Morgunblaðið - 08.05.1999, Side 55

Morgunblaðið - 08.05.1999, Side 55
MORGUNBLAÐIÐ það sem þú hefur miðlað til mín í gegnum árin. Einnig þykir mér innilega vænt um að þú hafir vitjað mín í draumi morguninn sem þú fórst, kvatt mig og sagt mér að þú værir að fara að svífa um í draumalandinu, því að þar vissi ég að þér myndi líða vel. Við munum öll styðja og styrkja ömmu nú þegar þú ert fallinn frá en ég veit að minningin um góðan mann yljar henni um hjartarætur. Eg mun aldrei gleyma þér. Þú átt vísan stað í hjarta mínu og því munt þú alltaf lifa með mér. Hvíl í friði, elsku afi minn. Hjartans þakkir fyrir allt. Berglind Ósk. Nú þegar nafni minn og mágur, Konráð Auðunsson, eignarbóndi að Búðarhóli í Austur-Landeyjum, hefur lokið jarðvist sinni birtast margar myndir úr hugans geymd. Fyrst frá því er hann var verk- stjóri á búi aldraðs föður síns, Auðuns Ingvarssonar, kaupmanns og bónda að Dalsseli undir Austur- Eyjafjöllum. Það var á hásumri í heyskapartíð á árinu 1950 þegar ég var kominn þangað austur sem boðsgestur bróður hans, Leifs Auðunssonar. Þá var ég kynntur fyrir Auðunni bónda og börnum hans sem enn voru heima í föður- garði: Konráði, Margréti og Guð- rúnu Ingibjörgu (Donnu). Með því hélt Dalsselsheimilið fyrri reisn sinni er foreldrar þeirra höfðu gert víðþekkt sem rausnar- og menn- ingarsetur í þjóðbraut. Þá voru nær níu ár liðin frá láti Guðlaugar Helgu Hafliðadóttur, mannkosta- húsfreyju að Dalsseli. Um þessar mundir hafði Dalsselsbú orðið fyrir ýmsu mót- læti, þar á meðal tjóni á jarðlendi með því að vestasta kvísl hins mikla Markarfljóts, Fauski, stefndi mjög á Dalsselsland í auknum straumþunga og þegar Leifur leiddi gest sinn á vettvang varð ég vitni að landbroti þegar afl straumsins féll á undirrót hins gróna árbakka sem með því hneig án afláts í fang fljótsins. I þessari heimsókn urðu ekki mörg orðaskipti milh okkar nafna. En fór mín til Eyjafjalla varð ör- lagaskref því á haustdögum var ég kominn þangað aftur og þá til starfa við söngkóra undir Fjöllum og að Hellu við Ytri-Rangá fram á næsta ár. Við áramótin varð ég heitbundinn yngstu systur nafna míns, Guðrúnu Ingibjörgu, og þá lánaði hann mér skautana sína með ljúfu geði svo ég og hans kæra systir gætum rennt okkur á Veitu- svellinu undir stimdum kvöld- himni. Á vordögum 1951 dró til tíðinda hjá Konráði í Dalsseli þegar hann trúlofaðist Sigríði Haraldsdóttur, eignarbónda í Miðey, Jónssonar áður bónda að Tjömum undir Eyjafjöllum. Konráð og Sigríður hófu frambúskap sinn í Dalsseli síðla árs 1951, gengu í hjónaband þar á hvítasunnudag 1952 og þar eignuðust þau framburð sinn. Þau ná búsetu á góðjörðinni Búðarhóli í Austur-Landeyjum 1954 og eign- uðust þá jörð þremur áram síðar. Á 75 ára afmælisdegi nafna míns gerði ég ítarlega úttekt á farsæld- arbúskap Konráðs og Sigríðar að Búðarhóli í Morgunblaðinu 26. nóv- ember 1991. Þar kom fram vitnis- burður um hverju samvirk hjón til hugs og handa, ásamt velgerðum og velvinnandi bömum sínum, gætu til leiðar komið í athafna- og ábyrgðarfrelsi á sjálfseignarjörð. Ekki lá leið okkar Donnu oft að Búðarhóli á fyrsta áratug búskap- ar okkar, enda hörð og miskunnar- laus barátta þá við Faxaflóa að koma einbýlishússþaki yfir höfuð sér. En þegar kom að fermingu bama Siggu og nafna var mætt í sóknarkirkju þeirra á fornfrægum kirkjustað að Krossi. Þá var tekið á móti fermingargestum heima að Búðarhóli af mikilli rausn. Þangað var okkur einnig boðið í afmælis- fangaði og var þá sýnt að þau Búð- arhólshjón nutu vinsælda og virð- ingar sveitunga sinna sem og hinna mörgu sem nutu landkosta Búðarhóls vegna hesta sinna fyrir velvild Konráðs góðbónda sem einnig lét fylgja með hesthúsavist- un og fóðran. Þangað austur komu og mörg böm til sumarvistar og nutu rausnarheimilis og verkkunn- áttu sem var ómetanleg á þroskans braut. Konráð átti í ríkum mæli þá hæfni sem fólst í hljóðlátri háttvísi og félagslegri samvirkni. Hann kom ekki fram sem yfirvald heldur starfsfélagi sem svo var vel í sveit settur að hann réði yfir víðáttu- miklum graslendunum þar sem fjölbreyttur búsmali í gripahjörð- um lék á als oddi á fógram sumar- dögum. Og sumarbömin litu hýra auga til hesta þeirra er þau áttu vísan aðgang að við verklok. Dótturdóttir okkar Donnu, Marta Ruth, var meðal sumar- bama að Búðarhóli og naut í rík- um mæli mannkosta ömmubróður síns, hinnar ljúfu eiginkonu hans og barna þeirra hjóna. Að leiðarlokum þakka ég nafna mínum og mági tryggð og ljúfa samfylgd á lífsins braut. Eg og böm okkar Donnu sendum Sigríði og bömum innilegustu samúðar- kveðjur okkar. Konráð Bjarnason. Genginn er kær vinur og ná- granni. Það var á Landsmóti hesta- manna á Vindheimamelum 1974 sem fundum okkar Konna bar fyrst saman. Eftir það voram við orðnir málkunnugir sem kallað er. Síðan tæpum tveimur áram seinna flutti ég í Landeyjarnar og þá urð- um við nágrannar. Eg hafði aðeins búið í Hólmahjáleigu nokkra daga þegar grænn Land Rover kom í hlað. Þar var kominn hann Konni ásamt tveimur bömum sínum. Er- indið, jú hann var að bjóða okkur velkomin í sveitina, einnig var hann að bjóða aðstoð ef á þyrfti að halda, því hann vissi sem var að ungu fólki, sem er að byrja búskap hlaut að vanhaga um sitthvað. Þetta þótti mér afskaplega vænt um því hér fylgdi hugur máli. Upp frá þessu urðum við góðir vinir sem aldrei féll skuggi á. Ég segi stundum í gamni og alvöra að Búð- arhóll sé einn af fáum bæjum sem ég kem á án þess að eiga erindi. Það er gaman að skreppa að kvöldi og taka í spil eða bara spjalla yfir kaffiboOa og ekki skemma pönnu- kökurnar eða kleinumar hennar Siggu. Umræðurnar vora oftar en ekki tengdar hrossum. Einnig fannst mér gaman að ræða við Konna um lífið og tilverana undir EyjafjöOum í gamla daga. Fyrir aOt þetta er ég mjög þakklátur, minningarnar um hann Konna á BúðarhóO munu oft eiga eftir að ylja mér. Elsku Sigga og fjölskylda, ég og mín fjölskylda vottum ykkur inni- lega samúð okkar. Bergnr Pálsson. Konráð á BúðarhóU er látinn. Þetta er óvelkomin frétt og óraun- hæf fyrir mig því það er svo stutt síðan við komum í heimsókn að BúðarhóU til að sækja hesta og að vanda komu Konni og Sigga út í haga til að aðstoða. Þar sem við kvöddumst glöð og hress í bragði granaði okkur ekki að það væri aðeins rúmur hálfur mánuður í þína hinstu för. En sem fyrr var notalegt að sjá ykkur aka út túnið til að aðgæta búpeninginn. Kynni okkar hjóna af Konráði hófust fyrir 23 áram þegar elsti sonur okkar fór að Búðarhóli til sumardvalar. Konráð var maður fremur fámáll og hlédrægur við fyrstu kynni en við nánari kynni þeim mun hlýrri og traustari vin- ur. Hann var höfðingi heim að sækja og heimilisbragur slíkur hjá þeim hjónum að okkur hefur ávallt fundist við komin heim þegar Búð- arhóli var náð. Með Konráði er genginn góður og gegn bóndi sem MINNINGAR LAUGARDAGUR 8. MAÍ 1999 55^ hverju sveitarfélagi er sómi að. Kæri vinur, við hjónin kveðjum þig með virðingu og þökk. Elsku Sigga mín, megi algóður Guð vaka yfír þér og öllum börn- unum þínum, í sorg ykkar og sökn- uði. Elísabet Þóra og Gísli. Kom, huggari, mig hugga þú, kom, hönd og bind um sárin, kom, dögg, og svala sálu nú, kom, sól, og þerra tárin, kom, hjartans heilsulind, kom, heilög fyrirmynd, kom, ljós, og lýstu mér, kom, líf er ævin þver, kom, eilífð, bak við árin. (Valdimar Briem.) I dag kveðjum við systkinin hann Konna. Þegar okkur bárast fréttimar var okkur hugsað til þeirra stunda sem við höfum átt með þeim hjónakornum. Seinasta sumar áttum við nokkrar góðar stundir sem vora fullar af fjósailm, fisk, nýbökuðu brauði og róleg- heitum. Stundirnar era ekki marg- ar sem við áttum saman, þó era þær fullar af minningum sem við hver og ein túlkum á ólíkan hátt. Eins og Auður Ásta sagði var hann alltaf mjög góður og skemmtileg- ur. Þó munum við trúlega minnast hans einna helst þar sem hann sat í stólnum sínum að hlusta á út- varpsfréttirnar. í>ó nú sé sorg, tár og tregi tómlegt allt nú sé um stund, þá lifir minning björt sem blóm á sumardegi um blíðan mann sem horfm er á Guðs síns fund. (Guðm. Skúlas.) Elsku Sigríður, Helga, Jóna Gerður, Héðinn, Haraldur, Ingi- gerður, Gunnar, Auður, Margrét, Unnur og aðrir ástvinir. Megi Guð styrkja ykkur öll og styðja á þess- ari erfiðu stundu. Minnumst orða Kahlils Gibran: Þegar þú ert sorg- mædd, skoðaðu þá aftur hug þinn, og þú munt sjá, að þú grætur vegna þess sem var gleði þín og þeim mun dýpra sem sorgin grefur sig í hjarta manns, þeim mun meiri gleði getur það rúmað. Ása, Arnþór Ingi og Auður Ásta. Einhver sagði að þegar maður kveður ástvin þá kveður maður einnig hluta af sjálfum sér. Ég var svo lánsöm að njóta elsku þeirra hjóna, Konna og Siggu, þegar ég var í sveit á Búðarhóli og hef notið þess æ síðan. Þau bættu iðulega annarra bömum við barnahópinn sinn og tókst að láta þeim líða eins og væra þau hluti af fjölskyldunni. Konni var bæði bamgóður og húmoristi, hann sagði stundum að ég væri á rétta aldrinum til að fylla í gatið á barneignum þeirra Siggu milli Ingigerðar og Gunnars. Konni á stóran þátt í þeim bjarta tíma æsku minnar sem sveitadvölin á Búðarhóli var. Ég á dýrmæta minningu um litla stúlku sem gekk um Búða með hjartað fullt af ham- ingju og stolti yfir folaldi sem hún eignaðist og margar fleiri minning- ar sem vitna um mannkærleik og hlýju þeirra hjóna. Konni hafði mikinn áhuga á hrossum, það hafa alltaf verið til góð reiðhross á Búð- arhóli úr hans ræktun og á ég sjálf nokkur. Eftir að ég varð fullorðin var hann ólatur að keyra með mig austur á mýri að skoða hross og sýna mér folaldsmerarnar sem hann fylgdist svo grannt með. Kæri Konni, ég kveð þig full þakldætis og veit að vel hefur verið tekið á móti þér. Elsku Sigga, ég bið góðan Guð að styrkja ykkur öll og styðja í þessari raun. Efþúlokaraugunum, í leit að andliti sem þú elskar þá fmnurðu að myrkrið er það efni sem varðveitir endalaust. (Guðbergur Bergsson.) Sigríður Magnea Björgvinsdóttir. + S.J. Sabína Sig- urðardóttir fæddist á Kirkjubóli í Amarfirði 5. des- ember 1913. Hún lést á Sjúkrahúsi Akraness 29. apríl siðastliðinn. For- eldrar hennar voru Sigurður Halldór Jónsson, f. 12.10. 1878, d. 1.5. 1947, og Jóna Margrét Jónsdóttir, f. 5.4. 1879, d. 17.11. 1917. Sabína átti fimm systkini. Þau eru: 1) Guðrún Árný, f. 21.6. 1908, lát- in. 2) Jónfríður Sumarlína Guð- rún Enesa, f. 29.9. 1910, látin. 3) Guðmunda Ingveldur, f. 21.6. 1912, látin. Sabína var þeirra fjórða bam. 5) Guðmundur Helgi, f. 24.5. 1916. 6) Jón Marí- as, f. 3.11. 1917, látinn. Hinn 26. september 1946 gift- ist Sabína Mikael Þorsteinssyni, f. 4.7.1919, en hann lést 29. apr- íl 1997. Eignuðust þau sex böm. Þau era: 1) Unnar Frans, f. 8.9. Kveðja til ömmu Elsku amma mín, nú hefur þú fengið hvíldina sem þú þráðir og það er óhætt að segja að hann afi hafi komið og sótt þig. Ég vil byrja á því að þakka þér fyrir allar góðu og notalegu stundirnar sem við átt- um saman. Sú eftirminnilegasta er án efa síðan sl. sumar þegar ég heimsótti þig á Landspítalann. Ég spurði þig hvort ég mætti ekki bjóða þér í smágönguferð og þú sagðir: „Ef til vill stutta stund - mig langar heldur í bíltúr.“ í fyrstu brá mér því þú hafðir lítið farið út undanfarið og ég vissi ekki hvort það væri í lagi. Eg fór því og talaði við hjúkranarkonurnar og þær urðu heldur betur ánægðar og sögðu að þú hefðir gaman af upp- lyftingu. Þessi bíltúr er sá skemmtilegasti og ánægjulegasti sem ég hef farið í. Veðrið var alveg yndislegt og sólin skein skært. Þeg- ar ég spurði þig hvert þú vildir fara varstu ekki lengi að svara; þú vildir sjá fuglana á Tjörninni og skipin niðri við bryggju. Þú talaðir allan tímann um það hvað allt væri nú fallegt, blómin, veðrið, fuglarnir, hafið, skipin og svo mætti lengi telja. Við töluðum um það hvað ég ætlaði mér að gera í framtíðinni og þú sagir mér þá að best væri að fara eftir hjartanu. ísinn var svo rúsínan í pylsuendanum í þessari ferð okkar saman, enda var ís í miklu uppáhaldi hjá þér. Ég held amma að ég hafi sjaldan verið jafn montin um ævina. Morgunkaffið hjá þér var alltaf jafn mikið tilhlökkunarefni þegar við fjölskyldan voram fyrir vestan hjá ykkur afa. Þá var alltaf randa- terta á boðstólum og fleiri kræsing- ar. En þessi terta tilheyrir aðeins jólunum og ömmu-morgunkaffi í mínum augum. Húðin á þér var svo falleg og svo mjúk að hún var nánast eins og silki, enda notaðir þú engar snyrtivörur, aðeins krem í andlit- ið. Þegar ég spurði þig af hverju kinnarnar þínar væru svona mjúk- ar sagðir þú mér að það besta fyr- ir húðina í andlitinu væri að strjúka með heitum þvottapoka yfir hana kvölds og morgna og það hef ég gert síðan. Þegar ég kynnist nýju fólki er ég yfirleitt spurð hvort ég sé útlensk vegna nafnsins okkar. Það þykir skrítið. En nafnið er íslenskt. Af- mælisdagurinn þinn, 5. desember, heitir Sabína í gamla íslenska alm- anakinu. Þegar ég var yngri leystir þú mig alltaf út með gjöfum þegar við kvöddumst, hvort sem ég var fyrir vestan eða þú á Laugarvatni. Nýprjónaðir vettlingar, heklaðir dúkar eða mottur og teppi fyrir 1941, kona hans var Sigríður Kristjáns- dóttir, hún lést 1989, eignuðust þau þrjú börn. 2) Sævar Berg, f. 13.12. 1942, kvæntur Sigríði Guðjónsdóttur, eiga þau þrjú börn. 3) Guðrún, f. 13.8. 1944, sambýlismað- ur hennar er Ólafur Jónasson, eitt barn eignuðust þau sam- r an er lést í frum- bernsku, en fyrir átti Guðrún Qögur börn. 4) Sigríður Jóna, f. 4.12. 1946, gift Halldóri Benjamíns- syni og eiga þau þrjú börn, en fyrir átti Sigríður eina dóttur. 5) Steinunn Kristín, f. 30.5. 1948, hún lést af slysförum 1.5. 1973. 6) Mikkalína Björk, f. 27.4. 1953, gift Óskari Kristjánssyni, eiga þau þijú börn. Bamabörnin eru 20. Útför Sabinu fer fram frá Patreksfjarðarkirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 14. dúkkumar mínar, einu sinni bað ég þig að prjóna iyrir mig tátiljur. Þegar ég lét þig hafa garnið sem ég vildi hafa í þeim fannst þér það varla hæfa og sagðir að þú myndir ekki lofa því að ég fengi þær fljót- lega. En bleik-, hvít- og bláröndóttu tátiljurnar komu strax daginn eftir og er þetta gott dæmi um það hversu dugleg þú varst við hann- yrðir. Elsku amma, þú varst einstök amma, og ég mun ávallt geyma minninguna um þig í hjarta mínu" og ég hlakka til £ framtíðinni að segja bömunum mínum frá þér. Ég bið góðan guð að styrkja mig og taka vel á móti þér. Ég veit að end- urfundir ykkar afa verða ykkur kærkomnir. Þó að kali heitur hver, hylji dali jökull ber, steinar tali og allt hvað er aldrei skal ég gleyma þér. (Vatnsenda-Rósa.) Takk fyrir allt elsku amma mín, þín Sabína Steinunn. Með hlýhug langar okkur að minnast ömmu okkar. Margar minningar koma upp í hugann er við hugsum til ömmu, amma var ein af þeim konum sem aldrei vann úti á vinnumarkaðnum, hún varð þeirr- ar gæfu aðnjótandi að fá að vera heima og hugsa um heimilið og koma börnum sínum til manns. Amma var mikil hannyrðakona, sérstaklega fannst henni gaman að hekla og prjóna og á hverju hausti fengum við nýja sokkar og vett- linga frá ömmu. Amma átti fáa en góða vini, en hennar besti vinur var hann afi og því var missir ömmu mikill er hann lést fyrir tveimur ánim. En nú,~ elsku amma, ertu komin til afa sem tekið hefur á móti þér opnum örm- um. Guð styrki okkur öll. Blessuð sé minning hennar. Sóley, Sigurður Halldór, Steinar Berg. Elsku langamma, okkur langar að þakka þér fyrir allar þær góðu stundir sem við áttum með þér. Hvert ðrstutt spor var auðnuspor með þér, ^ hvert andartak er tafðir þú hjá mér var sólskinsstund og sæludraumur hár, minn sáttmáli við guð um þúsund ár. (H. Laxness.) Guð geymi þig, elsku langamma. Þín langömmubörn, Rut Berg, Breki Berg, Bjarki Berg, Sævar Berg, Magðalena Lára, Mikael Máni. S.J. SABÍNA SIGURÐARDÓTTIR

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.