Morgunblaðið - 15.05.1999, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 15.05.1999, Blaðsíða 10
10 LAUGARDAGUR 15. MAÍ 1999 FRETTIR MORGUNBLAÐIÐ Erlendir fjársvikamenn reyndu að svíkja út 66 milljónir kr. með skipulegum hætti Saupfélag Eyfirðinga HafiMurrfiratsÖ €00 Atourejri StmlM03000 T<toS>hi>uc+$$44W 3000 Ttíctox+i $i4*27m SUÍ Tnm iSmi&>Ttam£a ?kmwts*aM4ty * úsxrnt öí Tððgr, wiS L« áe&xmá Oít tí&xsx b*krx. Aasssaia.&fpm, Aaatxsst íaWoKÍ* ;T*wsQf»aí2f»<Ö»M TSujwieÍ f**e O&Sy BR EnmN«n» ;NMtomtWM»vmt8ark«Qi») AífxwfttHa.'tw *úð3cx&Nurr&* Sö-.Cctíe 7?-« »xv# a pajsfctf- <an fe%<»03 fltóabesr $i»*53ö Píöæw rr4*» 9» afta* mmí* «« a «»aar « Uf^ncy.« pay!t»«í t> vwy us?«rst stnð «bmi t* «s»ð» tó«íl«,«« drajffl*tsw<»*<*3fl>oW V^bxmam^úSpsmmm.OxrnmmmvSS. Umrnrnmr^irmmmmim 5?'Í3 ss4 Wct* » eucsui*- W*xaiÍtaáMyaBS>»áx&0*ixw9avvi*!Xmiœ*&<£&*&iL Ttyfcp TÍak UwZ&wn MJOLKURSAMSALAN SVF 470269-3679 1 Bitruhatí,. Tclephone S69 2200 REYKJAVIK Telsfax 567 4520 Oate : tS93-05-t2 Rsf ; £w?ft.Tfan*f*f Ff©m ; Joftaams Gefr SigufgetTsscn To : Ma H«a»u2a«» ha* to ft« madc from cor fcwsmea* occounf held sf youf ftank. P.'eaac usc samc cay v»3ueá««. Also.chsrgccui-accoumfBronyrecfpicntfaarAeftafSeswftefoappiicabto. VVe^so untíefsfanC a cftotge of TQOKr. wia b« ðeöuOtfd frorr. ouí occtwm fteiow. Psytninit Ostaie. Amouns tft ftguros Aroount in Words í tÖÆCO.OOÍf OOK# ; Eíanisen Máiioft Oniy Cur ð«at!a Aftcouns tarrnt ; MJOLKURSAMSALAN Acceunt Nvmfaer ; flMMMK Banefeiary Octafis Bartk Name : Hacoafim Bank tCkar Hanasíí Afiaowtt Namo AecountNumfacf Brancft '-WB Tís« tóove {K*>twni t> pcyaaie cn ínvoice numbef QS2345Ö0 Ressa maks ffte a&cve poynioRf on « mat&sr cf wfgenc/, aa tfte ofaove paynwnt is v«y urcen; and fttuat s» m«da unífsf a?i csfcumstanaa on nxeípt of 8»is fex, Ffease fav cofiömwtiðn cf paytmfit cn Ux ftumfaer 50S 0S00. on S0S091S and teave a rnessage. vve autfteriae ycu la ntaktí tftc töcve payment on receipt ai th* tax. Thankym, s an emersency oniy ccmact «s Msgnu* H. Stgtiítfssoo Cfteémen ftfr Vífnoím I. Andemen MIKIÐ er þrýst á að millifærslurnar eigi sér stað með hraði. Notuð eru orðasambönd eins og „matter of urgency“ og „immediate has to be made...“ „Þetta er keyrt á miklum hraða og með miklum iátum síðasta dag fyrir frídag,“ segir Arnar Jensson, yfirmaður efnahagsbrotadeild- ^ ar Rfldslögreglustjóra. Islenskir bankamenn komu MILLIFÆRSLUBEIÐNI frá stjórnarformanni KEA með símbréfi, undirritað af stjórnarformanni, ritara og forstjóra KEA. Símbréfið reyndist hafa komið frá Bandaríkjunum og var falsað. upp um fjársvikatilraunirnar Morgunblaðið/RAX „EP UM er að ræða bankastarfsfólk, þá hafi það samband við eiganda peninganna og fari sérstaklega varlega varðandi símbréfabeiðnir, því það er hægt að falsa föx fram og til baka,“ segir Arnar Jensson, sitj- andi fyrir miðju. T. v. er Hafliði Þórðarson og t.h. er Hörður Sigur- jónsson, báðir starfsmenn efnahagsbrotadeildar Ríkislögreglustjóra. EFNAHAGSBROTADEILD Ríkis- lögreglustjóra hefur nú til rann- sóknar mál, sem varðar skjalafals og tilraun til alvarlegra fjársvika, þar sem útlendir aðilar reyndu með skipulögðum hætti að svíkja um 66 milljónir króna út úr þremur ís- lenskum fyrirtækjum sama daginn, síðastliðinn miðvikudag. Að sögn Amars Jenssonar, yfir- manns efnahagsbrotadeildar Ríkis- lögreglustjóra, á fundi með frétta- mönnum í gær, er margt sem bend- ir til þess að nú sé kominn fram vitnisburður um að búið sé að kippa íslandi inn í samfélag þjóðanna að því er varðar alþjóðlega glæpastarf- semi. „Það er ljóst að það er oftar sem upp koma skipulögð mál þar sem reynt er að ná peningum út úr bönk- unum og þeir aðilar sem stunda brotið eru staddir í mörgum lönd- um,“ segir Arnar. „Samskiptin eru alltaf að verða opnari og opnari, þannig að bæði með tölvusamskipt- um milli landa og með meira frelsi í flutningum á peningum, erum við að komast inn á kortið.“ Fullframin skjalafalsbrot og tilraun til Qársvika Brotin, sem hér um ræðir, eru fullframin skjalafalsbrot og tilraun til fjársvika og fóru fram síðastliðinn miðvikudag með þeim hætti að hringt var í KEA um klukkan 11 fyrir hádegi, þar sem „viðskiptavin- ur“ vildi leggja inn 300 þúsund doll- ara inn á viðskiptaskuld sína hjá fyr- irtækinu. Samkvæmt ósk fjármálastjóra KEA gaf maðurinn upp bréfsíma- númer í Bretlandi. Hann fékk upp- gefnar upplýsingar með símbréfi um bankareikning til að leggja inn á í breska númerið. Um sama leyti hringdi útlending- ur í Landsbankann á Akureyri og gaf upp nafn sem reyndist vera nafn eins yfirmanna KEA. Hann til- kynnti að á leiðinni væri millifærslu- beiðni af bankareikningi KEA inn á erlendan bankareikning í Westmin- ster Bank í Gíbraltar að fjárhæð 25 milljónir króna. Falsaðar undirritanir forstjóra KEA og fleiri Skömmu síðar kom millifærslu- beiðni frá stjórnarformanni KEA með símbréfi, undirritað af stjórnar- formanni, ritara og forstjóra KEA. Símbréfið reyndist hafa komið frá Bandaríkjunum. Óskað var eftir að staðfesting yrði send á Hótel Holt um leið og millifærslan hefði átt sér stað og gefin voru upp bréfsíma- númer og símanúmer á Hótel Holti. Arnar segir það ljóst að umrædd- ar undirskriftir á millifærslubeiðn- irnar hafi verið fengnar úr ársreikn- ingi félagsins. „Þannig að það er ein- hver aðili hér, sem hefur komist yfir ársreikning KEA og notað undir- skriftirnar sem þar koma fram á þetta skjal.“ [Millifærslubeiðnina.] Hann segir þó að ekki sé hægt að segja að svo stöddu til um það hvort einhver eða einhverjir liggi undir grun um að hafa staðið að brotun- um, en verið sé að kanna allar vís- bendingar og haft verður samstarf við erienda lögreglu vegna málsins. Skömmu eftir fyi-stu millifærslu- beiðnina kom ítrekunarsímbréf um hana og enn nokkru síðar hringdi maður í Landsbankann, sem talaði ensku og kynnti sig með nafni fjár- málastjóra KEA. Hann sagðist vera staddur á Hótel Holti og rak á eftir greiðslunni. Starfsmaður bankans hafði þá samband við yfirmenn bankans sem hringdu til KEA þar sem í ljós kom að um tilraun til svika var að ræða. Um svipað leyti hringdi ensku- mælandi maður á Hótel Holt sem kynnti sig með nafni stjórnarfor- manns KEA og óskaði eftir bókun á hótelið og gaf upp greiðslukorta- númer sem reyndist vera kort sem tilkynnt hafði verið glatað fyrir nokkru. Reynt að svíkja miHjónatugi af Mjólkursamsölunni og ÁTVR Sams konar tilraun og hér að ofan var lýst var gerð um miðjan sama dag gagnvart bankareikningi Mjólk- ursamsölunnai' hjá aðalbanka Landsbankans en millifærslubeiðnin, að upphæð 18 milljónir króna, var stöðvuð af starfsfólki bankans eftir að haft var samband við Mjólkur- samsöluna. Þriðja tilraunin var síðan gerð um miðjan sama dag, í þetta skiptið gagnvart bankareikningi ÁTVR hjá Islandsbanka, Suðurlandsbraut, en millifærslubeiðnin, að upphæð 23,2 milljónir króna, var stöðvuð með sama hætti og á undan var lýst. Undirbjuggu sig rækilega „Það er alveg greinilegt að þeir sem standa að þessu undirbjuggu sig rækilega. Þeir öfluðu sér gagna um fyrirtækin sjálf, síma, fax, heim- ilisfang, undirskriftir, stjórn, for- stjóra og bankareikninga og síðan gera þeir atlögu allir í einu á sama tíma, það er mikið sem liggur á, þeir hringja og pressa á og fylgja beiðn- unum eftir,“ segir Arnar Jensson. „Það er mjög skipulega að þessu staðið og þetta er keyrt á miklum hraða og með mildum látum síðasta dag fyrir frídag [uppstigningardag, fimmtudag]. Málinu er stillt þannig upp að verið sé að gera mjög mikil- væg viðskipti á hótelum 1 Reykjavík og það þurfi að færa peningana í hvelli til að viðskiptin geti gengið fyrir sig,“ segir Arnar. Árvekni bankastarfsmanna kom í veg fyrir ljársvikin Hann segir að með ái'vekni bankastarfsmanna hafí verið komið í veg fyrir að fjársvikabrotin yrðu fullframin og segir að helstu skila- boð efnahagsbrotadeildarinnar til þeirra sem gætu orðið fyrir barðinu á fjárglæpamönnum séu þau, að gæta sín og kanna við hvern er tal- að. „Ef um er að ræða bankastarfs- fólk, þá hafi það samband við eig- anda peninganna og fari sérstak- lega varlega varðandi símbréfa- beiðnir, því það er hægt að falsa fóx fram og til baka. Það er mikilvægt að hafa samband við þann sem á bankareikninginn og spyrja hvort rétt sé að þeir séu að millifæra. í máli KEA t.d. hringdi maður í bankann og sagðist vera Árni Magnússon fjármálastjóri og talaði ensku. Eftir að bankinn hafði farið í gegnum smáferii var hringt í skrif- stofur KEA og spurt um Áma Magnússon. Hann var þá staddur á skrifstofu sinni og þá komu svikin í ljós,“ segir Arnar. Hann segir að í tilfellum sem þessum séu bankastarfsmenn samt settir í erfiða stöðu þar sem glæpa- mennirnir beita talsverðum þrýst- ingi um að millifærslurnar eigi sér stað á sem skemmstum tíma. Þannig sé það meðvitað hjá glæpa- mönnunum að bankastarfsmenn fái sem minnstan tíma til að hugsa sig um og kanna hvort maðkur sé í mys- unni. Hann segir að glæpamennirn- ir, sem eigi allt undir því að milli- færslurnar eigi sér stað, skapi streitukennt ástand í því skjóli að mikil „viðskipti“ séu að eiga sér stað og það sé bankastarfsmanninum að kenna ef þau ganga til baka. Rúmlega tvöfalt meira áhorf PÁLL Magnússon, frétta- stjóri Stöðvar 2, segir að áhorf á fréttaþáttinn 19.20 hafi mælst rúmlega helmingi meira en hlustun á kvöld- fréttatíma Ríkisútvarpsins, samkvæmt könnun Félagsvís- indastofnunar. Halldóra Ingvadóttir, framkvæmda- stjóri útvarpsins, sagði í Morgunblaðinu sl. fimmtudag að samkvæmt síðustu könnun sem hún hefði í höndum virtist Stöð 2 hafa 26% áhorf klukkan 19 en útvarpið 17% hlustun. „í þessari síðustu, stóru könnun Félagsvísindastofnun- ar, sem gerð var 15.-21. októ- ber 1998, kemur í ljós að með- altalshlustun á sjöfréttir RUV er á virkum dögum 14,5%. Mælingin er kl. 19 og 19.15. Sams konar mæling á RUV um helgar sýnir 11,2% hlust- un. Mæling á 19.20 með ná- kvæmlega sama hætti sýnir að meðaltalsáhorf virka daga er 27% og 25% um helgar. Ég myndi ætla að samkvæmt vegnu meðaltali hefðum við rúmlega tvöfalt meira áhorf en hlustun er á sjöfréttir RÚV,“ sagði Páll. Halldór Ásgrímsson ræddi við utanríkis- ráðherra Rússlands Vilja ljúka samningum sem fyrst HALLDÓR Ásgrímsson utan- ríkisráðherra átti í gær fund með ígor ívanov, utanríkisráð- herra Rússlands, í Pétursborg í Rússlandi og sagði Halldór að það væri vilji beggja aðila að ljúka sem fyrst samningum um samstarf íslendinga og Rússa á sviði sjávarútvegsmála. „Við ræddum um Smugu- samkomulagið og væntanlegan sjávarútvegssamning milli ís- lands og Rússlands. Við urðum sammála um að stefna að því að ljúka þeim samningum sem fyrst,“ sagði Halldór í samtali við Fréttavef Morgunblaðsins í gær, en að hans sögn fór megnið af fundartímanum þó í að ræða stöðuna í Kosovo-deil- unni. Halldór sagði að engar tíma- setningar hefðu verið nefndar um hvenær hugsanlega yrði hægt að Ijúka sjávarútvegs- samningunum. „Það er vilji beggja aðila að ljúka þeim sem fyrst og auka samskipti land- anna í framhaldi af því. Við höfum verið að vinna að því mjög lengi og málið er í eðlileg- um farvegi. Það er alveg ljóst að Smugusamkomulagið skap- ar nýja möguleika og það eru allir sammála um að svo sé og í framhaldi af því þurfi að vinna að því að auka samskipti land- anna á sviði sjávarútvegs og viðsldpta,11 sagði Halldór. Auk þess að eiga fund með ívanov átti Halldór og tvíhliða fund með utanríkisráðherra Eistlands. Á honum var fyrst og fremst rætt um Atlants- hafsbandalagið og heimsókn forseta Eistlands til íslands, að sögn Halldórs.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.