árásum og öðrum glæpum, sem rekja má til kynþáttahaturs, fjölgað í Bretlandi og nú hafa mál færzt á nýtt stig með naglasprengjunum í Brixton og Brick Lane. Brezka lögreglan hefur gripið til ýmissa ráðstafana vegna rannsókna sprenginga síðustu helga. Þær hafa verið fordæmdar af fjölda manns með forsætisráðherrann í farar- broddi og Jack Straw innanríkisráð- herra hefur sagt að ekkert verði til sparað til þess að koma upp um hryðjuverkamennina. Straw sagði á breska þinginu í gær að litið yrði á árásir af þessu tagi sem árásir á sam- félagið í heild og að ekki slíkt ofbeldi og kynþáttahatur yrði ekki liðið. Meðan ekki hefur tekist að hafa uppi á tilræðismönnunum búa menn sig undir hugsanlegt framhald og þá ekki aðeins í London, heldur og í öðrum borgum, þar sem stórir þjóð- ernisminnihlutar búa.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.