Morgunblaðið - 08.05.1999, Qupperneq 62
t62 LAUGARDAGUR 8. MAÍ 1999
KOSNINGAR ’99
MORGUNBLAÐIÐ
Hvað skilur á milli?
s STUTTRI en nokk-
uð snarpri kosninga-
baráttu er að ljúka. í
dag, laugardaginn 8.
maí, verður gengið til
alþingiskosninga og
kosið um það hverjir
ko_mi til með að stjóma
á Islandi næstu fjögur
árin.
Forystumenn flokk-
anna og frambjóðend-
ur allir hafa verið á
þönum og freistað
•þess að koma sjónar-
miðum og stefnumál-
um sínum og síns
flokks á framfæri. Eg
hef nú tekið þátt í
stjórnmálum nokkuð lengi og verð
að segja að aldrei hefur mér fund-
ist jafnánægjulegt að mæta á fundi
og spjalla við kjósendur og fyrir
þessar kosningar. Kemur þar
margt til en þó kannski fyrst og
fremst það hversu gott er að geta
vitnað til þeirra góðu hluta, sem
Sjálfstæðisflokkurinn hefur fengið
áorkað á undanfömum kjörtímabil-
um. Ljóst er að flestir kjósendur
gera sér grein fyrir þessu og vita
glöggt hvað styrk og
samhent forysta Sjálf-
stæðisflokksins skiptir
miklu fyrir heill og
hamingju fjöldans.
Kjósendur vita nefni-
lega hvað þeir hafa í
Sj álfstæ ðisflokknum,
sem byggist á sjötíu
ára gamalli hefð, þar
sem maðurinn, ein-
staklingurinn sjálfur,
er alltaf hafður í fyrir-
rúmi, heill hans og
hamingja. Þessu er al-
gjörlega öfúgt farið í
öðram flokkum eða
fylkingum, þar sem
manni finnst stundum
og jafnvel oftast, að frambjóðand-
inn, þingmaðurinn sjálfur „in spe“,
sé aðalatriði, en hagsmunir fólks-
ins og landsins séu aukaatriði.
Fólkið í landinu á ekki skilið að
fá slíka þingmenn að loknum þess-
um kosningum. Þingmenn, sem til-
heyra flokki eða fylkingu, þar sem
öllum vandamálum innanbúðar var
sópað undir teppi fram yfir kosn-
ingar en era í reynd óútkljáð.
Margt bendir til að þar á bæ séu
Einstaklingurinn sjálf-
ur, segir Sdlveig Pét-
ursdóttir, er alltaf
hafður í fyrirrúmi, heill
hans og hamingja.
óuppgerðar margs kyns sakir, sem
ekki verður í svipan séð fyrir end-
ann á. Allt eins er víst, að þar eigi
eftir að verða töluverð grisjun við
toppinn, þegar menn reyna með
sér og fara að neyta aflsmunar.
Fróðlegt verður að fylgjast með
framvindu mála. Eg hvet menn til
að muna orð mín í þessum efnum.
Sjálfstæðismenn era því óragir
við að leggja staðreyndir um
stjórn landsins á borðið og biðja
um áframhaldandi traust og stuðn-
ing til að halda áfram á sömu
braut. Þar skilur einmitt á milli
sjálfstæðismanna og annama
flokka eða fylkinga.
Höfundur er alþingismaður og
skipar fjórða sætið á framboðslista
Sjálfstæðisflokksins i Reykjavik.
Sólveig
Pétursdóttir
Hugsanavitleysa
Samfylkingarinnar
NÚ ÞEGAR styttist
í kosningar hefur
Samfylking neyðst til
• þess vegna lélegrar út-
komu í skoðanakönn-
unum, að fara að út-
færa hugmyndir sínar
í efnahagsmálum.
Kemur þá berlega í
ljós hvers konar vit-
leysa hefur verið sett
þar saman, þar sem
einfaldir reikningar
sýna að hugmyndir
Samfylkingarinnar um
bætt samfélag ganga
ekki upp nema að rík-
issjóði verði skilað
með margra milljarða
halla.
* Á síðustu dögum hefur Margrét
Frímannsdóttir verið í sjónvarps-
viðtölum hjá Stöð 2 og Ríkissjón-
varpinu. Þar hefur hún útskýrt
hvað helstu tillögur Samfylkingar-
innar ganga út á. Þar snýst allt um
að greina íslensku þjóðina í tvo
flokka, annars vegar eðlilega ís-
lendinga og hins vegar óeðlilega
Islendinga. Samkvæmt Margréti
era það óeðlilegir íslendingar sem
hafa yfir 200.000 kr. á mánuði í
laun og hjón sem hafa yfir 400.000
kr. á mánuði í sameiginlegar tekj-
ur era einnig óeðlilegir Islending-
ar.
Margrét hefur líka lagt mikla
áherslu á það að efnahagsstefna
Samfylkingarinnar gangi upp og
muni skila hallalausum fjárlögum.
Til þess hafa þau lagt fram ýmsar
tillögur sem ganga út á það að
auka það fjármagn sem ríkis-
mbl.is
Skólavörðustíg 35,
sími 552 3621.
stjóm þeirra myndi
hafa úr að spila. Mar-
grét talaði um að um-
hverfis- og mengunar-
skattar ættu að skila
600-700 milljónum á
ári. Á móti ætlar
Samfylkingin að
leggja niður komu-
gjöld á heilsugæslu-
stöðvar og lækka
kostnað við sérfræði-
þjónustu. Þar með eru
þessar auka 600-700
milljónir farnar. Mar-
grét og Samfylkingin
ætla að lækka skatta
á „eðlilegt“ launafólk
en „óeðlilegt“ launa-
fólk, sem hlýtur að vera minni-
hluti þjóðarinnar, ef marka má
orð Samfylkingarinnar um baga-
legt ástand í launamálum þjóðar-
innar eiga að borga aukna skatta.
Hins vegar hefur Samfylkingin
ekki sýnt fram á það að hækkaðir
Fjölþrepa skattkerfi,
segir Bjarni Þór
Eyvindsson, er bæði
vinnuletjandi og eykur
hættu á skattsvikum.
skattar á minnihluta þjóðarinnar
vegi upp skattalækkanir á meiri-
hluta þjóðarinnar. Það er því
hæpið að þessar skattabreytingar
skili ríkisstjórn Samfylkingarinn-
ar auknum tekjum. Þá sitja bara
eftir þeir skattar sem Samfylk-
ingin ætlar sér að ná út úr fyrir-
tækjum landsins. Fyrirtækin í
landinu, þar sem þjóðin vinnur,
eiga því að punga út að minnsta
kosti 35 milljörðum á næstu fjór-
um árum. Á sama tíma eiga fyrir-
tækin að geta bætt laun starfs-
fólks um að minnsta kosti það
sama og núverandi ríkisstjórn
hefur gert ef að Samfylkingin ætl-
ar sér að standa við það að gera
allt betur en núverandi ríkis-
stjórn. Þar era því komnir nokkr-
ir milljarðar í viðbót.
Ég spyr hins vegar, hvaða fyrir-
tæki á Islandi sér Samfylking fyrir
sér að geti borgað þessa 35 millj-
arða á fjóram áram og jafnframt
hækkað laun starfsfólks síns? Ég
sé í dag engin fyrirtæki sem hafa
þvílíkt fjármagn undir kodda sín-
um og því geta þessar skattahug-
myndir Samfylkingarinnar einung-
is leitt til þess að fyrirtækin í land-
inu munu standa verr. Þau verði að
draga saman seglin ef reksturinn á
að ganga upp og við vitum öll hvað
er fyrst skorið niður hjá fyrirtækj-
um. Skattahugmyndir Samfylking-
arinnar munu því valda gífurlegri
aukningu atvinnuleysis og gera al-
gjörlega út um það atvinnuástand
sem er í dag. Átvinnuástand þar
sem atvinnuleysi hefur farið hratt
lækkandi og laun og kaupmáttur
fólks í landinu hækkað hraðar en
annars staðar.
Hugmyndir Samfylkingarinnar
um fjölþrepa skattkerfi koma
einnig afar undarlega fyrir sjónir.
Fjölþrepa skattkerfi er bæði
vinnuletjandi og eykur hættu á
skattsvikum. Hver er hvatinn fyrir
fólkið í landinu að vinna meira ef
það þýðir einungis það að skatta-
prósenta þeirra hækkar? Fjölþrep-
in bjóða líka upp á það að fólk hagi
tekjum sínum þannig að þau séu
sem næst þakinu á því þrepi sem
þau era í og fari alls ekki upp fyrir.
Hvemig ætlar Samfylking líka að
fylgjast með því í hvaða þrepi fólk
á að vera? Ef að samtímagreiðslur
á sköttum eiga að halda áfram
verða einstaklingar að tilkynna um
laun sín á hveijum mánuði, þannig
að „stóri bróðir“ geti ákveðið hvað
þú átt að borga í skatta.
Hvar er líka hvatinn fyrir því í
fjölþrepa skattkerfi þar sem skatt-
ar hækka eftir því sem þú hefur
hærri tekjur, að mennta sig? Hví
skyldi fólk leggja á sig margra ára
háskólanám fyrir það eitt að það
séu teknir af því hærri skattar þeg-
ar það útskrifast? Hverju mun
þetta valda? Jú, bara því að fólk
mun fara með þekkingu sína annað
þar sem kjör þeirra era hagstæðari
og hvati er til staðar til að nýta
sína þekkingu.
Ég held að ummæli eins af félög-
um Samfylkingarinnar um að nú sé
búið að safna saman öllum helstu
vitleysingum þjóðarinnar í efna-
hagsmálum í einn flokk, geti ekki
verið meiri réttmæli. Orð þeirra
dæma sig sjálf.
Höfundur er læknanemi.
Bjarni Þór
Eyvindsson
Höfnum
frekari
vinstrisköttum
SÍÐUSTU daga
kosningabaráttunnar
hafa línur skýrst. Skil
milli flokka er auðvelt
að draga. Annars veg-
ar er Sjálfstæðisflokk-
urinn, sem vill mikið
svigrúm einstaklinga
og fyrirtækja þeirra,
hins vegar era vinstri-
flokkar, sem setja
hagsmuni ríkisins í fyr-
irrúm. Skýrast kemur
þetta fram hjá fylkingu
vinstrisinna, sem boðar
skattahækkanir í fimm
liðum.
Athyglisvert er, að á
lokastigum baráttunn-
ar hefur fylkingin leitast við að
fela ásókn sína ofan í vasa skatt-
greiðenda. Fylkingin gengur svo
langt að fara í skjól Davíðs Odds-
sonar, forsætisráðherra og for-
manns Sjálfstæðisflokksins, með
því að birta mynd af honum í kosn-
Höfnum frekari
vinstrisköttum á
Reykvíkinga, segir
Björn Bjarnason, og
kjósum D-lista Sjálf-
stæðisflokksins.
ingaauglýsingu og afneita jafn-
framt áformum um skattahækkan-
ir.
Fyrir borgarstjórnarkosningarn-
ar 1998 sagði Helgi Hjörvar, fram-
bjóðandi R-listans, fyrirmyndarinn-
ar fylkingarinnar, að skattar yrðu
ekki hækkaðir. Hvernig hefur verið
staðið við þetta kosningaloforð?
Á einu ári, frá borgarstjórnar-
kosningunum 1998,
hefur R-listinn meðal
annars staðið að þess-
um skatta- og gjalda-
hækkunum: I janúar
1999 hækkaði útsvarið
um tæp 7%. Tekið var
upp sérstakt sorp-
hirðugjald. Dagvistun-
argjöld hækkuðu um
allt að 14%. Stakar
sundferðir barna
hækkuðu um 54%.
Gjald fyrir lengda við-
vera barna í skólum
hækkaði um allt að
36%. Gjaldskrá heil-
brigðiseftirlitsins
hækkaði um 16%,
einnig hækkaði aðgangur að Ár-
bæjarsafni og að skíðasvæðum. I
apríl 1999 hækkuðu gjöld á öldran-
arþjónustu í Reykjavík, til dæmis
var tekið upp 6.500 kr. nýtt þjón-
ustugjald á íbúðum aldraðra.
Rfldsstjórn Davíðs Oddssonar
hefur lækkað skatta bæði á ein-
staklinga og fyrirtæki. Um síðustu
áramót skilaði þessi skattalækkun
sér ekki sem skyldi til Reykvíkinga,
af því að R-listinn greip tækifærið
og hækkaði útsvarið!
Lóðaskortur í Reykjavík undir
stjóm R-listans hefur hækkað
íbúða- og húsaverð. Hækkun fylk-
ingarinnar á fjármagnstekjuskatt-
inum hækkar vaxtastig og þyngir
skuldabyrði alls almennings. Þetta
era tvö dæmi um stjórnarhætti
vinstrisinna, sem þrengja hag ein-
staklinga og fyrirtækja þeirra.
Reykvíkingar!
Hafnið frekari álögum vinstri-
flokkanna. Kjósið meiri árangur
fyrir alla með því að setja X við D-
lista Sjálfstæðisflokksins.
Höfundur er m en n tnmáhiráðh erra.
Björn
Bjarnason
Setjum X
viðS
SAMFYLKINGIN á
erindi við þig, kjósandi
góður.
Hún er upphaf nýrr-
ar hugsunar í íslensk-
um stjórnmálum. Jafn-
rétti, lýðræði og virðing
fyrir mannréttindum
era meginstoðir Sam-
fylkingarinnar. Spilling
og sérgæska er eitur í
beinum hennar. Hún er
fjöldahreyfing, alvöru
mótvægi við íhalds- og
afturhaldsflokka þessa
lands.
Samfylkingin er
hreyfing aimennings,
íslenskra launþega sem
bera hitann og þungann af amstri
daganna. Þeir leggja sinn skerf til
samfélagsþjónustunnar og krefjast
Samfylkingin,
segir Þórunn Svein-
bjarnardóttir, er afl
nýrrar aldar.
þess eins að í auðugu landi ríki fé-
lagslegt réttlæti.
Samfylkingin stendur vörð um al-
mannahagsmuni. Hún krefst þess að
auðlindir þjóðarinnar séu sameign
hennar og eignarhald þeirra ekki
fært örfáum einstaklingum á silfur-
fati.
Samfylkingin er afl
sameiningar og sam-
vinnu. Hún hefur snúist
öndverð gegn sundur-
lyndisfjanda íslenskra
vinstri manna, því að
reynslan kennir að
smáflokkapólitík í
linnulausri stjórnar-
andstöðu færir samfé-
lagið ekki nær mark-
miðum Samfylkingar-
innar um félagslegt
réttlæti og lýðræði sem
stendur undir nafni.
Samfylkingin er afl
nýrrar aldar. Hún
markar endalok stjórn-
mála sem eiga rætur
sínar í iðnbyltingu 19. aldarinnar og
upphaf stjórnmála sem endur-
spegla upplýsingasamfélag 21. ald-
arinnar. Samfylkingin er afl nýrrar
kynslóðar. Kynslóðar sem hefur
óþrjótandi tækifæri til athafna og
þroska í samfélagi þar sem tryggt
er að hver og einn fái að njóta verð-
leika sinna.
I dag gefst okkur tækifæri til þess
að marka spor í söguna og upphaf
nýrrar aldar á íslandi. Nýtum það
tækifæri í þágu réttlætis og fram-
fara.
Setjum X við S - í þágu lands og
þjóðar.
Höfundur skipar ijórða sætið á lista
Samfylkingarinnar i
Reykjaneskjördœmi.
Þórunn
Sveinbjarnardóttir