Morgunblaðið - 27.04.1999, Blaðsíða 64
64 ÞRIÐJUDAGUR 27. APRÍL 1999
MORGUNBLAÐIÐ
Skeifukeppnin á
Hvanneyri
Kærustu-
parið í
efstu
sætum
Skeifukeppnin á
Hvanneyri, sem komin
er vel á fimmta tuginn í
aldri, er alltaf jafn-
spennandi og hátíðleiki
skeifudagsins alltaf sá
sami. Nemendur leggja
árangur sinn í tamn-
ingu á einu trippi fyrir
dómnefnd og keppa sín
á milli um hverjum hafi
tekist best til. Valdi-
mar Kristinsson brá
sér í Borgarfjörðinn á
sumardaginn fyrsta og
fylgdist með keppninni.
FYRIRFRAM var reiknað að úrslit
skeifukeppninnar væru ráðin áður
en tamning trippanna hófst þar sem
sá landskunni knapi Þór Jónsteins-
son væri meðal nemenda og hyggði
á þátttöku. En margt fer öðruvísi
en ætlað er því Þór mátti gera sér
annað sætið að góðu en ekki fór sig-
urinn langt því það var kærasta
hans Sigríður Kristín Sverrisdóttir
sem hirti sigurinn á síðustu stundu
og fékk að launum Morgunblaðs-
skeifuna eftirsóttu. Morgunblaðs-
skeifan mun því eigi að síður prýða
hillurnar á heimili Þórs í framtíðinni
ef að líkum lætur.
Sigríður keppti á hryssunni Golu
frá Skriðu og hlutu þau 79,5 stig.
Glæsileg hryssa undan Gusti frá
Hóli og Hæru frá Skriðu. En Sigríð-
ur hlaut einnig viðurkenningu Eið-
faxa fyrir besta hirðingu á hrossi
sínu. Þá hafði hún fyrr um daginn
orðið í þriðja sæti í gæðingakeppni
hestamannafélags nemenda á
Hvanneyri, Grana á Gretti frá
Skriðu. En Þór veitti kærustu sinni
harða keppni og fylgdi fast á hæla
henni á Sókratesi frá Tungu með 77
stig en hann er undan Draumi frá
HESTAR
VERÐLAUNAHAFARNIR ásamt kennara í hestamennsku, Svanhildi Hall, frá vinstri Sigríður
og Gola, Þór og Sókrates, Gústav og Sýn, Arnheiður og Svás og Inga og Eitill.
Morgunblaðið/Valdimar Kristinsson
SIGRÍÐUR Kristín með verð-
launin eftirsóttu og Gola spáir í
gripinn.
Dalvík. Sókrates hafði fengið eitt-
hvert ofnæmi í munninn í vetur og
tafði það mjög fyrir tamningu. Varð
Þór að ríða honum lengi vel við
beisli án méla af þessum sökum.
Þór var hinsvegar tilnefndur hand-
hafí ásetuverðlauna Félags tamn-
ingmanna en eins og tíðkast hefur
undanfarin ár hafa FT félagar
gleymt að mæta með verðlaunin á
staðinn og sagði Ingimar Sveinsson,
fyrrverandi kennari í hestamennsku
á Hvanneyri, að eftir því sem hann
vissi best hefðu ásetuverðlaunahaf-
ar síðustu ára ekki fengið þessi
verðlaun. Þurfa FT menn því að
taka sig saman í andlitinu og hressa
upp á minnið eða öðrum kosti að
hætta þessari verðlaunaveitingu
með formelgum hætti.
í þriðja sæti varð Gústav Magnús
Asbjörnsson á Sýn frá Asbjamar-
stöðum undan Sörla frá Búlandi og
Gerplu frá Síðumúla með 69 stig.
Arnheiður Dögg Einarsdóttir varð í
fjórða sæti með 63 stig á Svás frá
Neðra-Asi undan Roða frá Kolkuósi
og Freyju frá Neðra-Ási. Inga
Hrönn Flosadóttir varð fímmta með
61 stig á Eitli frá Sauðanesi sem er
undan Bónus frá Hafnarfirði og
Flugu frá Fossnesi. Full ástæða er
til að minnast á keppanda í sjötta
sæti en þar átti hlut að máli græn-
lenskur tamningamaður Ango
Knudsen. Hann var með hestinn
Hæring frá Garðakoti en sá er und-
an Norðurlandameistaranum
Kjarna frá Kálfsstöðum og Gránu
frá Garðakoti. Ango, sem hlaut 59
stig, var þarna með athygliverðan
fola sem fór vel hjá honum og hefðu
þeir sómt sér vel í verðlaunasæti.
Formaður Grana, Pétur Hall-
dórsson, stjórnaði verðlaunaafhend-
ingu í matsal skólans að lokinni
keppni og flutti ágæta ræðu þar
sem hann kom inn á breyttar að-
stæður í hestamennskunni og sagði
hann meðal annars: „Hestar og
hestamennska hafa fengið nýtt hlut-
verk, sem tómstundagaman, íþrótt,
atvinnugrein og útflutningsvara.
Allt hefur tekið breytingum, nema
kannski eitt - nema eitt! Og það er
aðstaðan hér á Hvanneyri, við erum
enn með hrossin okkar í fjárhús-
kjallaranum, rétt eins og fyrir 45
árum. Draumar okkar standa til
betri húsa og bættrar aðstöðu í hví-
vetna og því höfum við dregist alltof
langt aftur úr í þessum efnum.
Þetta er ekki í fyrsta skipti sem
kvartað er undan hesthúsinu á
Hvanneyri sem er bam síns tíma og
ekki í neinu samræmi við þá öru
þróun sem orðið hefur í hesthúsum
á landinu síðustu árin. Magnús B.
Jónsson skólastjóri kom einnig inn
á þessi mál í ræðu sinni en hann
upplýsti að um leið og hann fylgdist
með skeifukeppninni ræddi hann
við nokkra gesti um nýbyggingu
fjóss á staðnum. Einnig kom hann
inn á hugmyndir um að hesta-
mannafélagið Faxi tæki þátt í bygg:
ingu reiðskemmu á Hvanneyri. I
samræðum að loknum ræðuhöldum
kom fram sú hugmynd að líklega
væri hagstæðast að reisa eina risa-
stóra byggingu þar sem gæti verið í
endanum vel rúm reiðskemma,
hesthús í miðjunni og fjós í hinum
endanum. Þátt í þessari byggingu
gætu ýmsir aðilar átt svo sem
hestamannafélagið Faxi eins og áð-
ur sagði og Hrossaræktarsamband
Vesturlands. Er ekki að efa að slík
bygging gæti valdið straumhvörfum
í flestum þáttum hestamennskunn-
ar í Borgarfirði. Að síðustu má geta
þeirra sterku raka sem fram komu
að nemendur á Hvanneyri þurfa að
kynnast aðstöðu eins og hún ætti að
vera á sem flestum stöðum. Alltaf
hefur þótt heillavænlegra að kenna
hvernig hlutirnir eiga að vera en
ekki hvernig þeir eiga ekki að vera.
Tímamót voru í skeifukeppninni
að þessu sinni því nýr kennari í
hestamennsku, Svanhildur Hall,
var að skila sínum fyrsta árgangi í
höfn. Hún tók sem kunnugt er við
starfínu af Ingimar Sveinssyni sem
hefur á síðustu ánim unnið merki-
legt brautryðjendastarf á Hvann-
eyri. Það var því vandfyllt skarð
sem hann skildi eftir en ekki var
annað að heyra og sjá en Svanhild-
ur fari vel af stað og sé líkleg til að
gera góða hluti á þessum starfs-
vettvangi.
Urslit helgarinnar
NÝHESTAKEPPNI er vinsæl að
verða en tvö slík mót voru haldin
um helgina. Eins og nafnið ber með
sér er þetta ætlað hestum sem ekki
hafa verið mikið áberandi á mótum
eða jafnvel alls ekki keppt áður.
Úrslit bárust frá alls þremur mót-
um sem haldin voru um helgina. Er
þar fyrst að nefna Nýhrossakeppni
hjá Fáki sem var opið mót þar sem
97 skráningar voru í 7 keppnis-
greinar. Mótið var um leið endur-
hæfingarmót fyrir alþjóðlega
íþróttadómara.
Hjá Sörla í Hafnarfirði voru hald-
in tvö mót, annarsvegar nýhestamót
og svo hið árlega Hróa hattar mót
þar sem keppendum er boðið upp á
pítsu og gos og nú eins og venjulega
var þátttakan mikil. Mót þessi tók-
ust með miklum ágætum enda veðr-
ið eins og best var á kosið um helg-
ina.
Nýhestamót Sörla 1999
Tölt konur
1. Elsa Magnúsdóttir á Blóma
frá Dalsmynni.
2. Anna B. Olafsdóttir á Héðni
frá Stærri-Bæ.
3. Elísabet Garðarsdóttir á Hrafnhildi
frá Glæsibæ.
4. Margrét Vilhjálmsdóttir á Freyju
frá Sandhóli.
5. Hrafnhildur Guðrúnardóttir á Frðkk
frá Ytri-Reykjum.
Tölt karlar
1. Jón Hinriksson á Háfeta frá Undirfelli.
2. Jón P. Sveinsson á Eldingu frá Hóli.
3. Adolf Snæbjörnsson á Dimmu.
4. Höskuldur Ragnarsson á Happa-Rauð
frá Bólstað.
5. Eyjólfur Þorsteinsson á Dröfn
frá Staðarhúsum.
Þrígangur
1. Daníel I. Smárason á Tyson
frá Búlandi, Eyjaf.
2. Snorri Dal á Sorta frá Kjörseyri.
3. Hermann Jóhannsson á Hug frá Skáney.
4. Jón Hinriksson á Háfeta frá Undirfelli.
5. Sigríður Pjetursdóttir á Draumi
frá Akureyri.
Nýhestaskeið
1. Logi Laxdal á Sveipi frá Langholti.
2. Jón P. Sveinsson á Fiðu frá Hleinabergi.
3. Páll Ólafsson á Vordísi frá Tungu.
4. Elsa Magnúsdóttir á Kristal frá Bólstað.
5. Páll Guðmundsson á Flugu frá Kolkuósi.
Hróa hattarmót Sörla
Ungmenni
1. Hinrik Þ. Sigurðsson Sörla, á Val
frá Litla-Bergi.
2. Guðni Sigurðsson Mána, á Hrafni
frá Hala.
3. Eh'sabet E. Garðarsdóttir Söria, á
Hrafnhildi frá Glæsibæ.
4. Gyða S. Kristjánsdóttir Sörla, á Sleipni
frá Grímsstöðum.
Ásetuv. og glæsil. parið: Hinrik Þ.
Sigurðsson og Valur.
Unglingar
1. Gunnar Ö. Einarsson Mána, á Halifax
frá Breiðabólstað.
2. Kristín M. Jónsdóttir Sörla, á Háfeta
frá Undirfelli.
Að sigla er ný leið fyrir konur og karla
til að upplifa og njóta tilbreytingar
í sumarleyfinu.
Kennsla í skútusiglingum hefst 12. maí.
Innritun í síma 588 3092 og 898 0599.
Dagskrá og upplýsingar einnig á netinu,
www.centrum.is/siglingaskolinn