Morgunblaðið - 15.05.1999, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 15. MAÍ 1999 35
ERLENT
Yatnavext-
ir í Rín
MIKLIR vatnavextir ofarlega í
ánni Rín urðu til þess að loka
þurfti fyrir allri skipaumferð á
um tvö hundruð kílómetra
svæði milli Basel við landamæri
Sviss og Þýskalands og borgar-
innar Mannheim í Þýskalandi í
gær. Flóðin voru talin stafa af
miklum rigningum og bráðn-
andi snjó í svissnesku Ólpunum
en Rín er ávallt lokað fyrir
skipaumferð þegar vatnshæð í
ánni nær yfir 7,5 metra. Ekki
var hins vegar gert ráð fyrir að
lokunin hefði mikil áhrif á þau
fyrirtæki, sem háð eru því að
vörur berist eftir þessum leið-
um, þar sem fimmtudagurinn
var frídagur víðast hvar í Evr-
ópu og viðskipti því lítil hvort eð
var. Stanslaust regn hefui-
einnig valdið flóði í Austurríki,
þar sem stífla í Týrol gaf sig
vegna flóðsins í gær og óttuðust
sérfræðingar að aurskriða færi
af stað.
Ovænt afsögn
Borrells
ALGERT uppnám ríkir nú í
röðum spænskra sósíalista eftir
að Jose Borrell, forsætisráð-
herraefni
flokksins, til-
kynnti um af-
sögn sína í
gær, en þing-
kosningar
eiga að fara
fram á Spáni í
síðasta lagi á
næsta ári.
Borrell kvaðst
ætla að hætta
formennsku til að tryggja að
flokkur sinn bæri ekki skaða af
ásökunum um fjármálamisferli,
sem bornar hafa verið fram á
hendur nokkrum af undirmönn-
um hans á meðan hann var ráð-
herra í síðustu ríkisstjórn sósí-
alista. Kom afsögnin á slæmum
tíma enda er stutt í Evrópu-
þingskosningarnar og höfðu
sósíalistar að undanförnu lagt
allt kapp á að stilla saman
strengi sína eftir erfiða tíð.
Borrell var óvænt kjörinn for-
sætisráðherraefni sósíalista fyr-
ir tveimur árum þegar Felipe
Gonzalez, fyrrverandi forsætis-
ráðherra, sagði af sér.
Upplagið gert
upptækt
YFIRVÖLD í Pakistan gerðu í
gær upptækt allt upplag vin-
sæls dagblaðs, að sögn útgef-
enda, stuttu eftir að ritstjóri
blaðsins var handtekinn. Jugnu
Moshin, útgefandi The Friday
Times og eiginkona ritstjórans
Najams Sethis, sem handtekinn
var nýlega, sagði að lögreglu-
menn hefðu gert allt upplag
blaðsins, sem gefið er út á
ensku, upptækt. Stjórnvöld full-
yrtu hins vegar að ekki væri um
atlögu að fjölmiðlafrelsi að
ræða heldur tengdist handtaka
Sethis meintum tengslum hans
við indversku leyniþjónustuna.
Golkar velur
Habibie
STJÓRNARFLOKKURINN
Golkar í Indónesíu valdi í gær
B.J. Habibie Indónesíuforseta
sem frambjóðanda sinn í for-
setakosningum, sem fram eiga
að fara síðar á þessu ári.
Fréttaskýrendur sögðu ákvörð-
unina „pólitískt sjálfsmorð" en
skoðanakannanir hafa sýnt að
Habibie er afar óvinsæll meðal
almennings.
Patten í fram-
kvæmdastj órnina
JIM Wallace, Ieiðtogi frjálslyndra í Skotlandi, og Donald Dewar, leið-
togi Verkamannaflokksins, skrifa undir stjórnarsáttmálann í gær.
Stj órnarsáttmáli
undirritaður
í Skotlandi
Edinborg. Reuters, AP, AFP.
LEIÐTOGAR Verkamannaflokksins
og Frjálslyndra demókrata í
Skotlandi undirrituðu í gær stjórnar-
sáttmála og hefur því samsteypu-
stjórn flokkanna tveggja formlega
tekið við völdum í Skotlandi, en kosið
var á nýtt heimastjórnarþing í síð-
ustu viku. Frjálslyndir fá tvö ráð-
herrasæti en að öðru leyti er heima-
stjórnin skipuð fulltrúum Verka-
mannaflokksins.
Donald Dewar, leiðtogi Verka-
mannaflokksins, verður forsætisráð-
herra í heimastjórninni skosku og
Jim Wallace, leiðtogi frjálslyndra,
aðstoðarforsætisráðherra en næst-
um þrjú hundruð ár eru síðan Skotar
höfðu síðast sitt eigið þing. Dewar
var kosinn forsætisráðherra þegar á
fimmtudag á þingfundi í Edinborg
en Verkamannaflokknum tókst ekki
að tryggja sér hreinan meirihluta í
þingkosningunum, og þurfti því á
stuðningi frjálslyndra að halda.
Nokkur óánægja er sögð í þing-
flokki frjálslyndra með þá ákvörðun
Wallace að ganga til samstarfs við
Verkamannaflokkinn sökum þess að
í kosningabaráttunni höfðu frjáls-
lyndir beitt sér mjög gegn því að
skólagjöld verði tekin upp í skoskum
háskólum. Slógu frjálslyndir nokkuð
af kröfum sínum í stjómarsáttmál-
anum og varð það til þess að þrír af
sautján þingmönnum flokksins
greiddu atkvæði gegn stjórnarsam-
starfi með Verkamannaflokknum.
Jafnframt gagnrýndi Alex
Salmond, leiðtogi Skoska þjóðar-
flokksins (SNP), Wallace harðlega
og sagði hann algerlega hafa gefið
upp á bátinn stefnumál frjálslyndra.
Þessu neitaði Wallace hins vegar og
sagði að í anda „þeirra nýju stjórn-
mála“ sem nú væru komin til að vera
í Skotlandi „hefði orðið að taka mið
af öllum sjónarmiðum" í málinu.
Auk þess sem Dewar var kosinn
forsætisráðherra á fimmtudag vai-
Sir David Steel kjörinn forseti þings-
ins nýja. Steel var leiðtogi frjáls-
lyndra í Bretlandi á níunda áratugn-
um, forveri Paddys Ashdowns í því
embætti.
BREZKA ríkisstjórnin hefur tekið
ákvörðun um að tilnefna Chris Patt-
en, fyrrverandi ríkisstjóra Hong
Kong, í embætti annars tveggja full-
trúa Bretlands í framkvæmdastjórn
Evrópusambandsins (ESB), að því
er brezkir fjölmiðlar greindu frá í
vikunni.
Patten, sem er í brezka Ihalds-
flokknum en er yfirlýstur fylgismað-
ur náins Evrópusamstarfs Bret-
lands, er að sögn Financial Times
ætlað að taka við af Sir Leon Britt-
an, núverandi varaforseta fram-
kvæmdastjórnarinnar. Talsmenn
brezka forsætisráðuneytisins vildu
ekki staðfesta fréttina að svo stöddu.
Prodi vill „hreint borð“
Vitað er að Romano Prodi, sem út-
nefndur hefur verið næsti forseti
framkvæmdastjórnarinnar, kysi
gjaman að sjá Patten í „sínu liði“,
sem taka mun við af þeirri fram-
kvæmdastjórn sem Jacques Santer
fer fyrir og sagði af sér í marz sl.
Hverjir munu skipast í hina 20
manna framkvæmdastjórn með
Prodi þarf að vera komið á hreint í
sumar, en fram í júlí gegnir Patten
því viðkvæma hlutverki í friðarferl-
inu á Norður-írlandi að semja um
framtíðarfyrirkomulag lögreglumála
þar.
Harare. AFP.
TVEIR naktir þjófar, sem málað
höfðu á sér andlitið og sett trjá-
greinar í hár sitt, birtust skyndi-
lega á golfvelli í Afrfkuríkinu
Zimbabwe og tóku að dansa stríðs- •
dans í kringum tvær óttaslegnar
konur áður en þeir hurfu á brott
með töskur kvennanna, að sögn
dagblaðs í Zimbabwe í vikunni.
The Herald greindi frá því að
þjófamir, sem ekki vom vopnaðir
öðru en adamsklæðunum, hefðu
skilið konurnar tvær eftir í nokkru
Prodi hefur látið þá ósk í ljósi, að
fá að byrja sitt skipunartímabil með
„hreint borð“, þ.e. að nýir menn
verði skipaðir í hvert rúm. Það á því
eftir að koma í ljós hvort Neil
Kinnock, fyri-verandi leiðtogi brezka
Verkamannaflokksins sem verið hef-
ur hinn fulltrúi Bretlands í fram-
kvæmdastjóm Santers, fái að halda
stól sínum eins og hann hefur sjálfur
vonazt til að geta.
Langt er síðan vangaveltur komu
fyrst upp um útnefningu Pattens, en
William Hague, leiðtogi Ihalds-
flokksins, lagði til að Alastair
Goodlad, fyrrverandi agameistari
þingflokks íhaldsmanna, yrði arftaki
Sir Leons í Brussel. Hefð hefur
skapazt um að sitjandi ríkisstjórn út-
nefni í framkvæmdastjórnina sinn
hvorn fulltrúann úr liði stjórnarinnar
og stjómarandstöðunnar, og væri
það brot á venju ef gengið væri
framhjá óskum flokkforystu stjórn-
arandstöðuflokksins um hver þessi
fulltrúi ætti að vera.
uppnámi, ekki aðeins hafði blygð-
unarkennd þeirra verið gerð um-
talsverð skráveifa heldur glötuðu
þær einnig nokkrum fjármunum og
farsímum sfnum i bi'ræfnu ráninu.
Peggy Taylor sagði í samtali við
The Herald að hún gæti sem betur
fer hlegið að atburðinum núna en
tók fram að henni hefði alls ekki
staðið á sama á meðan á ráninu
stóð. Gat hún þess að langur tími
myndi líða þar til hún hætti sér
aftur út á golfvöllinn.
Bíræfnir þjófar á
adamsklæ ðunum
Hjá okkur fást amerískar raímagnsheilsudýnur með fullkomnu
pokafjaðrakerfi og hágæða bólstrun. Einnig heilsurúm ffá
Belgíu og Hollandi með sterkum rafstýrðum rúmbotnum sem
laga sig að líkamanum. Úrval af amerískum dýnum og
evrópskum latex, spring og heilsudýnum. Með fjarstýringu
getur þú stillt rúmin eins og þú vilt.
Verið velkomin tíl okkar
og prófið þessi ffábaeru rúm
Opið laugardag og /
sunnudag ffá kl. 10-16 i
Grensásvegi 3 Sími: 568 1144
i VV]—»itehi.