Morgunblaðið - 08.05.1999, Síða 63
MORGUNBLAÐIÐ
KOSNINGAR ’99
LAUGARDAGUR 8. MAÍ 1999 63 ■'
Lækkun skatta
og réttlátt
skattkerfí
TILLÖGUR Sam-
fylkingarinnar í
skattamálum miða að
því að beita skattkerf-
inu til tekjujöfnunar
ftnir lágtekjufólk og
þá sem eru með milli-
tekjur. Þótt tekju-
skattsprósentan sé i
dag ein og hin sama
fyrir alla landsmenn í
orði, er hún það ekki á
borði. íslendingar búa
í raun og veru við fahð
fjölþrepa skattkerfi og
háa jaðarskatta. And-
stæðingar okkar hafa
eytt miklum tíma og
mikilli orku í að ræða
skattahugmyndir Samfylkingar-
innar án þess að tíunda hvaða hug-
Valið stendur í raun,
segir Margrét
Frímannsdóttir, á milli
Sjálfstæðisflokksins
og Samfylkingarinnar.
myndir þeir hafa sjálfir til að jafna
ráðstöfunartekjur í gegnum
skattakerfið. Samfylkingin vill að
tekið verði upp gegnsætt fjölþrepa
skattkerfi, sem miði að því að
minnka skattaálögur á þá sem hafa
lágar tekjur og millitekjur.
Ótekjutengdar bama-
og vaxtabætur
Barnabætur einstæðra foreldra
byrja að skerðast í dag við u.þ.b. 47
þúsund króna mánaðartekjur og
rúmlega 90 þúsund króna tekjur
hjá hjónum. Samfylkingin vill af-
nema tekjutengingu vaxta- og
bamabóta hjá lágtekjufólki og
millitekjufólki og færa greiðslur
þessara bóta inn í staðgreiðslukerf-
ið. Þá hefur Samfylkingin það á
stefnuskrá sinni að foreldrar geti
nýtt ónýttan persónufrádrátt
barna sinna upp að 18 ára aldri.
Við viljum semja við samtök ör-
yrkja og aldraðra um afkomu-
tryggingu sem verði ótengd tekj-
um maka. Allt þetta er framkvæm-
anlegt í gegnum fjölþrepa skatt-
kerfi líkt og gert er hjá mörgum
þjóðum sem við berum okkur
gjarnan saman við.
í fjölþrepa skattkerfi er tekju-
lægsti hópurinn að sjálfsögðu
skattlaus. Síðan þarf að hugsa sér-
staklega um þann fjölmenna hóp
sem hefur tekjur á bilinu 60-120
þúsund krónur á mánuði, sem
greiðir allt of mikla skatta í dag
þegar tekið hefur verið tillit til
skerðinga í bótakerfinu, eða svo-
kallaðra jaðarskatta. Samfylkingin
segir einfaldlega að tekjujöfnunin
eigi að fara fram í gegnum gegn-
sætt fjölþrepa tekjuskattskerfi,
þar sem hver og einn þekkir rétt
sinn og veit frá mánuði til mánaðar
hvað hann á að greiða í skatt.
Hættum að skattleggja
almennan sparnað
Annað réttlætismál er að afnema
10% flatan fjármagnstekjuskatt
sem leggst jafnt á inneignir á
sparigjóðsbókum bama og eldri
borgara og tugmilljóna króna fjár-
magnstekjur einstaklinga og fyrir-
tækja. Samfylkingin vill að sett
verði frítekjumark á fjár-
magnstekjur þannig að tekjur ein-
staklinga af sparifé upp að 2-2,5
milljónum séu skattfrjálsar og
sömuleiðis fjármagnstekjur hjóna
af sparifé á bilinu 4- 5 milljónir.
Það er ekkert réttlæti í því að fyr-
irtæki og einstakling-
ar sem hafa milljónir
króna í fjármagnstekj-
ur greiði umtalsvert
lægri skatt af þeim en
vinnandi fólk greiðir af
vinnulaunum sínum.
Andstæðingar okkar
kjósa hins vegar að
snúa út úr þessum
réttlátu tillögum okk-
ar og halda því að
kjósendum að Sam-
fylkingin ætli að
hækka skatta á lág-
tekjufólk og milli-
tekjufólk. Sannleikur-
inn er allt annar eins
og fólk getur séð þeg-
ar það skoðar tillögur okkar milli-
liðalaust. Kjósendur ættu að velta
fyrir sér hver tilgangurinn er með
slíkum útúrsnúningum. Samfylk-
ingin vill afnema skatta á almenn-
an spamað, en sjá jafnframt til
þess að þeir sem hafa háar tekjur
af fjármagni borgi eðlilegan skatt
af þeim, sérstaklega þeir sem til
þess hafa getað skaffað sjálfum sér
fjármagnstekur í stað launatekna
og spilað þannig á kerfið.
Urslitakosningar
Eftir skamman tíma ákveður
þjóðin hverjir skuli verða fulltrúar
hennar á Alþingi næstu fjögur ár-
in. Það val getur haft úrslitaáhrif á
framtíð almennings í landinu.
Kostirnir hafa sjaldan eða aldrei
verið eins skýrir og nú. Spumingin
er hvort Samfylkingin eða Sjálf-
stæðisflokkurinn muni leiða lands-
stjómina á næsta kjörtímabili. Að
undanfömu hafa kannanir sýnt að
Sjálfstæðisflokkurinn getur náð
hreinum meirihluta. Ekkert stjóm-
málaafl annað en Samfylkingin
megnai’ að koma í veg fyrir það.
Atkvæði greitt Samfylkingunni er
klárlega atkvæði sem nýtist þeim
sem vilja sjá breytingar í lands-
stjórninni til jöfnunar, réttlætis og
lýðræðis, en atkvæði greidd öðram
era vatn á myllu valdaflokksins.
Samfylkingin hefur ein stjórnmála-
samtaka lagt fram heildstæða
stefnu í velferðarmálum og gert
grein fyrir því hvað hugmyndir
hennar kosta, greint frá því hvern-
ig standa skuli straum af útgjöld-
um og sýnt fram á hvernig skila
skuli ríkissjóði með tekjuafgangi
og tryggja jafnvægi í efnahagsmál-
um. Tillögur okkar snúast fyrst og
fremst um nýja forgangsröðun, þar
sem hagur þeirra sem minnst bera
úr býtum verður bættur.
Skattalækkun ríkisstjómarinn-
ar, sem hátt er haldið á lofti, kom
þeim tekjuhæstu til góða, en ekki
öðram. Samtök launafólks hafa
sýnt fram á með óyggjandi hætti,
að þeir sem era með 180 þúsund
krónur og þaðan af minna í laun á
mánuði hefðu verið betur staddir ef
ekki hefði verið gripið til þeirra
breytinga sem ríkisstjórnin gerði á
skattamálum. Skattalækkunin um-
talaða skilaði sér í raun eingöngu
til þeirra sem mestar hafa tekjurn-
ar. Þessu vill ríkisstjórnin að sjálf-
sögðu ekki vekja athygli á en ein-
hendir sér þess í stað í að gera
sanngjamar tillögur Samfylkingar-
innar tortryggilegar og gerir það
með afar ómerkilegum hætti.
Kjósendur eiga valið þann 8. maí.
Valið stendur í raun á milli Sjálf-
stæðisflokksins og Samfylkingar-
innar. Áframhaldandi óréttlætis eða
stefnu Samfylkingarinnar um jöfn-
uð, réttlæti og lýðræði fyrir alla.
Breytum rétt.
Höfundur er talsmaður
Samfylkingarinnar.
Margrét
Frímannsdóttir
Tökum ekki
ástæðulausa áhættu
HVERNIG rflds-
stjóm fáum við að
kosningum loknum?
Flest bendir til þess
að í raun sé aðeins um
tvenns konar stjómar-
mynstur að ræða.
Annars vegar tveggja
flokka rfldsstjóm þar
sem Sjálfstæðisflokk-
urinn verður áíram
kjölfesta og forj'stuafl.
Hins vegar stjórn þar
sem næststærsta
stjómmálaaflið, Sam-
fylkingin, verður
þungamiðjan. Sam-
fylkingin er hins veg-
ar ekki stjómmála-
flokkur heldur kosningabandalag
fjögurra flokka, Kvennahsta, Þjóð-
vaka, Alþýðuflokks og hluta Al-
þýðubandalagsins. Til að þessir að-
ilar geti myndað meirihlutastjórn
þarf tvo flokka til viðbótar, ef
marka má kannanir. Þar með væri
komin til valda í landinu í fyrsta
sinn ríkisstjóm sex flokka. Slíkt er
vægast sagt ógæfuleg tilhugsun,
enda er reynsla okkar íslendinga
af ríkisstjómum margi-a flokka
hörmuleg.
Undanfarnar vikur hef ég sem
varaformaður Sjálfstæðisflokksins
átt þess kost að hitta kjósendur á
opnum stjórnmálafundum í öllum
kjördæmum landsins. Það hefur
verið bæði lærdómsríkt og gef-
andi. Alls staðar hef ég fundið
mikla ánægju með þann stöðug-
leika sem ríkir í stjórnarfari og
efnahagsmálum og bjartsýni
gagnvart því sem framundan er.
Menn gera miklar
kröfur til Sjálfstæðis-
flokksins og setja í
vaxandi mæli traust
sitt á hann í öllum
kjördæmum.
Nú er lag til áfram-
haldandi umbóta
Sá árangur sem nú-
verandi rfldsstjórn
Sjálfstæðisflokks og
Framsóknarflokks
hefur náð er ótrúlega
mikill og öllum sýni-
legur. Hér hefur verið
mikfll samfelldur hag-
vöxtur sem skilað hef-
ur almenningi meira
en fimmtungs aukningu í raun-
veralegum kaupmætti á fáum ár-
um. Atvinnulífið blómstrar þótt af-
Nú er lag til að halda
áfram að bæta þjóðfé-
lagið, segir Geir
H. Haarde.
koma einstakra fyrirtækja sé mis-
jöfn. Verðbólgan er hverfandi lítil
og sömuleiðis atvinnuleysið. Við-
skiptahallinn fer minnkandi. Af-
gangur er á ríkisbúskapnum þrátt
fyrir veralegar skattalækkanir og
ríkið greiðir niður skuldir sínar
innan lands og utan í stórum stíl.
Við sjáum fram á ört minnkandi
vaxtabyrði rfldssjóðs af þeim sök-
um sem eykur svigrúm til annarra
og þarfari útgjalda, t.d. á sviði fjöl-
skyldumála og fíkniefnavama,
mennta- og heilbrigðismála, sam-
göngu- og byggðamála svo fátt eitt
sé nefnt.
Þessi árangur er meiri en
nokkru sinni áður í hagsögu Is-
lands og vekur athygli og aðdáun
með öðram þjóðum. En það sem
meira er: Þessi árangur er byggð-
ur á traustum granni sem unnt er
byggja á áframhaldandi sókn til f
bættra lífskjara. Á undanförnum
áram er búið að breyta svo hinni
almennu umgjörð um efnahags-
málin og auka svo sveigjanleika og
viðbragðsflýti í atvinnulifinu að af-
ar ólíklegt er að við íslendingar
munum aftur upplifa þær miklu
sveiflur og kollsteypur í efnahags-
lífinu sem áður tröllriðu þjóðai-bú-
skapnum með reglulegu millibili.
Nú er því veralegt lag til að halda
áfram að bæta þjóðfélagið, gera ís-
land enn betra.
Sólundum ekki árangrinum
í kosningunum nú er það um-
fram allt mikilvægt að almenning-
ur kjósi ekki yfír sig stjómmálaöfl -
sem líkleg era til þess að sólunda
þeim góða árangri sem náðst hef-
ur. Sá möguleiki er því miður raun-
veralega fyrir hendi. Sex flokka
ríkisstjóm af því tagi sem ég gat
um í upphafi er mjög líkleg til þess.
Það er engin ástæða til að taka
slíka áhættu. Eina öragga leiðin til
að forðast hana er að kjósa Sjálf-
stæðisflokkinn í dag. Það er líka
eina leiðin til að tryggja að Davíð
Oddsson verði áfram forsætisráð-
herra.
Höfundur er ffármálaráðherra og
varaformaður Sjálfstæðisflokksins.
Geir H.
Haarde
Nú er tími
til að breyta
Félagshygggjufólk á
Vesturlandi á kost á
því þegar það kemur í
kjörklefann í dag að
umbylta hinu pólitíska
landslagi í kjördæm-
inu. Þetta tækifæri
höfum við, sem aðhyll-
umst hugsjónirnar um
jöfnuð, jafnrétti og
réttlæti, ekki haft áð-
ur. Við eigum þess nú
kost í fyrsta sinn að
verða stærsta stjórn-
málaaflið í kjördæm-
inu og brjótast til
meiri póhtískra áhrifa
en áður, hafa áhrif í
samræmi við saman-
lagt kjörfylgi okkar. Það geram við
með því að beina kröftum okkar í
einn farveg. Það geram við með því
að greiða Samfylkingunni atkvæði
okkai-. Við skulum nota þetta tæki-
færi sem okkur býðst. Kosninga-
baráttan sem er að ljúka hefur ver-
ið einkar ánægjuleg. Sá góði hugur
sem frambjóðendur Samfylkingar-
innar hafa fundið meðal félags-
hyggjufólks í kjördæminu hefur
verið okkur mikil hvatning og
sannfært mig um að þegar við sam-
einum krafta okkar era okkur allir
vegir færir.
Viðbrögð andstæðinga Samfylk-
ingarinnar era einnig ótvírætt til
marks um þetta. Forystumenn
stjórnarflokkanna í kjördæminu
eiga að venjast því að mæta okkur
félagshyggjufólki í smáum og van-
megna flokkum og getað treyst því
að ná áhrifum langt umfram kjör-
fylgi sitt vegna sundrangar félags-
hyggjufólks. Vegna sundrangar-
innar eiga stjórnarflokkarnir nú
alla fjóra kjördæmakjörna þing-
menn kjördæmisins. Þess vegna á
félagshyggjufólk að-
eins einn þingmann,
uppbótarþingmann,
þrátt fyrir að hafa
greitt um 40 prósent
atkvæðanna í síðustu
kosningum.
Nú er staðan önnur.
Nú stöndum við saman
og fórum fram af
miklu meiri krafti en
áður. Það óttast for-
ystumenn stjómar-
flokkanna og kosn-
ingabarátta þeirra ber
vissulega keim af því.
Þess vegna hafa þeir
lagt sig fram um að af-
flytja og mistúlka
stefnu Samfylkingarinnar á sama
tíma og þeir hossa framboði fólks
sem kennir sig við vinstri stefnu og
umhverfisvemd en taldi sig ekki
geta átt samleið með Samfylking-
unni.
Þeir ætla engu að breyta
Samfylkingin hefur lagt fram
stefnumál sín í þessari kosninga-
baráttu og lagt áherslu á jöfnuð,
jafnrétti og réttlæti. Við viljum
bæta velferðarkerfið og höfum út-
skýrt hvernig við hyggjumst afla
til þess tekna. Við höfum gert fulla
grein fyrir utanrfldsstefnu Sam-
fylkingarinnar. Við ætlum að stór-
efla menntakerfið í landinu og auka
möguleika ungs fólks til þess að
búa við góða afkomu á landsbyggð-
inni. Við krefjumst réttlætis í sjáv-
arútvegi og eram eina stjórnmála-
aflið sem höfum gert grein fyrir
hvert við viljum stefna í þessu mik-
ilvægasta hagsmunamáli sjávar-
byggðanna. Stjórnarflokkamir
hafa á hinn bóginn neitað að
horfast í augu við misskiptinguna
Jóhann
Ársælsson
Við ætlum að breyta
rétt, segir Jdhann Ár-
sælsson, og ég heiti
á félagshyggjufólk
á Vesturlandi að taka
þátt í því.
sem þeir bera ábyrgð á. Þeh- segja
það hreint út að þeir vilji engu
breyta í sjávarútvegsmálum þótt r
ljóst sé að núverandi kerfi misbjóði
réttlætistilfinningu þorra þjóðar-
innar. Þeir ætla hreinlega engu að
breyta.
Mín skoðun er sú að nú sé
einmitt tími til að breyta. Við þurf-
um að breyta hinu pólitíska lands-
lagi og nota sameiginlega ki’afta
okkar til þess að auka jöfnuð og
velferð, skila góðærinu til fólksins.
Við ætlum að knýja fram breyting-
ar í sjávarútvegsmálum sem þjóðin
getur sætt sig við.
Við ætlum að breyta rétt og ég
heiti á félagshyggjufólk á Vestur-
landi að taka þátt í því. Við skulum
ekki láta það henda okkur aftur að „
afhenda stjómarflokkunum völdin
með því að dreifa atkvæðum okkar.
Stjómarflokkamir fengu að finna
fyrir kraftinum í þessu nýja afli í
sveitarstjórnarkosningunum í
fyrra þegar Samfylkingin varð
stærsta stjórnmálaaflið á Akranesi
og í Borgarbyggð. Nú getum við
gengið skrefinu lengra.
Höfundur er efsti maður á lista
Samfylkingarinnar á Vesturlandi.
aSTq
G
Skólavörðustíg 35,
sími 552 3621.