Morgunblaðið - 27.04.1999, Qupperneq 63
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 27. APRÍL 1999 63 .
ATM, leigulínur
og loftkastalar
BJÖRN Davíðsson,
kerfisstjóri Snerpu á
Isafirði, skrifar grein í
Morgunblaðið 13. apríl
síðastliðinn, sem svar
við gi-ein minni í blað-
inu 31. marz. í grein
Björns gætir á köflum
misskilnings, sem mér
er ljúft og skylt að
leiðrétta.
Verð leigulína
vel undir Evrópu-
meðaltali
Bjöm segir að
gjaldskrá fyrir leigu-
línur sé „ósanngjörn
og raunar hreint og
klárt okur sem engin rök standa
undir“. Eins og fram kom í fyrri
grein minni er þessi verðskrá til
Síminn
ATM-þjónusta, sem
Landssíminn hyggst
nú bjóða upp á, hefur
reynzt vel annars stað-
ar. Ólafur Þ. Stephen-
sen segir í svari við
grein Björns Davíðs-
sonar að Landssíminn
fagni samkeppni.
endurskoðunar, sem mun að öllum
líkindum leiða til lækkunar verðs á
lengri línum en hækkunar á styttri
línum. Nú hefur hver og einn sína
skoðun á því hvað sé okur, en sé til
dæmis horft til annarra Evrópu-
landa er deginum ljósara að verð
fyrir leigulínur hjá Landssímanum
er vel undir meðaltalinu í ríkjum
Evrópusambandsins, hvort sem lit-
ið er á 3 km línu, 30 km eða 300 km
en þessar lengdir eru oft notaðar í
samanburði af þessu tagi.
Björn gefur í skyn að Landssím-
inn hafi dregið lappirnar hvað
varðar endurskoðun verðskrárinn-
ar fyrir leigulínur. Kostnaðargrein-
ing á þessari þjónustu er flókið
verkefni og tók vissulega nokkurn
tíma. I grein minni var ekki verið
að kenna einum eða neinum um að
ný verðskrá lægi ekki fyrir. Stað-
reynd málsins er hins vegar sú að
tillögur Landssímans eru nú til
skoðunar hjá Póst- og fjarskipta-
stofnun og boltinn er m.ö.o. hjá
stofnuninni nú, hvað sem síðan
verður.
ATM hefur reynzt
vel annars staðar
Björn fínnur ATM-tækninni,
sem Landssíminn hyggst nú bjóða
fyrirtækjum og stofnunum, allt til
foráttu, kallar hana andvana fædda
og verulega síðri kost en t.d. „Giga-
bit Ethernet". Ekki ætla ég að
íþyngja lesendum Morgunblaðsins
með trúarbragðadeilum tækni-
manna um þennan flutningsmát-
ann eða hinn. Það dugar að segja
að ATM er tækni, sem hefur
reynzt vel víða um heim. Símafyr-
irtæki lögðu grunninn
að ATM en það eru
ekki sízt fyrirtæki,
sem hafa hag af ýmiss
konar tölvusamskipt-
um, einkum og sér í
lagi intemetþjónustu-
fyrirtæki, sem hafa ýtt
undir þá þróun, sem
orðið hefur í ATM. Um
70% allrar internetum-
ferðar í heiminum fara
yfir ATM-kerfi á ein-
hverju stigi, þannig að
sennilega er þessi
tækni ekki algalin fyr-
ir internetþjónustufyr-
irtæki. Tölur Bjöms
um að gagnapakkar
taki 30% meira pláss á ATM en á
leigulínu hafa ekki heyrzt áður og
er talan 10% nær lagi. Hins vegar
fæst betri stjórnun á gagnaflutn-
ingnum en með hreinum IP-flutn-
ingi.
Landssíminn fagnar samkeppni
Grein Bjöms útskýrir í raun í
hnotskurn hvers vegna Landssím-
inn fagnar allri samkeppni. Með
aukinni samkeppni kemst umræð-
an af því stigi að menn séu sífellt
að bera þjónustu Landssímans og
þær lausnir, sem fyrirtækið velur,
saman við hugarfóstur, loftkastala
eða tæknilausnir, sem ekki em
orðnar að veruleika. Þess í stað
fengju menn samanburð á raun-
verulegri þjónustu og verðlagn-
ingu annarra fyrirtækja og Lands-
símans og gætu kosið með fótun-
um, ef svo má segja, skipt um
þjónustufyrirtæki ef þeir væm
ósáttir.
Það væri þess vegna æskilegt að
Landssíminn fengi meiri sam-
keppni í gagnaflutningum til að
geta sannað sig áþreifanlega fyrir
Birni Davíðssyni og öðmm. Senni-
lega er þess skammt að bíða enda
em nú engar hömlur á samkeppni í
fjarskiptaþjónustu. Þangað til ger-
ir fyrirtækið auðvitað sitt bezta,
byggir á áralangri þekkingu og
reynslu starfsmanna sinna og jafn-
framt á reynslu annarra fjarskipta-
fyrirtækja, sem náð hafa góðum
árangri.
Hvað ATM-tæknina varðar
stendur Landssíminn við þá stað-
hæfingu að með henni býðst fyrir-
tækjum á landsbyggðinni mögu-
leiki til öflugs gagnaflutnings á
hagstæðu verði, sem mun leysa
bæði leigulínur og háhraðanet af
hólmi þegar fram líða stundir.
Höfundur cr forstöðumaður
upplýsinga- og kynningarmála
hjá Landssfma fslands hf.
UMRÆÐAN
Ólafur Þ.
Stephensen
Eimr
1. fl. Eikgegnheil 10 mm kr. 2.150 pr. m2 stgr.
1. fl. EikClassic 14 mm kr. 2.695 ,- pr. m2 stgr.
l.fl. Eik2st 14 mm kr. 2.850, - pr. rn stgr.
l.fl. EikNature4st. 14 mm kr. f.880,
l.fl. EikAccent.i4 mm kr. 2,880,
l.fl. Eik Nature 14 mm kr. 2.990 pr. m2 stgr.
pr.m stgr.
r pr. m2 stgr.
X
d góðu ve
HARÐVIÐARVAL EHF.
Krókhálsi 4 llOReykjavík Sími: 567 1010
Veffang: http://www.parket.is E-mail: parket@parket.is
Opið laugordag frákL10-16
IeíMW
TIL ALLT AÐ 36 MANAÐA
RA<CREI<SLUR
i T7I_ 36 MÁNADA i
lli
vg> mbl.is
-ALLTAE EITTHt/'AG NYTT
mbl.is mbl.is mbl.is mbl.is mbl.is mbl.is mbl.is mbl.is mbl.is mbl.is mbl.is mbl.is mbl.is
__ALLTAF E/TTHVAÐ NÝT7