Morgunblaðið - 08.05.1999, Side 20
20 LAUGARDAGUR 8. MAÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
Mercedes Benz
230 E Classic ‘96
Ekinn 57 þús. km. Qullmoli með QSM, 4 hauspúðum,
Cruise Control, sjálfskiptur, álfelgur og fleira.
Upplýsingar í sima 892 1424 (Björn)
SAKÍwœvBi Atvinnuþróunarfélag Kynningarmiðstöð
Eyjafjarðar Evrópurannsókna
KYNNINGARFUNDUR UM 5. RAMMAÁÆTLUN
ESB Á SVIÐIRANNSÓKNA OG ÞRÓUNAR
Fundurinn mun fjalla um nokkur áhersluatriði 5. rammaáætlunar
ESB og reynt verður að vekja athygli á þeim atriðum sem snerta
þarfir atvinnulífs Eyjafjarðar. Fulltrúar fyrirtækja í matvælafram-
leiðslu, heilbrigðisþjónustu, menntun og þjónustu sem hafa þróun-
ar- eða rannsóknahugmyndir, eiga erindi á fundinn.
AKUREYRI
Ballettskólinn sýnir Hnotubrjótinn í fþróttahöllinni
Morgunblaðið/Kristján
ÞÆR Þorgerður, sem er aftast á myndinni, Hrafnhildur, Olga Sonja, Unnur Birna, Hanna Rós sýna nútíma-
dans á sýningu Balllettskólans í fþróttahöllinni á morgun, sunnudag, en allir nemendur skólans taka einnig
þátt í uppfærslu á Hnotubrjótnum.
Allir nemendur skólans,
45 talsins, taka þátt í verkinu
Fundurinn verður haldinn 12. maí nk. [ sal Fláskólans á Akureyri í
Þingvallastræti 23. Fundurinn hefst kl. 12 og lýkurfyrir 13.30. Léttar
veitingar verða í boði.
Dagskrá:
5. rammaáætlun ESB, helstu útlínur og aðstoð við umsækjendur.
Sigurður Tómas Björgvinsson, Kynningarmiðstöð Evrópu-
rannsókna.
Lífsgæði og nýting náttúruauðlinda, þ.m.t. matvælaframleiðsla og
heilbrigðisþjónusta, Ingileif Jónsdóttir, dósent við Háskóla íslands.
Mannauður og félags/- og hugvísindarannsóknir, Guðmundur
Heiðar Frímannsson, forstöðumaður kennaradeildar Háskólans á
Akureyri og einn af íslenskum stjórnarmönnum í mannauðsáætlun
5. rammaáætlunarinnar.
Upplýsingar veita Þórleifur Björnsson í síma 463 0900 og
Benedikt Guðmundsson f síma 461 2740 .
EIN BESTA STAFRÆN A MYNDAVELIN!
FUJIFILM
MX-700
STAFRÆN MYNDAUÉL
15 MHIJón Ptxela CCD
1280 x 1024 Pixela upplausn
2" TFT sklár
Endurhlaðanleo llthlum lon rafhlaða
Straumöreytir
Snúrur 09 hugbúnaður tyrlr PC og Mac
SmartMedia mlnnlskort fylgir
Frábartverð
kr. 69.900
/ 1
Skipholti 31, Síml 568 0450
17 *\T1
Kaupvangsstræti 1, s. 4612850
BALLETTSKÓLINN sýnir Hnotu-
brjótínn í íþróttahöllinni á Akureyri
á morgun, laugardaginn 9. maí kl.
16. Ráðist er í þetta viðamikla verk-
efni í tilefhi af 5 ára afmæli Ballett-
skólans. Stofnandi skólans og kenn-
ari frá upphafi er Asako Ichihashi.
Ballettskólinn er nú rekin í tengsl-
um við Vaxtarræktina í íþróttahöll-
inni.
„Ég tók þátt í sýningu á Hnotu-
Helga lista-
maður mánað-
arins í List-
fléttunni
HELGA Jóhannesdóttir er lista-
maður maímánaðar í Listfléttunni
við göngugötuna í Hafnarstræti á
Akureyri. Helga sýnir þar verk
unnin úr leir. Hún er fædd í
Reykjavík árið 1961, hún hefur
stundað nám við Menntaskólann í
Hamrahlíð og lokið tækniteiknara-
prófi frá Iðnskólanum í Reykjavík.
Þá nam hún við keramikdeild
Myndlistaskóla Reykjavíkur og
lauk námi frá Myndlista- og hand-
íðaskóla íslands árið 1991. Frá þeim
tíma hefur hún starfað á vinnustofu
sinni að Álafossi. Helga er nýkomin
heim eftir tæplega tveggja ára dvöl
í Pittsburgh í Bandaríkjunum þar
sem hún nam keramik og málm-
smíði.
Tilkynning um skráningu skuldabréfa
Akureyrarbæjar á Verðbréfaþing íslands
VÞÍ hefur samþykkt að taka neðangreind skuldabréf á skrá 12. maí 1999.
Útgefandi: Akureyrarbær, kt. 410169-6229, Geislagötu 9, 600 Akureyri,
sími 462 1000, bréfsími 462 1547.
Flokkur: 1. flokkur 1999
Nafnverð og lánstími: Heildarnafnverð 1. fl. 1999 útgáfunnar var 700 milljónir
króna og eru skuldabréfin vaxtagreiðslubréf til 10 ára.
Útgáfudagur og fyrsti vaxtadagur: Útgáfudagur og fyrsti vaxtadagur var 15. febrúar 1999.
Einingar: Skuldabréfin eru í föstum 10 milljón króna einingum,
alls 70 bréf.
Nafnvextir: Skuldabréfin bera fasta 4,25% vexti.
Viðskiptavakt: Já.
Skráningarlýsing og önnur gögn um útgefanda og skuldabréfin liggja frammi hjá Kaupþingi
Norðurlands hf., umsjónaraðila skráningarinnar.
brjótnum þegar ég var 16 ára gömul
í heimalandi mínu, Japan, og það
var mjög skemmtilegt. Mig langaði
að setja þetta verk upp hér, bjóða
upp á metnaðarfulla sýningu í til-
efni af 5 ára afmæli skólans," sagði
Asako. Hún sagði að vissulega hefði
verið mikil vinna við æfingar, en
byrjað var að æfa skömmu eftir ára-
mót. Nemendur Ballettskólans eru
45 talsins, þar af aðeins einn piltur,
og eru þeir á aldrinum 5 til 21 árs.
Nemendur skólans hafa ekki ein-
göngu komið frá Akureyri, heldur
hafa foreldrar á Dalvík, Hrísey og á
Laugum í Reykjadal lagt á sig að
aka börnum sínum til æfinga á
Akureyri.
Auk Hnotubrjótsins verða fleiri
dansatriði á sýningunni, spuni, nú-
tímadansar og klassískir. Bama- og
unglingakór Akureyrarkirkju syng-
ur undir stjórn Jóns Halldórs
Finnssonar og þá leikur Hannes Þ.
Guðrúnarson á gítar.
Ballettinn gerir miklar kröfur
„Ég hef verið í Ballettskólanum
öll 5 árin sem hann hefur starfað
eða frá því ég var 8 ára,“ sagði Þor-
gerður Jónsdóttir. „Mig langaði al-
veg frá því ég var lítil að læra ball-
ett. Ballerínurnar eru svo flinkar og
liðugar."
Sólrún María Ólafsdóttir, sem nú
er tvítug, byrjaði að æfa ballett þeg-
ar skólinn var stofnaður fyrir 5 ár-
um. „Ég hafði engan sérstakan
áhuga þegar ég var yngri, mér
fannst ballett hræðilegur þegar ég
var yngri, en nú finnst mér hann
rosalega flottur," sagði Sólrún Mar-
ía. Hún sagði ballettinn gera miklar
kröfur til iðkendanna, menn yrðu að
hafa stjórn á öllum líkamanum,
hann krefðist meiri leikni en það að
hlaupa eftir bolta, sagði hún, en áð-
ur en hún fór að stunda ballett var
hún í boltaíþróttum. Sólrún María
sagðist hafa byrjað of seint til að
geta gert sér vonir um að ná langt,
en áhuginn er fyrir hendi.
Þorgerður kvaðst vel geta hugsað
sér að halda áfram eins lengi og hún
getur að æfa ballett. „Ég myndi
gjaman vilja verða atvinnuballer-
ína, en veit ekki hvort af því verð-
ur,“ sagði hún.
DRÍFA Arnþórsdóttir og Hrefna Hallgrímsdóttir í Snuðru og Tuðru.
Hundraðasta sýning
á Snuðru
MÖGULEIKHÚSIÐ sýnir hund-
mðustu sýningu á bamaleikritinu
Snuðra og Tuðra á Renniverkstæð-
inu á Akureyri á morgun, sunnudag
kl. 13 og 101 sýning verður kl. 15.
Sýningin, sem var framsýnd í
október, hefur verið sýnd í Mögu-
leikhúsinu við Hlemm, auk þess
sem sýnt hefur verið í leik- og
grannskólum víða um land. Sýning-
og Tuðru
in á Renniverkstæðinu er hluti af
leikferð Möguleikhússins um Norð-
urland. Snuðra og Tuðra era leikn-
ar af Drífu Arnþórsdóttur og Aino
Freyju Járvelá, leikstjóri og höf-
undur leikmynda er Bjami Ingvars-
son. Leikgerð er eftir Pétur Eg-
gerz, tónlist eftir Vilhjálm Guðjóns-
son og Katrín Þorvaldsdóttir sá um
búninga og brúðugerð.