Morgunblaðið - 15.05.1999, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 15. MAÍ 1999 15
FRÉTTIR
Kærunefnd jafnréttismála beinir tilmælum til bæjarstjórnar Akureyrarbæjar
Bættur verði launamun-
ur tveggja deildarstjóra
KÆRUNEFND jafnréttismála hef-
ur beint því til Akureyrarbæjar að
deildarstjóra leikskóladeildar bæjar-
ins verði bættur munur sem var á
kjörum hennar og deildarstjóra öldr-
unardeildar. Deildarstjórinn hafði
farið iram á að kærunefndin kannaði
hvort synjun bæjaryfírvalda á því að
miða launakjör sín við kjör atvinnu-
málafulltrúa og til vara við kjör
deildarstjóra öldrunardeildar bryti
gegn jafnréttislögum.
Kærandi var ráðin deildarstjóri
dagvistardeildar, síðar leikskóladeild
Akureyrarbæjar í mai 1991 og fast-
ráðin ári síðar. I ráðningarsamningi
var tilgreint að hún tæki laun sam-
kvæmt kjarasamningi Fóstrufélags
íslands, nú Félags ísl. leikskólakenn-
ara, þar sem kærandi var félagsmað-
ur. Með sérstökum samningi var
hins vegar ákveðið að hún tæki laun
samkvæmt launatöflu í kjarasamn-
ingi Starfsmannafélags Akureyrar-
bæjar, STAK og launanefndar sveit-
arfélaga. Kærandi og forsvarsmenn
Fóstrufélagsins kröfðust þess ítrek-
að að laun hennar yrðu endurskoðuð
með tilliti til eðlis, ábyrgðar og um-
fangs starfsins og þess að endurmat
hafði farið fram á kjörum annarra
deildarstjóra bæjarins. Kæranda var
í mars 1993 boðin hækkun afturvirkt
sem hún þáði en hafnað var kröfu
hennar um fastan bílastyrk. Var hún
samt ósátt við kjör sín og taldi starf
sitt vanmetið til launa miðað við aðr-
ar sambærilegar stöður hjá bænum.
Laun hækkuð í
kjölfar starfsmats
Árið 1996 fór fram mat á launum
og störfum nokkurra kvenna og
karla í deildai-stjórastöðum hjá
Akureyrarbæ. Starf deildarstjóra
leikskóladeildar var metið til 168
stiga, starf atvinnumálafulltrúa til
170 stiga og starf deildarstjóra öldr-
unardeildar sem 172 stig. I kjölfar
þessarar niðurstöðu voru laun deild-
arstjórans hækkuð um tvo launa-
flokka í febrúar afturvirkt til októ-
ber 1996. Kærandi sagði starfi sínu
lausu sumarið 1997 og lét af störfum
um haustið.
Niðurstaða kærunefndar jafnrétt-
ismála var sú að Akureyrarbær
hefði fært fyrir því fullnægjandi rök
að starf deildarstjóra leikskóladeild-
ar og atvinnumálafulltrúa væru ekki
sambærileg og jafnverðmæt í skiln-
ingi jafnréttislaga. Nefndin telur
hins vegar að kærandi hafi frá í maí
1992 átt rétt á sambærilegum kjör-
um og deildarstjóri öldrunardeildar
þar til kjörin voru samræmd. Heild-
arlaun kæranda voru 84% af heild-
arlaunum deildarstjóra öldrunar-
deildar og verði sá munur ekki
skýrður með mismunandi starfsaldri
eða öðru sem varði einstaklingana
sem störfunum gegndu. Nefndin
beinir þeim tilmælum til Akureyrar-
bæjar að kæranda verði bættur sá
munur sem var á lqörum hennar og
deildarstjóra öldrunardeildar frá
maí 1992 og þar til kjörin voru sam-
ræmd.
Vtsafa
f|§| Wm ff|| ff§|
í húsnæði Radíóbúðarinnar
toppmerki í skóm
á verði frá kr :
m
BOUTIQUE
iNN
Tískufatnaður
50-90%
’ ' i t
afsláttur
19
kringlunní 1HÆ0
atoQVm
r
opið alla daga
frá 12.00 - 19.00