Morgunblaðið - 15.05.1999, Blaðsíða 42
MORGUNBLAÐIÐ
42
LAUGARDAGUR 15. MAÍ 1999
HVAÐ KOSTAR DELLAN?
Stangveiði
Stangveiðimenn eru nú að búa sig undir
vertíðina og reyndar hafa margir þeirra
notað veturinn til að hnýta flugur, enda
fluguhnýtingar mikilvægur þáttur í lífí
margra þeirra. Sveinn Guðjónsson kynnti
sér kostnaðinn sem stangveiðin hefur í för
með sér og er þar miðað við að viðkomandi
stundi delluna af ástríðu og spari ekkert
til, án þess þó að bruðla um of.
MEÐ auknum frístundum
í nútíma samfélagi hafa
opnast ýmsir möguleikar
td að sinna hugðarefnum
sínum og áhugamálum. Ahugamálin
geta verið eins misjöfn og mennirnir
eru margir og hægt er að stunda
áhugaverða tómstundaiðju sem kost-
ar viðkomandi ekki nokkurn skapað-
an hlut, nema tímann sem í hana fer.
Önnur áhugamál eru umfangsmeiri
og geta kostað talsverð fjárútlát ef
menn viija stunda þau af reisn og al-
úð. Stangveiði er eitt þeirra og við-
komandi iðkandi þarf að koma sér
upp sérstökum útbúnaði til að geta
stundað sportið sér til gagns og
ánægju. Fjölmargar verslanir bjóða
upp á vörur fyrir stangveiðimenn og
í þessari umfjöllun er ein þeirra valin
af handahófí, en viðbúið er að svipuð
kjör séu í boði í öðrum verslunum,
sem hafa sérhæft sig í vörum fyrir
stangveiðisportið.
Stangveiðin er skemmtilegt sport
sem hefur á sér margar hliðar. Á
vetuma rifja stangveiðimenn upp
veiðisögur í góðra vina hópi, undir-
búa sig fyrir næstu vertíð og huga að
nauðsynlegri endurnýjun á veiðar-
færum og öðrum útbúnaði. Veiða-
færaverslanir bjóða stundum upp á
sérstök tilboð yfir veturinn, einkum
fyrir jólin, en að sögn Arnar Hjálm-
arssonar, verslunarstjóra í einni
veiðafæraversluninni á höfuðborgar-
svæðinu, er verðið þó tiltölulega
stöðugt allt árið um kring. Örn fór
með okkur um verslunina og valdi
þann útbúnað sem hann taldi nauð-
synlegan til að stunda veiðimennsk-
una með reisn.
Veiðarfæri og vöðlur
„Við byrjum á að fá okkur 13 feta
maðkastöng frá Daiwa, sem kostar
15.900 krónur. Með henni tökum við
Ambassadeur maðkahjól á 10.700
krónur,“ sagði verslunarstjórinn og
fer að sýna mér stengurnar. „Pá
verðum við að eiga vandaða flugu-
stöng og hér er ein 9,5 feta frá Sage,
lína 8, á 24.900 krónur með hjóli frá
Lamson, sem kostar 18.400 krónur.
Síðan verðum við að vera með kast-
stöng, sem einnig er notuð sem
spúnastöng, og hér er ein 9 feta,
Ugly Stick/Shakespeare á 8.840 með
hjóli frá Shimano á 6.990 krónur.
Með þessar þrjár stengur ættum við
að vera ágætlega græjaðir þótt auð-
vitað sé hægt að fá sér bæði ódýrari
og dýrari stengur. En þessar steng-
ur eru þær sem ég hef verið að seija
mest af að undanförnu."
Við snúum okkur því næst að vöðl-
unum, því án þeirra fer enginn í
veiðiferð. Þar kennir ýmissa grasa,
bæði hefðbundin klofstígvél og aðrar
nýstárlegri vöðlur og Örn velur vöðl-
ur frá Orvis úr „microfiber" útöndun-
arefni. „Þetta eru flottustu vöðlurnar
og verða sjálfsagt ofan á í framtíð-
inni,“ segir hann. „Þessar kosta
29.900 krónur og með þeim verðum
við að fá okkur vaðskó, einnig frá Or-
vis og tökum hér „Battenkill“ með
nöglum á 15.870 krónur. Það er hægt
að fá ódýrari skó naglalausa, en nagl-
arnir geta verið mjög gagnlegir og
koma í veg fyrir að menn renni til á
hálum árbotninum. En ef menn vilja
STANGVEIÐIN
er skemmtilegt
tómstundagaman,
sem hefur í för
með sér holla úti-
veru, en einnig
nokkurn kostnað.
VEIÐIHUFA
2.400
VEIÐIGLERAUGU
2.800
VEIÐIJAKKI OG VESTI
28.800
MARGIR nota veturinn til að hnýta flugur.
heldur hefðbundnar vöðlur þá má
benda á þessar neoprene-vöðlur á 20
þúsund krónur."
Fatnaður
Þá er það veiðivestið og sérstakur
jakki yfir og Öm velur vesti frá Sageá
9.800 krónur og veiðijakka á tæpar 19
þúsund. Þetta er auðvitað hægt að fá
í ýmsum gerðum með mismunandi
verði og eins nærfótin undir, en hér
er bent á nærbuxur frá Ullfrotte á
3.950 krónur og nærskyrtu á 4.950
krónur. Grifflur eru á verðbilinu 450
til 3.500 krónur. Veiðihatturinn, eða
húfan, er þýðingarmikill hluti af
„múnderingunni“ enda fylgir ákveðin
hjátrú oft höfuðfatinu, það er að
menn telja sig veiða betur ef þeir eru
með þennan hattinn en ekki hinn.
Höfuðföt eru þama í miklu úrvali og
við veljum húfu á 2.400 krónur.
Flugur og fylgihlutir
í bakherbergi verslunarinnar var
afgreiðslumaðurinn, Tómas
Skúlason, að hnýta flugur
og það leiðir um-
ræðuna að agninu, það er flug-
um, spúnum og möðkum. I
veiðiferðum verða menn að vera
vel birgir af slíku og kennir þar
ýmissa grasa. Frances-flugan er
alltaf vinsæl enda var Tómas að
hnýta eina slíka. Fleiri tegund-
ir mætti nefna og sæmilegt
flugubox með öllu kostar um
15 þúsund krónur og spúna-
box er hægt að fá á 4.000 til
5.000 krónur. Hins vegar er
verðið á möðkum afar mis-
munandi frá ári til árs og
fer eftir framboði og eft-
irspum. Þeir kosta þó
sjaldnast minna en 20
krónur stykkið, fara
upp í 80 til 100 krónur
stykkið í langvarandi
þurrkum, og lágmark
að fara með 100
maðka í túr. Að
sögn Amar selur
verslunin þó maðk-
HAFUR
4.000
KASTSTÖNG M/HJÓLI
15.800
MICROFIBER VÖÐLUR
29.900
FLUGUSTÖNG M/HJÓLI
43.300
VÖÐLUSKÓR
15.870
15.800