Morgunblaðið - 15.05.1999, Blaðsíða 88

Morgunblaðið - 15.05.1999, Blaðsíða 88
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN1,103 REYKJAVIK, SÍMI6691100, SÍMBRÉF6691181 PÓSTHÓLF 3040, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1 LAUGARDAGUR 15. MAÍ 1999 VERÐ í LAUSASÖLU 150 KR. MEÐ VSK Bandarísk stjórnvöld Hafa rétt til þess að áfrýja BANDARÍSK stjómvöld hafa lagt fram tilkynningu um rétt til áfrýjun- ar, vegna dóms sem kveðinn var upp í máli Eimskipafélags Islands gegn Bandaríkjaher í byrjun febrúar. I dómnum segir að hnekkja beri þeirrj ákvörðun Bandaríiqahers að ganga að tilboðum TransAtlantic Lines og Atl- antsskipa um sjóflutninga fyrir vam- arliðið. Tilkynning um rétt tíl áfrýjun- ar er ekki fullgild á&ýjun heldur gef- ur hún stjómvöldum tækifæri til að verja hagsmuni sína og lengja þann frest sem gefst til áfrýjunar. Russell Coleman, fulltrúi í upplýs- ingadeild bandaríska dómsmálaráðu- neytisins, segir að stjómvöld hafi því ekld tekið ákvörðun um hvort málinu verði áfrýjað. Akvörðun þar um geti legið fyrir í haust. „Eg get ekki verið nákvæmari í tímasetningu vegna þess að tilkynn- ing um rétt til áfrýjunar er lögð fram í því skyni að gefa stjómvöldum tæki- færi til að komast að niðurstöðu um það hvort málinu verði áfrýjað," sagði Coleman. Máfið er nú í höndum svonefhds embættismanns sem flytur mál alrík- isstjómarinnar fyrir hæstarétti og ákveður hvaða málum stjómin áfrýjar til hæstaréttar. „Við bíðum viðbragða hans. Ákvörðun um þetta ætti þó í síðasta lagi að liggja fyrir í haust,“ sagði Coleman. Reyndu að svíkja út 66 milljónir króna ÚTLENDIR aðilar reyndu með skipulögðum hætti að svíkja um 66 milljónir króna út úr þremur íslenskum fyrirtækjum sama daginn, síðastliðinn miðvikudag. Peim tókst ekki ætlunarverk sitt vegna árvekni bankastarfsmanna en þeir frömdu fullframin skjala- falsbrot með því að falsa undir- skriftir yfirmanna fyrirtækjanna og sendu bönkunum millifærslu- beiðnir í nafni fyrirtækjanna. St- arfsaðferðir þeirra voru ágengar og miðuðu að því að skapa streituástand í bönkunum. Að sögn Arnars Jenssonar, yf- irmanns efnahagsbrotadeildar ríkislögreglustjóra, bendir margt Árvökulir banka- starfsmenn komu í veg fyrir svikin til þess að nú sé kominn fram vitnisburður um að búið sé að kippa Islandi inn í samfélag þjóð- anna að því er varðar alþjóðlega glæpastarfsemi. „Það er ljóst að það er oftar sem upp koma skipulögð mál þar sem reynt er að ná peningum út úr bönkunum og að þeir aðilar sem stunda brotið eru staddir í mörgum löndum,“ segir Arnar. „Samskiptin eru alltaf að verða opnari og opnari, þannig að bæði í tölvusamskiptum milli landa og með meira frelsi í flutningum á peningum, þá erum við að kom- ast á kortið.“ Hann segir greinilegt að þeir sem stóðu að fjársvikatilraunun- um hafi undirbúið sig rækilega með því að afla sér gagna um fyr- irtækin sjálf, síma þeirra, símbréf, heimilisfang, undir- skriftir, stjórn, forstjóra og bankareikninga og hafi síðan gert atlögu allir í einu á sama tíma. ■ íslensk fyrirtæki/10 Morgunblaðið/Ásdís Hornsteinn lagður að Sultartanga- virkjun GESTIR streyma að stöðvar- húsinu að Sultartanga, þar sem Ólafur Ragnar Grímsson forseti lagði hornstein að virkjuninni í gær. I ávarpi sínu við athöfnina hvatti Ólafur Ragnar menn til að huga vel að breyttu verð- mætamati, þar sem óspillt nátt- úra kynni að verða meira metin á komandi öld en nú. Því bæri að íhuga vel frekari virkjunar- framkvæmdir. Nýja virkjunin gæti ein séð fyrir venjulegri orkunotkun á Reykjavíkursvæðinu. Fyrri hverfill virkjunarinnar verður settur í gang í nóvember. Þegar virkjunin verður tekin til starfa verða íslendingar mestu raf- orkunotendur í heimi. I Forsetinn/6 Þorgeir Hlöðversson, kaupfélagsstjori KÞ Unnið hörðum höndum að því að biarga Aldini ÞORGEIR Hlöðversson, kaupfélags- stjóri Kaupfélags Þingeyinga, segir það lykilatriði að viðhalda því at- vinnustigi og þeirri uppbyggingu at- vinnulífs sem Kaupfélag Þingeyinga stóð fyrir í sýslunni. Samkvæmt heim- ildum Morgunblaðsins fengu starfs- menn fyrirtækisins Aldins hf„ sem KÞ á um 30% hlut í, laun sín ekki greidd í gær. Finnur Ingólfsson viðskiptaráð- herra sagði forráðamenn kaupfélags- ins ekki hafa leitað formlega eftir lið- sinni sínu eða rfldsstjórnarinnar vegna fjárhagsvandans. „Þegar svona kemur upp hafa menn samband og það er kannski ekki síst vegna Aldins sem við höfum horft á sem nýsköpun í atvinnulífinu. En okkur hafa engin formleg erindi borist um aðstoð," sagði ráðherrann. Hann kvaðst að- spurður ekki þekkja stöðuna nægilega vel til að geta lagt mat sitt á hvort Ekki verið leitað liðsinnis ríkis- stjórnarinnar nauðsynlegt sé að rfldsstjómin grípi inn í enda sagði hann stöðuna ekki ljósa ennþá. Aðalfundur Kaupfélags Þingeyinga verður haldinn á Hótel Húsavík á þriðjudag en þar liggur fyrir að stað- festa stofnun tveggja hlutafélaga, Kjötíðjunnar ehf., sem tekur við eign- um og skuldbindingum KÞ á sviði slátrunar og kjötvinnslu, og MSKÞ ehf. sem tekur við eignum og skuld- bindingum KÞ á sviði mjólkurvinnslu. Til þessarar ráðstöfunar er gripið til að verja eignir og rekstur KÞ, hagsmuni starfsfólks, viðskiptavina og félagsmanna kaupfélagsins. Mikið tap var á rekstri KÞ á liðnu ári sem að einhverju leytí má rekja til fyrirtækis- ins Aldins hf. sem KÞ á um 30% hlut í. „Þetta fyrirtæki fór af stað fyrir um þremur áram með góðu markmiði, en ýmislegt þróaðist á annan veg en gert var ráð fyrir," sagði Þorgeir, en áður en fyrirtækinu var ýtt úr vör lá fyrir skýrsla þar sem fram kom að um áhugavert og arðbært fyrirtæki væri að ræða. „Það er unnið hörðum hönd- um að því að bjarga fyrirtækinu og finna því endumýjaðan rekstrar- grunn,“ sagði Þorgeir, en gat á þessu stígi eldd greint frá í hverju aðgerðir fælust. Hann sagði tíðinda að vænta, sennilega í næstu viku, en stjóm fé- lagsins væri að vinna að málinu. „Það verður unnið að því að bjarga fyrir- tækinu næstu daga og greiða úr þeim vandræðum sem það á í og við vonum að lausn finnist," sagði Þorgeir. ■ Kaupfélag/44 Húnavatnssýsla Tekinn á 146 km hraða LÖGREGLAN á Blönduósi tók tvo ökumenn á 146 km hraða á Norður- landsveginum í V-Húnavatnssýslu í gær. Annar þeirra var aðeins 19 ára gamall. Munu þeir að öllum líkind- um missa ökuleyfi sitt, að sögn lög- reglunnar. Rammt kvað að hraðakstri í um- dæmi Blönduósslögreglunnar í gær, en á fjórum tímum síðdegis voru 19 ökumenn stöðvaðir á Norðurlands- veginum á 110-146 km hraða. Að sögn Þórs Gunnlaugssonar varðstjóra er slíkur hraði ekki mönnum bjóðandi og telur hann slíkt aksturslag valda stórhættu í umferðinni. Á einni viku, frá 7.-14. maí, hafði Blönduósslögreglan kært 74 öku- menn fyrir of hraðan akstur og á síðastliðnum mánuði er fjöldi öku- manna sem kærðir hafa verið fyrir hraðakstur orðinn 160. Að sögn lögreglunnar verður mjög stíft fylgst með hraðakstri á næstunni í Húnavatnssýslunni. ---------------------- Leikskóla- kennarar að yfirgefa BSRB REIKNAÐ er með að tillaga um allsherjaratkvæðagreiðslu um úr- sögn Félags íslenskra leikskólakenn- ara úr BSRB verði samþykkt á full- trúaráðsfundi félagsins í dag. Jafn- framt er búist við að samþykkt verði að láta samhliða fara fram allsherj- aratkvæðagreiðslu um aðild að nýju kennarasambandi sem er verið að stofria. Á fulltrúaráðsfundinum var verið að ræða undirbúning næstu kjara- samninga, sem renna út í lok ársins 2000. Björg Bjarnadóttir, formaður Félags íslenskra leikskólakennara, sagði að mikil óánægja væri innan félagsins með kjörin og harður tónn væri meðal félagsmanna. Mikið væri um yfirborganir í þjóðfélaginu sem skilaði sér ekki til leikskólakennara. Inn í þetta blandaðist skortur á starfsfólki, sem aftur leiddi tfl mikils vinnuálags í leikskólunum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.