Morgunblaðið - 27.04.1999, Page 33
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
ÞRIÐJUDAGUR 27. APRÍL 1999 33
Þýski Ríkisdagurinn vígður að nýju eftir endurbyggingu
Berlínarlýðveldinu
hleypt af stokkunum
Síðastliðinn mánudag
kom þýska þingið form-
lega saman í húsakynn-
um gömlu Reichstag-
byggingarinnar í
Berlín. Innan um hálf-
kláraðar byggingar
hins nýja stjórnsýslu-
hverfis við ána Spree
geislar sögufrægt húsið
á ný af glæsileik og
minnir helst á furðu-
verk í ævintýralandi.
Rósa Erlingsdóttir,
fréttaritari 1 Berlín,
skoðaði meistaraverk
arkitektsins Sir
Norman Fosters og
fylgdist með stemmn-
ingunni í borginni.
GESTIR ganga um glerhvelfinguna á þaki Reichstag-byggingarinnar í Berlín.
Reuters
Reuters
ÖRNINN er hangir í þingsal Reichstag-byggingarinnar
er 6,8 metra hár og vegur 8,5 tonn.
í RÚMA öld hefur Reichstag-bygg-
ingin, sem vígð var 1894, á einn eða
annan hátt verið mitt í hringiðu
þýskrar sögu. í ræðu Gerhard
Schröders, kanslara Þýskalands,
sagði hann þinghúsið nú vera tákn
um óhagganlega sameiningu Þýska-
lands. Að hið svokallaða „Berlínar-
lýðveldi" öðlaðist við vígslu þess
tánkræna merkingu.
Ríkisdagurinn mun hýsa löggjaf-
ai-valdið sem samkvæmt stjórnar-
skránni er hjarta sameinaðs Þýska-
lands. Af þeim byggingum sem óð-
um eru að rísa, og koma til með að
hýsa starfsemi þýskrar stjómsýslu
og erindreka utanríkisráðuneyta
annarra landa, mun engin endur-
spegla sviptingar í sögu Þýskalands
á sama hátt og nýja þinghúsið gerir.
Tákn kalla engu að síður á spurn-
ingar sem er erfitt að svara. Þing-
húsið í Berlín á sér mikla sögu.
Meira en helming ára sinna þjónaði
það ekki megintilgangi sínum. Eftir
íkveikju nasista og sprengingar
bandamanna var húsinu púslað
saman á sjöunda áratugnum og stóð
um áratugabil svo til ónotað. I huga
borgarbúa stóð húsið, sem reist var
í anda vilhelmískrar byggingarlist-
ar, sem tákn um myrkustu tíma
þýskrar sögu. Það minnir á lýðræð-
islega kosin þing sem á einn eða
annan hátt reyndust óhæf til að
ryðja þýskri sögu farsæla braut.
Það táknar fall prússneska keisara-
dæmisins í fyrri heimsstyrjöldinni
og skammarleg endalok Weimar-
lýðveldisins með valdatöku Adolf
Hitlers. En hann var aldrei meðlim-
ur „Ríkisdagsins" og áhangendur
hans voru í raun jaðarhópur í
stjórnmálum allt til valdatökunnar í
júlí 1932, sem þá tvíefldist í skjóli
nætur. En eins og hinn merki þýski
sagnfræðingur og blaðamaður Wolf
Jobst Siedler sagði í tilefni vígsl-
unnar var það ekki þingið sem réð
niðurlögum Ríkisdagsins heldur
skarinn á götunni. Og ef draga má
lærdóm af sögu Ríkisdagsins er
hann sá að styrkja á hlutverk og
áhrif þingsins.
Rústir, Christo og Foster
Á tímum kalda stríðsins stóð Rík-
isdagurinn, yfirgefinn og fjarri
skarkala stjórnmála lýðveldisins í
Bonn, gegnt Brandenburger-hliðinu
á eins konar eyðilandi. Og þó svo að
hann tengist minningum sem þýsku
þjóðarsálinni mun seint takast að
vinna bug á var húsið einnig tákn
um von Berlínarbúa sitthvorum
megin múrsins um sameiningu
landsins. Hefði múrinn ekki fallið
og vonir fólksins orðið að engu væri
Reichstag núna að öllum líkindum
safn eða áminning um svokallaða
sjálfskapaða óhamingju þýsku þjóð-
arinnar.
Síðustu ár hefur Reichstag-bygg-
ingin verið viðfangsefni hinna
heimsfrægu arkitekta Christo og
Sir Norman Foster. Ái-ið 1995 huldi
Christo þessa klossuðu byggingu og
hjálpaði henni, að eigin sögn, að rísa
úr rústum eigin sögu á táknrænan
hátt. Bretinn Sir Norman Foster
gerir enn betur fyrir tilstilli nútíma
formgerðar og snilld pólitískrar
byggingarlistai' með því að fela
þýska lýðræðið í hendur bygging-
unni. Endurnýjun og breyting húss-
ins kostuðu þýska skattgreiðendur
um 23 milljarða ísl. kr. Meginað-
dráttarafl byggingarinnar er gler-
hvelfingin á þaki hennar, en í gegn-
um hana berst sólarljósið inn í
þingsalinn sem er fyrir miðju hús-
inu. Hvelfinguna ber 800 tonna stál-
grind en á henni liggja glerplötur,
sem eru samtals 3.000 fermetrar. I
henni eru útsýnispallar, veitingahús
og hringlaga gangstígar sem liggja
meðfram útveggjunum og gera al-
menningi kleift að stíga á þak húss-
ins, njóta stórkostlegs útsýnis yfir
borgina og síðast en ekki síst að
fylgjast með störfum þingsins í ná-
vígi.
A þann hátt á hvelfingin að vera
táknræn fyrir gegnsæi lýðræðis-
legra stjórnarhátta hins sameinaða
Þýskalands. Örninn er hangir í
þingsalnum hefur þyngst og stækk-
að ískyggilega við flutninginn en
stærðaraukningin á að tákna aukið
vægi Þjóðverja í alþjóðamálum eftir
sameininguna. Ljóst er að fiutning-
ur þingsins til Berlínar hefur mikla
og sérstæða þýðingu en samfélags-
leg umræða snýst þessa dagana
einna helst um hvort nú sé að hefj-
ast nýr kafli í þýskri stjórnmála-
sögu. Þjóðverjar þrá einna helst
eðlilegt ástand og eru alteknir af
þeirri ósk að mega taka þátt í al-
þjóðasamstarfi jafnrétthárra þjóða
á jafnréttisgrundvelli án þess að
þurfa stöðugt að vera minntir á
ófyrirgefanlegar syndir fyn'verandi
valdhafa landsins.
Við vígsluna varð stjórnmála-
mönnum tíðrætt um hlutverk Þjóð-
verja í Kosovo-deilunni. En flestir
virðast á einu máli um mikilvægi
þess að Þýskaland segi skilið við
skugga fortíðarinnar og landinu
beri skylda til að sýna stærð sína og
styrk í alþjóðasamstarfi með þátt-
töku í aðgerðum NATO. Ekki sé
lengur æskilegt að skýla sér á bak
við sameiginlega sekt þjóðarinnar í
síðari heimsstyrjöld. Þýskaland er,
hvort sem það vill eður ei, aftur eitt
helsta forysturíki Evrópu og það
gefur upphafi „Berlínarlýðveldis-
ins“ óneitanlega táknrænt gildi.
Þingið mun hefja starfsemi sína í
Ríkisdeginum með haustinu. Þegar
horft er yftr svæðið umhverfis
bygginguna verður manni ljóst að
Berlínarlýðveldið mun hefja göngu
sína á risavaxinni byggingarlóð.
Ráðgert er að flytja ráðuneyti og
aðrar skrifstofur stjórnsýslunnar í
sumar til Berlínar, en enn er langt í
land að þessar byggingar verði til-
búnar undir starfsemina. Fréttarit-
ari náði tali af þingmönnum sem
skoðuðu bygginguna um leið og
blaðamenn og innti þá eftir skoðun-
um þeirra um þessa. sögufrægu
flutninga. Flestir voru djúpt snortn-
ir af glæsilegum arkitektúr, nútíma-
legum listaverkum, látlausum en
virðulegum þingsalnum, en brostu
jafnframt kankvísir og bentu á
moldugan skófatnað sinn. Einn
þeirra spurði starfsmann hússins
hvar hann næði í leigubíl en sá svar-
aði um hæl: Ég veit það ekki, ég
kom í dag frá Bonn.
Þinghúsið opið
almenningi
Tveimur dögum eftir vígslu Rík-
isdagsins er húsið nú opið_ almenn-
ingi fram yfir helgi. Á hverri
klukkustund streyma um 3.300
manns (skv. Berliner Zeitung) inn í
bygginguna, en um 25.000 manns
fórna dag hvern að meðaltali um
þremur klukkustundum í biðröð.
Tákn borgarinnar er Berlínar-
bjöi-ninn en margir segja hann hafa
legið í dvala í næstum hálfa öld.
Borgin sé nú loks að lifna við og
muni að nýju endurheimta sess sinn
sem ein mikilvægasta menningar-
og listaborg Evrópu. Mikil aukning
er á straumi ferðamanna til Berlín-
ar, en í ár er búist við allt að einni
milljón manna. I Berlín gerast í
hverri viku stórmerkilegir atburðir,
andlit hennar breytist dag frá degi
og ber merki þessa sögulega at-
burðar; að ráðast í flutninga á
stjómsýslu heils lands frá einni
borg til annarrar.
Grátt
gaman yf-
ir Atlants-
hafínu
London. Reuters.
TALIÐ er að farþegi hafi átt
sök á því að skelfing gi'eip um
sig meðal næstum fjögur
hundruð flugfarþega sem voru
á leið frá San Francsisco til
London með breska flugfélag-
inu British Airways síðastlið-
inn laugardag. Þegar flugvélin
var komin hálfa vegu yfir Atl-
antshafið tók einhver sig til og
setti af stað segulbandsupp-
töku, sem geymd er á vísum
stað í vélinni, þar sem farþeg-
um er tjáð að vélin sé um það
bil að reyna nauðlendingu á
Atlantshafinu. Mikil skelfing
greip um sig meðal farþega áð-
ur en áhöfn vélarinnar áréttaði
að öllu væri óhætt og að segul-
bandsupptakan hefði farið af
stað fyrir mistök. Tveir aldrað-
ir farþegar þurftu engu að síð-
ur á aðstoð læknis að halda
vegna áfallsins.
Talsmaður flugfélagsins
sagði að eftir ítarlega rann-
sókn væri það skoðun British
Airways að tæknileg mistök
hefðu ekki átt sér stað heldur
hefði einhver farþeganna vís-
vitandi sett segulbandsupptök-
una af stað. Farþegar hafa
þegar verið beðnir afsökunar
en ekki er enn ljóst hvort Brit-
ish Airways mun þurfa að
greiða farþegum skaðabætur
vegna atburðarins.
Kína hugs-
anlega aðili
að WTO í
nóvember
Shanghæ, Peking. Reuters.
KÍNASTJÓRN hefur átt í samn-
ingaviðræðum við ríkisstjórn
Bandaríkjanna sl. vikur um hugsan-
lega inngöngu Kína í Heimsvið-
skiptastofnunina (WTO). Kínverjar
hafa hins vegar ekki þótt uppfylla
kröfur um inngöngu til þessa, en í
ljósi verulegra umskipta í efnahags-
stjórnun og á sviði viðskipta við út-
lönd, hefur landið verið tahð á góðri
leið með að ná takmarki sínu. Nú
hefur framkvæmdarstjóri WTO
gengið skrefinu lengra um hugsan-
lega aðild Kína, en hann lét þau orð
falla að innganga Kína gæti orðið að
veruleika strax á þessu ári.
Renato Ruggiero, fi’amkvæmdai'-
stjóri WTO, sagði í samtali við
International Herald Tribune á
mánudag, að sér þætti líklegt að
Kína yi-ði aðili að stofnuninni í nóv-
ember á þessu ári, en þá hefst næsta
umferð viðræðna um viðskipti á sviði
landbúnaðar, þjónustu og raftækni.
Hefur Kínastjórn sagst muna af-
nema allar viðskiptahömlur sem nú
eru á Kínamarkað fyrir 1. janúai’
2003, hafi samningar nástrið Banda-
líkjastjórn um inngöngu Kína.
Áð sögn stjórnarerindreka innan
ESB, mun sir Leon Brittan, sem fer
með riðskiptamál í framkvæmdar-
stjórn Evrópusambandsins, halda
til Peking þann 5. maí næstkomandi
í tveggja daga heimsókn þar sem
hann mun tilkynna samkomulag,
sem vonast er til að náist nú á
næstu dögum og greiða á Kína leið
inn í WTO. Fulltrúar Evrópusam-
bandsins (ESB) hófu í gær riðræð-
ur við ríkisstjóm Kína um aðild
landsins að WTO.
1 heimsókn Zhu til Bandaríkj-
anna fyrr í mánuðinum kom í ljós
andstaða bandaríska þingsins við
inngöngu Kína í WTO og er sú and-
staða talin hafa haft mikil áhrif á út-
komu riðræðna Zhu við Bill Clinton,
forseta Bandaríkjanna.