Morgunblaðið - 27.04.1999, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
ÞRIÐJUDAGUR 27. APRÍL 1999 35
Leikfélag Blönduóss
Morgunblaðið/Jón Sigurðsson
ATRIÐI úr leikritinu Betri er þjöfur í húsi en snurða á þræði sem sýnt er á Blönduósi.
Betri er þjófur í húsi
en snurða á þræði
Blönduósi. Morgunblaðið.
LEIKFÉLAG Blönduóss frum-
sýndi um helgina leikritið Betri
er þjófur í liúsi en snurða á
þræði eftir Nóbelsskáldið Dario
Fo í félag'sheimilinu á Blönduósi.
Húsfyllir var á frumsýningu og
var leikurum og leikstjóra for-
kunnarvel tekið að leik loknum.
Fyrirhugað er að sýna leikverkið
á Húnavöku sem nú stendur yfir
og eru næstu sýningar á mið-
vikudag og föstudag.
Sex leikarar fara með hlutvek í
þessu leikriti. Þjófinn leikur Egill
Pálsson og konu hans leikur
Ragna Peta Hámundardóttir. Með
önnur hlutverk fara þau Björa
Baldursson, Kristín Guðjónsdótt-
ir, Sigrún Björk Cortes og Sigfús
Heiðar Árdal Jóhannsson. Leik-
stjórin er borinn og barnfæddur
Vatnsdælingur Bjarni Ingvarsson
og hannaði hann jafnframt leik-
mynd og lýsingu. Þetta leikverk
Darios Fos er einþáttungur og
kjósa leikfélagar að kalla þessa
uppfærslu kaffileikhús því leikrit-
ið er sýnt í danssal félagsheimilis-
ins og er boðið upp á veitingar
fyrir og eftir sýningu. Eins og
fyrr greinir standa sýningar yfir
á meðan Húnavakan stendur en
rétt er að vekja athygli á því að
leiksýningin sem fyrirhuguð er á
föstudaginn kemur verður mið-
nætursýning.
Stolið, stælt og skrumskælt
KVIKMYJVÐIR
It e g n b o g i n n
„THE FACULTY" ★★
Leikstjóri: Robert Rodrigues. Hand-
rit: David Weeher og Bruce Kimmel.
Aðalhlutverk: Robert Patrick, Salma
Hayek, Famke Janssen, Bebe
Neuwirth, Laura Harris og Josh
Harrett. Dimension Films 1998.
í GAMANHROLLVEKJUNNI
„The Faculty", sem á að höfða sér-
staklega til unglinga nú þegar síð-
ara skeið unglingahrollvekjanna
stendur með blóma, er stolið, stælt
og skrumskælt flest það sem áður
hefur verið gert í hrollvekjunni en
einkum sótt í Innrás líkamsþjóf-
anna, sem reyndar kemur fram í
myndinni að var stolin frá „The
Puppetmasters" Roberts
Heinleins. Því er það tekið fram
sérstaklega að höfundar myndar-
innar vita nokkuð nákvæmlega
hvaðan þeir taka klisjurnar. Þeim
tekst ekki að vinna með þær á sér-
lega frumlegan hátt en myndin
nær þó flestum markmiðum sínum
enda ekki hátt stefnt í byrjun.
Kennarar í menntaskóla fara að
haga sér jafnvel undarlegar en oft
áður þegar verur utan úr geimnum
Listahátíð í Reykjavík
Harpa Björnsdóttir
ráðin framkvæmdastjóri
HARPA Björnsdótt-
ir myndlistarmaður
hefur verið ráðin fram-
kvæmdastjóri Listahá-
tíðar í Reykjavík.
Harpa tekur við starf-
inu af Signýju Pálsdótt-
ur, sem ráðin var
menningarstjóri
Reykjavíkurborgar
fyrr í vor.
Harpa hefur á undan-
fómum árum unnið
mikið að því að skipu-
leggja menningarstarf,.
listsýningar og
leiksmiðjur auk þess
sem hún bar höfuðá-
byrgð á menningamóttum Reykja-
víkur undanfarin tvö ár. í fréttatil-
kynningu frá framkvæmdastjóm
Listahátíðar kemur fram að Harpa
hefur störf hinn 1. maí en um tíma-
bundna ráðningu er að ræða fram í
október á næsta ári.
Ástæðan er sú að eftir
Listahátíð í Reykjavík
árið 2000 tekur gildi
nýtt skipurit fyrir há-
tíðina, ráðinn verður
listrænn stjórnandi í
fullt starf, nýr fram-
kvæmdastjóri ráðinn og
stjórn hátíðarinnar
verður kosin með öðr-
um hætti en nú er.
Hlutverk framkvæmda-
stjórans samkvæmt nú-
gildandi skipulagi er að
sinna daglegum rekstri
hátíðarinnar, bera
ábyrgð á fjárreiðum og
bókhaldi, annast samningagerð o.þ.h.
Listræn stefnumörkun er í höndum
formanns framkvæmdastjómar og
framkvæmdastjómai- í heild. Núver-
andi formaður framkvæmdastjórnar
er Sveinn Einarsson.
Harpa Björnsdóttir
taka sér bólfestu í þeim og smátt og
smátt dreifast geimverurnar um
skólann þar til aðeins er eftir lítill
hópur vandræðagemsa, sem reynir
að finna aðferð til þess að koma í
veg fyrir að heimurinn allur verði
undirlagður af skrítnum kennumm.
I hópi vandræðagemsanna eru allar
þessar venjulegu unglingahroll-
vekjutýpur og með mjög reglulegu
millibili hefst eltingarleikur um
skólagangana og skólasvæðið og
loks dregur að hápunktinum þegar
drottning geimaflanna sýnir sig.
Öllu því stjórnar Robert Rodrigues
með auga fyrir alvörulausri, svartri
kómedíu.
Leikhópurinn stendur sig með
prýði og veit nokk hvernig kaupin
gerast á eyrinni í mynd sem þess-
ari. Handritið eftir David Wecher
og Bruce Kimmel er skrifað þannig
að þeir geta brugðið aðeins á leik
með klisjurnar og enginn notfærir
sér það betur en Robert Patric, er
minnir á bræðing af Ray Liotta og
vélmenninu sem hann sjálfur lék í
Tortímandanum 2.
Fyrir unglingana er „The Facul-
ty“ hin bærilegasta skemmtun.
Arnaldur Indriðason
Heldur þú að
Viagra sé uóg ?
NATEN
- er nóg!
c
LIMGERÐISKLIPPUR
íslenskir garðyrkjumenn
nota Tanaka klippur
Ekki svo einfalt
KVIKMYMPIR
Laugarásbíó
THE CORRUPTOR
★★%
Leikstjóri: James Foley. Handrit: Ro-
bert Pucci. Leikarar: Chow Yun-Fat
og Mark Wahlberg. New Line
Cinema 1998.
KÍNVERSKI leikstjórinn John
Woo hefur haft víðtæk áhrif í hasar-
myndaheimi Hollywood. Hvíta lögg-
an, sem áður átti sér gjaman svartan
félaga, hefur nú skipt yfir í Kínverja.
I þessari mynd era það tvær ólíkar
hasarstjömur sem skína í þeim hlut-
verkum. Chow Yun-Fat, sem kominn
er alla leið frá Kína til sýna taktana
sem heilluðu margmilljónaþjóðina
upp úr skónum, og Mark Wahlberg,
rísandi kvikmyndastjama sem m.a
gerði það gott í grínhasarmyndinni
„The Big Hit“. Mark leikur unga
áhugasama löggu með óljósan bak-
grunn, sem er fluttur á stöð í Kína-
hverfi Nýju Jórvíkur til að aðstoða
þar aðallögguna, Chow Yun-Fat, að
ráða þar niðurlögum spillingarinnar.
Útlit myndarinnar er í hrárra
lagi; lítil lýsing og þar af leiðandi
gróf áferð filmu, og það gefur
myndinni vissan raunveruleikablæ.
Ég er lítt kunnug á þessum slóðum,
en þykir ekki ólíklegt að myndin sé
nokkuð raunsæ og gefi góða mynd
af andrúmslofti og lögmálum þessa
sérstæða hverfis þar sem spillingin
er hvarvetna, og af örlögum fá-
tækra Kínverja sem koma til lands-
ins í leit að betra lífi.
Framan af reynist The Corruptor
dæmigerð hasarmynd, ekki frum-
legri en miðlungsgóður þáttur í lög-
regluþáttaröð í sjónvarpinu. Mér
fannst myndin mest spennandi þeg-
ar Mark Wahlberg birtist á skján-
um með einungis handklæði um sig
miðjan. Sú ánægjustund var þó að
vissu leyti tregablandin því hann
hefur enn bætt á sig vöðvum og er
orðinn of bústinn, þykir mér.
En þegar líða tekur á myndina
tekur hún óvæntan kipp og verður
vægast sagt mun áhugaverðari. Sið-
ferðisspurningar vakna í spillingar-
málum þar sem mannleg gildi og
væntingar setja strik í reikninginn.
Vondi karlinn er ekki bara alvondur
og sá góði algóður, heldur getur lín-
an þar á milli verið næstum ósýni-
leg á stundum.
Handritið að The Corruptor hefði
mátt vera þéttara í fyrri hálfleik og
það hefði orðið áhrifaríkt að gefa
meiri innsýn í líf kínverksu innflytj-
endanna. Samtölin eru oft klisju-
kennd þegar að karlahúmorsatrið-
um kemur og stjömumar hefðu
mátt vera meira afgerandi í leik sín-
um. Það á sérstaklega við um herra
Wahlberg sem er alltaf eins þótt
hann sé ágætur.
Hasarmynd með nýjum og
áhugaverðum pælingum.
Hildur Loftsdóttir
Otivistartíminn er i R
5amrceniclu prófunum
Börn ó atdrinum ,
L vera d almanMtœri efhr M- »
-Leytum eKKi toreldralaus partý.
T-k„m enqa áriarttu: Afengi
^ung'
mennum undir 20 ara-
Jöw
..—J (
I
_____J
'.;5; ' :
• .' l
1
; .• . , •
1
I
n
Félagsþjónustan í Reykjavík, Lögreglan í Reykjavík,
FrœðsiumiÓstöÓ Reykjavíkurborgar, ÍTR, SAMFOK,
Samstarfsnefnd Reykjavíkurborgar um afbrota og
fíkniefnavarnír.
•»- -• c «*<>'*,"i'ivy'riwi. ríOt.v •'T'.
THT262 fyrir
atvinnumanninn
THT 1800 fyrir garð-
og sumarbústaðaeigandann
VETRARSÓLet,i
Hamraborg l-3, norðanmegin
Sími 564 1864