Morgunblaðið - 15.05.1999, Blaðsíða 22
22 LAUGARDAGUR 15. MAÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
LANDIÐ
Morgunblaðið/Þorkell
STEFNT er að því að opna nýja baðaðstöðu Bláa lónsins um miðjan næsta mánuð en í
upphafi var ráðgert að opna staðinn í lok þessa mánaðar.
NÝJA baðhúsið er tvær álmur sem tengjast, í álmunni þar sem fólkið stendur verður veit-
ingastaður og verslun en í hinni álmunni verður sjálf baðaðstaðan, en hún verður á tveim-
ur hæðum og mun rúma um 700 gesti.
Unnið af fullum krafti við nýtt baðhús
Opnun Bláa lónsins seinkar
UNNIÐ er hörðum höndum þessa dagana við að forma sjálft lónið, en þar
sem nú standa vinnuvélar og malarhaugar verður Bláa lónið. Lónið mun
umlykja baðhúsið og ná upp að vegg þess sem sést hægra megin á mynd-
inni, þá mun vatnið rétt fljóta yfir efri kant bekkjanna sem sjást
hægra megin við skurðgröfúna, en í fjarska sjást svokallaðir kísilpottar.
UM 100 manns vinna af fullum
krafti við framkvæmdir á nýrri
baðaðstöðu Bláa lónsins á Reykja-
nesi. Upphaflega átti að opna í lok
mánaðarins, en því hefur nú verið
seinkað fram í miðjan júní.
I raun má líkja framkvæmda-
svæðinu við stórt baðkar sem búið
er að taka tappann úr, því þar sem
nú eru vinnuskúrar, malarhaugar,
vörubílar og nýtt baðhús var áður
lón í miðju hrauninu. Unnið verður
á svæðinu mestallan sólarhringinn
síðasta mánuðinn fyrir opnun.
Geysilega mikil framkvæmd
„Þetta er geysilega mikil fram-
kvæmd,“ sagði Bjarni Jónsson,
verkstjóri Verkafls sem sér um all-
ar framkvæmdir á svæðinu. „Nú er
verið að ljúka gerð innréttinga í
baðhúsinu og forma sjálft lónið,
búa til hella og ganga frá pottum
og sætum ásamt því að klára sjálf-
ar lagnimar í lóninu."
Inni í einum vinnuskúmum var
Skarphéðinn Guðmundsson að fá
sér kaffi, en hann vinnur við að
setja upp loftræstikerfíð í baðhús-
inu.
„Við emm að verða búnir, klár-
um sennilega á morgun," sagði
Skarphéðinn. Hann sagðist hafa
verið að vinna við nýja baðhúsið
frá því í nóvember sfðastliðnum og
að vinnudagurinn hefði að meðal-
tali verið um 10 til 12 tímar á dag.
Þótt Skarphéðinn vinni við lónið
sagðist hann ekki hafa farið í það
siðan hann var gutti enda kannski
óþarfi þar sem maðurinn hefúr í
raun unnið í lóninu undanfarna 7
mánuði.
Ekkert nema hraun þar
til baðhúsið birtist
Eftir að hafa klifrað upp
nokkra stiga og truflað mjög svo
önnum kafna menn við vinnu sína
var komið upp á þak og þá fór
myndin fyrst að skýrast. Uppi á
þessum manngerða sjónarhóli,
sem baðhúsið er, er útsýnið allt
annað en á jafnsléttunni. Klara
Halldórsdóttir, móttökustjóri Bláa
lónsins, lýsti síðan því sem fyrir
augu bar. Aðkoman að baðhúsinu
er um upphitaðan göngustíg sem
liggur í gegnum djúpa gjá. Hug-
myndin er sú, að sögn Klöru, að
gestir sjái ekkert nema hraun fyrr
en baðhúsið birtist allt í einu í
gegnum göngin.
I baðhúsinu verður aðstaða fyrir
rúmlega 700 manns, sem er mikil
breyting frá gamla baðhúsinu þar
sem aðeins rúmuðust um 200 tii
300 gestir í einu. I baðhúsinu, sem
er 2.700 fermetrar, verða einnig
veitingasalur, fundarsalur og
verslun.
Hið nýja Bláa lón mun síðan um-
lykja mest allt baðhúsið, en hlaðn-
ir verða hraunveggir í útjaðri
lónsins og einnig verða hrauneyj-
ar úti í lóninu. Botn lónsins verður
sléttur með sjávarmöl, en með
tímanum mun kisillinn setjast á
botninn og mynda gott undirlag
fyrir viðkvæmar iljar. Uti í lóninu,
sem verður hvergi meira en 1,4
metrar á dýpt, verða einnig kís-
ilpottar, gufuhellir og bekkir sem
fólk getur setið á og hvílt sig. Fyr-
ir framan baðhúsið verður sand-
strönd og að sögn Klöru mun
svæðið verða sannkallaður suðu-
pottur á sólríkum sumardögum
því skjól er fyrir flestum aðalvind-
áttum.
Frekar Bláa lónið en Benidorm
í gær fyrir hádegi voru nokkrar
rútur fyrir framan gamla baðhús-
ið, enda er staðurinn orðinn einn
mesti ferðamannastaður landsins,
en um 170.000 manns heimsóttu
staðinn á síðasta ári. Á bekk fyrir
framan lónið lá Friðrik Stefánsson
makindalega og sleikti sólina, en
Friðrik er einn af svokölluðum
fastagestum lónsins.
„Ég vil frekar vera hér en á
Benidorm, þetta er eins og að vera
á baðströndinni nema hér er vatn-
ið heitt,“ sagði Friðrik. „Staðurinn
er algjör perla, maður kemst í
ákveðna snertingu við náttúruna
því hér er ekki steyptur botn held-
ur leðja og steinar."
Klara sagði að flestir ferða-
mannanna væru frá Norðurlönd-
unum og meginlandi Evrópu. Hún
sagði að þótt aðsóknin hefði verið
mikil á síðasta ári væri búist við
enn meiri aukningu á næstu árum
í kjölfar hinnar nýju aðstöðu. Á
næstu árum er gert ráð fyrir því
að reisa hótel við nýja baðhúsið,
en áður en ráðist verður í þær
framkvæmdir verður tappinn sett-
ur í „baðkarið", þ.e. lónið fyllt af
vatni.
Elsta starfandi félag á fsafírði 108 ára
Jón Páll Halldórsson
gerður að heiðursfélaga
urkenningunni úr hendi Gísla Jóns Hjalta-
sonar, formanns félagsins.
fsafírði-Jón Páll Hall-
dórsson, fyrrverandi
framkvæmdastjóri á
ísafirði, var gerður að
heiðursfélaga Styrktar-
sjóðs verzlunarmanna í
Isafjarðarbæ á aðalfundi
hans sl. mánudag.
Sjóðurinn er elsta
formlega félag á ísafirði
sem enn starfar, verður
109 ára næsta vetur, en
nafii hans og tilgangur
hafa tekið breytingum i
samræmi við þarfir
nýrra tíma. Hann var
stofnaður 29. nóvember árið 1890, en
þá komu saman 29 verslunarmenn á
Isafirði og samþykktu ,Jög styrktar-
og sjúkrasjóðs verzlunarmanna í Isa-
fjarðarkaupstað og -sýslu“. Meðal
fimdarmanna voru flestir forystu-
menn í ísfirsku viðskiptalífi á þeim
tíma. Ami Jónsson, verslunarstjóri
hjá Ásgeirsverslun, mun hafa verið
helsti hvatamaður að stofnun sjóðsins
og hann var fyrsti formaður hans.
Ástæður þess að Jón Páll er gerð-
ur að heiðursfélaga sjóðsins eru þær
helstar, að í raun á hann heiðurinn af
því að félagið heldur enn lífi og veitir
styrki enn í dag. Hann sat í stjóm
sjóðsins sem gjaldkeri á sjöunda ára-
tug þessarar aldar, en þá lá starf-
semi sjóðsins að mestu niðri, höfuð-
stóllinn var rýr og meðstjórnendur
hans týndu tölunni. Þá tók Jón Páll
það upp hjá sér að kaupa vísitölu-
tryggð skuldabréf ríkissjóðs og síðar
hlutabréf í Eimskipafélagi Islands
og náði þar með að tryggja vöxt og
viðgang sjóðsins, þannig að nú
stendur höfuðstóll hans í um fimm
milljónum króna. Eins og kunnugt
er hafa flestir aðrir sjóðir frá þessum
ámm orðið verðbólgunni að bráð. Að
fmmkvæði Jóns Páls var félagið
endurmannað og því skipuð ný
stjóm fyrir fáeinum ámm.
Á aðalfundinum á mánudag var
einnig veittur styrkur úr sjóði félags-
ins. Styrkinn hlaut Bjöm Garðarsson
til rannsókna á áhrifum þeirra breyfi
inga, sem tölvur og veraldarvefurinn
(Netið) geta haft til góðs eða ills á
verslun á Vestfjörðum.
Stjóm þessa foma félags skipa
Gísli Jón Hjaltason formaður,
Dýrfinna Torfadóttir ritari og Guð-
mundur Kjartansson gjaldkeri.
V i - RwjU jk' M IA .jB Mh 1
Léku körfubolta í sólarhring
Hrunamannahreppi - Um 30
nemendur í 10. bekk Flúða-
skóla léku körfubolta í 24 tíma
um síðustu helgi. Þau voru að
safna peningum fyrir skóla-
ferðalag. Mörg fyrirtæki og
einstaklingar hétu á þau og
söfnuðu þessir ungu og efni-
legu íþróttamenn um 70 þús-
und krónum.
Nemendur í 10. bekk Flúða-
skóla eru 36, þau eru úr Hruna-
manna- og Gnúpverjahreppum
og af Skeiðum. Þau ætla að fara
síðar í mánuðinum í þriggja
daga ferðalag og kynna sér
hina stórbrotnu náttúrufegurð
sem Skaftafellssýslurnar bjóða
uppá. Einnig verður farið upp á
Vatnajökul og í siglingu út á
sjó.