Morgunblaðið - 15.05.1999, Blaðsíða 2
2 LAUGARDAGUR 15. MAÍ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Framsóknarflokkurinn og formaður hans vilja að upplýst
verði hverjir stóðu að áróðursbæklingi
Innihélt „óhróður,
ósannindi og dylgjur44
LÖGMAÐUR Framsóknarflokks-
ins óskaði eftir því í gær með form-
legum hætti, fyrir hönd flokksins
og formanns hans, Halldórs As-
grímssonar, að íslandspóstur hf.
upplýsti hvaða einstaklingur kom
fyrir kosningar með bækling til
dreifíngar hjá fyrirtækinu og í um-
boði hvers, þar sem vegið var að
Halldóri og fleiri aðilum. Lögmað-
ur flokksins, Jón Sveinsson hæsta-
Tal með
samning
við Kanada
TAL hefur gert samning um
notkun GSM-síma í Kanada
og var opnað fyrir notkun
þeirra í gær. Tal er fyrsta ís-
lenska farsímafyrirtækið sem
býður upp á notkun GSM-
síma í Kanada. Samningurinn
er gerður milli Tals og
Microcell Connexions Inc.
Það býður þjónustu í öllum
helstu borgum Kanada, t.d.
Calgary, Montreal, Winnipeg,
Toronto og Vancouver.
Með þessum samningi
gefst viðskiptavinum Tals
kostur á að vera í sambandi
frá Kanada og verður hægt að
hringja beint í þá í Tal GSM-
númerið. Tal hefur nú gert
samninga sem veita fyrirtæk-
inu aðgang að 49 farsímakerf-
um í 34 löndum.
réttarlögmaður, óskar eftir skrif-
legu svari Islandspósts hið fyrsta,
en fyrirtækið hafði ekki svarað
munnlegri beiðni lögmannsins um
að fá þessar upplýsingar.
Bæklingurinn er fjórblöðungur
sem dreift var að hluta til fyrir ný-
liðnar alþingiskosningar fyrir milli-
göngu Islandspósts hf. og tilraun
mun hafa verið gerð til að dreifa í
mjög stóru upplagi. Jón segir að í
bæklingnum sé vegið að Halldóri
Ásgrímssyni persónulega með afar
ósmekklegum hætti, dylgjum og
órökstuddum og ósönnum fullyrð-
ingum.
Bæklingur ekki auðkenndur
„Jafnframt er sérstaklega veist
að Framsóknarflokknum og Finni
Ingólfssyni, iðnaðar- og viðskipta-
ráðherra, ríkisstjóminni í heild svo
og öðrum nafngreindum einstak-
lingum. I fjórblöðungnum kemur
ekki fram hver útgefandi hans er.
Ekki kemur heldur fram hver
ábyrgðarmaður hans er né hvar
hann var útbúinn eða prentaður.
Hann er með öðrum orðum ekki
auðkenndur á neinn hátt,“ segir
Jón.
Hann segir jafnframt að sam-
kvæmt munnlegum heimildum hafí
einstaklingur komið með bækling-
inn í verulegu upplagi til Islands-
pósts hf. stuttu fyrir alþingiskosn-
ingar og óskað eftir dreifingu hans.
Hafi viðkomandi einstaklingur
greitt dreifingarkostnaðinn sem
hafi numið nokkur hundruð þúsund
krónum. Nokkurt magn eintaka
mun síðan hafa farið í dreifingu.
Við nánari skoðun mun Islands-
póstur síðan hafa tekið ákvörðun
um að stöðva dreifingu bæklings-
ins, bæði vegna efnis hans og þeirr-
ar staðreyndar að hann var án
ábyrgðarmanns og með öllu nafn-
laus. í framhaldi af því muni sá sem
upphaflega kom með bæklinginn
hafa fengið það sem ekki fór í dreif-
ingu til baka, ásamt endurgreiðslu
á áður greiddu póstburðargjaldi.
Jón óskar eftir því að upplýst
verði hvenær komið var með bæk-
linginn til dreifingar og með hvaða
hætti var staðið að dreifingu hans
af hálfu íslandspósts. Jafnframt
óskast upplýst hvaða einstaklingur
kom með bæklinginn til dreifingar
og í umboði hvers.
Nafnleynd ekki eðlileg
„Þar sem hér eru á ferðinni mjög
ósmekklegar dylgjur og fullyrðing-
ar getur hvorki talist eðlilegt né
sanngjarnt að einstaklingar eða að-
ilar geti í skjóli hugsanlegrar við-
skipta- eða póstleyndar dreift nafn-
laust og fyrir milligöngu Islands-
pósts hf. hvers konar óhróðri,
ósannindum og órökstuddum dylgj-
um um menn og málefni. Þegar
slíkt á sér stað hlýtur að vega
þyngra réttur þess sem fyrir dylgj-
um og óhróðri verður um að fá upp-
gefið, án mikillar fyrirhafnar,
kostnaðarsamra rannsókna eða
dómsúrræða, eða hvors tveggja,
hver stendur að slíkri dreifingu,"
segir Jón.
Hann segir þrjár til fjórar kenn-
ingar á lofti um hver eða hverjir
stóðu að gerð bæklingsins og til-
rauninni til að dreifa honum í stóru
upplagi, en þær séu ekki þess eðlis
að hægt sé að tjá sig um þær að
svo stöddu.
I W .*»■ 1 I ^ |
1 I 'ÆJ* 1
Morgunblaðið/Ómar
Bág staða Kaupfélags Þingeyinga kynnt á fundi í Ýdölum
Ekkí greitt fyrir mjólkurinn-
legg og mikil óvissa ríkjandi
BÆNDUR í Þingeyjarsýslu eru slegnir eftir
fund í Ydölum í Aðaldal í fyrrakvöld þar sem
farið var yfir stöðu Kaupfélags Þingeyinga, KÞ,
en á fundinn mættu m.a. Eiríkur Jóhannsson,
kaupfélagsstjóri KEA, og Sigurður Sigurgeirs-
son, útibússtjóri Landsbanka íslands á Akur-
eyri. Fram kom á fundinum að ekki yrði greitt
fyrir innlagða mjólk í aprílmánuði og það sem af
er maí, en um er að ræða nær 20 milljónir króna
sem skiptast á um 90 heimili mjólkurframleið-
enda í sýslunni.
Kristín Linda Jónsdóttir, bóndi í Miðhvammi
í Aðaldal, sagði að mikils ótta gætti meðal
bænda í sýslunni, enda væri óvissan mikil, eng-
inn vissi hvemig mál myndu þróast. „Menn ótt-
ast að þessi bága staða KÞ muni draga dilk á
eftir sér og ljóst að margir bændur eiga í veru-
legum erfiðleikum. Það á við um yngri bændur
sem hafa verið að fjárfesta og mega því alls ekki
við því að missa þessar tekjur, við það bætist í
mörgum tilvikum að inneign þeirra í kaupfélag-
inu er frosin og menn eiga ekki fyrir áburði og
þá er þetta líka verulegt áfall fyrir bændur á
minni búum, sem margir sjá ekki hvernig þeir
geta unnið sig út úr þessari stöðu. Menn ræða
það hér í fullri alvöru að þetta verði til þess að
einhverjir gefist upp,“ sagði Kristín Linda.
Skrýtið ástand í sveitinni
Að sögn Lindu höfðu flestir bændur verið að
safna fyrir áburðarkaupum í vetur og hefðu
margir átti inni verulega fjárhæðir eða í kring-
um eina milljón. Þeir peningar væru frystir inni
í kaupfélaginu og staðan sú að bændur þyrftu að
kaupa áburð af KEA, en hefðu fæstir til þess fé.
„Það er svolítið skrýtið ástandið í sveitinni,"
sagði Kristín Linda í gær, „bændur geta varla
einbeitt sér að hefðbundnum vorverkum, þetta
er slíkt áfall, og vitanlega vilja menn bera sam-
an bækur sínar, þannig að það er mikið um
ferðalög milli bæja.“ Kristín Linda sagði lausa-
fjárstöðu margra bænda afar bága, þess væru
dæmi að menn hefðu allt sitt í kaupfélaginu og
tækju þar út vörur í reikning. Búið væri að loka
fyrir allt slíkt og því margir í vandræðum.
A fundinum var rætt um nýlegt lögfræðiálit
sem fyrir liggur en bændur telja að það stað-
festi eignarrétt þeirra sem leggja inn í mjólkur-
samlagið. „Það er því umhugsunarvert ef við
eigum að sætta okkur við að þessari eign okkar
verði ráðstafað án þess að við höfum nokkuð um
það að segja,“ sagði Kristín Linda.
■ Kaupfélag/44
Enginn vandi
LÍTILL stúfur lagði af stað í leið-
angur. Með kröftugu handtaki,
ákveðnum svip og eindregnu totti
á snuddunni komst hann að því
að það væri sko enginn vandi að
klifra upp í tré - ég kemst miklu
hærra ef ég bara vil! Trén við
Laugaveginn eru Iíka skemmti-
legri en búðargluggarnir.
-----♦♦♦-----
Klemmdist
milli krana og
vinnupalls
KARLMAÐUR var fluttur á slysa-
deild Sjúkrahúss Reykjavíkur eftir
vinnuslys við borholu á Nesjavöllum
síðdegis í gær. Hann hlaut brjóst-
áverka en er ekki talinn alvarlega
slasaður.
Verið var að hífa vinnupalla upp á
bíl með krana er slysið varð og er
talið að eitthvað hafi farið úrskeiðis
við hífinguna með þeim afleiðingum
að maðurinn klemmdist á milli kran-
ans og pallsins.